Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.12.1957, Page 17

Skólablaðið - 01.12.1957, Page 17
49 - sumar var aðallega utanhuss. Þakið var málað, husið var allt fernisolíuborið að utan, gluggar og gluggahlerar allir mál- aðir og ruðulistar allir teknir upp, kíttað að nýju undir þá og settar ruður, þar sem þær þótti vanta, en hið síðasttalda var langmesta verkið þótt minnst fari nuna fyrir því. Einnig voru gerðar nokkrar lagfæringar að innan, svo sem að nýjar fjalir voru settar í kojur, glugg- ar nokkurra herbergja málaðir o.fl. t haust, er við nemendur settumst á skólabekk, tók Tómas inspector að sér umfangsmeira starf en formennsku sels- nefndar og misstum við hann því ur nefndinni ( samkvæmt lögum ). Það hefur kannske elcki komið nógu skýrt fram hjá mér, að það var Tómas, sem var upp- hafið að öllu framantöldu og reri öllum árum undir niðri. Getum við seint þakk- að það. r stað Tómasar hefur Guðni Gíslason form. 5. bekkjarráðs nónafor- mennsku nefndarinnar með höndum. Síðan hann tók við, hefur ekki verið unn- ið síður að fegrun selsins en í sumar. Hafa verið farnar fjórar vinnuferðir, flestar um helgar. í þeim hafa tekið þátt frá firnm og upp í níu manns. Héldum við í fávísi okkar að auðveldara væri að fa folk til að vinna,þegar alltaf væri hægt að ná í það í skólatíma. Svo var þó ekki, en alltaf eru einhverjir, sem eru boðnir og bunir og hefur þessi vinna því aðallega lent á þeirra herðum. Það, sem gert hefur verið, er : Gólf öll voru lökkuð tvisvar ( látin þorna á milli ), steypt í skurð mikinn í forsal og hann ( forsalurinn ) málaður tvisvar ( á sama hátt og gólfin ), píanóið var tekið í bæ- inn og látið gera við það og grafinn var skurður meðfram húsinu að vestan og norðan til að koma í veg fyrir fua. Hitakerfi hussins bilaði öllum að óvörum og áttum við nokkurn þátt í, að það kæm- ist aftur í lag, og má næsta selsnefnd því reikna með, að það bili ekki á þeirra starfstímabili. Þá má geta þess fáfróð- um þriðjubekkingum til gagns og gleði, að farin var mikil hreinsunarherferð um allt húsið, og sjá þeir af því, að það var óþrifalegra áður. Nýlega voru einnig keyptar tuttugu nýjar dýnur og farið með austur, en tuttugu gömlum hent. Sigurður nokkur Hvergerðingur hefur haft hönd í bagga með lagfæringu á hús- inu utanhúss og á hitakerfi og kunnum við honum þakkir fyrir, þótt hann fái kaup fyrir þessa vinnu. Nýlega voru einnig rafmagnsmenn ( Hvergerðingar líka ) að lagfæra rafmagnskerfi hússins, og ætlum við að það sé betra eftir en áður. Einnig hafa einhverjir iðnaðar- menn átt við salerni og hafa þau lagast að mun, þótt langt sé í land að gera þau óaðfinnanleg. Hið nýjasta er, að tvær borðtennisplötur hafa verið keypt- ar og smíðaðar ásamt tilheyrandi (að undirlagi inspectors vil ég geta), og vonum við, að borðtennis reynist eins vinsælt fyrir austan og við gerðum ráð fyrir. Ollum mun Ijóst, að margt er eftir ógert, þótt mikið hafi verið gert. Skaðar ekki að skýra frá, að næst á dagskrá hjá okkur er að fá hvíta lér- eftspoka utanum allar dýnur og mála herbergin uppi. Þá er ætlunin að fá menn til að koma salernum og eldavél í gott lag. Margt fleira höfum við í huga, sem við viljum ekki láta uppi í hræðslu um að verða seinna sakaðir um svik, ef ekki verður af áætlununum. Síðast en ekki sízt vil ég geta Einars Magnússonar ( hálfgerð rúsína í pylsu- enda ), sem raunverulega má segja að hafi gert svo víðtækar viðgerðir kleifar, sem raun ber vitni, og róið árum á neðsta þilfari. Mér hefði í rauninni aldrei að óreyndu dottið í hug, að einn kennari legði á sig að vinna svo mikið í hag nemenda og með þeim, eins og hann hefur gert með okkur bæði í sum- ar og það sem af er vetri. Að öllum öðrum kennurum ólöstuðum er hann perla og mun honum þá 'fulllýst. Þökk sé honum. Að lokum vil ég hvetja nemendur alla að sýna selinu meiri virðingu en gert hefur verið, hvort sem þeir eru í bekkjarferð eða annars konar ferð, og hafa í huga, er þeir ganga um það, að selið er hús. Rvík, 6/ 12 1957. Agnar Erlingsson. EINAR Magnússon í 4. - Y : "Ég ætla svo að hafa skyndipróf fyrir- varalaust á næstunni. " Pálmi R. Pálmas.: "Og hvenær yrði það? "

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.