Norðurland - 17.06.1994, Qupperneq 8

Norðurland - 17.06.1994, Qupperneq 8
8 - NORÐURLAND Annáll: Fréttir á lýðveldistímanum / / A lýðveldistímanum hafa Islendingar gengið í gegn- um súrt og sætt. Þegar litið er yfir atburðarrásina á Norðurlandi eystra er af nógu að taka af bæði stór- um sem smáum atburðum, sorglegum sem gleðileg- um. Hér á eftir er litið yfír farinn veg og að sjálf- sögðu byrjað á árinu 1944 og endað á kjöri 4. forseta lýðveldisins. Gripið er niður í annála af handahófi. 1944: Ríkisstjórnin leggur fram tillögu um sambandsslit 13.03: Ríkisstjórnin lét útbýta á Alþingi í gær tillögu til þings- ályktunar um niðurfellingu dansk- íslenska sambandslagasamnings- ins, og í'rumvarpi tilstjómskipun- arlaga um stjórnarskrá fyrir lýð- veldið Island. Hafa þingskjöl þessi inni að halda óbreyttar tillögur milliþinganefndar í stjórnarskrár- málinu... Þjóðveldið endur- reist að Lögbergi -Sveinn Björnsson kjörinn / fyrsti forseti Islands 20.06: Stofnun hins íslenska lýð- veldis var formlega lýst yfir á þingfundi að Lögbergi 17. júní síðastliðinn og fyrsti forseti þess kjörinn. Þrátt fyrir illt veður var múgur og margmenni saman kom- inn á hinum fornhelga stað, til þess að vera viðstaddur hina miklu og hátíðlegu athöfn, er náð var langþráðu marki í sjálfstæðis- baráttu þjóðarinnar... Skeyti frá Kristjáni X. 05.05: í gær barst Bimi Þórðar- syni, forsætisráðherra Islands, skeyti frá sendiráði Islands í Kaupmannahöfn, sem hafði að geyma orðsendingu frá Kristjáni konungi X. Segir í orðsending- unni, að konungur geti ekki með- an núverandi ástand varir viður- kennt lýðveldisstofnun á Islandi. Sambandsslitin samþykkt í þjóðar- atkvæðagreiðslu 01.06: Atkvæði hafa nú verið talin í öllum kjördæmum, og sýna úr- slitin mjög eindreginn vilja þjóð- arinnar, bæði með sambandsslit- um og lýðveldisstofnun. Með sambandsslitum greiddu atkvæði 71122 en 377 voru á móti. Auðir seðlar voru 805 og ógildir 754. Með lýðveldisstjórnarskránni voru greidd 69435 atkvæði en 1051 atkv. á móti. Auðir voru 2054 seðlar og ógildir 518... Hestur fer niður Goðafoss 11/7: Nýlega skeði sá fáheyrði at- burður, að hestur einn, sem ætlaði yfir Skjálfandafljót um 180 metr- um fyrir ofan Goðafoss, barst með straumnum fram af fossbrúninni og steyptist í hylinn fyrir neðan. Komst hesturinn heilu og höldnu að landi, undir gljúfrunum við fossinn. Var hann ómeiddur að heita mátti, aðeins lítillega hrufl- aður. Til þess að ná hestinum upp voru sett á hann bönd, og hann dreginn upp hjá brúnni... 1945: Nonni látinn 06.04: Fregnir hafa borist um það, að Jón Sveinsson rithöfundur, sem allir þekkja undir nafninu Nonni, hafi andazt í sjúkrahúsi í Þýzka- landi síðastliðið haust, 85 ára að aldri... Akureyri: Hótel Gullfoss brennur 15.03: Um miðnætti í nótt kom upp eldur í Hótel Gullfossi á Ak- ureyri og brann húsið til kaldra kola. Varð það alelda á skömmum tíma, og varð litlu sem engu bjarg- að. Þeir, sem í húsinu bjuggu, sluppu allir, en sumir nauðu- lega...Við bruna þennan hafa 40 manns orðið húsnæðislausir, en húsnæðisvandræði eru nú mikil á Akureyri. 1946: Karlmennskuraun í Aðaldal 15.02: Steingrímur Baldvinsson bóndi að Nesi í Aðaldal hrapaði síðastliðinn laugardag í tólf álna djúpa gjá í Aðaldalshrauni og fannst þar ekki fyrr en eftir fimm dægur, eftir mikla leit...Hafði Steingrímur þá hafzt þar við í fimm dægur, matarlaus með öllu og gat lítið sem ekkert sofið. Steingrímur var þó furðulega hress, og gat hjálparlaust bundið um sig kaðli, sem rennt var niður til hans. Honum líður nú vel. Bein Jónasar Hallgrímssonar flutt suður með fógetavaldi 17.11: I síðastliðnum mánuði voru flutt heim til Islands bein þjóð- skáldsins Jónasar Hallgrímssonar, er þá höfðu hvflt í danskri mold í 101 ár. Fyrir heimflutningi bein- anna stóð Sigurjón Pétursson á Alafossi. Flutti hann jarðneskar leifar þjóðskáldsins norður að Bakka í Öxnadal og ætlaði að láta jarðsetja þær þar. En að fyrirskip- an íslenzkra stjómvalda voru beinin tekin með fógetavaldi úr Bakkakirkju og flutt suður að Þingvöllum. Þar