Morgunblaðið - 14.11.2009, Qupperneq 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2009
ÍSLENSKA 21-árs landsliðið í
knattspyrnu vann í gærkvöld sinn
fjórða leik í röð í Evrópukeppninni
þegar það burstaði San Marínó, 6:0,
í Serravalle. Ísland og Tékkland eru
jöfn og efst í 5. riðli keppninnar með
12 stig en Tékkar hafa leikið fjóra
leiki og íslensku strákarnir fimm.
Ísland sigraði með átta mörkum
gegn engu þegar liðin mættust á
Laugardalsvellinum í síðasta mán-
uði og hélt áfram uppteknum hætti
því staðan var orðin 3:0 eftir aðeins
18 mínútna leik. Kolbeinn Sigþórs-
son, Gylfi Þór Sigurðsson og Bjarni
Þór Viðarsson, úr vítaspyrnu, höfðu
þá sent boltann í mark heimamanna.
Gylfi bætti við sínu öðru marki
eftir hálftíma, með glæsilegu skoti,
og staðan var 4:0 í hálfleik. Alfreð
Finnbogason kom inná sem vara-
maður snemma í síðari hálfleik og
það tók hann aðeins þrjár mínútur
að koma boltanum í netið. Alfreð var
síðan aftur á ferð skömmu fyrir
leikslok og innsiglaði sigurinn.
„Ég er mjög ánægður með hve
föstum tökum strákarnir tóku leik-
inn frá fyrstu mínútu. Þeir keyrðu
strax á mótherjana af krafti, spiluðu
flottan fótbolta og sköpuðu sér mörg
marktækifæri. Þetta var bullandi
sóknarleikur og hann gekk vel upp.
Við stjórnuðum algjörlega hrað-
anum í leiknum, jukum hann og
hægðum á eftir þörfum. Mörkin
komu flest eftir fallegt spil eða
stungur í gegnum vörnina,“ sagði
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari liðsins.
Hann tók út leikbann og sat því í
stúkunni en Tómas Ingi Tómasson
stýrði liðinu af bekknum. vs@mbl.is
Morgunblaðið/hag
Tvö Gylfi Þór Sigurðsson sendi bolt-
ann tvisvar í mark San Marínó.
„Tóku þetta strax föstum tökum“
Ísland vann San Marínó 6:0 í EM 21-árs liða Fjórði sigur strákanna í röð
Ágúst Björg-vinsson er
þjálfari kvenna-
liðs Hamars en
hann er þraut-
reyndur á því
sviði eftir að
hafa náð frábær-
um árangri með
kvennalið Hauka
á undanförnum árum.
Ágúst er einnig þjálfari karlaliðsHamars sem leikur í efstu
deild líkt og konurnar. Ágúst tók
við af Ara Gunnarssyni sem var
þjálfari Hamars í fyrra en liðið end-
aði í þriðja sæti undir hans stórn.
Ari hafði vistaskipti og þjálfar nú
kvennalið Vals.
Töluverðar breytingar eru á leik-mannahópi Hamars frá því
fyrra. Julia Demirer og Kiki Bar-
kus voru lykilmenn liðsins í fyrra og
eru þær farnar. Jóhanna Sveins-
dóttir fór í KR og Rannveig Reyn-
isdóttir tók sér frí. Salbjörg Sæv-
arsdóttir og Elma Jóhannsdóttir
fóru báðar í Laugdæli.
Hamar fékk í sínar raðir tvo afbestu leikmönnum landsins.
Borgfirðingurinn Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir kom frá KR. Lands-
liðskonan hefur skorað 12,5 stig að
meðaltali í leikjum Hamars það sem
af er tímabilinu og hún er einnig
með um 9 fráköst að meðaltali í leik.
Landsliðs-konan Krist-
rún Sigurjóns-
dóttir kom úr
Haukum og Guð-
björg Sverr-
isdóttir einnig.
Guðbjörg er
systir Helenu
Sverrisdóttur
sem leikur með TCU í bandaríska
háskólaboltanum.Kristrún hefur
skorað um 15 stig að meðaltali í leik
það sem af er tímabilinu.
Koren Schram frá Bandaríkj-unum er eini erlendi leikmað-
urinn í herbúðum Hamars. Hún er
stigahæsti leikmaður liðsins og
skorar um 20 stig að meðaltali í
leik.
