Morgunblaðið - 17.11.2009, Blaðsíða 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2009
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Úrslit í fyrrinótt:
Detroit – Dallas .................................... 90:95
Oklahoma City – LA Clippers........... 93:101
Phoenix – Toronto ............................ 101:100
LA Lakers – Houston ........................ 91:101
HANDKNATTLEIKUR
Bikarkeppni karla
Eimskipsbikarinn, 16-liða úrslit:
Víkingur – Afturelding .........................27:25
KNATTSPYRNA
Undankeppni HM kvenna
4. riðill:
Ungverjaland – Úkraína.......................... 1:1
Staðan:
Pólland 4 3 0 1 12:5 9
Ungverjaland 4 2 2 0 8:4 8
Úkraína 3 1 1 1 9:5 4
Rúmenía 3 1 1 1 5:3 4
Bosnía 4 0 0 4 0:17 0
í kvöld
HANDKNATTLEIKUR
Bikarkeppni karla, Eimskipsbikarinn:
Ásvellir: Haukar-2 – Haukar............... 19.30
Laugardalshöll: Þróttur – Selfoss ...... 20.15
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla:
Egilshöll: Björninn – SR...................... 19.15
MICHELLE Wie náði merkum áfanga um s.l.
helgi þegar hún sigraði í fyrsta sinn á LPGA
kvennamótaröðinni í golfi. Wie er þrátt fyrir allt
ekki nema 20 ára gömul en á undanförnum átta
árum hefur hún baðað sig í kastljósi fjölmiðla og
gert risasamninga við stórfyrirtæki án þess að
sýna hvað í henni býr úti á golfvellinum. Wie sigr-
aði á boðsmóti Lorenu Ochoa sem fram fór í
Mexíkó en þar var hún þremur höggum betri en
Paula Creamer sem endaði í öðru sæti á 10 högg-
um undir pari. „Ég er stolt og ánægð að hafa farið
í gegnum erfitt tímabil og komið sterkari til baka.
Það voru margir sem efuðust um að ég gæti gert
þetta,“ sagði Wiw m.a. eftir sigurinn. Hún vakti
fyrst athygli þegar hún vann sér keppnisrétt á
sterku áhugamannamóti þegar hún var 10 ára
gömul. Tólf ára lék hún á sínu
fyrsta LPGA móti sem boðs-
gestur. Þegar Wie var 14 ára
var hún nálægt því að komast
gegnum niðurskurðinn í keppni
við atvinnukarla á PGA-
mótaröðinni og má segja að sá
atburður hafi vakið heims-
athygli. Wie náði sér engan veg-
inn á strik 2007-2009 og hún var
harðlega gagnrýnd fyrir að
sækjast eftir því að fá boð um
að leika á PGA-karlamótaröðinni. Wie fór í gegn-
um úrtökumót LPGA í desember á síðasta ári og
með sigrinum í Mexíkó tryggði hún sér keppn-
isrétt í tvö ár á LPGA-mótaröðinni. seth@mbl.is
Michelle Wie braut ísinn eftir langa bið
Michelle
Wie
GEORGE Burley, landsliðsþjálfari Skota í knatt-
spyrnu, fékk reisupassann í gærkvöldi eins og bú-
ist hafði verið við. Stjórn skoska knattspyrnu-
sambandsins hittist á fundi síðdegis í gær til að
ræða framtíð landsliðsþjálfarans. Formaður sam-
bandsins greindi svo fréttamönnum frá því eftir
fundinn að ákveðið hefði verið að segja Burley upp
störfum. Skotum tókst ekki að tryggja sér farseð-
ilinn á HM næsta sumar en þeir höfnuðu í 3. sæti í
9. riðlinum þar sem við Íslendingar enduðum í
neðsta sæti. Þá töpuðu Skotar, 3:0, fyrir Wales-
verjum í æfingaleik um helgina og er það síðasti
leikur landsliðsins undir stjórn Burleys.
Tveimur aðstoðarmönnum Burleys, þeim Terry
Butcher og Paul Hegarty, var einnig vikið frá
störfum.
