Norðurland - 18.10.1979, Blaðsíða 7
Flokks-
ráðsftindi
frestað
Ákveðið hefur verið að fresta
flokksráðsfundi Alþýðubanda-
lagsins sem fram átti að fara
um miðjan nóvember. Ekki
hefur verið ákveðið hvenær
fundurinn verður haldin en
hugmyndir eru uppi um að
halda hann í desemberbyrjun.
Vegna kosningaundirbúnings-
ins þótti ekki fært að halda
hann á áður ákveðnum tíma.
Rauði kross íslands - Akur-
eyrardeild. Skrifstofa deildar-
innar er til húsa að Skólastíg 5,
gengið inn að austanverðu.
Síminn er 24803 og skrifstofan
er opin fyrir hádegi alla virka
daga.
Almennir heimsóknartímar
á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri erufrá kl. 15-16ogl9-20
alla daga. - Hjúkrunarforstjóri.
Leikfélag
Akureyrat
Galdrakarlinn
íOz
Leikstjórl:
Gestur E. Jónasson.
Leikmynd: Ragnar Lár.
4. sýning laugardag kl. 17.
5. sýning sunnudag kl. 15.
Aðgöngumiðasalan eropin
föstudag kl. 17-19 og
klukkutíma fyrir sýningu.
Sfmi 24073.
Leikfélag Akureyrar.
Fundað um
tónlistarmál
Stjórn Tónlistarfélags Akureyr-
ar hefur ákveðið að halda fund
um tónleikahald og tónlistar-
starf, að Hótel Varðborg sunnu
daginn 28. október kl. 16.
Stjórnum og formönnum
kóra og hljómsveita hefur verið
boðið á fundinn. Einnig tón-
listarkennurum og öðrum þeim
sem á einn eða annan hátt
tengjast málinu.
Af þessu tilefni hringdi
NORÐURLAND í Jón Hlöðve
Áskelsson skólastjóra Tónlistar
skólans, til þess að fregna nánar
um tildrög þessa fundar.
Jón sagði að undanfarin ár
hefðu verið haldnir sex til sjö
tónleikar árlega, auk tónlistar-
daga. Reynt hefði verið að hafa
dagskrá tónleikanna fjölbreytta
til að koma í veg fyrir sam-
keppni þeirra sem að þessum
málum vinna.
Áhyggjuefni er hve fáir sækja
tónleika. Það verður eitt aðal-
efni fundarins að ræða hvernig
auka megi tónlistaráhuga í bæn -
um, og samvinnu þeirra sem að
þessum málum vinna.
Þeirri spurningu verður varp-
að fram hvernig skólar, félögog
einstaklingar geti sameinast um
að tryggja áframhaldandi blóm-
legt tónleikahald á Akureyri.
Hvernig breyta megi vinnu-
brögðum til að auka áhuga
bæjarbúa fyrir starfseminni. Til
dæmis hefur mönnum dottið í
hug að tengja saman námskeiða
og tónlistarhald, sagði Jón að
lokum.
Philip Jenkins, Einar Jóhannesson og Guðný Guðmundsdóttir.
ZONTA
Zontaklúbbur Akureyrar hefur
látið gera veggspjald í tilefni
Barnaárs S.Þ. Vilja Zontakon-
ur vekja athygli á hættum þeim,
sem börnum eru búnar í um-
ferðinni, ekki síst í skammdeg-
inu. Veggspjaldið er unnið af
Teiknihönnun KG á Akureyri
og verður því dreift víða um
landið.
Guðný, Philip, Einar
Forvitnilegir tónleikar
í Borgarbíói á Akureyri
Einar Jóhannesson, klarinett-
leikari, Guðný Guðmundsdótt-
ir fiðluleikari og Philip Jenkis
píanóleikari. flytja mjög for-
vitnilega og skemmtilega tónlist
á öðrum tónleikum Tónlistar-
félags Akureyrar næstkomandi
laugardag 20. okt. í Borgarbíói
kl. 17.
Öll hafa þau áður leikið á
vegum Tónlistarfélagsins við
góðar undirtektir og ágæta
aðsókn.
Á tónleikunum flytur Einar
Jóhannesson sónötu fyrir klari-
nett eftir Brahms, en Einar
hefur nýverið hlotið Soning
verðlaunin fyrir frábæra
frammistöð''. á sitt hljóðfæri.