Adda María Óttarsdóttir 15 ára Bakvörður
Dúfa Ásbjörnsdóttir 26 ára Bakvörður
Fanney Guðmundsdóttir 20 ára Miðherji
Guðbjörg Sverrisdóttir 17 ára Bakvörður/framherji
Hafrún Hálfdánardóttir 19 ára Framherji
Íris Ásgeirsdóttir 22 ára Framherji
Jenný Harðardóttir 17 ára Framherji
Kristrún Sigurjónsdóttir 24 ára Bakvörður
Kristrún Rut Antonsdóttir 15 ára Bakvörður
Koren Schram 22 ára Bakvörður
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 19 ára Framherji
Sóley Guðgeirsdóttir 29 ára Miðherji
Leikmannahópur Hamars 2009-2010
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
„MARKMIÐIÐ er að vinna Íslands-
meistaratitilinn og ég tel að við séum
með lið sem getur farið alla leið. Það
þarf allt að ganga upp til þess að við
náum þessu markmiði,“ segir Ágúst
Björgvinsson, þjálfari kvennaliðs
Hamars, þegar hann var inntur eftir
markmiðum liðsins í vetur. Hamar
tapaði nokkuð óvænt gegn Njarðvík
á útivelli og í fyrrakvöld tapaði liðið
gegn KR á heimavelli. Þjálfarinn
segir að liðið eigi mikið inni þar sem
meiðsli og veikindi lykilmanna hafi
tafið framgang liðsins í haust. „Við
höfum ekki náð að æfa eins vel og ég
hafði gert ráð fyrir vegna meiðsla og
veikinda. Á undanförnum 4-5 vikum
höfum við aldrei náð æfingu þar sem
að allir hafa verið með. Guðbjörg
Sverrisdóttir, Kristrún Sigurjóns-
dóttir og Sigrún Ásmundsdóttir hafa
allar verið frá í einhvern tíma. Þetta
hefur tafið okkur aðeins og ég tel að
við eigum mikið inni. Við erum ekk-
ert farin að örvænta þrátt fyrir tvo
tapleiki. KR-ingar eru taplausir í
deildinni og það er liðið sem við og
önnur lið verðum að vinna ef við ætl-
um okkur að fara alla leið.“
Í liði Hamars eru reynslumiklir
leikmenn og segir þjálfarinn að leik-
stíll liðsins sé blanda af hinu og
þessu sem henti leikmannahópnum.
Leikstíllinn sem við erum að nota
er blanda af hröðum leik og hægum.
Við erum með góðar skyttur og leik-
menn sem geta farið hratt upp völl-
inn. Koren Scram er leikstjórnandi
liðsins og hún er mikil skytta og góð-
ur alhliða leikmaður. Það fer líka eft-
ir mótherjunum hvernig áherslurnar
eru hjá okkur. Við skjótum fyrir ut-
an og komum boltanum inn í teig.“
Kann vel við álagið
Ágúst er einnig þjálfari karlaliðs
félagsins og kann hann vel við álagið
sem því fylgir.
„Mér finnst þetta alveg frábært.
Það er alltaf nóg að gera og stundum
eru 4-5 leikir á viku á dagskrá. Ég er
með góða aðstoðarþjálfara með mér
í þessu og þeir leysa málin þegar ég
get ekki verið á tveimur stöðum í
einu. Ég hef oft látið mína leikmenn
æfa meira. Æfingatímar í íþrótta-
húsinu eru þéttsetnir og við verðum
að sætta okkur við það.“
„Erum með lið sem
getur farið alla leið“
Meiðsli og veikindi lykilmanna hafa tafið undirbúning kvennaliðs Hamars
Morgunblaðið/hag
Frákast Fanney Guðmundsdóttir er lykilmaður í úrvalsdeildarliði Hamars úr Hveragerði.
Kvennalið Hamars í Hveragerði hefur
leikið í efstu deild frá því að liðið
komst upp úr næstefstu deild vorið
2006. Liðið kom verulega á óvart á
síðustu leiktíð og er markmiðið að
gera enn betur og blanda sér í barátt-
una um þá titla sem eru í boði. Hamar
hefur unnið fjóra af fyrstu sex leikj-
um sínum í deildinni.
Körfuknattleikur: Morgunblaðið kynnir liðin í úrvalsdeild kvenna, Iceland Express deildinni
Olimpico-leikvangurinn, Serravalle,
Evrópukeppni U21 karla, 5. riðill,
föstudag 13. nóvember 2009.
Mörk Íslands: Gylfi Þór Sigurðs-
son 15., 31., Alfreð Finnbogason
60., 82., Kolbeinn Sigþórsson 8.,
Bjarni Þór Viðarsson 18. (víti).
Skot: San Marínó 9 – Ísland 20.
Horn: San Marínó 3 – Ísland 2.
Lið San Marínó: Gobbi, Cervellini,
Casadei, Coppini, Giannoni, Mazza,
Canini (Mularoni 75.), Berretti,
Della Valle (Venerucci 62.), Vitaioli
(Rosti 84.), Bianchi.
Lið Íslands: (4-5-1) Mark: Har-
aldur Björnsson. Vörn: Eggert G.
Jónsson, Hólmar Örn Eyjólfsson,
Jón Guðni Fjóluson, Hjörtur Logi
Valgarðsson. Miðja: Birkir Bjarna-
son (Kristinn Steindórsson 82.),
Gylfi Þór Sigurðsson, Guðmundur
Kristjánsson (Almarr Ormarsson
46.), Bjarni Þór Viðarsson, Jóhann
Berg Guðmundsson. Sókn: Kol-
beinn Sigþórsson (Alfreð Finn-
bogason 57.)
Gul spjöld: Cervellini 46., Casadei
70.
Dómari: Luc Wilmes, Lúxemborg.
Áhorfendur: Um 500.
San Marínó – Ísland 0:6