Morgunblaðið - 14.11.2009, Qupperneq 1
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2009
íþróttir
Stórsigur Strákarnir í 21 árs landsliðinu í fótbolta áfram á sigurbraut. Skoruðu sex mörk í
San Marínó og eru efstir ásamt Tékkum. Fjórir sigurleikir í röð í Evrópukeppninni 4
Íþróttir
mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Vörn KR-ingurinn Finnur Magnússon er einbeittur á svip þegar hann reynir
að stöðva Fjölnismanninn Ingvald Magna Hafsteinsson. KR vann öruggan
sigur á Fjölni í úrvalsdeildinni í gærkvöld og er með 10 stig eftir 6 leiki. | 2-3
„ÞESSI leikur snýst fyrst og fremst
um hugarfar. Þegar bæði Lúx-
emborg og Ísland spila sinn besta
leik eigum við að sigra. Okkur hef-
ur stundum gengið illa að stjórna
leikjum sem við eigum að vinna
samkvæmt bókinni, og þá kemur
hugarfarið til sögunnar. Við höfum
undirbúið leikinn út frá því,“ sagði
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálf-
ari í knattspyrnu, við Morgunblaðið
í gærkvöld.
Gunnleifur ekki með
Ísland mætir
Lúxemborg í vin-
áttulandsleik á
Josy-Barthel-
leikvanginum í
Lúxemborg í dag
klukkan 18. Að
þessu sinni teflir
Ólafur fram sínu
sterkasta liði. Þó
er ljóst að Gunn-
leifur Gunn-
leifsson markvörður getur ekki
spilað og Árni Gautur Arason verð-
ur í markinu. „Gunnleifur fékk
slink á ökklann og getur ekki
sparkað frá marki. Hann verður þó
til taks á bekknum. Allir aðrir eru
leikfærir,“ sagði Ólafur Jóhann-
esson. vs@mbl.is
„Leikurinn
snýst um
hugarfarið“
Gunnleifur
Gunnleifsson
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„ÉG fór strax með liðið á æfingu.
Henni var að ljúka og mér leist vel
á það sem ég sá,“ sagði Ásgrímur
Helgi Einarsson sem síðdegis í gær
var ráðinn þjálfari kvennaliðs Aft-
ureldingar í knattspyrnu. Hann
tekur við af Guðrúnu Jónu Krist-
jánsdóttur sem náði samkomulagi í
hádeginu í gær um starfslok sín í
Mosfellsbæ eftir eins árs veru.
Hermt er að hún taki nú við þjálf-
un kvennaliðs KR en það fékkst
ekki staðfest í gærkvöldi. Fari svo
verður þetta annað árið í röð sem
þjálfari kvennaliðs Aftureldingar
segir upp hjá félaginu til þess að
gerast þjálfari hjá KR.
„Ráðning mín átti sér skamman
aðdraganda. Mér leist hins vegar
vel á verkið strax og það var nefnt
við mig. Það er vel haldið á málum
í Mosfellsbænum. Aðstaða sú sem
leikmönnum og þjálfara er sköpuð
er hreint til fyrirmyndar,“ sagði
Ásgrímur Helgi sem skrifaði undir
tveggja ára samning við Aftureld-
ingu sem leikur á næsta sumri
þriðja keppnistímabilið í röð í úr-
valsdeild kvenna. Honum til að-
stoðar verður Bjarki Már Sverr-
isson.
Ásgrímur Helgi er fertugur.
Hann þjálfaði þriðjudeildarlið karla
á Álftanesi á síðustu leiktíð en
hætti þar í september. Ásgrímur
Helgi hefur áður þjálfað kvennalið
hjá FH og Þrótti Neskaupstað.
Afturelding varð í 8. sæti af tíu í
Pepsi-deildinni í sumar og stillti þá
upp liði í samvinnu við Fjölni. Ekki
verður framhald á samvinnu félag-
anna. „Þótt mér hafi litist vel á
þann hóp sem er fyrir hjá Aftur-
eldingu tel ég að það verði eitthvað
að styrkja hann fyrir næsta keppn-
istímabil. Við munum fara í að
skoða þau mál á næstu vikum,“
sagði Ásgrímur Helgi, spurður
hvort hann væri farinn að spá í að
styrkja leikmannahóp Aftureld-
ingar.
Óttinn var á rökum reistur
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu fyrir nokkru ólu forráða-
menn kvennaliðs Aftureldingar
þann ótta í brjósti að þeir væru að
missa þjálfara sinn, Guðrúnu Jónu
Kristjánsdóttur, þótt hún væri
bundin félaginu í báða skó með
óuppsegjanlegan samning til eins
árs til viðbótar. Þegar á hólminn
var komið reyndist ótti Mosfellinga
á rökum reistur og síðustu dagar
hafa farið í að koma til móts við
óskir Guðrúnar Jónu um að losna
undan samningi sínum.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að forráðamenn Aftureldingar hafi
viljað hafa klásúlu í starfsloka-
samningi sínum við Guðrúnu Jónu
um að hún hvorki gerðist þjálfari
KR né tæki með sér leikmenn frá
Aftureldingu yfir til KR, gerðist
hún þjálfari hjá Vesturbæjarliðinu.
