Norðurland - 02.02.1983, Qupperneq 3

Norðurland - 02.02.1983, Qupperneq 3
Húnn, flugumferðarstjóri, Akureyri, Hólmsteinn, húsa- smiður, Akureyri, Aðalgunnur Gígja, húsfreyja Dagverðareyri, Þórgunnur Harpa, starfar við Norrænu þjóðfræðastofnunína í Stokkhólmi við rúnalestur, Magnús Hreinn, háskólanemi, Reykjavík, Guðni Bragi, iðn- aðarmaður, Akureyrí. Þó að Rósberg ætti við ýmsa örðugleika að stríða í lífsbarátt- unni og ekki gengi ævinlega allt að óskum, mátti hann teljast mikill gæfumaður, Hann átti margt til að miðla öðrum, og því verður hans sak.nað lengi. Hann var maður, sem ekki gleymíst fyrst um sinn. Einar Kristjánsson. (Greinin birtist hér stytt úr Þjóðvíljanum 18. janúar 1983.) Margra glaðra og góðra stunda minnist ég og mitt fólk í návist Rósberg G. Snædal, sem nú er kvaddur með söknuði af þeim, sem hann þekktu, nutu sam- fylgdar hans og vináttu. Hans er gott að minnast, og nú þegar hann er allur er mér efst í huga þökk fyrir framlag hans allt í þágu stjórnmálasamtaka sósíalista þar sem leiðir okkar lágu saman um langt skeið, Eg minnist þess þakklátum huga hvern stuðning oguppörv- un hann veitti mér, þegar að mér var lagt að taka efsta sæti á fram- boðslista Alþýðubandalagsins á Akureyri við bæjarstjórnar- kosningarnar vorið 1970, en sá slagur allur þótti engum, sem til þekkti, árennilegur. Þá átti Alþýðubandalagið sannarlega í vök að verjast hér á staðnum, Harðvítug innan- flokksátök voru nýafstaðin, og hart var að því sótt úr öllum átt- um, Þá var hans liðveisla þung á metum, og Rósberg dró ekki af sér, Hann var gæddur glögg- skyggni á málefnin hverju sinni og þeirri ratvísi, að ævinlega stóð hann þeim megin víglín- unnar sem réttlátur málstaður og framsækinn átti á brattann að sækja. Rósberg átti um áratuga skeið drjúgan hlut að blaðaútgáfu sós- íalista hér um slóðir, og hún hefði verið snauðari að líflegu framlagi og ekki eins vakandi hefði hans ekki notið við. Þar var skarð fyrir skildi, þegar hann fluttist héðan fyrir nokkr- um árum. Af löngum kynnum er mér minnisstæð sú samræmðulist, sem honum var lagin og ef til vill er sem óðast að hverfa í hringiðu nútímans, Hann var hvort- tveggja í senn listfengur sögu- maður og íhugull áheyrandi. Alltaf var hann sama prúð- mennið á hverju sem gekk, varkár i dómum og velviljaður í garð samferðamanna, Skop- skynið brást aldrei, heldur ekki þegar harðast blés, Margvísleg störf stundaði Rósberg um dagana. Af ritstörf- um er hann löngu þjóðkunnur bæði í bundnu og óbundnu máli, og kviðlingar hans urðu snemma fleygir, Hann vann algeng verkamannsstörf, og um árabil kenndi hann við Barna- skóla Akureyrar, Er mér vel kunnugt um að þar hafði Rósberg þau tök á ungviðinu, að þeir bekkir, sem ekki þóttu til þess fallnir að lúta hefðbundn- um aga í hvívetna, voru spakir og ljúfir þegar hann stóð að uppfræðslunni. Hann talaði ekki til barnanna á neinni tæpitungu, en tók þau alvarlega eins og hvert annað fullgilt fólk, Nú að leiðarlokum er mér þökk í huga fyrir vináttu og alla sameiginlega baráttu, og ég votta börnum hans og öðrum vandamönnum innilega samúð. Soffia Guðmundsdóttir, Frá Pósti og síma Akureyri Þar sem stækkun sjálfvirku símstöðvarinnar á Akur- eyri verður lokið um miðjan febrúar, eru þeirsem ekki hafa látið skrá sig fyrirsíma, beðnir að hafa samband við skrifstofu stöðvarstjóra Hafnarstræti 102áannari hæð, sem fyrst. Allar breytingar í næstu símaskrá þurfa að berast skrifstofunni fyrir næstu mánaðarmót Stöðvarstjóri. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri óskar eftir að ráða RÖNTGENTÆKNt Upplýsingar um stöðuna gefurdeildarröntgentæknir F.S.A. í síma 96-22100. Umsóknum sé skilað til fulltrúa framkvæmdastjóra. