Norðurland - 07.12.1978, Page 1
NORÐURIAND
3. árgangur Fimmtudagur 7. desember 1978 43. tölublað
Aðalsteinn Sig-
valdason form. A1
þýðubandalags-
ins Raufarhöfn
Stjórn Alþýðubandalagsfé-
lagsins á Raufarhöfn hefur
nú skiþt með sér verkum og
er Aðalsteinn Sigvaldason
formaður.
Gjaldkeri er Sigurveig Bjöms
dóttir og ritari Jón Magnússon.
Meðstjómendur em Stefán
Hjaltason og Agnar Indriðason,
en til vara Líney Helgadóttir og
Jóhannes Bjömsson.
13u á árshátíðinni.
Árshátíð félagsins var haldin
laugardaginn 2. desember og var
vel heppnuð og mjög vel sótt,
þangað komu um 130 manns.
Var borðaður kvöldmatur, síðan
vom skemmtiatriði og hljóm-
sveitin Stuðlar frá Húsavík lék
fyrir dansi. - Líney.
Borgarar ræðast við í heita pottinum. Úr revíu menntaskólanema á
síðdegisstundinni.
Síðdegisstund MA nema
Nemendur Menntaskólans á
Akureyri hafa ákveðið að
bregða á það nýmæli þetta
árið að bjóða bæjarbúum að
sjá dagskrá sína frá 1. des-
ember og skemmta sér síð-
degisstund í skammdeginu
nk. laugardag 9. desember í
Samkomuhúsinu kl. 17.30.
Á undanförnum árum h, ir
mótast sú hefð að nemendur
setja saman dagskrá til flutnings
á árshátíð skólans 1. desember.
Vikum saman vinnur stór hópur
nemenda að því að semja efni,
yrkja ljóð, semja og setja út tón-
list, æfa leik, söng og dans.
Ávöxtur þessa starfs hefur svo
verið sýnur einu sinni, á árs-
hátíðinni, þar sem jatnvel á
sjötta hundrað áhorfendur koma
sér fyrir í sal Möðruvalla sem
með góðu móti rúmar tvö
hundruð manns.
Þessi dagskrá, sem nú verður
flutt bæjarbúum í Samkomu-
húsinu er mjög fjölbreytt, en
meginþáttur hennar er eins
konar revía þar sem horft er á
ýmsa atburði líðandi stundar í
gegnum brákuð gleraugu. Víst
er að eitthvað er þar við allra
hæfi, söngur, leikur og hljóð-
færasláttur.
Að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu hefur félagslíf ætíð
verið mikið í M.A., en að mati
kunnugra þó sjaldan eða aldrei
meira eða fjölbreyttara en nú.
Vááá... En sá munur!
Hún er þarna að skoða bónusseðilinn sinn, hún Hafdís Sverris-
dóttir á Dalvík, en þar hefur nýlega verið tekið upp bónuskerfi í
frystihúsinu. Skoðanir verkafólks um ágæti þess eru reyndar
skiptar, en frá þessari nýjung segir í OPNU.
Borinn enn einu sinni fastur
Besta holan og 52
miljónir í hættu!
Rétt einn ganginn hefur
hitaveituborinn fest að
Laugalandi og hefur nú
krónan ásamt 29 metrum af
Almennur borgarafundur
um miðbæjarskipulagiö
Almennur borgarafundur
um framtíðarskipulag mið-
bæjarins á Akureyri verður
haldinn á sunnudaginn
kemur í lok sýningar skipu-
lagsnefndar bæjarins á til-
lögum arkitekta um svæðið.
Sýningin verður haldin í
kjallara Möðruvalla, húsi
Menntaskólans á Akureyri og
verður opnuð föstudaginn 8.
des. kl. 16.
Um er að ræða þrjár megin-
tillögur að gerð miðbæjarskipu-
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Starfið framundan
Alþýðubandalagið á Akureyri
Félagsvist
verður spiluð 10. desemberí
stóra sainum, Lárusarhúsi.
Eiðsvallagötu 18, oq.hefst kl.
20.30 stundvíslega. Erlingur
Sigurðarson stjórnar vist-
inni. Góð verðlaun. Kaffiveit-
ingar í hléi. Félagar! Slakið á í
jólaundirbúningnum við kerti
og spil. Takið með ykkur
Félagsfundur
þriðjudaginn 12. desember
kl. 20:30 í Lðrusarhúsi. Dag-
skrá: Fréttir af flokksráðs-
fundi. Sagt frá sveitastjórna-
ráðstefnu Alþýðubandalags-
ins. Umræður.