voru þau jarðsett í þjóðargrafreitnum í gær. 1947: 25 fórust í flugslysi við Héðinsfjörð 31.05: Douglas-Dakotaflugvél Flugfélags Islands, sem var á leið frá Reykjavík til Akureyrar í fyrradag, rakst á Hestfjall við Héðinsfjörð, og fórust allir, sem í vélinni voru, 25 manns sam- tals...Meðal farþega, sem fórust í þessu hörmulega slysi, voru lands- kunnir menn, þar á meðal Garðar Þorsteinsson alþingismaður, og þekktir borgarar á Akureyri, Brynja Hlíðar lyfjafræðingur, Gunnar Hallgrímsson tannlæknir og Stefán Sigurðsson deildarstjóri KEA... 1949: Mænuveiki geisar á Akureyri 11.01 :Mænuveiki hefur geisað á Akureyri síðan í nóvembermánuði og heldur enn áfram hervirkjum sínum. Mörg hundruð manns hafa tekið veikLna, á annað hundrað manns hafa lamazt, þar af 9-10 svo mjög, að hætta er talin á, að um varanlega lömun sé að ræða... 1950: Meistara minnst Minnisvarði Stefáns Stefánssonar skólameistara var afhjúpaður á Akureyri 15. okt. Stendur varðinn á lóð menntaskólans. Eru það gamlir nemendur Stefáns, sem gefa skólanum minnismerkið, en það er gert af Sigurjóni Ólafssyni myndhöggvara. 1951: Rjúpur og refir á götum Akureyrar 31.01: ...Til marks um það hve nú sverfur að villtum dýrum og fugl- um, má geta þess, að undanfarna daga hafa rjúpur gert sig heima- komnar í skemmtigörðum Akur- eyrar og jafnvel á götum bæjarins. Koma rjúpurnar alveg heim undir húsveggi og þiggja mat, ef í boði er. Sama er að segja um tófuna. Hún er að vísu ekki komin upp undir húsveggi. En refir hafa sézt í nánd við Akureyri. Hefur þeirra jafnvel orðið vart í kringum gróðr- arstöðina þar, svo og í nánd við Lystigarðinn. 1953: Fjórðungssjúkrahús á Akureyri í desember: Risið er af grunni á Akureyri veglegt fjögurra hæða sjúkrahús. Er það fullbúið sjúkra- hús, sem rúmað getur 120 sjúk- linga...Yfirlæknir er Guðmundur Karl Pétursson. 1954: Þingvísa 1 tilefni af því, að á lokuðum fundum Alþingis um handritamál- ið náðist fullt samkomulag um að svara tilboði Danastjómar neit- andi, fæddist þessi þingvísa, sem sagt er að sé eftir Karl Kristjáns- son: Eftirtektar er það vert enn - á deiluþingum, hve Danir okkur geta gert að góðum Islendingum. “ 1955: Sólfaxi á upplýstum Akureyrarflugvelli 17.12: í gærkvöldi lenti f fyrsta skipti á Akureyrarflugvelli fjög- urra hreyfla flugvél. Var það Sól- faxi Flugfélagsins. Hin nýju flug- brautarljós lýstu völlinn í fyrsta skipti, og voru þau formlega tekin í notkun við þetta tækifæri. Með þessu flugi er Akureyrarflugvöllur orðinn varavöllur fyrir millilanda- flugvélar þegar svo ber við að Keflavíkurflugvöllur og Reykja- víkurvöllur eru lokaðir. 1956: Ný sundlaug á Akureyri 08.07. 8. júlí var vígð ný sundlaug á Akureyri með búningsklefum fyrir 126 manns. Lárus Rist sund- kennari var heiðursgestur Akur- eyrar við opnun sundlaugarinnar. 1962: Aldarafmæli Akur- eyrarkaupstaðar Aldarafmælis Akureyrarkaupstað- ar hefur verið minnst með vegleg- um hátíðahöldum dagana 29. ágúst til 2. september...Forseti ís- lands og frú hans voru viðstödd, svo og ráðherrar og margir aðrir gestir auk mikils Ijölda heima- manna... 1964: Davíð Stefánsson látinn 01.03: Davíð Stefánsson frá Fagraskógi andaðist á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri í morgun, 69 ára að aldri. Hann var um hálfrar aldar skeið einn helsti jöfur íslenskrar ljóðlistar, arftaki gam- allar ljóðhefðar, en varð ungur að árum brautryðjandi þeirrar ný- sköpunar, sem síðan hefur átt sér stað... 1965: Dægurvísa Jakobínu 10.11: Komin er út skáldsagan Dægui"vísa, saga úr Reykjavíkur- lífinu eftir Jakobínu Sigurðardótt- ur...Þetta er þriðja bók Jakobínu en hún hefur áður gefið út ljóða- bók og smásagnasafn. 1966: Eignatjón í fárviðri 1.02: Fárviðri gekk yfir landið í gær og olli skemmdum á mann- virkjum um allt land, svo að tjónið Öskuin Norðlendingum oq landsmönnum öllum til hamingju með hálfrar aldar af- mæli íslenska lýðveldisins oq óskum þjóðinni heilla á j?jóðhá- tíðardaginn 17. juní 1994. Skeljungur hf.

x

Norðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.