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri óskar að ráða sérfræðing í lyflækningum, með sérstöku tilliti til meltingarsjúkdóma og innspegl- unar, við lyflækningadeild sjúkrahússins. Staðan veitist frá 01. 04. 1983. Upplýsingar um stöðuna veitir yfirlæknir lyflækn- ingadeildar, sími 96-22100. Umsóknir sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins eigi síðar en 15. 03. 1983. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. AKUREYRARBÆR AUGLÝSIR Tilkynning frá Hitaveitu Akureyrar Mælingarmenn verða að störfum í eftirtöldum götum þriðjudaginn 1, febrúar tíl þriðjudagsíns 8. febrúar. Aöalstræti Laugargata Bjarmastígur Laxagata Bjarkarstígur Lundargata Barðstún Lækjargata Brekkugata Lögbergsgata Eyrarlandsvegur Möðruvallastræti Geislagata Norðurgata Gilsbakkavegur Oddagata Grundargata Oddeyrargata Hafnarstræti Ránargata Hjalteyrargata Skipagata Hlíðargata Skólastígur Holtagata Sniðgata Hólabraut Spítalavegur Hríseyjargata Strandgata Kaupangsstræti Ægisgata Krabbastígur Hitaveita Akureyrar. AKUREYRARBÆR AUGLÝSIR Viötalstímar bæjarfulltrúa Miðvikudaginn 9. februar verða bæjar- fulltrúarnir Gísli Jónsson og Helgi Guðmundsson til viðtals í fundarstofu bæjarráðs, Geislagötu 9, 2. hæð, kl. 20-22, Bæjarstjóri. ■r ■'/?(< ff.J 'fcOZY'// '// Cí- < school of finc arts YY/'/C //'/,/ NÁMSKEIÐ Tetknun og ntáiun fyrir börn og unglinga: 1. fl. 5-6 ára. Einu sinni í viku. 2. fl. 6-7 ára. Einu sinni í viku. 3. fl. 8-9 ára. Einu sinni í viku. 4. fl. 10-11 ára. Tvisvar í viku. 5. fl. 12-14 ára. Tvisvar í viku. Teiknun og máfun fyrir fuiiorðna. 1. fl. Byrjenöanámskeið I. Tvisvar í viku. 2. fl. Byrjendanámskeið II. Tvisvar í viku. 3. fl. Framhaidsnámskeið. Tvisvar í viku. 4. fl. Myndiistardeild. Tvisvar í viku. 5. fl. Myndlistardeifd (framhald) Tvisvar í viku. ByggingarEist: 1. fl. Byggingarfist og híbýlafræði. Grafík: 1. fl. Dúk- og trérista. Tvisvar í viku. 2. fl. Dúk- og trérista (framhald). Tvisvar í viku. Letrun: 1. fl. Skrift og leturgerð. Tvisvar í viku. 2. fl. Skrift og leturgerð (framhald). Tvisvar í viku. Listasaga: 1. fi. Listasaga. Einu sinni í viku. 2. fl. íslensk listasaga. Einu sinni í viku. Módeiteiknun: 1. fl. Teiknað eftir iifandi fyrirmynd. Einu sinni í viku. 2. fl. Teiknað eftir lifandi fyrirmynd (framhaid). Einu sinni i viku. Textíl: 1. fl. Myndvefnaður. Tvisvar í viku. 2. fl. Quilting (búta- og vattsaumur). Einu sinni í viku. 3. fl. Quifting (búta- og vattsaumur). Etnu sinni í viku. Innritun fer fram í skrifstofu skólans, Glerárgötu 34, alla virka daga kl. 10-18. t»eir semekki komust að á haustönn vinsamlegast staðfesti umsókn sina. Aliar nánari upplýsingar og innritun í sima 24958. Skóiastjóri. AKUREYRARBÆR AUGLÝSIR Félagsstarfi aldraðra á vegum Félagsmálastofnunar Akureyrar verður hagað sem hér segir síðari hluta vetrar 1982/83. Skemmtanir í Sjallanum verða með sama hætti og verið hefur sunnudagana 20. febr., 13. mars, 17. apríl, 15. maí. Þeir sem óska eftir akstri heiman og heim hríngi í síma 22770 kl. 13-14 samdægurs. Starfsemi leikfimihópsins, sem verið hefur í Laxagötu 5, verður auglýst síðar. AKUREYRARBÆR AUGLÝSIR Fjölskyldunámskeið Þann 7. febrúar kl. 20 hefst að Hrísa- lundi fjögurra vikna námskeið. Það er um almenna mannrækt og er einkum miðað við þá sem þúa við og hafa áfengisvandamál. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, kvikmyndum og hópumræðum. Nánari upplýsingar gefur Félagsmálastofnun í síma 25880 og Guðrún í síma 21177 á kvöldin. Einnig er tekið á móti þátttökutilkynningum á sömu stöðum. Samstarfshópur Félagsmálstofnunar og einstaklinga. NORÐURLAND- 3

x

Norðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.