Norðurland - 18.10.1979, Blaðsíða 8
NORÐURLAND
Fimmtudagur 18. október 1979
MÁLGAGN SÓSÍALISTA
f NORÐURLANDSKJÖR-
DÆMI EYSTRA
GERIST
ÁSKRIFENDUR
- Síminn er 2-18-75
AUGLYSIÐ I'
NORÐURLANDI
- Síminn er 2-18-75 -
m
Enginn fulltrúi bæjarins í stjórn
Þrátt fyrir þriðjung hluta^ár
1 Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar
Ólafsfjarðar bær á 30-40%
hlutaijár í Hraðfrystihúsi Ólafs-
fjarðar. Bærinn á þó engan
mann í 3 manna stjórn hlutafé-
lagsins.
Eftir þvi sem NORÐUR-
LAND kemst næst eru fulltrúar
bæjarins útilokaðir frá stjórn
Hraðfrystihússins í krafti laga-
greinar um hlutafélög þar sem
segir að engin einn hluthafi geti
farið með meira en 1/5 saman-
lagðra atkvæða ífélaginu. Hinir
hluthafarnir hafa tekið sig sam-
an um að hindra kjör fulltrúa
bæjarins í stjórnina.
Þessi háttur var þó ekki
hafður á meðan sjálfstæðis-
menn höfðu meirihluta í bæjar-
stjórn. Þá átti bærinn fulltrúa í
stjórn Hraðfrystihúsins.
Af þessu tilefni fletti blaða-
maður upp í lagasafni frá 1965
en þar stendur á bls. 2404: „Afl
atkvæða ræður á hluthafa fund-
um nema öðruvísi sé kveðið á í
samþykktum. Enginn hluthafi
getur þó farið með meira en 1/5
samanlagðra atkvæða í félag-
inu, nema eigendur hlutabréf-
anna séu ríkið eða ríkisstofnan-
ir, sveitafélög, stofnanir þeirra
eða samvinnufélög.“
NORÐURLAND hafði sam-
band við Pétur Má Jónsson
bæjarstjóra um þetta mál. Hann
vildi sem minnst gera úr því.
Sagði að varafulltrúar (bærinn
á einn) væru alltaf kallaðir á
fundi stjórnarinnar. Hann kvað
rétt vera að nokkur hiti hefði
verið í mönnum um tíma út af
þessu máli. Var á honum að
heyra að kulnað væri í þeim
glæðum.
Þá talaði NORÐURLAND
við Sigvalda Þorleifsson stjórn-
arformann í Hraðfrystihúsi
Ólafsfjarðar. Sigvaldi sagði að
það væri rétt ða núverandi meiri
hluti í bæjarstjórn ætti ekki full-
trúa í aðalstjórn H.Ó. Að-
spurður sagði hann að það væri
kannski ekki eðlilegt en það
stæði til að fjölga í stjórninni
um tvo á næsta fundi, sem verð-
ur væntanlega í nóvember. Fær
bærinn þá sennilega fulltrúa í
aðalstjórn. Sigvaldi tók við
stjórn hlutafélagsins fyrir tveim
árum og á þeim tíma hafa vara-
fulltrúar alltaf setið fundi með
sama rétti og aðalfulltrúar.
„Svolítill hiti var í mönnum
út af þessu máli fyrir kosningar
^en ekki lengur“, sagði Sigvaldi
að lokum.
Eftir sem áður stendur að
bæjarfélagið sem á 30-40%
hlutafjár, á ekki mann í aðal-
stjórn félagsins. Blaðið hefur
fregnað að annar af tveim full-
trúum sem fjölgað verður um á
næsta fundi - verði úr hópi
verkafólks sem vinnur við hrað-
frystihúsið.
Þess má geta að Hraðfrysti-
hús Ólafsfjarðar rekur einnig
beinaverksmiðju og á þriðjung i
togaranum Ólafi Bekk. Bærinn
j /i og Magnús Gamalíasson síð-
asta þriðjunginn.
