Norðurland - 08.02.1979, Blaðsíða 7
IÞROTTIR
Nú er það trimmið
íþróttasamband íslands hef-
ur falið Skíðasambandi ís-
lands að vinna að aukinni
þátttöku almennings í skíða-
íþróttinni. Hefur SKÍ nú
ákveðið hvernig unnið verð-
ur að bessu máli.
í því tilefni var boðað til
blaðamannafundar þar sem
kynntar voru fyrirhugaðar að-
gerðir og þátt einstakra aðila í
þeim. Ákveðið var, að í fyrstu
yrði áhersla einkum lögð á
skíðagöngu og svig. í tengslum
við skíðatrimmið hefur SKÍ
gefið út þrennskonar merki: 1.
SKÍ stjörnu, sem sá sem hafið
hefur skíðatrimm hefur rétt til
að kaupa. 2. Áfangamerki, sem
menn vinna til með því að safna
kílómetrum í sinni grein. 3. SKÍ
merkið sem menn vinna til með
þátttöku í trimm-mótum, ef
þeir ná ákveðnum lámarks-
árangri. Hvort sem mönnum
líst svo betur að safna kílómetr-
um, eða taka þátt í keppnum,
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Útboð
Hitaveita Akureyrar óskar eftir tilboðum í þenslu-
barka þenslustykki og loka í dreifikerfislagnir.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu Hitaveitunn-
ar gegn 5000 kr. skilatryggingu. Tilboðum skal
skilað til Hitaveitu Akureyrar, Hafnarstræti 88b,
fyrir 28. febrúar 1979.
HITAVEITA AKUREYRAR.
PISTILL
VIKUNNAR
Þak á tölu
,,í morgun stóð Mogganum í
að menn séu að kvarta undan því,
að verðbótaþakið
sé brunnið, og brakið
sé brúkað í kaupránslög á ný."
Svo er mér tjáð að nafni minn Sigtryggsson frá
Svalbarði hafi ort á haustdögum, um það þak sem nú er
orðið allra þaka frægast. Ýmsir vilja ekkertþak. Þaðeru
þeir sem vel eru fæddir og skæddir og því best færir að
ganga úti með hrossum í haga. Hinir eru þó fleiri og
eiga skemmra á verganginn, sem vilja hafa þök alls
staðar - líka yfir verðbólgunni. Óskir þessara manna í
kafaldsbyl verðhækkana um skjól í formi verðbóta á
laun hafa nú um langa hríð verið að setja samfélagið á
annan endann, ríkisstjórnin riðað til falls, og fellur
kannski áður en þessi mánuður er allur.
„Samningana í gildi" hafa menn hrópað í varnar-
stríði sínu. En hvaða samninga, og hvernig samninga?
Hafa samningar um kaup og kjör á íslandi aldrei farið úr
böndunum, og þeir borið mest úr býtum sem meira
höfðu fyrir? Hvers virði er hinn „frjálsi samnings-
réttur" þegar þvílíkur leikur er leikinn?
En nú er best að snúa sér aftur að þakinu sem varð
kveikjan að þessum skrifum mínum, og ástæðum þess
að ég vil ekki búa í þaklausu þjóðfélagi.
Fyrir nokkru barst nér fagnaðarerindi í formi
fréttabréfs BHB. Það er nú einn krossínn sem á mann er
lagður að lenda inni í þess háttar félagsskap, og geta
ekki fengið sig lausan. - Allir verða að vera í „Verka-
lýðsfélagi". Hér er líka komið að „samningunum í
gildi".
Eins og menn væntanlega muna var Reykjavíkur-
íhaldið ekki fyrr fallið en það snerist gegn verðbóta-
þakinu títtnefnda og taldi hin örqustu svik við
eiga þeir svo möguleika á að
vinna til afreksbikars SKÍ á 25
árum. Er þetta kerfi sniðið að
norskri fyrirmynd.
Þá verður fötluðum gefinn
kostur á að taka þátt í skíða-
trimminu og verða vegalengdir
sem þeir leggja að baki marg-
faldaðar með 2. Ef um það
mikla fötlun er að ræða að hinn
fatlaði verður að notast við
sleða má margfalda vega-
lengdina með 5. Annars lúta
þeir sömu reglum og aðrir.
Tilgangurinn með þessu
skíðatrimmi er að hvetja fólk til
aukinnar útivistar og væntan-
lega þá að uppskera meira
heilbrigði. í þessum tilgangi
verður efnt til útivistardags, eða
trimmdags, sunnudaginn 18.
febrúar. Þá mun Skíðaráð
Akureyrar ásamt ýmsum öðr-
um aðilum, svo sem skátum,
Skíðamiðstöðinni í Hlíðarfjalli,
Skógræktinni og Ferðafél. Ak-
ureyrar, gangast fyrir ýmsu því
sem verða má til að hvetja fólk
til útiveru og landskoðunar.
Hermannsmótið verður haldið
í Hlíðarfjalli, gönguferðir skipu
lagðar og margt fleira. Svo er
bara að halda áfram trimminu
sér til heilsubótar og hressingar.
