Norðurland - 23.05.1979, Side 6
NORÐURLAND
Miðvikudagur 23. maí 1979
MÁLGAGN SÓSÍALISTA GERIST
I NORÐURLANDSKJÖR- ÁSKRIFENDUR
DÆMI EYSTRA - Síminn er 2-18-75 -
AUGLÝSIÐ í
NORÐURLANDI
- Síminn er 2-18-75 -
Leikfélag Akureyrar:
Skrítinn fugl - ég sjálfur
Húsavík:
Á föstudagskvöld frumsýnir Leik
félag Akureyrar enskan gaman-
leik, „Absurd Person singular“
sem í íslenskri þýðingu Kristrún-
ar Eymundsdóttur hefur hlotið
nafnið: Skrítinn fugl - ég sjálfur.
Höfundurinn Alan Ayckbo-
urn er velþekktur gamanleikja-
höfundur og í vetur hefur
Leikfélag Reykjavíkur sýnt eitt
verka hans, ærslaleikinn Rúm-
rusk, við góðar undirtektir
áhorfenda. Margt er líkt með
þessum leikritum, þau sýna
okkur inn fyrir gættina hjá
þremur fjölskyldum og draga
fram smáborgaraleg viðhorf
þeirra á hinn háðulegasta hátt.
Að sögn þeirra sem að sýning-
unni vinna var það misráðið að
fela ekki Haga hf. að gera
leikmyndina sem samanstend-
ur að mestu úr þíemur eldhús-
innréttingum. Þó slíkur hlýhug-
ur gagnvart aðkrepptum iðn-
aði bæjarins sé virðingarverður,
þykir Hallmundur Kristinsson
komast vel frá þessu verki.
Leikstjórinn Jill Brooke Árna-
son er leikhúsgestum hér að
góðu kunn frá því að hún setti
upp Hungangsilm hjá Leikfé-
laginu í fyrra. Hún er Englend-
ingur og má með sanni segja að
enskur andi svífi yfir vötnum í
þessari sýningu. Leikendur eru
sex talsins, þau Theódor Júlíus-
son, Sigurveig Jónsdóttir, Svan-
hildur Jóhannesdóttir, Viðar
Eggertsson, Gestur E. Jónasson
20 leiguíbúðir
Hefðbundin hlutverk húsmæðra xpa framan í áhorfendur í ærslaleiknum.
og Þórey Aðalsteinsdóttir. Fyr-
irhugað er að sýna leikritið
eitthvað fram yfir næstu mán-
aðarmót. Þessi kvikindislega
fyndni farsi á áreiðanlega eftir
að laða leikhúsgesti að í þús-
undatali, svo ekki er ólíklegt að
Ljósm. T. J.
hann verði tekin til sýninga
aftur næsta haust. í júníbyrjun
mun leikfélagið taka til æfinga
barnaleikritið Galdrakarlinn
frá Oz undir leikstjórn Gests
Jónassonar.
Sigurveig þjarmar að Viðari í Skrítna fuglinum.
Hundruð milj. kr. fyrirtœki:
Húseiningaverksmidja
á Húsavík
Húsavík 22/5. Atvinnumála-
nefnd hefur frá í vetur til
athugunar stofnun og rekstur
húseiningaverksmiðju eftir hönn-
un Hafsteins Olafssonar. Haf-
steinn kom til furidar við
Byggingarnefnd og Atvinnu-
málanefnd staðarins og í fram-
haldi af því var sett sérstök
nefnd í málið. Niðurstaða þeirr-
ar umfjöllunar var á þá lund, að
Ásmundur Ásmundsson verk-
fræðingur og stjórnunarfræð-
ingur var fenginn til að skoða
plön Hafsteins og gefa umsögn
þar um.
Skýrsla Ásmundar liggur nú
frammi almenningi til sýnis.
