Morgunblaðið - 14.11.2009, Page 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2009
KNATTSPYRNA
Evrópukeppni U21 karla
5. riðill:
San Marínó – Ísland................................. 0:6
Gylfi Þór Sigurðsson 15., 31., Alfreð Finn-
bogason 60., 82., Kolbeinn Sigþórsson 8.,
Bjarni Þór Viðarsson 18.(víti)
Norður-Írland – Þýskaland.................... 1:1
Oliver Norwood 90. – Eric Maxim Choupo-
Moting 89.
Staðan:
Tékkland 4 4 0 0 14:1 12
Ísland 5 4 0 1 22:5 12
Þýskaland 3 1 1 1 8:3 4
N-Írland 4 0 1 3 4:11 1
San Marínó 4 0 0 4 0:28 0
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla
Þróttur – Víkingur ................................19:24
Staðan:
Afturelding 5 5 0 0 143:109 10
Selfoss 4 3 0 1 114:82 6
Víkingur R. 5 3 0 2 137:108 6
ÍBV 4 2 0 2 117:111 4
ÍR 4 2 0 2 111:116 4
Fjölnir 5 1 0 4 95:157 2
Þróttur 5 0 0 5 108:142 0
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla
Þór Þ. – Hrunamenn .............................90:81
Ármann – Þór Ak. ................................ 91:55
Staðan:
Þór Þ. 6 5 1 510:466 10
KFÍ 4 4 0 362:293 8
Haukar 5 4 1 394:321 8
Skallagrímur 4 3 1 294:269 6
Höttur 6 3 3 451:482 6
Ármann 5 2 3 378:367 4
Valur 5 2 3 331:347 4
Þór Ak. 5 1 4 360:422 2
ÍA 5 1 4 378:418 2
Hrunamenn 5 0 5 382:455 0
NBA
Úrslit í fyrrinótt:
LA Lakers – Phoenix........................121:102
Miami – Cleveland.............................104:111
um helgina
HANDKNATTLEIKUR
EHF-keppni karla, 16 liða úrslit:
Ásvellir: Haukar – PLER.......................L16
Ásvellir: Haukar – PLER .......................S18
Úrvalsdeild kvenna, N1-deildin:
Mýrin: Stjarnan – Haukar......................L13
Safamýri: Fram – FH .............................L15
Víkin: Víkingur – KA/Þór .......................L16
Vodafone-höllin: Valur – Fylkir .............S14
Úrvalsdeild karla, N1-deildin:
Vodafone-höllin: Valur – Fram...............S16
1. deild karla:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Selfoss ........L13.30
Austurberg: ÍR – Fjölnir ...................S15.30
Eimskipsbikarkeppni karla:
Akureyri: Akureyri – FH........................S16
Mýrin: Stjarnan – Grótta ...................S19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, IE-deildin:
DHL-höllin: KR – Valur .........................L17
SKYLMINGAR
Íslandsmót unglinga og fullorðinna í
skylmingum með höggsverði fer fram í
Baldurshaga. Keppni hefst kl. 10.15 í dag
og stendur fram til 18.45. Á morgun er
keppt frá 10 til 17.30.
FIMLEIKAR
Haustmót FSÍ í hópfimleikum fer fram í
íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi.
Mótið hefst kl. 10 í dag og stendur fram til
kl. 20. Á morgun er keppt frá 11 til 19.
STUÐNINGSMENN íslenska
kvennalandsliðsins í knattspyrnu
á EM í Finnlandi í haust hafa ver-
ið tilnefndir til verðlauna sem
bestu stuðningsmenn fótboltaliðs í
Evrópu á árinu 2009.
Íslenski hópurinn, sem var afar
áberandi á leikjum íslenska liðsins
í Finnlandi, er einn af þrettán
stuðningshópum sem hafa verið
valdir úr hjá samtökunum FARE,
„Football Against Racism in Eu-
rope“, eða „Knattspyrna gegn kynþáttafordómum í
Evrópu“.
