Norðurland - 18.10.1979, Side 6

Norðurland - 18.10.1979, Side 6
Nokkrar ályktanir 9. þings V.M.S.I. Frá þingi V.M.S.Í. Guðmundur J. í ræðustól. Eflum fræðslu- starfsemina 9. Þing Verkamannasam- bands íslands telur að ekkert sé verkafólki nauðsynlegra til að halda hlut sínum í harðri lífsbaráttu, en skilningur á auknum samtakamætti og stétt- vfsi í verkalýðshreyfingunni. Til þess að unnt sé að lyfta félagslífi hreyfingarinnar og þar með baráttumætti hennar, er óhjákvæmilegt að auka fræðslu, þjálfun og þar með áhuga verkafólks á eigin hagsmuna- málum. Ekkert verkalýðsfélag er sterkt, sem ekki hefur virkt trúnaðarmannakerfi. En til þess að auka skilning á nauðsyn þess, þarf aukna fræðslu bæði trúnaðarmanna og félags- manna almennt. Þingið telur, að hægt hafi miðað í uppfræðslu hins al- menna félagsmanns um sín hagsmuna- og réttindamáls. Hinsvegar hefur margt áunnist í fræðslu trúnaðarmanna sbr. trúnaðarmannanámskeiðin skv. ákvæðum gildandi kjarasamn- inga, sem mörg verkalýðsfélög hafa haldið. Þingið hvetur félögin til að efla þetta starf sem mest þau mega. Þingið ákveður, að verja einni milljón króna á árinu 1980 og hlutfallslega sömu upphæð 1981 til erindisreksturs, svo og útgáfu fréttabréfs og annárar upplýsingamiðlunar. Það sé haft að leiðarljósi, að þjónusta þessi nái til allra félagsmanna VMSÍ. Kjaramálaályktunin: Kaupmátt Sólstöðusamn inganna - Verðbætur miðist við miðlungslaun Ályktun vegna bamaárs Kjarasamingar þeir sem gerðir voru sumarið 1977 gjörbreyttu til hins betra launakjörum, jafnframt því sem fylgt var fram stefnu verkalýðssamtakanna um aukinn launajöfnuð. Um- talsvert skref var stigið í átt til launajöfnunar innan Alþýðu- sambands fslands, en þessi markaða stefna ASÍ varð hins vegar ekki ráðandi alls staðar í þjóðfélaginu. Ýmsir tekjuháir hópar utan Alþýðusambands- ins náðu mun meiri launa- hækkunum. f byrjun árs 1978 gripu stjórnvöld til ráðstafana sem skertu þá samninga sem gerðir höfðu verið. Samtöklaunafólks í landinu boðuðu til alsherjar- mótmælaverkfalls 1. og 2. mars og Verkamannasamband ís- lands snérist harkalegast gegn þessum ráðstöfunum með út- flutningsbanni og öðrum að- gerðum. Óþarft er að rekja gang þeirra mála, en vegna ráðstaf- ana sinna gegn launafólki féll ríkisstjórnin í síðustu kosning- um. Þegar ný ríkisstjórn hafði verið mynduð með stuðningi verkalýðshreyfmgarinnar, voru miklar vonir bundnar við at- vinnuöryggi, að kaupmáttur yrði tryggður, launajafnrétti aukið, félagslegar umbætur auknar og sterk ítök verkalýðs- hreyfingarinnar í ríkisvaldinu tryggð. Skerðingarlög gömlu ríkisstjórnarinnar voru afnum- in og ýmsar mikilsverðarfélags- legar umbætur settar í lög, og enn fleiri undirbúnar. Þegar líða tók á þetta ár fór hins vegar að halla á kaupmátt verkafólks. Fyrirsjáanlegt varð, að samn- ingum yrði að segja upp um næstu áramót. Við brottför ríkisstjórnar- innar eru margar blikur á lofti. Vinnuveitendasambandið er hatrammara en nokkru sinni fyrr og vonast til að fá nýja ríkisstjórn sér hliðholla. Stefna Vinnuveitendasambandsins hef ur legið skýr fyrir, - atvinnulífið þoli ekki núverandi kaupmátt, afnema beri að mestu vísitölu- bætur á laun og gera enga þá samninga sem bæti kjör verka- fólks. Verkamannasambandið gerir sér