Verksmiðja sú sem um ræðir á
að geta framleitt einingar í
einbýlishús, raðhús og fjölbýl-
ishús. Áætlaður stofnkostnaður
er um 300 millj. og gert er ráð
fyrir 75 millj. í hlutafé. Rekstr-
aráætlun gerir ráð fyrir fram-
leiðslu 70 húsa á fyrsta ári
verksmiðjunnar og síðan 100
hús næstu ár miðað við 110 m2
hús. Rekstraráætlun miðuð við
núverandi aðstæður sýnir já-
kvæðar niðurstöður og er sann-
arlega allrar athygli verð. Gert
er ráð fyrir að fyrirtækið borgi
sig mikið til upp á fimm árum,
sem telst tæplega langur tími
miðað við það sem gerist og
gengur. Atvinnumálanefnd hef-
ur boðað til almenns fundar til
undirbúnings að stofnun fyrir-
tækis um húseiningarverk-
smiðju á Húsavík innan
skamms. Á þann /und munu
mæta Ásmundur Ásmundsson
höfundirr skýrslunnar og Haf-
steinn Olafssonhönnuðurfram-
leiðslunnar. Hvað gerist það er
erfitt að sjá fyrir, en ólíklegt er
að stofnun slíks fyrirtækis verði
hafnað, þar sem hagkvæmni er
mikil í verði og flýti samkvæmt
framleiðsluáformum. Ben.
Húsavík 22/5. Hafin er bygging
20 leiguíbúða og verður það verk
unnið af Helga Valdimarssyni
byggingarverktaka úr Garðabæ.
Tilboð Helga hljóðaði upp á um
310 milljónir en það var um 45
millj. kr. lægra en eina tilboðið
sem barst frá heimaaðila.
Hvort verkið verður í megin-
atriðum unnið af heimamönn-
um er annað mál, en harkalegt
verður að telja að stór verk á
borð við þetta ganga þeim úr
greipum, þegar litið er til þess að
minni gróska verður í íbúðar-
byggingum nú en undanfarin
ár. I vetur var úthlutað lóðum
undir 7 íbúðir en nokkrir sem
hófu byggingar í fyrra virðast
vera að bogna undan þeirri
byrði. Hverju fram vindur, er
of snemmt' að spá, - en líklegt
má telja að hægt verði að fá
iðnaðarmenn til þeirra starfa,
sem þeir hafa ekki fengist til að
sinna fyrir öðru feitara sem
undanfarið hefur boðist. I gangi
eru byggingar við dvalarheimili
aldraðra, dagheimili og Fisk-
iðjusamlagið. Auk þess verða
nokkrar framkvæmdir hjá
Kaupfélaginu svo ekki er um
algjöra ördeyðu að ræða. Þær
íbúðir, sem nú er hafin bygging
á, eru 12 og eiga þær að
afhendast 1. maí 1980. Þær 8
íbúðir sem eftir eru eiga síðan að
afhendast ári síðar. Meðalverð á
íbúð er ca. 17 millj. til skila en
þær eru 2ggja, 3ggja og 4ra
herbergja. Lán frá Byggingar-
sjóði að 80% fylgja með 9,75%
vöxtum og verðbindingu að
60% af byggingarvísitölu. Svo
geta menn reiknað um hvílík
kostakjör er að ræða. Ben.
Akureyri:
Hitaveituframhvcemdir
Á sameiginlegumfundi vatns-
veitu og hitaveitu í síðasliðinni
viku var samþykkt að sækja
sameiginlega lóð fyrir
um
starfsemi fyrirtækjanna. Var
ákveðið að sækja um lóð
sunnan spennistöðvar á Rang-
árvöllum.
Þetta má teljast merku áfangi
í tilraun til samræmingar og
sparnaðar í rekstri bæjarfyrir-
tækjanna. Utboð hafa verið
opnuð í fjóra dreifikerfisáfanga
Lítil unglingavinna
Á Húsavík horfir heldur illa með
atvinnu unglinga í sumar, - eink-
um stúlkna á aldrinum 15-16
ára. Verkalýðsfélagið stendur
fyrir athugun á horfunum dagana
21.-23. maí og verður trúlega
tekin ákvörðun um aðgerðir í
framhaldi af því.
Bærinn hefur á undanförnum
árum skipulagt unglingavinnu
að 16 ára aldri einkum við
hreinsun gatna og opinna
svæða. Einhvernveginn hefur
skipulag þeirrar vinnu verið
með þeim hætti, að krakkarnir
líta ekki á hana sem alvöru
vinnu, enda er hún greidd með
færri krónum en önnur vinna
sem jafnaldrar þeirra hafa stund
að. Óviðunandi er fyrir alla
aðila ef krakkarnir hafa ekkert
fyrir stafni, slíkt verður aðeins
til að skapa annan vanda og
verður því að grípa til víðtækari
skipulagningar, áður en skaðinn
er skeður. Ben.