Samtökin standa fyrir útnefningu á bestu stuðn-
ingsmönnum Evrópu og vilja með því leggja áherslu
á góða framkomu og jákvæðan stuðn-
ing. Þau eru í samvinnu við UEFA,
Knattspyrnusamband Evrópu, og
markmiðið er að beina viðhorfi og
andrúmslofti á fótboltaleikjum inn á
jákvæðar brautir.
Í gær var tilkynnt að íslenski
stuðningshópurinn væri meðal þeirra
sem valdir hefðu verið úr þeim sem
tilnefndir voru að þessu sinni. Til-
kynnt verður um sigurvegara hinn
12. desember.
Ljóst er að ekkert landslið á EM í Finnlandi,
nema kannski lið heimamanna, fékk stuðning á borð
við þann sem það íslenska naut frá fyrstu mínútu til
hinnar síðustu í keppninni. vs@mbl.is
Stuðningsmenn Íslands tilnefndir
Stuðningsfólk Íslands í Finnlandi.
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„ALLIR leikmenn eru klárir í slaginn.
Við eigum von á jöfnum og skemmti-
legum leikjum. Að sjálfsögðu leggjum
við upp með að vinna og komast áfram
í næstu umferð keppninnar. Það er al-
veg á hreinu,“ sagði Aron þegar Morg-
unblaðið talaði við hann í gær. Leik-
menn ungverska liðsins komu til
landsins síðdegis í gær og æfðu á Ás-
völlum um kvöldmatarleytið.
„Þetta er nokkuð gott lið, sem sést
meðal annars á því að það stóð í Pick
Szeged í leik í ungversku deildinni á
miðvikudagskvöldið og tapaði aðeins
með einu marki. Pick Szeged er
hörkulið sem er efst í deildinni og er á
meðal þátttökuliða í meistaradeild
Evrópu,“ segir Aron sem á von á jöfn-
um og spennandi leikjum á Ásvöllum í
dag og á morgun.
Góðir leikmenn í PLER
„Það eru gæði í ungverska liðinu. Á
því leikur enginn vafi. Ef marka má
úrslit liðsins í Evrópuleikjunum í
haust og í vetur þá hefur því gengið vel
á útivelli. Innan liðsins eru leikmenn
sem hafa leikið með U21 árs landsliði
Ungverja og eiga fáeina A-landsleiki.
Þekktasti leikmaður liðsins er Péter
Lendvay sem á um 70 landsleiki að
baki fyrir Ungverjaland. Þá hefur
PLER-liðið á að skipa markverði frá
Slóvakíu, Theodor Paul, sem er að sjá
mjög góður,“ segir Aron sem hefur séð
talsvert af leikjum með liðinu en Ung-
verjar eru mjög duglegir að setja
kappleiki úr deildarkeppni sinni inn á
veraldarvefinn.
„Þetta er fyrst og fremst mjög jafnt
lið sem hefur á að skipa góðum leik-
mönnum en hefur engar stórstjörnur.“
Ólíkir öðrum ungverskum liðum
Aron segir leikstíl PLER-liðsins að
mörgu leyti ólíkan þeim sem gerist og
gengur í ungverskum handknattleik.
„Liðið leikur til dæmis framliggjandi
varnarleik sem ekki er algengt meðal
ungverskra liða. Þá dregur sóknar-
leikurinn nokkurt dám af leikstíl sem
kenndur er við Júgóslavíu. Í stað
þunglamalegs sóknarleiks er frekar
mikið um færslur í stíl Júgóslava auk
þess sem mikið er um að leikmenn
vinni tveir og tveir saman,“ segir Aron
sem telur sig hafa kynnst leik PLER-
liðsins eins vel og kostur er.
PLER hefur ekki vegnað sem best í
ungversku deildinni það sem af er leik-
tíð. Það er nú í sjöunda sæti með sjö
stig að loknum átta leikjum. Nýverið
var þjálfara liðsins sagt upp og annar
ráðinn í staðinn. Fyrsti leikurinn undir
stjórn nýs þjálfara var fyrrgreind við-
ureign við Pick Szeged. Aron segir að
búast megi við að einhverjar áherslu-
breytingar hafi orðið við komu nýs
þjálfara. Vegna þess hversu skammt
er um liðið síðan breytingin átti sér
stað hefur Aron ekki haft tök á að
kynna sér hugsanlegar breytingar.