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar.
Frá Raufarhöfh
Fram á þennan dag hefur verið
ekið á niðurgröfnum troðning-
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Starfið framundan
Félagsfundur
verður haldinn fimmtudaginn 18. október kl. 20.30 í Eiðsvallagötu 18.
DAGSKRA:
1. Málefni Norðurlands.
2. Kynntar tillögur um forvalsreglur til framboðs.
3. önnur mál.
Félagarl Mætið vell
Stjórnin.
Kjördæmisþing
Alþýðubandalagsins
i Norðurlandskjördæmi eystra
verður haidið í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, Akureyri, laugardag og sunnu-
dag 20. og 21. október n.k.
DAGSKRA:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Forvalsmál.
3. Atvinnu- og verkalýðsmál.
4. Útgáfumál.
5. önnur mál.
Þingið sett klukkan 14 á laugardag.
Stjórnin.
Bæjarmálaráðsfundur
mánudaginn 22. október kl. 20.30 í Eiðsvallagötu 18
Aríðandi að allir nefndarmenn mæti. „ .
Stjórnin.
um um mestallt Norðaustur-
landið. Samgöngur hafa oft ver-
ið mjög slæmar á veturna og
gert þá ófæra. Oft hefur verið
fyrirkvíðanlegt að hristast í hol-
um og aursvaði frá Raufarhöfn
yfir Sléttu. En í sumar var byrj-
uð uppbygging vegarins yfir
Sléttu og víðar á Norðaustur-
landi. Það verk mun verða okk-
ur Raufarhafnarbúum minnis-
varði um þá stjórn sem var að
láta af völdum alveg eins og
kaup togarans Rauðanúps er
minnisvarði um vinstri stjórn-
ina gömlu.
Vegaframkvæmdirnar hafa
gengið vel og er ætlunin að
byggja upp veginn að Æðar-
vatni í haust. Vegurinn verður
hækkaður upp fyrir sunnan bæ-
inn, fram á flugvöll og í svo-
kallaða Ytri-Hálsa.
í síldarverksmiðjunni er
loðna brædd dag og nótt og er
enn fyrir höndum tíu sólar-
hringa bræðsla. Þó að menn séu
ánægðir yfir að hafa næga
vinnu geta þeir þó ekki varist
því að bölva yfir fnyknum sem
leggur yfir bæinn frá verksmiðj-
unni, en hann er oft svo mikill
og reykurinn svo þéttur að um-
ferðatöf hefur orðið, vegna þess
að ekki sést handa skil. Stromp-
urinn er alltof lágur en að sögn
verksmiðjustjóra verður hann
hækkaður næsta vor og sumar.
Hins vegar hafa ekki verið
ræddar neinar ráðstafanir til að
koma í veg fyrir sjávarmengun
við þorpið en hún er svo mikil
að sjórinn virðist ládauður í
roki og hinn alfriðaði æðarfugl
liggur dauður unnvörpum um
allar fjörur.
Það má með sanni segja að
við raufarhafnarbúar vöðum
hér í drullu og grútarflekkjum.
Götur eru allar sundurgrafnar
vegna vatns- og rafmagnslagna
svo að stundum er betra að
keyra utan vega. Hins vegar
horfir væntanlega allt til bóta
varðandi vatnsmál því að sögn
sveitarstjóra verður vatni hleypt
á nýju vatnslögnina einhvern
næstu dagana. Einnig verður
byrjað á steypuvinnu við sund-
laug á næstunni. Undanfarna
daga hefur verið unnið að
uppfyllingu í höfninni veýgna
byggingar stálþils og verður
væntanlega lokið við helming
þess eða 50 metra í haust.^.^
AB-félag á Þórshöfh
Þann 16. október s.l. var stofn-
að Alþýðubandalagsfélag á
Þórshöfn og nágrenni og voru
stofnfélagar tólf. Fyrsti almenni
fundur félagsins verður haldinn
innan skamms og verður þar
rætt um þær kosningar sem í
hönd fara.
