Morgunblaðið - 17.11.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.11.2009, Blaðsíða 4
Árnína Lena Rúnarsdóttir 16 ára Framherji Auður Íris Ólafsdóttir 17 ára Bakvörður Bryndís H. Hreinsdóttir 19 ára Bakvörður Dagbjört Samúelsdóttir 16 ára Framherji Guðrún Ósk Ámundadóttir 22 ára Bakvörður/framherji Heather Ezell 22 ára Bakvörður Heiðrún Ösp Hauksdóttir 25 ára Bakvörður Inga Sif Sigfúsdóttir 17 ára Framherji Ína Salome Sturludóttir 17 ára Bakvörður Kristín Fjóla Reynisdóttir 15 ára Bakvörður Margrét R. Hálfdánardóttir 15 ára Bakvörður María Lind Sigurðardóttir 20 ára Bakvörður/framherji Ragna M. Brynjarsdóttir 19 ára Miðherji Rannveig Ólafsdóttir 17 ára Bakvörður Sara Pálmadóttir 24 ára Miðherji Telma Björk Fjalarsdóttir 25 ára Miðherji/framherji Leikmannahópur Hauka 2009-2010 4 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2009 hollenska félagið er með eitthvert öflugasta unglingastarf sem um get- ur í Evrópu. „Þórður var látinn æfa með þrem- ur mismunandi aldurshópum, U15 ára, U16 ára og U17 ára, en í elsta hópnum eru sjö unglingalandsliðs- menn Hollands. Ef erlendir piltar koma til Ajax þurfa þeir að vera betri en hollenskir jafnaldrar þeirra og þess vegna eru þeir prófaðir á æf- ingum með eldri piltum. Það er ljóst að Þórður er kominn á skrá hjá Ajax sem er mikill áfangi,“ sagði Kristján, sem fylgdist með Þórði á æfingum „HENNY de Regt, yfirþjálfari ung- lingastarfsins hjá Ajax, sagði að Þórður Jón hefði staðið sig mjög vel þessa viku sem hann var hjá félag- inu. Hann hefði sýnt margt gott og væri auðsjáanlega mikið efni sem Ajax myndi fylgjast með í framtíð- inni,“ sagði Kristján Bernburg, stjórnandi knattspyrnuskóla KB í Belgíu, við Morgunblaðið. Eins og áður hefur komið fram í blaðinu sáu útsendarar frá hollenska knattspyrnustórveldinu Ajax til hins 14 ára gamla Þórðar Jóns Jóhann- essonar úr Haukum í Hafnarfirði þegar hann var við æfingar í KB- skólanum í Lokeren síðasta sumar. Þeir buðu honum til æfinga og Þórð- ur dvaldi hjá Ajax í síðustu viku en hjá hollenska félaginu. „Það er áber- andi hve mikill hraði er á öllu á æf- ingunum hjá Ajax, og spilaður fót- bolti með einni snertingu þar sem allir eru hreyfanlegir og vilja fá bolt- ann. Þórður kom vel út miðað við hollensku strákanna og í lækn- isskoðun hjá félaginu kom í ljós að hann er geysilega vel á sig kominn. Svo er athyglisvert að í akademíunni hjá Ajax verða strákarnir að standa sig vel í skólanum. Námið er númer eitt, fótboltinn númer tvö,“ sagði Kristján Bernburg, sem hefur samið við Henny de Regt um að koma sem gestaþjálfari í KB-skólann næsta sumar, þegar íslenskir piltar verða þar við æfingar. „Það er gífurleg viðurkenning því þjálfarar frá Ajax fara ekki hvert sem er og knattspyrnuskólar bíða í röðum eftir því að fá þá í heimsókn,“ sagði Kristján. vs@mbl.is Ajax mun fylgjast áfram með Þórði  Haukastrákurinn stóð sig vel hjá hollenska stórveldinu Æfing Þórður Jón Jóhannesson á fullri ferð á æfingu hjá Ajax. Ajax Þórður Jón í höfuðstöðvum Ajax ásamt Geirþrúði, móður sinni. Haukar hafatitil að verja á Íslands- mótinu í úrvals- deild kvenna í körfuknattleik en Hafnarfjarð- arliðið hefur þrí- vegis sigrað á Ís- landsmótinu. Yngvi Gunnlaugsson var þjálfari Hauka á síðustu leiktíð en hann er þjálfari 1. deildarliðs Vals í karla- flokki. Henning Freyr Henningsson tók við þjálfun Hauka s.l. sumar en hann er einnig þjálfari kvennalands- liðsins.    Haukar sigruðu á Íslandsmótinuí fyrsta sinn vorið 2006 og liðið varði titilinn 2007.    Töluverðar breytingar eru á leik-mannahóp liðsins en tveir af lykilmönnum liðsins gengu í raðir Hamars í Hveragerði. Kristrún Sig- urjónsdóttir og Guðbjörg Sverr- isdóttir. Slavica Dimovska leikur með liði í Makedóníu en hún var miðherji Hauka í fyrra.    