Norðurland - 07.12.1978, Síða 7
OSIGRAR I
BLAKINU
IÞRÓTTIR
Atján runnu full-
veldishlaup UMFS
milli Dalvíkur og Akureyrar
Hér í blaðinu var fyrir
skömmu sagt frá fyrirhug-
uðu boðhlaupi UMFS til að
vekja almenning og yfírvöld
til umhugsunar um þörfína á
bættri aðstöðu fyrir íþrótta-
fólk á Dalvík.
Þetta hlaup, svokallað full-
veldishlaup UMFS, fór fram
sunnudaginn 3. des. Átján ung-
mennafélagar tóku þátt í því.
Hlaupið hófst á Dalvíkkl. lOf.h.
og var hlaupið að íþróttaskemm-
unni á Akureyri og til baka aftur.
Komið var að íþróttahúsinu á
Dalvík kl. 17.30 og endað á að
hlaupa hringinn í kringum hús-
ið, en áður en lagt var af stað til
Akureyrar um morguninn var
hlaupinn stór hringur um bæ-
inn.
Þegar heim var komið af-
hentu hlaupararnir Helga Jóns-
syni, forseta bæjarstjórnar, bréf
sem þeir höfðu hlaupið með. I
því er lögð áhersla á uppbygg-
ingu íþróttamannvirkja á Dal-
vík, svo að viðunandi aðstaða
fáist. Helgi lýsti yfir ánægju
sinni með bréfið og kvaðst
mundu kynna bæjarstjórnar-
mönnum efni þess á næsta fundi.
Blm. NORÐURLANDS var
á endastöð þegar hlauparar
komu í höfn, og þótti mönnum
vel hafa tekist til. Voru þeir hinir
hressustu og komu saman til
kaffidrykkju í Víkurröst í lokin.
Fyrir þá sem ekki þekkja vega-
lengdina milli Dalvíkur og Ák-
ureyrar má geta þess, að hún er
um 45 km og munu hlauparar
hafa farið alls um 100 km. -
Stefán.
U.M.S.E. háði tvo leiki í 1.
deildarkeppninni í blaki hér
fyrir norðan um helgina.
Þeir voru gegn U.M.F.I. sem
samanstendur af menntskæl
ingum og nemendum Iþrótta
kennaraskóla Islands að
Laugarvatni.
Báðir fóru leikirnir fram í
íþróttahúsi Glerárskóla og þeim
lyktaði einnig á sama hátt eða
með 3-1 sigri Laugvetninganna.
Það má með sanni segja að um
tvísýna og spennandi keppni
hafi verið að ræða í öllum hrin-
unum í þessum leikjum. Oft á
tíðum vantaði aðeins herslu-
muninn hjá Eyfirðingunum og
virtist skorta meiri ákveðni og
djörfung í leik liðsins.
KA-drengirnir léku í annarri
deildinni gegn Breiðabliki úr
Kópavogi og máttu þola ósigur í
öllum þremur hrinunum.
I.M.A. lék einnig gegn Breiða-
bliki og hinir ungu sveinar úr
menntaskólanum hlutu sömu
örlög og Akureyrarliðið, en
klóruðu aðeins í bakkann þ.e.
náðu að vinna eina hrinu.
I.M. A.-stúlkurnar hittu fyrir of-
jarla sína þar sem Völsungur frá
Húsavík var. Völsungar höfðu
mikla yfirburði og unnu 3-0.
Póstur og sími
Akureyri
Starf skrifstofumanns á umdæmisskrifstofu Pósts
og símamálastofnunarinnar á Akureyri er laust til
umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 22. des. nk.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Póst- og
símamálastofnunarinnar í Hafnarstræti 102.
Umdæmisstjóri.
Ráðgjöf
Leigjendasamtökin veita öllum leigjendum
ókeypis ráðgjöf og upplýsingar.
Eyðublöð fyrir húsai^ígusamninga fást á
skrifstofunni sem er opin alla virka daga
frá kl. 1-5 e.h.
Leigjendasamtökin
Bókhlöðustíg 7, Reykjavík.
Sími 91-27609.
um störf
mmmr um
mmmm i m
W mm
. . .
'*
.' i-Q-
.
.
|f §;
■ ■ V ■ ..
. ._. 'm.
nna felur í sér féla^
x
14
t *
★ Sam
■
........................................................................................:
'
.
.
NORÐURLAND - 7