í Hlíðarfjálli verður haldið
opnum göngu- og svigbrautum
og er væntanlegur aukinn tækja-
kostur til þeirra hluta. Þar er og
hægt að fá leigð skíði bæði til
göngu og svigs og er sjálfsagt að
benda þeim sem ekki hafa
komið sér upp búnaði á þessa
þjónustu. Skíðakennsla fer einn*
ig fram í fjallinu, bæði einkatím
ar og hópkennsla. Stólalyftan er
opin til kl. 18.45 virka daga og
til 17,30 um helgar. Aðrarlyftur
eru opnar til 21,30 virka daga og
til 17,30 um helgar.
Stöðugt er unnið að gerð
trimmbrautar í Kjarnalandi. Á
veturna er þar áícjósanleg að-
staða til skíðagöngu og verða þar >
tvær göngubrautir mislangar,
sem upplagt er að trimma í. Þá
vetur og gefist vel, svo sem
skautaunnendum hér í bæ er
kunnugt.
Ferðafélag Akureyrar mun
.einnig taka virkan þátt í trimm-
herferðinni. Á þess vegum hefur
farið fram leiðsögn í skíða-
göngu og notkun áburðar.
Hefur áhugi á skíðagöngu vaxið
mjög innan félagsins að undan-
eru hér þrjú skautasvell og það
fjórða væntanlegt á Þórsvell-
inum í Glerárhverfi. Hefur
Garðrækt Akureyrarbæjar ver-
ið falin umsjón með svellunum í
alþýðuna. Fyrir öllu því pusi beygði svo vor ástkæri
meirihluti sig og svipti þakinu burt nú um áramótin. En
hverra eru hagsbæturnar. Lítum aðeins á þær
upplýsingar sem mitt hjartfólgna „verkalýðssam-
band" hafði að flytja.
Ef ég væri orðinn 32 ára og þar með kominn í efsta
þrep 105. launaflokks BHM (sem ég er í) hefði ég á
mánuði kr. 276.101 í laun. Væri ég starfsmaður
Reykjavíkurborgar hefði ég 8 - átta - krónum meira.
Væri ég hins vegar 11 launaflokkum ofar sem
ríkisstarfsmaður hefði ég hins vegar í mánaðarlaun
377.333 kr. (rúmlega 100 þús. hærra) en félagi minn
hjá Sigurjóni, öddu Báru o.Co. er þar kominn 30.000
kr. hærra (408.587). Og ef við förum svo í efsta flokk
BHM þá er munurinn orðinn yfir 50.000 krónur á
mánaðarlaununum.
Ég spyr því: Hvaða samningar eru það sem áttu að
fara í gildi? (Munurinn er sambærilegur BSRB
töxtum). i hverra þágu er það að ekki sé margumrætt
þak á verðbótum? Hvenær ætla menn að læra að hætta
að fara jafnheimskulega með hinn margumtalaða
frjálsa samningsrétt? Ég sagði heimskulega. Annað
orð get ég ekki notað um það vísitölukerfi sem gefur
félaga Jóni verkamanni 10.000 krónur í verðbætur
þegar maturinn sem við þurfum að kaupa hækkar um
5-6%. Mér færir vísitalan hins vegar 15.000 krón-
ur og þeim sem komnir eru 100 þúsundum
hærra í kaupi 20.000 krónur í verðbætur. „Vont er
þeirra ranglæti en verra er þeirra réttlæti."
Nú er sótt mjög að vísitölunni og vilja sumir skera
hana alveg af þjóðarflíkinni, sem hvort eð er hangir
varla saman. Afnám vísitölukerfisins er síst láglauna-
fólki til bóta í óðaverðbólgu. > ví hljótum við að leggja
kapp á að halda því við. En'eigum við ekki að vera
sammála um að þörf sé á að breyta verðmælingar-
ákvæðum þess, eða a.m.k. að banna mönnum aðfara
þannig með hinn „frjálsa samningsrétt" að útkoman
verði í líkingu við það sem að framan greinir?
förnu. Á trimmdaginn verður
einnig boðið upp á gönguferðir,
langar og stuttar, erfiðar og
léttar.
Hér á landi hafa almennings-
íþróttir átt nokkuð erfitt upp-
dráttar, a.m.k. ef borið er
saman við önnur Norðurlönd.
Vafalaust á hin mikla vinnu-
þrælkun sem hér hefur við-
gengist, alltof lengi, sinn þátt í
þvi. Er vonandi að ef vinnutími
verður manneskjulegri þá auk-
ist áhugi á almenningsíþróttum.
í þjóðfélagi okkar er öllum
nauðsyn að viðhalda jafnt
líkamlegu sem andlegu atgerfi í
baráttunni. Þá er bara að hvetja
alla unga sem aldna til að taka
þátt í trimminu. - TJ.
Húseigendur
athugið!
Kennara vantar íbúð
nálægt Lundaskóla. Hafið
samband strax í síma
24329 eftir kl. 17.
Gísli Ingvarsson.
Leikfélag
Akureyrar
Stalín
Sýningar fimmtudag,
föstudag, laugardag
og þriðjudag kl. 20.30.
Skugga-Sveinn
Sýning sunnudag kl. 16.
Aðgöngumiðaslan er op-
in daglega kl. 17-19.
Og kl. 17-20.30, kvöld-
sýningardagana.
NORÐURLAND - 7