Guðrún Jóna mun hafa verið með
öllu ófáanleg til þess að ganga að
slíkum kostum. Stóð lengi vel í
þrefi á milli hennar og Afturelding-
armanna. Lausn fannst loks í há-
deginu í gær.
Rúmt ár er liðið frá því að þá-
verandi þjálfari Aftureldingar, Ga-
reth O’Sullivan, yfirgaf Aftureld-
ingu í þeim tilgangi að taka við
kvennaliði KR. Hann staldraði
stutt við í Vesturbænum og var lát-
inn taka pokann sinn áður en
keppni í Pepsi-deildinni hófst í maí.
Ásgrímur í
stað Jónu
Allt bendir til að annað árið í röð fari
þjálfari frá Aftureldingu til KR
JOHN Davis, bandaríska körfu-
knattleiksmanninum sem hefur
spilað með Breiðabliki í haust, var í
gærkvöld sagt upp störfum. Hrafn
Kristjánsson, þjálfari Blika, stað-
festi við Morgunblaðið að ákveðið
hefði verið að breyta til eftir erfiða
byrjun hjá liðinu í úrvalsdeildinni
en þar hefur Breiðablik tapað fimm
af fyrstu sex leikjum sínum.
Blikar hafa krækt í tvo leikmenn
í staðinn fyrir Davis. Það eru serb-
neski miðherjinn Bojan Popovich,
sem er 2,09 metrar á hæð og er frá
Bosníu en lék fyrir tveimur árum
með KFÍ á Ísafirði, og bandaríski
skotbakvörðurinn Josh Porter, sem
er 1,88 m á hæð og lék síðast með
þýsku 2. deildar liði.
Tveir ódýrari en einn
„Okkur vantaði tilfinnanlega há-
vaxinn leikmann og þegar okkur
bauðst að fá tvo leikmenn fyrir
minni upphæð en það kostaði okkur
að vera með Davis ákváðum við að
breyta til,“ sagði Hrafn við Morg-
unblaðið.
Nýju mennirnir verða ekki
komnir fyrir leik Breiðabliks í
Njarðvík næsta föstudag og spila
væntanlega fyrsta leikinn gegn KR
hinn 23. nóvember. vs@mbl.is
Blikar ráku
Davis og fá
tvo í staðinn
ÍSLANDSMEISTURUM KR í
körfuknattleik karla hefur verið boð-
ið til Chengdu í Kína. Þeir spila þar
tvo sýningarleiki gegn liði Beijing
Aoshen dagana 19. og 20. desember.
Leikirnir eru liðir í styrktarmóti
sem sett er upp af kínverska körfu-
knattleikssambandinu, íþróttaráði
Chengdu og atvinnuliðinu Beijing
Aoshen. Það er haldið til styrktar
íbúum í Sichuan héraði í nágrenni
Chengdu, sem urðu afar illa úti í
hörðum jarðskjálfta á síðasta ári.
Um 80 þúsund manns létust og fjór-
ar milljónir misstu heimili sín en
skjálftinn var átta stig á Richter-
skala. Mikið tjón varð í útborgum
Chengdu, Dujiangyan og Pengzhou.
Átján liðum er boðið til Chengdu
af þessu tilefni og koma þau hvert í
sínu lagi á tímabilinu frá 28. nóv-
ember til 18. apríl. Auk KR-inga
mun mæta þangað lið frá Dan-
mörku, Svíþjóð, Þýskalandi, Portú-
gal, Ungverjalandi, Tékklandi og
Bandaríkjunum, og öll munu þau
leika tvívegis við áðurnefnt lið.
Beijing Aoshen hefur orðið As-
íumeistari og hefur haft aðsetur ut-
an Kína. Það leikur nú í ABA-
deildinni í Bandaríkjunum og hefur
aðsetur í Kaliforníu.
Vegna Kínaferðarinnar hefur leik
KR við Snæfell í úrvalsdeildinni ver-
ið flýtt um tvo daga, til 16. desem-
ber. Um það bil tveir sólarhringar
fara í ferðalögin fram og til baka en
KR-ingar eru væntanlegir aftur
heim þriðjudagskvöldið 22. desem-
ber. vs@mbl.is
KR-ingum boðið til Kína
Spila sýningarleiki við Beijing Aoshen Til styrktar vegna jarðskjálfta