„Við skorum bara á handknattleiks-
áhugafólk að styðja við bakið á okkur
með því að mæta á Ásvelli. Við erum
eina íslenska karlaliðið sem eftir er í
Evrópukeppninni á þessu keppnis-
tímabili. Fólk á því að geta sameinast
um okkur,“ segir Aron Kristjánsson,
þjálfari Hauka.
Tilboðsverð er á miðum á leikina.
Hægt er að kaupa miða á þá báða fyrir
1.500 kr.
Morgunblaðið/Ómar
Evrópukeppni Pétur Pálsson og félagar í Haukum leika tvo leiki í EHF-keppninni á heimavelli í dag og á morgun.
„Það er eftirvænting í hópnum enda er
alltaf gaman að taka þátt í Evrópu-
keppni,“ segir Aron Kristjánsson, þjálf-
ari Íslandsmeistara Hauka í handknatt-
leik karla. Í dag og á morgun mæta
Haukar ungverska liðinu PLER KC í 32-
liða úrslitum EHF-keppninnar. Báðir
leikirnir fara fram á heimavelli Hauka á
Ásvöllum. Í dag verður flautað til leiks
klukkan 16 en klukkan 18 á morgun.
Haukar skora á handknattleiks-
áhugamenn að mæta og styðja sig í
leikjunum.
Stefnir í jafnan og
harðan Evrópuslag
Haukar mæta PLER Báðir leikir á Ásvöllum um helgina
MÓTHERJAR Íslendinga í kvöld, knattspyrnu-
landslið Lúxemborgar, eru í betri stöðu í dag en
oftast áður í sögunni. Lúxemborg hefur löngum
verið eitt allra slakasta landslið Evrópu en náði því
takmarki í nýlokinni undankeppni heimsmeist-
aramótsins að hafna ekki í neðsta sætinu í sínum
riðli.
Lúxemborg vann einn leik í keppninni og hann
gífurlega óvæntan. Liðið lagði nefnilega Sviss á
útivelli, 2:1, í Zürich fyrir rúmu ári. Það reyndist
eini ósigur Svisslendinga í riðlinum og þeir fóru
beint á HM. Þar fyrir utan gerðu Lúxemborg og
Moldóva jafntefli, 0:0, í báðum sínum leikjum. Lúx-
emborg fékk þar með fimm stig en Moldóva
vermdi botnsætið með þrjú stig.
Langfremsti knattspyrnumaður Lúxemborgar
Strasser stærsta na
Snæfell – FSu 107:74
Stykkishólmur, úrvalsdeild karla, Iceland
Express-deildin, föstudaginn 13. nóvem-
ber.
Gangur leiksins: 49:27, 107:74
Stig Snæfells: Pálmi Freyr Sigurgeirsson
19, Hlynur Bæringsson 16, Jón Ólafur
Jónsson 15, Emil Jóhannesson 15, Sean
Burton 13, Páll Fannar Helgason 10,
Sveinn Arnar Davíðsson 8, Egill Egilsson
8, Kristján Andrésson 3.
Fráköst: 36 í vörn – 16 í sókn.
Stig FSu: Brynjar Karl Sigurðsson 20,
Dominic Baker 18, Corey lewis 12, Aleksas
Zimnickas 11, Kjartan Ragnar Kjartans-
son 5, Ragnar Gylfason 4, Jón Birgir Guð-
mundsson 2, Jake Wyatt 2.
Fráköst: 22 í vörn – 8 í sókn.
Villur: Snæfell 21 – FSu 30.
Fjölnir – KR 71:100
Grafarvogur, íþróttahúsið Dalhúsum, úr-
valsdeild karla, Iceland Express-deildin,
föstudaginn 13. nóvember.
Gangur leiksins: 3:0, 7:4, 7:9, 17:21, 19:23,
23:27, 23:32, 32:44, 37:55, 45:58, 52:70,
54:77, 70:85,70:89, 71:100.
