Norðurland - 25.01.1979, Síða 3

Norðurland - 25.01.1979, Síða 3
Sverrir Páll Erlendsson menntaskólakennari: LÍF EÐA DA VÐI Stattu gleiður, svolítið hokinn í hnjánum en þó reistur, brjóstkassann fram, horfðu fram í salinn, þó ögn upp. Vertu stífur. Talaðu hátt með hásum rómi, láttu ekki eins og þú sért að tala við einhvern heldur eins og þú sért að halda ræðu í roki og rigningu á 17da júní og magnarakerfið sé bilað. Ef þú hreyfir þig skaltu arka í sífellu og reglulega þr jú skref fram og þrjú skref aftur. Þetta er galdurinn. - nokkrar hugleiðingar um leikhús hér og nú Þegar ég kom frá því að sjá leikrit Guðmundar Kambans, Þess vegna skiljum vér, hjá Leikfélagi Akureyrar i haust var ég niðurbrotinn maður. Það eina sem mér varð til svars þegar ég var spurður hvernig verið hefði var að nú hefði verið stigið stórt skref aftur á bak, árafjöld aftur í tímann i öllu er viðvék tækni, leik og sviðsetningu. Stirðleg og vandræðaleg stofusýning þar sem jafnvel var áberandi það viðvaningsbragð að leikendur virtust einbeita sér að því að standa á réttum punkti á sviðinu þegar þeir sögðu setninguna sína. Það var allt og sumt. Ekkert virtist gert til að gæða efnið lífi eða færa það skaplega upp fyrir áhorfandann. Þetta var mikil afturför frá þvi sem ég hafði áður séð reynt á þessum stað. Þetta var fyrsta framtak nýrrar stjórnar Leikfélagsins, stjórnar sem þóttist koma sem bjarg- vættur eða „slysavarnarlið“ (P.G.) og ætla að bjarga félag- inu úr einhverjum ímynduðum klóm. Hugsanlega klóm þess fólks sem hafði lagt nótt við dag til að byggja upp ALVÖRU- atvinnuleikhús. Fólksins sem byrjaði á því að reyna að treysta fjárhagsgrundvöllinn og aflaði þeirra styrkja sem nú er moðað úr. En hvert er næsta átakið? Það má sjá á fjölunum þessa dagana. Skugga-Sveinn. Með hliðsjón af því svo og áður- nefndri sýningu hlýtur glöggur maður að fá hugboð um stefn- una. Sýna bara Skugga-Svein. Það er þjóðlegt. Það er Matthías. Hann var hér prestur og það er glermynd af honum í kirkjunni. Fólk hlýtur að koma. Enginn kann við annað en að sjá þetta fornfræga glansnúmer. Það má bóka góða aðsókn hvort sem gagnrýnendur skrifa hallelúja- greinar fyrir kurteisissakir eða óþægir strákar fara að gagnrýna sýninguna, jafnvel segja frá því hvemig þetta er í raun og veru án þess að breiða klút fyrir andlitið. Já, aðsóknin verður örugglega mikil. „Maður kann ekki við annað en að sjá Skugga-Svein þó að sagt sé að þetta sé léleg sýning", sagði kona við mig um daginn. Og í skjóli aðsóknar- innar gæti stjórnin hæglega hampað pappírum og sagt: „Þarna sjáið þið, þetta er það sem fólkið vill sjá“. Það er töfra- setning íhaldssamra leikhúsa^ þetta „það sem fólkið vill sjá“. I versta falli er framhaldið á þá leið að nú skuli bara drífa upp hitt gamla dótið, Nýársnóttina, Eyvind, Munkana og hvað það heitir allt saman og stinga svo inn á milli einstöku kassastykkj- um eftir Arnold og Bach. Þá er takmarkinu náð. Þá er búið að brjóta niður þann anga af leik- listarsmekk sem smám saman hefur verið að vaxa síðustu fimm til tíu árin. Gjörið svo vel, lágkúr an lifi. Ekki er að undra þótt slíkar hugleiðingar verði þegar sjást afurðir leikársins- hingað til. Sýningin á Skugga-Sveini er því miður hláleg. Ymislegt hjálpar þar til, ekki sist leikstjórnin en auk þess sviðið svo og leikurinn. Nú eru 117 ár síðan Þjóðólfur dásamaði fegurð hins þjóðlega efnis Útilegumannanna og hið ljósa og lipra málfar. Árið 1979 erum við varla slík forneskju- viðundur að geta tekið í sama streng. Málið hefur á þessum árum tekið breytingum og ýmis- legt sem þá hefur þótt ljóst og lipurt kemst illa til skila nú. Og þótt Útilegumennirnir hafi þótt gott verk 1862 og Skugga- Sveinn hafi fullmótast með einhverjum breytingum 1898, þá er þetta verk frumraun í leikritun, byggir ekki á neinni hefð og er auk þess með ógrynni byrjendagalla. Leikritið er raun- ar svo mikið barn síns tíma að það á harla lítið erindi til okkar nú nema með lagfæringum og svo náttúrulega boðlegri upp- setningu. Stytta þyrfti leikritið og liðka textann og gera hann eðlilegri og skiljanlegri. Hvað sem annars má um Matthías segja verður því seint neitað að hann var fremur maður magns- ins en gæðanna. í inngangsorðum þessarar greinar er sagt nóg um svið - setningu og framsögn