Norðurland - 22.11.1979, Side 6
NORÐLENDINGAR!
Sigurður A. Magnússon rithöfundur áritar nýút-
komnar bækur sínar fyrir kaupendur í BÓKVAL
föstudaginn 23. þ.m. kl. 4-6.
Undir kalstjörnu.
Fákar.
Goð og garpar úr norrænum sögum.
Goð menn og meinvættir úr grískum sögum.
Notið þetta einstaéða tækifæri og kaupið úrvals bæk-
ur áritaðar af höfundi.
Hver ofantaldra bóka verður metsölubók?
^ BÓKVAL, Kaupvangsstræti 4, Akureyri.
Skrifstofustarf
Lífeyrissjóðurinn Sameining óskar eftir starfskrafti.
Umsóknir sendist sjóðnum fyrir 10. okt. nk. ásamt
upplýsingum um menntun og fyrri störf.
Allar upplýsingar gefur Jón Helgason, forstöðu-
maður sjóðsins, Skipagötu 12, sími 21739.
Lífeyrissjóðurinn Sameining.
IÐJA,
félag verksmiðjufólks, heldur almennan félagsfund
í Alþýðuhúsinu sunnudaginn 25. nóvember 1979
kl. 2 e.h.
Fundarefni: Uppsögn samninga og fl.
STJÓRNIN.
K. JONSSON&CO.
Hverfisgötu 72 — Sími 1 24 52
Lyftu símanum og við útvegum
yður lyftara með stuttum
fyrirvara,—nýja eða notaða.
Ódýrasta flug-
kennsla landsins
FLUGKLU6BURINN H.F.
REYKJAVÍK -SÍMI2 89 70
Gólfteppx
og gólfdúkar
í miklu úrvali
FURUVÖLLUM 13, SÍMI 23830.
ATLAS SNJÓDEKK
í flestum stærðum.
Véladeild og Gúmmíviðgerð
MINNING
Sigurgeir Guðmundsson
Þann 3. okt. sl. andaðist hér á
Akureyri Sigurgeir Guðmunds-
son starfsmaður Sútunarverk-
smiðjunnar Iðunn, aðeins 63
ára gamall. Sjö ára gamall flutti
Sigurgeir með móður sinni til
Grímseyjar, og var þar í nokkur
ár, og var jafnan síðan kenndur
við þann stað, en fluttist þaðan
til Húsavíkur.
Sigurgeir var fæddur í Brim-
nesi á Langanesi 20. júní 1916.
Foreldrar hans voru hjónin
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir frá
Höfn á Langanesi og Guð-
mundur Björnsson ættaður úr
Kræklingahlíð, og bjuggu þau
lengst af á Húsavík. Um tvítugs
aldur veiktist Sigurgeir og
dvaldist hann á Kristneshæli en
náði aftur allgóðri heilsu. Á
Kristneshæli kynntist Sigurgeir
fyrri eiginkonu sinni Þóru Ingi-
björgu Sigurjónsdóttur og
gengu þau í hjónaband 19. apríl
1939. Þeim var 10 barna auðið,
elst er Jónína Guðbjörg, Guð-
jón Ingvar, Sigurjón Eðvarð,
Ingunn Elísabet, Olöf Stefanía,
Ragnheiður, Guðmundur
Ragnar, Hildur Björk, Agnes
og Sigmundur Brynjar. Á fyrstu
búskapar árum þeirra hjóna,
ríkti hér mikið atvinnuleysi
sérstaklega yfir vetrarmánuð-
ina, og átti það sinn þátt í þeim
kröppu lífskjörum sem þau áttu
við að búa í fyrstu. Sigurgeir
stundaði alla almenna vinnu,
þótt hugur hans væri oft bundin
við sjóin, mörg sumur var hann
á síldveiðum og gaf sú veiði
öðruhvoru sæmilegt í aðra
hönd.
