Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.05.1952, Blaðsíða 11

Skólablaðið - 01.05.1952, Blaðsíða 11
Qui Bono? NÁtTÚRUFRÆÐI 1 IV. Y. Jóh.: Nefndu annan merkan demant. Örn: Koh-I-Noor. Jóh.: Hvernig skrifað? Örn: Það er með 2 strikum. SAGA 1 5. X. Pétur Pálmason: „Ef maður erfir fyrirtæki eftir föður sinn, þarf maður þá að horga erfðaska'tt?“ Gústaf Arnar stud. art: „Er nú Pétur farinn að hugsa um rektorsembættið?“ ENSKA í 5. BEKK C. Sig. Pét. þýðir: The earth sprang up beside ne .... Jörðin hoppaði upp við hliðina á mér. IÐINN VIÐ SITT. Olio Jensa þýðir úr Shakespeare: We vvould not die in that mans company that fears his fellowship to die with us. Við viljum ekki deyja á sama vettvangi og þessi maður. sem skortir félagsþroska til að deyja með oss. JÁTNING. Ingvar Kj., 5. y. þýðir: Komm’ her zu mir, Geselle, hier find’st du deine Ruh! Komdu hingað til mín, kunningi, hér finnur þú róna! ÞÚ SÉR FLÍSINA ... Jón Thór Haraldsson heyrði Volter Antonsson í há- værri deilu. „Helvíti er hann skemmtilega skrækur þessi,“ varð Jóni þá að orði. Nærstaddir voru Rúnar Hjartarson og Þóroddur Oddsson — og hlógu báðir hátt. FRÓÐLEIKSFÝSN. Fvrir prófið í íslendcum stíl gekk Arnljótur Björns- um allt og spurði, hvort klósett væri með z. PYROMANI. Stundum koma brandarar í póstkassa Skólablaðs- ins. Eitt sinn, er ritstjóri blaðsins kom að honum, stóð innihald hans — kassans — í björtu báli, en hópur eldsdýrkara stóð æpandi í kring. Ritstjóri benti grátandi inn í logana og mælti: „Hér farast brandar- ar, sem hvergi fást í öllum heimi“. Síðan tók hann að grennslast um upptök eldsins og sagði þá Ingvi Matthías, að ritstjóri Kyndils, Sig. Guðmundsson hefði stunkið Kyndli í kassann. Rannsókn hefur farið fram, en ekkert sannast, enda er lang fyrirhafnar- minnst að hætta því og kenna bara helvítis kommún- istunum um brunann. FJÁRMÁLAVIT + ELDINGA. Sig Þór. í 4. B. „. . . .brennur árlega mikiil fjöldi sveitabæja á Norðurlöndum, þegar eldingu lýstur niður — einkum ef þeir eru vel vátryggðir.1" ALLT ER HIRT ... Þórh. Vilm. í 5. B: Einar Kvaran skrifaði eitt sinn hatramma ádeilu á Menntaskólann .... Óreglujens: Skyldi nokkursstaðar vera hægl að ná í þá grein? FRANSKA 1 5. C. Sigríður Magg tekur Hauk upp í frönsku. í textan- um er setningin: „Mrs. Meloney est un des étres, de plus en plus nombreux .... Haukur er maður kurteis og vildi frekar fá 0 en þýða þennan dónaskap. Hörður Villhj. tekur þá við og snarar því á íslenzku: „Frú Meloney er ein af þeim verum, sem fjölgar á hverjum degi.“ SÆLIR ERU ÞEIR, SEM EKKI SjA ... Stúlka utan af landi skrifaði vinkonu sinni hér i skólanum og spurði, hvort ekki væri ævintýralegt að vera í sama skóla og Jökull Jakobsson. SKÓLABLAÐIÐ 1]

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.