Ragnheiður Theódórsdóttirskipti í sitt gamla félag eftir að hafa leikið með Val og Guðrún Ámundadóttir kom úr KR.    Ragna Mar-grét Brynj- arsdóttir skorar 11,5 stig að með- altali í leik fyrir Hauka og er hún næst stigahæst. Guðrún Ámunda- dóttir skorar 10 stig að meðaltali í leik fyrir Hauka.    Bandaríski leikmaðurinn HeatherEzell hefur sannarlega styrkt lið Hauka en hún kemur úr Iowa State háskólanum sem ávallt er með sterkt kvennalið. Það sem af er þessu tímabili hefur bakvörðurinn skorað 32,5 stig að meðaltali í leik en það eru rétt um 45% af stigaskorun liðsins að meðaltali í hverjum leik. Ezell lætur að sér kveða í flestum tölfræðiþáttum leiksins. Hún tekur einnig flest fráköst í liði Hauka eða 11 að meðaltali og hún gefur 6 stoð- sendingar að meðaltali í leik. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is HENNING Freyr Henningsson er þjálfari Hauka en hann tók við liðinu sl. sumar er Yngvi Gunnlaugsson hætti störfum hjá Haukum. Henning er jafnframt þjálfari A-landsliðs kvenna og að venju var nóg um að vera hjá landsliðinu sl. sumar. „Ég kom ekki að þjálfun liðsins fyrr en í byrjun september. Davíð Ásgríms- son, aðstoðarþjálfari liðsins, sá um undirbúningstímabilið að mestu leyti. Stelpurnar unnu markvisst eftir áætlun frá styrktarþjálfara sl. sumar en ég held að undirbúningstímabilið geti flokkast sem mjög hefðbundið,“ sagði Henning í gær en hann var þá nýkominn af æfingu hjá Haukaliðinu. Meistaraliðið æfir fimm sinnum í viku sameiginlega og leikmenn taka síðan aukaæfingar þegar tími gefst til. Aðspurður segir þjálfarinn að liðið sé enn í mótun og margt geti lagast þegar líður á tímabilið. „Það eru margir leikmenn að upplifa það í fyrsta sinn að þeir eru lykilmenn í þessu liði en ekki í aukahlutverki. Það hefur háð liðinu að vissu marki en það tekur tíma fyrir leikmenn að átta sig á breytingunum.“ Það er ekkert leyndarmál að leikur Hauka veltur að mestu á því hvernig Heather Ezell gengur í hverjum leik. Bandaríski bakvörðurinn skorar um 45% af stigum liðsins að meðaltali í leik og segir Henning að félagið hafi dottið í lukkupottinn. „Ég held að flestir séu sammála því að Heather er besti leikmaður deildarinnar. Hún hefur góð áhrif á liðið og gerir aðra betri í kringum sig. Heather gefur yf- irleitt botann á þá sem eru í besta færinu en það hefur komið fyrir að leikmenn nýta ekki skottækifærin og gefa boltann til baka á Heather. Þetta er nokkuð sem við erum að vinna í frá degi til dags á æfingum,“ sagði Henning. KR með sterkt lið Markmið Hauka er skýrt en þjálf- arinn telur að KR sé með besta liðið. „KR hefur ekki tapað leik og liðið er mjög sterkt. Okkur var spáð fimmta sætinu og það var ekkert óraunhæft að mínu mati. Við eigum að geta blandað okkur í baráttuna við Hamar og Keflavík um efstu sætin. Keflavík á eftir að vaxa þegar á líður tímabilið en ég er ekki í vafa um að tímabilið verður skemmtilegt og spennandi,“ sagði Henning Henn- ingsson. Miklar breytingar hjá meistaraliði Hauka Heather Ezell skorar 45% af stigum Íslandsmeistaraliðs Hauka í hverjum leik Morgunblaðið/Ómar Góð Heather Ezell, leikmaður Hauka, hefur farið á kostum með Hafnarfjarðarliðinu á Íslandsmótinu fram til þessa. Haukar hafa titil að verja á Íslands- mótinu í körfuknattleik kvenna en Hafnarfjarðarliðið landaði þriðja Ís- landsmeistaratitli félagsins sl. vor. Meistaraliðið hefur unnið þrjá leiki og tapað þremur en þjálfari liðsins er ánægður með gang mála hjá liðinu og telur að liðið geti blandað sér í bar- áttuna um efstu sætin. Körfuknattleikur: Morgunblaðið kynnir liðin í úrvalsdeild kvenna, Iceland Express-deildinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.