Guðný Guðmundsdóttir leikur
fiðlusónötu í a-moll eftur Schu-
mann, en Guðný er sem kunn-
ugt er konsertmeistari Sinfóníu-
hljómsveitar fslands. Philip
Jenkis leikur á píanó í öllum
verkefnum tónleikanna, en auk
fyrrnefndra verka, flytja þau
tríó eftir Vanhall, Charles Ives
og Kachaturinan.
Þeirri eindregnu áskorun er
komið á framfæri, að fólk liggi
ekki á liði sínu, og fjölmenni á
tónleikana, því án áhuga og
góðraraðsóknar er ekki unnt að
halda reglulega tónleika á
Akureyri.
Forsala aðgöngumiða er í
bókabúðinni Huld og við inn-
ganginn 1. klst. fyrir tónleika.
PISTILL
VIKUNNAR
Lummu-
bakstur
Flokksforingjarnir áttust við í sjónvarpinu á
dögunum. Þar áttu eftirfarandi orðaskifti milli
Geirs Hallgrímssonar og Helga Heigasonar
fréttamanns sér stað. Norðurland telur að hér
séu gamlar lummur bakaðar af svo mikilli leikni
úr súrri soppu að ástæða sé til að gefa
lesendum kost á að bragða á hinu gómsæta
bakkelsi enn um sinn.
- Er Sjálfstæðisflokkurinn með nýja efna-
hagsstefnu á prjónunum í þeirri kosningabar-
áttu sem fram undan er, eða verður kosið um
sömu efnahagsstefnu og fylgt var í fyrrverandi
ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks.
Geir: Sjálfstæðisflokkurinn hefur unnið að
mótun nýrrar efnahagsstefnu og birtir hana
undir fyrirsögninni Endurreísn i anda frjáls-
hyggju. Um þessa stefnuskrá voru miklar
blaðadeilur, ágætar blaðadeilur að því leyti til
að þar var með rökum vegist á og þessar deilur
upplýstu ýmsar hliðar í stefnumótun Sjálf-
stæðisflokksins og voru jákvæðar fyrir Sjálf-
sfæðisflokkinn. Með þessari stefnu vill Sjálf-
stæðisflokkurinn brjóta blað. Það hefur sýnt
sig, reynslan hefur sýnt að þau ráð sem
ríkisstjórnir og þar á meðal játa ég líka
ríkisstjórn sú er ég veitti forstöðu og ég ætla
ekki endilega að kenna samstarfsflokkunum
um það, þau ráð duga ekki. Og því meir sem
ráðum eins og verðlagshöftum, eins og alls
konar útþenslu á ríkisútgjöldum, aukin skatt-
heimta á landsmenn, því minni líkur eru til þess
að við náum tökum á verðbólgunni. Við
Sjðlfstæðismenn viljum draga úr ríkis-
afskiptum úr ríkisútgjöldum tíl þess að
auka rððstöfunarfé borgaranna. Við
viljum að frjðlsir kjarasamningar eigi
sér stað, með þeim hætti að bððir aðilar
vinnumarkaðarins beri ðbyrgð ð þeim
en hlaupi ekki eftir gerð óraunhæfra
samninga í faðm ríkisvaldsins til þess
að ríkisvaldið með aukinni seðlaprent-
un geri þessa samninga ð pappírnum í
krónutölu framkvæmaníegra, en með
þeim ðrangri að hver króna missir gildi
sitt óðum eins og reynslan hefur sýnt.
Þegar á þessum áratug að verðlag hefur
hækkað um 900% eða eitthvað þar um bil og
kaupmáttur kanski ekki aukist nema um 9%.
Þetta er árangur sem er óviðunandi og þessi
ríkisforsjárstefna hún hefur einmitt leítt til þess
að hagvöxtur og hagur almennings hefur ekki
batnað eins og vera ber og við höfum öll skilyrði
til. Við eigum að marka stórhuga stefnu, við
eigum að hef ja ný ðform í stóriðjufram-
kvæmtfum, f beisiun okkar fallvatna,
við eigum að nýta orkuna sem nú fer tii
sjðvar óbeisluð og ónotuð og olían er
hvað dýrust, við eigum að marka
bjartsýna stefnu, treysta ð einstakling-
inn og hugvit hans og framkvæmda-
vilja. Þetta er auðvitað ekki fyllileg greinar-
gerð varðandi stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins.
En Sjálfstæðfsflokkurinn hefur birt sína stefnu-
skrá mun skýra hana betur og útfæra hana
betur á þeim vikum sem eftir eru til kosninga.
A UGL ÝSIÐ í NORÐ URLANDI — SKRIFIÐ í NORÐ URLAND
NORÐURLAND - 7