á Eyrinni og neðra þorpinu og
verktakar samþykktir að þess-
um verkum. Útboð í miðlunar-
geymi fyrir efra þrýstisvæði
hefur verið opnað, en ákvörðun
um verktaka ekki tekin ennþá
(þriðjdaginn 22. maí), nema í
jarðvinnu og undirstöðu.
Borunarmál standa þannig
sem stendur, að borinn Glaum-
ur er á hægri niðurleið í holunni
við Ytri-Tjarnir og von er á
bornum Narfa frá Blönduósi á
næstunni. Hvar hann fer að
bora er ekki endanlega ákveðið.
Til marks um bjartsýni í vatns-
öflunarmálum er búið að
ákveða að fresta framkæmdum
við kyndistöð að minnsta kosti
fram á næsta sumar. BIS.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Opið hús
í Lárusarhúsi sunnudaginn 27. maí kl. 3.00.
Sjá annars staðar í blaðinu.
Aðalfundur ABA
þriðjudaginn 29. maí kl. 20.00 í Lárusarhúsi.
Opið hús
Opið hús verður í Lárusar-
húsi, Eiðsvallagötu 18, á
sunnudaginn 27. maí kl.
15.00. Þar mun Steinar
Þorsteinsson segja frá ný-
stofnuðum Neytendasam-
tökum á Akureyri. Að
vanda verða kaffiveitingar
og kræsingar á borðum.
í takt við tóna
Hrísey 21/5. Laugardaginn
19. maí var árshátíð starfs-
fólks KEA í Hrísey. Sóttu
samkomuna allt að 80
manns. Voru miklar kræs-
ingar á borð bornar og
meðan borðhald stóð yfir
voru ýmis skemmtiatriði
sem samkomugestir voru
þátttakendur í. Að lokum
fór hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar á kostum i
nokkra klukkutíma. Iðkaði
fólk margbreytilegar og
flóknar líkamsæfingar í
takt við tóna. Allir fóru
glaðir heim og lifa nú sælir í
endurminningunni.
Guðjón.
Netin á ný
Dalvík 21/5.Netaveiðibátar
héðan byrjuðu að leggja net
sín í dag, en þeirra neta-
veiðibann gilti frá 13.-20.
maí. Bátarnir leggja netin á
heimasjóðum og í Skaga-
firði. Óttar Jakobsson út-
gerðarstjóri sagði að útlitið
væri ekki gott vegna
slæmrar veðráttu og eins
vegna íssins á Þistilfirði,
þar sem bátarnir eru vanir
að vera á þessum árstíma. I
dag er verið að meta fisk á
Ítalíumarkað.
Brynja.
Mœðublístur
sl. mánudag
Um hálfáttaleytið á
mánudagskvöldið hrein í
bíltíkum nokkurra Akur-
eyringa í mótmælaskyni við
hátt bensínverð. Bilablístur
þetta var að tilstuðlan
Félags ísl. Bifreiðaeigenda,
sem vildi mótmæla „bensín-
okri ríkisstjórnarinnar“.
Hætt er við, að margir hafi
látið glepjast af sam-
hengislausu suði FÍB um
okur ríkisstjórnarinnar.
Þessi mótmæli minntu um
margt á vörubílastjóramót-
mælin í Chile á síðustu
dögum Allendes, því þaðer
mála sannast, að hlutur
ríkisvaldsins hér af bensín-
verði er síst meiri en í
nágrannalöndunum. Hins
vegar taka auðhringarnir, -
olíufélögin meira en
nokkru tali tekur af þessu
verði. Hefði nú ekki verið
nær að stinga á því kýli, -
krefjast þjóðnýtingar oliu'
og bensíndreifingar í stað
þessa hríns á mánudaginn?
Neytenda
samtökin
Neytendasamtökin Akur-
eyri og nágrenni.
Skrifstofan, Skipagötu
18, 2. hæð, er opin á
þriðjudögum og miðviku-
dögum kl. 4.00-6.00 e.h.
Sími 24402.
Ferðafélag
Akureyrar
Vaglaijall gönguferð sunnu-
daginn 27. maí kl. 13.00.
Þátttaka tilkynnist á laugar
dag kl. 6-7 sími 22720.