Eftir að togaraútgerð hófst
frá Akureyri, fór hann nokkr-
um sinnum í slíkar veiðiferðir,
en síðustu árin var hann starfs-
maður í Sútunarverksmiðjunni
Iðunni. Konu sína Þóru missti
Sigurgeir þann 13. nóv. 1966.
Þóra var greind kona og góð
húsmóðir og kunni þá list
framar öðrum að gera mikið úr
litlu, til blessunar fyrir heimilið.
Þann 8. des 1968 kvæntist
Sigurgeir eftirlifandi konu sinni
Guðrúnu Snorradóttir frá Vest-
urlandi í Axarfirði.
Ég kynntist Sigurgeir fljót-
lega eftir að þau hjónin giftu sig
og entist sá kunningsskapur og
vinátta fram á síðustu stund, og
bar aldrei neinn skugga þar á.
Ég kveð svo kæran vin minn
og þakka honum fyrir allt gott.
Konu hans og börnum og öllum
ættingjum flyt ég mínareinlægu
samúðarkveðjur.
J.I.
Nóvember
sýning
Þessa dagana (17-25. nóv.)
stendur yfir í Hlíðarbæ „Nóv-
embersýning Myndhópsins". -
Þátttakendur eru alls 25 talsins,
og þar af 16 sem ekki eru félagar
í Myndhópnum, enda var það
ákveðið að hafa sýninguna
opna öllum sem fást við mynd-
list. Af gestum eru 9 sem ekki
hafa haft verk á sýningu áður, ef
undan eru skyldar skólasýning-
ar og er það von okkar að þessi
sýning verði þeim hvatning til
frekari dáða á listasviðinu.
Á sýningunni eru 86 mynd-
verk, svo sem keramik, postu-
lín, ljósmyndir, málverk, teikn-
ingar, grafik ofl. en sjón er sögu
ríkari.
Sýningin í Hlíðarbæ er opin
frá 18-22 virka daga en 15-22
um helgar og stendur til sunnu-
dagsins 25. nóv.
Sýningarnefndin.
Léreftstuskur
Lóreftstuskur
Léreftstuskur
Léreftstuskur
Kaupum hreinar
lóreftstuskur
á hæsta verði
Skjaldborg hf.
Hafnarstræti 67
Sími 24-0-24
KRISNESHÆLI
ATVINNA
Staða HJÚKRUNARFRÆÐINGS Kristneshælis er
laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. janúar 1980,
eða síðar eftir samkomulagi. Húsnæði er fyrir hendi
á staðnum. Umsóknir er greini aldur, menntun og
fyrri störf sendist skrifstofu Kristneshælis fyrir 15.
desember n.k. Upplýsingar gefur hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, sími 96-22300.
Staða FÓSTRU við Dagheimili Kristneshælis er laus
til umsóknar. Staðan veitist frá 15. janúar 1980.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf
sendist skrifstofu Kristneshælis fyrir 15. desember
n.k. Upplýsingar gefur hjúkrunarframkvæmdastjóri,
sími 96-22300.
Reykjsvík, 18. nóvember 1979.
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA
Eiríksgötu 5, sími 29000
HÚSBYGGJENDUR - VERKSTÆÐI
Skápa og hilluefni 17 mm spónlagt og kantlímt
30x244 sm. kr. 3233,- með söluskatti
120x244 sm. kr. 10.900.- með söluskatti
Lofta og veggjaklæðning 12 mm spónaplötur -
nótaðar
30x250 sm. kr. 1289.- með söluskatti
60x250 sm. kr. 2479 - með söluskatti
120x250 sm. kr. 4250,- með söluskatti
Fjaðrir 165.- kr. pr. stykkið
Unnið efni í milliveggi
35x70 mm. kr. 650.- hver lengdarmetri
TRÉSMIÐJAN FJALAR HF.
HÚSAVÍK - SÍMI 41346
Frá kjörbúðum
Swiss-style í pökkum.
Alpin í pökkum.
Weeatbix í pökkum.
Havre-fras í pökkum.
Neytið hollrar fæðu.
KJORBUÐIR
6 - NORÐURLAND