Skotar ráku Burley
Aaron Brooksfór á kostum
í liði Houston
Rockets þegar
liðið vann meist-
aralið LA Lakers,
101:91, á útivelli í
NBA-deildinni í
körfubolta í fyrri-
nótt. Bakvörð-
urinn skoraði 33 stig í Staples Cent-
er, þar af 15 með þriggja stiga
skotum, og setti persónulegt met í
deildinni. Houston hefur nú unnið
sex af fyrstu tíu leikjum sínum á
tímabilinu. Kobe Bryant yfirgaf völl-
inn seint í leiknum vegna nára-
meiðsla en hann náði sér ekki á
strik, hitti afar illa og skoraði aðeins
18 stig fyrir Lakers.
Tveir vallarstarfsmenn Manchest-er United hafa verið ákærðir
fyrir að hafa orðið valdir að því að
stuðningsmaður Manchester City
brotnaði á báðum fótum þegar Man-
chester-liðin áttust við í ensku úr-
valsdeildinni á Old Trafford í sept-
ember. Vallarstarfsmennirnir komu
að stuðningsmanni Manchester City
þar sem hann var að reykja inni á
leikvanginum meðan á leiknum stóð,
sem er stranglega bannað. Skipti
engum togum að þeir ýttu harkalega
við stuðningsmanninum þegar þeir
vísuðu honum út af Old Trafford
með þeim afleiðingum að hann féll
illa og brotnaði á báðum fótum.
Málið var tekið fyrir í dómsölum í
Manchester en dómur verður síðan
kveðinn upp í janúar.
Jamaal Tins-ley, sem er
þaulreyndur leik-
stjórnandi úr
NBA-deildinni,
samdi í gær við
Memphis Grizz-
lies. Mikil óvissa
er í herbúðum
liðsins um fram-
tíð Allens Iversons hjá Memphis.
Iverson er í ótímabundnu „leyfi“ frá
störfum sínum á meðan hann leysir
úr persónulegum vandamálum.
Iverson var aðeins notaður sem va-
raskeifa í fyrstu leikjum tímabilsins
og fór það afar illa í bakvörðinn sem
á sínum tíma var einn besti leik-
maður deildarinnar.
Forráðamenn NBA-liðsins Gol-den State Warriors komust að
samkomulagi við Charlotte Bobcats
í gær um leikmannaskipti. Stephen
Jackson, sem hefur lengi átt í deilum
við Don Nelson, þjálfara Warriors,
fer til Charlotte ásamt Acie Law í
skiptum fyrir Raja Bell og Vladimir
Radmanovic.
Fólk sport@mbl.is
EITT stærsta mót ársins í hópfimleikum fór fram á Akranesi um helgina þar
sem haustmót FSÍ fór fram. Um 700 keppendur tóku þátt í mótinu en það var
Fimleikafélag Akraness sem hafði umsjón með framkvæmd þess.
Í 3. flokki unglinga, þar sem keppt var eftir landsreglum, sigraði Grótta, Sel-
foss kom þar næst og Stjarnan endaði í þriðja sæti.
Í 4. flokki unglinga, þar sem keppt var eftir landsreglum, sigraði Gerpla A
eftir harða keppni við Stjörnuna. Selfoss varð í þriðja sæti.
Í 5. flokki, þar sem keppt var eftir landsreglum, sigraði Stjarnan T3, Gerpla
A varð í öðru sæti og FimAk frá Akureyri endaði í þriðja sæti.
Í úrvalsdeild var keppt eftir TeamGym-reglum. Þar sigraði Selfoss í meist-
araflokki, Keflavík kom þar næst og Rán úr Vestmannaeyjum varð í þriðja sæti.
Gerpla sigraði í karlaflokki en það var eina sveitin sem sendi karlalið til
keppni.
Í 1. flokki sigraði Gerpla P2, Selfoss endaði í 2. sæti og Stjarna fékk bronsið.
Í 2. flokki sigraði Stjarnan, Gerpla fékk silfur og Selfoss brons. seth@mbl.is
Um 700 keppendur á haustmóti
FSÍ í hópfimleikum á Akranesi
Morgunblaðið/Sigurður Elvar