grein fyrir að ekki virðist möguleikar á stórfelldum kjara- bótum, en stefnan í komandi kjarasamningum hlýtur að verða sú, að ná og treysta þann kaupmátt sem samningarnir frá 1977, óskertir, gera ráð fyrir að viðhalda fullri atvinnu. Verkamannasamband ís- lands telur brýnt að í komandi samningum verði verðbótakerf- ið notað til launajöfnunar, þannig að á allt kaup verði greidd sú krónutala sem verð- tryggi miðlungskaup að fullu. Jafnframt leggur Verka- mannasambandið áherslu á að tryggðar verði félagslegar um- bætur sem leiði til aukins jafn- aðar og þjóðfélagslegs réttlætis: Sambandið ítrekar þá fyrri stefnu sína, að kjarabætur er hægt að tryggja með fleiru en beinum kauphækkunum. Verkamannasamband ís- lands lýsir því yfir að ekki mun verða þolað að gildandi laga- ákvæði um aukna skerðingu lægstu launa verði látin koma til framkvæmda, en að óbreyttum lögum er stefnt að því að lág- tekjufólkfái 9%kauphækkun 1. desember n.k. og hærra launað- ir 11%. Verkamannasamband- ið krefst þess að þessi skerð- ingarákvæði laganna verði af- numin. Verkamannasamband fs- lands skorar á öll aðildarfélög sín að beita styrk sínum og sam- heldni gegn öllum tilraunum til að skerða kaupmátt og réttindi verkafólks. Slíkri viðleitni verða öll samtök launafólks að mæta af fyllstu hörku. Verka- mannasambandið minnir á, að hlutverk þess er að bæta kjör og þjóðfélagsstöðu láglauna- fólks í landinu og herða verður baráttuna fyrir auknu launa- jafnrétti. Verkamannasamband ís- lands hvetur því til allsherjar samstöðu innan Alþýðusam- bands íslands um kjarabætur, þar sem fyrsta boðorðið verður að vera, að lægstu launin sitji í algjöru fyrirrúmi. 9. þing Verkamannasambands íslands lýsir yfir stuðningi sín- um við tillögur barnaársnefnd- ar ASÍ og hvetur til þess að eftirtalin atriði verði tekin upp í kröfugerð í komandi samn- ingum: 1. Launagreiðslur til foreldra í veikindum barna. 2. Þriggja mánaða fæðingar- 9. þing Verkamannasambands ísland ítrekar fyrri samþykktir varðandi brottför hersins og úr- sögn íslands úr NATO. Jafn- framt fordæmir þingið kylfu- orlof á fullum launum, sem greiðist af almannatrygg- ingum. 3. Fullnægt verði þörf fyrir dagvistunarþjónustu með skipulögðu átaki, þannig að markið náist innan sjö ára. 4. Settar verði strangar skorð- ur við vinnutíma barna og unglinga. barsmíðar lögreglunnar á frið- sömum mótmælendum í Sunda höfn á dögunum. (Samþ. með yfírgnæfandi meirihluta.) NORÐURLAND óskar að ráða mann til að taka að sér aug- lýsingaöflun fyrir blaðið, gegn prósentum. Upplýsingar á skrifstofu NORÐURLANDS, Eiðsvallagötu 18, sími 21875. r Landsráðstefna herstöðvaandstæðinga | Samtök herstöðvaandstæðinga miðnefnd leggja fram skýrslu ir hádegi sunnudagsins 4. nóv. _ ■ halda landsfund dagana þriðja um starfið á liðnu ári og rætt leggja starfshópar fram álit og Jj | og fjórða nóvember n.k. og fer um starfsáætlun næsta árs. Að fara síðan fram umræður, af- ■ ■ hann fram í Félagsstofnun kvöldi þriðja nóvember verður greiðsla ályktana og kosningar m | stúdenta . við Hringbraut í haldin kvöldvaka en morgun- miðnefndar. ■ Reykjavík. Þar mun starfandi inn eftir funda starfshópar. Eft- Island úr Nató! Herinn burt! 6 - NORÐURLAND

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.