Happdrættið
Þeir sem eftir eru að gera skii
í happdrætti Þjóðviljans og
Norðurlands eru beðnir að
drífa sig niður í Lárusarhús
milli kl. 5 og 7 fimmtudag.
föstudag eða laugardag.
Borgarafundur-sýning
Félagar ABA eru hvattir til að
sækja borgarafund um mið-
bæjarskipulag Akureyrar um
helgina. Fundurinn hefstkl.4
á sunnudag í kjallara Möðru-
valla, raunvísindadeild M.A.
lags sem lagðar verða fyrir
Skipulagsnefnd Akureyrar og
síðan bæjarstjóm. Er ætlunin að
bæjarstjóm samþykki nýtt deili-
skipulag að miðbæ á Akureyri í
upphafi næsta árs og farið verði
að vinna að skipulaginu næsta
vor. Sýningin á Möðruvöllumer
síðansti liður í kynningu Skipu-
lagsnefndar á miðbæjarskipu-
laginu.
Fundurinn hefst kl. 16 á
sunnudaginn í sýningarsalnum.
Verða þar arkitektarnir Harald-
ur V. Haraldsson og Svanur
Eiríksson, sem unnið hafa að
gerð tillagnanna, fulltrúar í
skipulagsnefnd og fulltrúar i
bæjarstjórn Akureyrar ásamt
bæjarstjóra, Helga M. Bergs.
stöngum fallið niður í hol-
una, að líkindum alveg niður
í botn.
Einsog áður hefur verið sagt
frá í NORÐURLANDI voru
miklar vonir bundnar við holu
12 að Laugalandi, en hún opnað-
ist á 1585 m dýpi og tók við allri
þeirri dælingu er í holuna var
hægt að dæla. Gaf þetta þær
vonir, að amk. 40 sek.lítrar gætu
nýst úr henni.
Holan var síðan dýpkuð niður
í 1610 metra, en illa gekk að ná
bornum upp og nú er hann
fastur á 1080 metrum síðan fyrir
helgi.
Sérfræðingar frá Orkustofnun
vom alla helgina á fundum með
hitaveitunefnd Akureyrar og við
störf inn á Laugalandi til að gera
sér grein fyrir ástandi mála og
leggja á ráðin með framhaldið.
Af því sem helst er talið koma til
greina verður byrjað á að steypa í
skápa í holum og var það verk
hafið á miðvikudag.
Vonast er til að takast muni að
bjarga holunni, því auk þess sem
verkið hefur þegar kostað um 52
miljónir, þá var þetta hola, sem
lofaði mjög góðu.
Hitaveitan hefur tryggt sér
bordælur fyrir næsta ár, en mjög
langur afgreiðslutími er á þess-
um dælum.
Bæjarmálaráð AB
Húsavík stofnað
Miklar umræður urðu um
ástand bæjarmála á aðal-
fundi Alþýðubandalagsins á
Tónleikar á
Húsavík
Aðventutónleikar voru haldnir
sl. sunnudag í Húsavíkurkirkju.
Kirkjukórinn söng undir stjórn
Sigríðar Schiöth og Bamakórinn
undir stjóm Hólmfríðar Bene-
diktsdóttur skólastjóra Tónlist-
arskólans. Tónleikamir voru vel
sóttir og undirtektir góðar. -
Ben.
Benedikt Sigurðarson.
Húsavík, sem haldinn var sl.
sunnudag, 3. des., og var
ákveðið að bæta vinnubrögð-
in með stofnun bæjarmála-
ráðs ásamt óháðum.
Fjárhagsáætlun bæjarins verð
ur til umfjöllunar á næstunni og
verða haldnir fundir í bæjar-
málaráðinu útaf því. Reyndar er
fjárhagur bæjarins þannig, að
fjármagni er að mestu leyti ráð-
stafað fyrirfram.
Formaður félagsins var kjör-
inn Benedikt Sigurðarson og
varaformaður María Kristjáns-
dóttir, en með þeim í stjórn eru
Sigurður Sigurðsson, Jón Er-
lendsson og Leifur Baldursson
og í varstjórn Snædís Gunn-
laugsdóttir, Snær Karlsson og
Helgi Bjarnason. - Ben.
•K* Bólgur, og þó einkum sú
nýjasta, eru viðfangsefni
Starra í Garði.
Sjá síðu 3.
Leikdómur um Heiðurs-
borgara á Húsavík.
Sjá síðu 3.
Rústir og flök - Einkafram-
tak á Norðurlandi.
Leiðari á síðu 4.