í Skugga- Sveini Leikfélagsins. Seint trúi ég því að leikstjóri gefi slíkar fyrirskipanir en engu var þó líkara að því er sjá mátti hjá flestum þeim er á sviðinu voru. Allt gekk hægt, var stirðbusa- legt og líflaust. Fæstir virtust hafa áhuga, - eða getu -, til að gera neitt eðlilega. Leikrænir tilburðir og túlkun manngerða, sem tveir eða þrír brugðu fyrir sig, verkaði sem ofleikur innan í þessari trékarlasýningu. Mikið misræmi kom fram í samspili sviðs og búninga. Svið- ið var einfalt, og það er í sjálfu sér kostur, en betur hefði þurft að vanda gerð þess. Það er til dæmis verulega truflandi að sífellt skuli snúið að áhorfend- um handarhöldum á kössum sem eiga að tákna kletta, björg og grasbrekkur. Auk þess var eins og skartbúið fólkið væri í vöru- skemmu en ekki á fjöllum. Skartið og finheitin í klæðaburði átti ekki heima á sviði af þessari gerð. Auk þess má benda á þá hlægilegu framsetningu að fólk skuli klífa fjöll og klöngrast um kletta í sínum fínustu spariföt- um og geta þetta án þess nokkurs staðar sjáist blettur eða hrukka, jafnvel ekki á glæsibúnu stúlk- unni sem hrapar fyrir björg, eða því sem næst. Eða það sem hlægi legast er að klæða svartskítuga útilegumenn í glænýjar, tandur- hreinar og fagurlega sútaðar túristagærur frá SÍS. (fóru úti- legumennirnir kannski í spari- fötin að gefnu tilefni?) Þannig mætti endalaust tína til smá og stór atriði sem eru í hróplegri andstöðu við það sem kalla má vandaða leiksýningu. Hér veður allt uppi í fúski og öðrum slíkum vinnubrögðum sem ekki eru sæmandi leikhúsi sem vill standa undir nafni, svo ekki sé líka minnst á hugtakið atvinnuleikhús. Svona lagað gengur ekki lengur. Ein sýning af þessu tagi á áratug er nóg en hvað á maður að halda þegar búið er að demba yfir mann tveimur svona nauðaómerkileg- um sýningum á einum vetri? Og hvað tekur við? Eftir að hafa séð þessi tvö leikrit, sem minnst hefur verið á hér, hljóta að vakna spurning- ar um það hvað stjórn félags- ins sé að gera, hvers vegna hún láti það viðgangast að ekki sé unnið betur en gert er. Og hvar í ósköpunum er leikhússtjórinn, hvert er hlutverk hans og hvers vegna stoppar hann þetta ekki? Hvers vegna láta leikararnir hafa sig í að leika í hverju stykkinu á fætur öðru sem ekki stendur undir nafni? Hvar er sjálfs- virðing þeirra? Hver og hvar er virðing leikhússins sem stofn- unar, eða er öllum sama þótt siglt sé beinustu leið inn í lág- kúruna og starfið þar með gert marklaust og tilgangslaust? Ekki kann ég svör við þessum spurningum en eitt er víst að ef ekki verður gripið í taumana og snúið af þessari vonlausu braut þá bíða leikhússins dimmir dag- ar. Og í lokin má enn minna á að það-sem-fólkið-vill-sjá- stefnan er blekking og vísasti vegurinn til að svæfa þessa starfsemi svefninum langa. IO.L’79. Sverrir Páll. vió brúum bilió ámilli íslands og umheimsins Skip á vegum Eimskips koma a annaó þúsund sinn- um t meira en 100 hafnir i yfir 20 löndum á hverju ári. Meó þviaóveitavióskiptavinum sinpm svo fjolbreytta moguleika á öruggri og þægilegri þjónustu stuólar Eimskip aó bættum tengslum íslands vió hinn vió- sjóleióín er Ódýrari skiptalega umheim. J y HF EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS Auglýsið í Norðurlandi Flugáhugamenn Bóklegt námskeið fyrir einkaflugmannspróf hefst 1 febrúar. Upplýsingar og innritun í síma 21824. Flugfélag Norðurlands hf. x------------------------------------------------------. Leikfélag Akureyrar Stalln er ekki hér Sýningar fimmtudag og föstudag. Skugga- Sveinn Sýningar laugardag og sunnudag kl. 16.00. Aðgöngumiðasalan er opin kl. 17-19 daglega og kl. 17-20,30 kvöldsýningardagana. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Starfið framundan Alþýðubandalagið á Akureyri Stjórnarfundur ABA mánudag kl. 20.30. Málfundafélag ABA. Fundur fimmtudaginn 1. febr. kl. 20.30. Umræðuefni: Eldhúsmellur Guðlaugs Arasonar. Framsaga: Ingibjörg Jónasdóttir. Enn geta félagar bæst í hópinn. Bæjarmðlaráð ABA. Aukafundur föstudaginn 2. febr. kl. 20.30. Fundarefni: Fjárhagsáætlun Akureyrar 1979. Nefndarmenn ABA eru sérstaklega beðnir að mæta. - Allir félagar ABA eiga rétt á setu í bæjarmálaráði. Allír fundirnir eru I Lárusarhúsi. NORÐURLAND - 3

x

Norðurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.