Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1957, Síða 8

Skólablaðið - 01.12.1957, Síða 8
40 - tungu at hræra", og bregður því enn upp fyrir oss, að grundvöllur þjóðmenningar vorrar stendur enn óhaggaður eftir þus- und ár. Þar er ekkert, sem skilur á milli nema aukin þekking 20.aldar manna á efnisheiminum, og, að þrátt fyrir upp- götvun platínunnar, halda niðjar Egils órofatryggð við þá xrþótt, sem Egill hóf til öndvegis þegar á þjóðveldisöld. Þá sýnir miðvísan einnig, að þrátt fyrir farsæla framsókn menningarinnar, allt frá sköpun mannsins til vorra daga, er eðli hans samt óbreytt. Munurinn er aðeins sá, að í stað Evu, sem heillaði Adam með ávölum línum líkamans í sinni nöktustu dýrð, lét hann elta sig í frið- sælan Edenslund, þar sem hun lét fallast á jörðina, og gaf sig honum á vald með ofsakenndri, hamslausri og trylltri nautn, - er nú komin hin latínulærða Lína, sem að vísu einnig beitir sexappíli sínu, en þó fremur intelligensi, kemur sínum Adam til að skjálfa af æsingi með tví- ræðum setningum á latínu, hopar á hæl og lætur fallast í aftursætið í bifreiðinni. Eftirleikurinn verður síðan hinn sami, hinn sami og endurtekinn hefur verið af þúsundum kynslóða frá örófi alda. Nú hefur fíkjublaðið aðeins orðið að víkja fyrir tækni tímans - illu heilli. Með öðrum orðum : Viðbrögðin hafa breytzt í samræmi við kröfur tímans, en eðlið er eitt - og hið sama. í fyrri vísunni er brugðið upp mynd af þróun síðustu ára, sem í seinni vís- unni er hafin í æðra veldi, færð út á al- heimsmælikvarða og látin spanna alla sögu hinnar skyni gæddu veru. Þessi vísa er því að nokkru endurtekning hinn- ar fyrri, en hefur víðari sjóndeildar- hring, meiri spennivídd, gefur henni meira inntak og dýpt. Síðasta vísan lýsir klaufalegum við- brögðum adamsins við ástleitni evunnar, en sýnir þó, að hann hefur gert sér grein fyrir, að það fíkjublað, sem hann nú þarf að lyfta, er fremur andlegs eðlis en náttúrulegs. Þott hugsunin í vísunni sé nokkuð flókin og langsótt, er ljóst, að adam er hér að reyna að slá sig til riddara í augum evunnar, með því að sýna latínu- kunnáttu sína. Jafnframt fer hann út í klaufalegan samanburð á sér og henni : Ef hann fengi að njóta hennar, mundi hann telja sig séní, því að önnur mann- tegund er henni ekki samboðin. Röksemdafærslan er ekki svo heimsku- leg í sjálfu sér. Kann gerir hér til- raun til að kitla hégómagirnd hennar með því að segja, að sá, sem fái að njóta hennar, öðlist um leið viðurkenn- ingu á því, að hann sé séní. Þetta er agnið, sem á að leiða hana til falls. En um leið er eðli adamsins samt við sig, og því gægist fram hin gamla löng- un til sjálf supphafningar ; hann þarf semsagt endilega að koma því að, að hann sé efni í séní, í sömu andrá og hann slær henni gullhamra. Þetta hlýt- ur að gera hann hlægilegan í augum evunnar, og eru þá komnir hér fram tveir andhverfir pólar og er lesandanum í sjálfsvald sett að ímynda sér, hvor ma sín meira. Hér er kvæðið komið á hátind dramatiskrar spennu og munu ýmsir ef- laust segja, að hér komi þverbrestur eða brotalöm í kvæðið, því að niðurlag- ið vanti. En svo er ekki; hér varð höfundur að skilja við kvæðið og láta lesandann um að botna eftir sinni vild, því að annars hefði ýmsum eflaust þótt endirinn á annan veg, en þeir vildu. Sýnir þetta enn kunnáttu höfundar og glöggan skilning, því að það er mikil list að þekkja sín takmörk. Kvæðið er svo frábært að allri gerð, að hvert þjóðskáld væri fullsæmt af að hafa ort það; og er vandséð hvernig úthlut- unarnefnd listamannalauna, getur gengið fram hjá þessu skáldi við næstu uthlutun. _DiJctarinn._mik.li_fr^á_ Eeir a ger BRENNUVARGAR Einhverjir hroðalegir fantar og fúlmenrii hafa nýlega framið eitt svívirðilegasta til- ræði við ísl. menningu í samanlagðri kristni. Hafa þeir hent logandi eldspýcu í kassa "Skólablaðsins" niðri í gangi. A.f- leiðingarnar urðu þær, að nokkur handrit brunnu, sum svo illa, að slitur ein eru eftir, þar á meðal smásaga ein, sem virð- ist hafa verið í Mykle-stíl. Jafnast þessi bruni fyllilega á við brunann mikla í Kaupmannahöfn forðum daga, cg má fastlega gera ráð fyrir, að Þórhallurog ísl.menning beri sitt barr ekki upp frá. þessu.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.