Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.05.1952, Page 12

Skólablaðið - 01.05.1952, Page 12
Bjargeyjarþáttur Eftir gömlum blöSum. í útnorður af Bjargtanga, miðjavegu milli íslands og Grænlands liggur útsker nokkuð, sem fáir þekkja og fæstir vel. Segja sjófarendur, er þar hafa átt leið um, að sker þetta muni næsta óbyggilegt og fáa hefur fýst þar landgöngu enda er skerið lítt lokkandi að sjá: foráttubrim sveipar kalda og hrikalega kletta- ströndina allan ársins hring og jafnan er loft óhreint á þessum slóðum en sól sést þar ekki mánuðum saman. Þó er þar nokkur byggð og hefur lengi verið, sem lesa má í gömlum annálum frá fyrstu tíð: „Þá stukku margir höfðingjar Gota undan þeim inum grimmu Húnum og reistu flestir suður til Rómar og Spaína. Gundahar var einn ágætur drengur og höfðingi Gota. Sá fór sjóveg í vestur búslóð sinni og tók land i út- skeri nokkru við land það, er nú kallast ísland, og nefndi skerið Bjargey. Þar var grösugt og blómlegt, en illt aðsóknar, en gott til varnar.“ Synir Gundahars tóku við búi föður síns, er hann lézt og síðan hafa þar ætíð húið inir bestu menn er röktu ættir sínar til Gundahars, kappans er ekki þoldi ofríki Húna. Eistaka sinnum á hverri öld brugðu Bjargeyingar sér til íslands, er það byggðist og eink- um til Vestfjarða og rændu þar konum og kvæntust þeim, en Vestfirðingar töldu þá sjódrauga eða tröll og hræddust þá mjög, sem lesa má í sögum. Gundahar var skáld gott og hafði ort drápur marg- ar og merkilegar um ferðir sínar og vígaferli, þær kenndi liann börnum sínum og bað jtau geyma vel, „því það er grunur minn,“ sagði hann, „að einhvern- tíma munum vér og vorir afkomendur hörmungar líða vegna fámennins vors og fátæktar, er þá gott að hafa yfir gamlar þulur.“ Skömmu síðar dó Gundahar. Fara nú litlar eögur af eyjarskeggjum hinar næstu aldir. Höfðu þeir gott viðurværi í Bjargey því þar var haglendi gott fyrir búfé, fugl var í björgum en fisk- ur í sjó. Búendur voru forsjálir um aðföng öll og voru oftast vel á vegi. Þó var fátækl eyjarskeggjum jafnan andvaragestur, og hallæri voru eigi fálíð. Töluðu þá ýmsir um, að réttast væri að taka sig upp frá óey þess- ari og flytja í betri lönd. Hinir bestu bændur voru þó ætíð mó'tfallnir slíku tali, „til ills flutti þá Gunnahar hingað norður í þenn- an kalda sjó, ef vér skulum ættlerar gerast, þó gauli nokkuð garnirnar. Vildi vor hrausti forfaðir flýja á- nauð og órétt Húna, en vér viljum hlaupa beint í fang Islendingum eða dönskum mönnum, en þær þjóðir eru Húnum hálfu verri. Er oss nær að viðhalda vorri tungu, en hún hefur nú allsstaðar gleymzt nema hér.“ Undu menn síðan við fornan kveðskap og glevmdisl nokkuð sulturinn. Svo fór um margar aldir. Víkjum vér nú sögunni til íslands, en það var stór- veldi mikið og fór þess vegur æ vaxandi. Áttu íslend- ingar mörg skij) og góð og voru hinir kappsömustu til fiskveiða og sjósóknar. Aljrýða manna var sparsöm og nægjusöm og undi vel hag sínum. Einkum þótti fara orð af þeirra landstjórn. Þareð almenningur hafði lítinn tíma aflögu frá önn og verkum var uppfundið það snjallræði að veita nokkrum duglegum mönnum völdin, skyldu þeir sjá um að alþýða hefði jafnan eitthvað á diski sínum, en eiga máttu þeir vinnutæki öll í landinu að launum en horga fólki kaup og sjá því fyrir fæði. Voru þá allir ánægðir. Þá kom þar að fiskimið öll víð landið brugðust og höfðu nú Íslendíngar lítið að borða. Komu nú saman allir stjórnarmenn og réðu ráðum sínum. Foringi þeirra mælti: „Eru nú góð ráð dýr þar sem vér verðum að gefa alþýðu að borða. Verðum vér skjótt að ráða úr þessum vanda svo oss verði ekki steypt af stóli. Eigi þykir mér hent að fara í stríð við Dani og ræna þá fiski, þeir eru menn liprir í hernaði. En hevra vil ykkar hug.“ „Mér kemur nokkuð í hug,“ mælti þá öldungur nokkur, „svo sem ýmsum er kunnugt liggur sker það, er Bjargey er nefnt milli Grænlands og Vestfjarða. 12 SKÓLABLAÐIÐ

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.