Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.02.1953, Qupperneq 6

Skólablaðið - 01.02.1953, Qupperneq 6
6 Á kyrru snemcsumarkvöldi, þegar hús þorpsins eru skuggamyndir á rauðu tjaldi og léttfleygir, gullbryddir skýhnoðrar flögra um himininn eins og vonir, sem þurfa ekki að rætast - Þegar tíminn stendur kyrr, meðan sólin hikar við að setjast, - kemur unglingur ranglandi neður horpsgötuna í áttina að gömlum timburhjalli, illa máluðum, með engum garði í kring. Þessi unglingur er hér þénandi sumar- langt. Hann er svo undarlegur í háttum, finnst mönnum hérþyrpis. Á hverju kvöldi gerir ^hann þetta sana og í kvöld. Hann sezt á stein við veginn og horfir á húsið gamla. Stundum situr hann jafnvel langt fram a nott. Hann er eins og hugsi, - og þé er svipurinn of Ijúfsár til að hann geti verið að hugsa nokkuð sérstakt. Eilítill vottur af brosi er í munnvikunum og kringum augun, Hendurnar eru kross- lagðar, og olnbogarnir hvíla á hnjánum, Hakan nemur við vinstra handarbakið. Hann horfir á húsið, þennan elzta og ljétasta hjall í bænum, sem honum þé finnst hvorki elzti né ljétasti hjallur- inn, því að hér var það, sem lítill glé- kollur^bjé, NÚ er þessi glékollur orð- inn stálpaður unglingur og farinn að vinna fyrir sér. En á kvöldin, þegar vinnufélagarnir fara að hitta stúlkur, til þess að geta sagt sögur skáhöllu augnaráði daginn eftir, gengur hann upp að húsinu að hlýða aðra sögu, Hann heyrir marrið í útidyraþrepinu, Þetta marr, sem gefur til kynna, að einhver fari inn í húsið. Og hann hefur fylgzt með þeim^ sem inn fer, gengið um hvít- skuruð gélf og horft á löngu brotnar myndir hangandi á veggjunum, Hann minnist líka atvilca........ ...... sélbjartur vordagur og hann sjálf- ur úti undir húsvegg í öllu þessu ljés- hafi, nýbúinn að uppgötva veröldina, sem nær alla leið út fyrir hvíta húsið með rauða þakinu, - jafnvel lengra, Skyndilega kemur hann auga á ljémandi fallegan bolla í glugga. sélin skxn á bollann, rauðan með hvítum blémum, og svo var á honum gyllt áletran. Sveinn- inn prílar og teygir sig mét bollanum, en var aðeins með blá-fingurgémunum að setja hann inn fyrir. Inni heyrist brothljéð og ljétt orðbragð. Allt £ einu þrifa sterkar hendur drenginn, sem ^rrætur bollanissinn, og hann er lagður a magann og flengdur. Hann heyrir dinma rödd, sem segist ætla að venja son sinn af þvi að brjéta allt og eyðileggja. Erengurinn lemur néður sína, þegar hún vill kjassa hann, fleygir sér upp í dívan og grætur. En gráturinn snástill- ist og drengurinn fer að horfa á mynztr- in á veggféðrinu fyrir ofan sig. Og þegar hann hefur horft dálitla stund, finnst honum líkt og hann svífi gagnsæj- um vængjum eitthvað langt, langt burt x aðra veröld, þar sen maður líður áfran hægum, jöfnum straumi, laus við allar langanir og hafinn yfir öil vonsvik, Og síðan, þegar eitthvað á bjátaði, lagð- ist hann neð fæturna hærra höfðinu og horfði á veggféðrið. ............ Á haustin er maður undrandi yfir breytileik tilverunnar. Haustið á svo marga liti. Ef blandað er saman blána himinsins og lit séleyjarblémanna, fæst fagurgrænn litur grastoppanna uppi í hlíðinni. - En þetta getur enginn nema Guð. Og þé gerir haustið miklu meira. Það tekur alla liti sumarblémanna og blandar þeim á undursamlegan hátt, áður en veturinn breiðir snskápu sína yfir jörðina. Síðast býr það til rauðgul- leitan lit laufblaðanna. - Það er litur hverfulleikans. Hann er búinn til úr öllum hinum litunum ..... Og unglingur- inn minnist þess, að hann situr drengur á útidyraþrepinu og virðir fyrir sér litablöndun haustsins, þegar maður kemur hlaupandi og segir eitthvað. Svo heyrir hann méðir sína gráta, Afi hans og amma kona til hans og eru ésköp goð við hann. Hver dé ? spyr drengurinn.

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.