Stig Fjölnis: Christopher Smith 24, Ægir
Þór Steinarsson 13, Ingvaldur Magni Haf-
steinsson 10, Árni Þór Jónsson 9, Garðar
Sveinbjörnsson 5, Arnþór Guðmundsson 5,
Níels Dungal 3, Sverrir Karlsson 2,
Stig KR: Semaj Inge 24, Tommy Johnson
18, Fannar Ólafsson 14, Brynjar Björnsson
10, Finnur Magnússon 9, Jón Orri Krist-
jánsson 8, Skarphéðinn Ingason 8, Darri
Hilmarsson 7, Steinar Kaldal 2.
Dómarar: Jakob Árni Ísleifsson og Jón
Guðmundsson. Ágætir.
Áhorfendur: Tæplega 200.
Keflavík – ÍR 107:81
Toyota-höllin Keflavík, Iceland Express-
deild karla, föstud. 13. nóvember 2009.
Gangur leiksins: 31:23, 67:48, 84:59, 107:81.
Stig Keflavíkur: Hörður Axel Vilhjálmsson
22, Sigurður Þorsteinsson 16, Þröstur Leo
Jóhannsson 14, Gunnar Einarsson 12,
Sverrir Þór Sverrisson 10, Davíð Þór Jóns-
son 8, Elentínus Margeirsson 7, Sævar
Sævarsson 7, Gunnar Stefánsson 6, Guð-
mundur Gunnarsson 4, Jóhann Finnsson 1.
Fráköst: 24 í vörn – 9 í sókn.
Stig ÍR: Nemanja Sovic 24, Gunnlaugur
Elsuson 9, Hreggviður Magnússon 8,
Kristinn Jónasson 8, Elvar Guðmundsson
7, Ólafur Þórisson 7, Steinar Arason 5, Ás-
geir Hlöðversson 4, Eiríkur Önundarson 4,
Björgvin Jónsson 4, Vilhjálmur Steinars-
son 1.
Fráköst: 19 í vörn – 13 í sókn.
Villur: 27 Keflavík – ÍR 21.
Dómarar: Davíð Hreiðarsson og Einar
Skarphéðinsson.
Áhorfendur: 250.
Úrvalsdeild karla, Iceland-Express:
Njarðvík 6 6 0 519:439 12
Stjarnan 6 5 1 534:469 10
KR 6 5 1 546:472 10
Keflavík 6 5 1 537:428 10
Snæfell 6 4 2 545:445 8
Hamar 6 3 3 496:504 6
Grindavík 6 3 3 515:466 6
ÍR 6 2 4 507:522 4
Tindastóll 6 2 4 481:542 4
Breiðablik 6 1 5 440:521 2
Fjölnir 6 0 6 420:559 0
FSu 6 0 6 411:584 0
Næstu leikir:
19.11. Tindastóll – Keflavík
19.11. Grindavík – Stjarnan
19.11. KR – Hamar
20.11. ÍR – Snæfell
20.11. Njarðvík – Breiðablik
20.11. FSu – Fjölnir
Staðan
BJÖRGVIN Björgvinsson frá Dal-
vík verður á meðal keppenda í
fyrsta heimsbikarmóti vetrarins í
svigi á morgun. Þá verður keppt í
Levi en það er eitt stærsta skíða-
svæði Finna og er í bænum Kittilä
í Lapplandi, nyrst í Finnlandi. Að
sögn Guðmundar Jakobssonar,
formanns alpagreinanefndar
Skíðasambands Íslands, er reikn-
að með fínu veðri til keppni en 8-
12 stiga frosti. „Mótshaldarar hafa
sprautað tveimur milljónum lítra
af vatni í brekkuna til að hún
verði sem best fyrir alla kepp-
endur og sem minnstar líkur á að
holur myndist í brautinni,“ sagði
Guðmundur.
Björgvin hefur æft í Levi síð-
ustu dagana en fær ekki frekar en
aðrir keppendur að prófa keppn-
isbrautina fyrr en síðdegis í dag.
vs@mbl.is
Björgvin
keppir í
Lapplandi