Aðrar fréttir héðan eru þær
helstar að það sem af er í haust
verið slátrað 11500 fjár hér á
Þórshöfn en áætlað er að
slátrað verði um 17000 fjár.
Nautgripaslátrun fer fram að
sauðfjárslátrun lokinni en
reyndar var öllum kúm á bæ
einum á Langanesi slátrað
snemma í haust. Mjólkurskort-
ur er þó ekki talinn yfirvofandi.
Búið er að landa um tvö þús-
und tonnum af loðnu í haust og
500 tonn hafa þegar verið flutt
út til Danmerkur. Afli hefur
verið slæmur undanfarið hvort
sem er á línu, snurvoð eða net
og atvinna mætti að skaðlausu
vera meiri. Raufarhafnartogar-
inn hefur siglt að undanförnu
og hafa menn haft við orð að
nær væri að koma upp ein-
hverri miðlun milli staðanna
með aukna atvinnu í huga.
Arnþór.
STYÐJUM NORÐURLAND |
„Stakstein-
ar(( tóku til
máls
Mikið fát greip um sig á
þingi Verkamannasam-
bandsins á dögunum er
undir lokin var borin upp
tillaga þess efnis að þingið
lýsti andstöðu sinni við her-
setu og Natóaðild. Ekki
bætti úr skák að aftan við
tillöguna var hnýtt for-
dæmingu á aðfarir lögregl-
unnar við Sundahöfn á
dögunum. f fyrstu reyndi
forseti að mögla og jafnvel
setjast á tillöguna og bar
fyrir sig hve seint hún var
fram komin. Bjarnfríður
Leósdóttir frá Akranesi fór
þá í pontu og var gust-
mikil. Sagði hún að hver
maður á þinginu hlyti að
vera búinn að gera upp hug
sinn til hersetunnar svo að
ástæðulaust væri að hengja
sig í formsatriði þess vegna.
Sömuleiðis hlyti hver þing-
fulltrúi að hafa gert upp
hug sinn hvort hann teldi
að lögreglan hefði leyfi til
að ráðast á hans böm ef þau
mótmæltu með friðsamleg-
um hætti smán hersetunn-
ar.
Setti menn hljóða við
ádrepu Bjarnfríðar nema
Sigurð nokkurn Óskarsson
lendan mann Ingólfs Hellu-
jarls. Sá fór í pontu og var
ræða hans líkust því að
samanlögð ofstækisskrif
Staksteina hefðu skyndi-
lega holdgast í einum
manni. Bauð hann að hann
skyldi ræða um ástand
mála á Volgubökkum heil-
an dag á næsta þingi Verka-
mannasambandsins ef
menn hefðu áhuga en fáir
létu áhuga í ljós. Var nú
borin upp dagskrártillaga
um að vísa ályktuninni frá
og svall herstöðvaandstæð-
ingum nú móður í brjósti.
Frávísunartillagan var kol-
felld og ályktunin síðan
samþykkt með yfirgnæf-
andi meirihluta atkvæða.
Andskotinn
genginn í
Alþýðu-
flokkinn
Illæri, heyskorti, afurða-
tjóni og landbúnaðarfas-
isma krata og íhaldsafla
hafa bændur norðanlands
mætt með jafnaðargeði og
æðruleysi. En þegar kratar
rufu stjórnina sem alþýða
batt ennþá vonir við þá
varð einum bónda þessi
vísa á munni:
Drottinn er týndur sólin er
sokkin,
svört eru himinsins tjöld.
Andskotinn genginn í
Alþýðuflokkinn
- hann á sér þar vina fjöld.
Og þegar kratar höfðu
myndað minnihlutastjórn
undir vernd íhaldsins kvað
annar bóndi:
Margan beiskan bita má
byggðafólkið tyggja
þegar kratar ólmir á
íhaldsspenann hyggja.