Morgunblaðið - 17.11.2009, Qupperneq 1
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2009
íþróttir
Met Um 700 keppendur hvaðanæva af landinu tóku þátt í haustmóti Fimleikasambands Ís-
lands sem fram fór á Akranesi. Fjölmennasta fimleikamót sem haldið hefur verið á Íslandi. 2
Íþróttir
mbl.is
AP
Ísinn brotinn Bandaríski kylfingurinn Michelle Wie hefur verið í kastljósi fjölmiðla allt frá því hún var 12 ára og búsett á Hawaii. Wie hefur gengið í gegn-
um súrt og sætt á undanförnum árum en hinn tvítugi atvinnukylfingur náði að sigra á atvinnumóti í fyrsta sinn á ferlinum í Mexíkó um s.l. helgi. »2
ÁSGEIR Sigur-
geirsson, SR,
bætti eigið Ís-
landsmet um
fimm stig í keppni
með loftskamm-
byssu sl. helgi.
Ásgeir náði 586
stigum í að-
alkeppninni og
99,4 stigum í úr-
slitum – samtals
685,4 stigum. Ásgeir er á góðri leið
með að skipa sér í hóp bestu skot-
manna Evrópu. Til samanburðar er
danska metið 679 stig. Tvöfaldur
ólympíumeistari í greininni, Ragn-
ar Skanaker frá Svíþjóð, á sænska
metið, sem er 686,7 stig. seth@mbl.is
Ásgeir bætti
eigið met
Ásgeir
Sigurgeirsson
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
EKKERT lát virðist á útrás íslensks handknatt-
leikfólks sem hófst fyrir nærri fjórum áratugum.
Fyrst var handknattleikurinn aukabúgrein með
framhaldsnámi en varð síðan að fullri atvinnu hjá
stærstum hluta hópsins.
Tæplega 60 Íslendingar leika handknattleik í fé-
lagsliðum í næstefstu og efstu deildum í sjö löndum
Evrópu. Nær allir þeirra eru í fullri atvinnu við að
æfa og leika handknattleik. Fáeinir úr þessum hópi
eru hálf-atvinnumenn, þ.e. þeir eru úti á hinum
hefðbundna vinnumarkaði hluta úr deginum, oftast
í 50% starfshlutfalli.
Fyrir utan ofangreindan hóp þá er samkvæmt
lauslegri athugun að minnsta kosti á þriðja tug Ís-
lendinga að leika með liðum í 3. og 4. deild og jafn-
vel neðar í Þýskalandi, Noregi og í Danmörku og
fleiri löndum. Þá er komið út í áhugamennsku þar
sem íþróttirnar eru stundaðar oft meðfram fram-
haldsnámi eða vinnu og íþróttin aukaatriði.
Auk þess halda Íslendingar úti íþróttafélagi í
Kaupmannahöfn, IF Guðrúnu, sem hefur þrjár
íþróttagreinar innan sinna vébanda, handknattleik,
knattspyrnu og körfuknattleik. Bækistöðvar fé-
lagsins eru í húsi Jóns Sigurðssonar í Kaupmanna-
höfn.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Geir
Hallsteinssonar ruddi brautina fyrir íslenska hand-
knattleikmenn í Þýskalandi þar sem hann lék
fyrstur Íslendinga sem atvinnumaður hjá Göpp-
ingen leiktíðina 1973 til 1974. Í kjölfar Geirs fylgdi
annar snillingur íþróttarinnar, Axel Axelsson til
Grün Weiss Dankersen í Minden.
Allar götur síðan hafa íslenskir handknattleiks-
menn verið eftirsóttir í Þýskalandi enda fylgt þeirri
braut sem Geir og Axel mörkuðu. Íslenskir hand-
knattleiksmenn þykja duglegir, samviskusamir og
traustir félagsmenn sem Þjóðverjum þykir mikill
kostur.
Nú eru þeir sautján í efstu deild auk tveggja
þjálfara. Þá eru fjórir leikmenn til viðbótar hjá lið-
um í 2. deild og fjórir í 3.deild auk eins þjálfara.
Hrunið hér á landi jók enn á áhuga íslensks
handknattleiksfólks á að hleypa heimdraganum og
reyna fyrir sér úti í Evrópu. Miðað við þann mikla
áhuga sem virtist vera á utanferðum á síðasta vetri
og í vor er ljóst að færri komust að en vildu.
Í opnunni má sjá hvar íslenska handboltafólkið
er niðurkomið víðsvegar um Evrópu. | 3
Ekkert lát á útrásinni
Tæplega 60 íslenskir handknattleiksmenn í atvinnumennsku erlendis Geir
og Axel ruddu brautina í byrjun áttunda áratugarins Færri komast út en vilja
GUNNAR Heiðar
Þorvaldsson mun
á næstu dögum
fá tækifæri til
þess að sýna
hvað í honum býr
hjá enska 1.
deildarliðinu
Reading. Gunnar
hefur ekki fengið
mörg tækifæri
hjá danska úr-
valsdeildarliðinu Esbjerg og hefur
framherjinn leikið með varaliði fé-
lagsins í 2. deild. Ólafur Garðarsson
umboðsmaður Gunnars sagði í gær
að Gunnar myndi leika æfingaleik
með Reading um miðja næstu viku.
„Gunnar mun æfa með Reading út
þessa viku og á þriðjudag eða mið-
vikudag mun hann leika æfingaleik
með liðinu. Reading hefur vitað af
Gunnari í langan tíma og liðið hafði
mikinn áhuga þegar hann var
markahæsti leikmaður Svíþjóðar
og fór í kjölfarið til Hannover í
Þýskalandi. Esbjerg hefur gefið
Gunnari leyfi til þess að skoða aðra
möguleika. Það er búið að ganga
frá þeim fjárhagslegu atriðum sem
snúa að danska liðinu ef hann fer til
annars liðs,“ sagði Ólafur í gær við
Morgunblaðið.
Gunnar Heiðar er 27 ára gamall
og lék með uppeldisfélaginu ÍBV á
árunum 1999-2004. Þaðan fór hann
til Halmstad í Svíþjóð og varð
markakóngur árið 2006. Hann var
seldur til Hannover 2006 en fékk
lítið að spreyta sig hjá þýska liðinu.
Framherjinn lék sem lánsmaður hjá
Vålerenga í Noregi 2007-2008.
Hann samdi við Esbjerg 2008.
Hjá Reading eru þrír íslenskir
leikmenn, Gylfi Sigurðsson, Ívar
Ingimarsson og Brynjar Björn
Gunnarsson. seth@mbl.is
Gunnar
reynir fyrir
sér hjá
Reading
Gunnar Heiðar
Þorvaldsson