Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.02.1955, Page 3

Skólablaðið - 01.02.1955, Page 3
4. tbl. Febrúar 1955 30. árg. G<3ET $0Sf5OS- mímwt FORELDRAR GRÍMS THOMSENS. AÐIR Gríms Thomsens, Þorgrímur Tómasson, gullsmiðs í Ráða- gerði, var fæddur 9. febrúar 1782. Móðir Þorgríms var Guðrún Þorgrímsdóttir á Þverá í Öxnadal, jónssonar prests á Myrká. Móðir Gríms var Ingibjörg Jónsdóttir. Hún var fædd í Görðum á Akranesi 26. júlí 1784. Faðir Ingibjargar var séra Jón Gríms- lögsagnara á Stóru-Giljá, en móðir hennar hét Kristín Eiríksdóttir. hafði verið í þjónustu ólafs Stephensens stiftamtmanns í Viðey, hún giftist séra jóni og hóf búskap með honum. Að manni sínum látnum varð Kristín ráðskona hjá stiftamtmanni og Ingibjörg þjónustustúlka hans. Þær mæðgur dvöldust áfram í Viðey, þegar ólafur var látinn. En Ingibjörg undi þar illa hag sínum og giftist brátt Þorgrími gullsmið og reisti með honum bú á Bessastöðum. Ingibjörg átti einn bróður, Grím, er síðar varð amtmaður á Möðruvöll- um. Kærleikar miklir voru með þeim systkinum, og olli það Ingibjörgu sárum vonbrigðum, hve örsjaldan hún átti þess kost að njóta návistar bróður síns, en. hann dvaldist erlendis á yngri árum. í annan stað hafði hún meiri afskipti af

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.