Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 24

Skólablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 24
- 56 - IV. en helzta einkenni þeirra er rímið, sem þær draga nafn af. Ríma endaatkvæði vísuorðanna ávallt saman. Sorgum, trui eg, að sætan kær seint mun vilja létta. Þulda eg rímur þrjár og tvær, þessi verður en setta. (Ríma frá 15.öld.) Mjög ber á áhrifum frá fyrri tíma íslenzkum kveðskap í rímunum, en nokkuð gætir einnig erlendra áhrifa. Til dæmis er talið, að kvennalofið, sem mikið er af, sé til orðið fyrir suðræn áhrif. Á síðari hluta 18.aldar taka suðlægir straumar að verma landið. Vakning á sér stað í ljoðlist, eins og stjornmálalífi þjéðarinnar, vegna erlendra áhrifa, og síðan hefur ljoðagerðin mótast mjög af hreyfingum frá öðrum löndum. Er bók- menntastefnur hafa borizt langa vegu til afskekktra landa, eru þær oft aðeins dauft endurskin hins upphaflega eða afkáralegar stælingar og hlægilegar, því að þær eiga ekki við. Þessar stefnur hafa engu að síður orðið Tslendingum til góðs. Þær hafa orðið þeim hvatning og aukið þeim víðsýni. Á þessu tímabili hafa orðið og eru enn að gerast miklar breytingar í ljóða- gerð. Fornar kenningar og fornt skálda- mál er horfið, og einnig rím og hljóð- stafir, nema þar, sem heppilegra þykir að hafa slíkt til þess að leggja meiri á- herzlu á efnið, en helztu einkenni skáld- skaparins verða söngkennd og fjölbreytt ljóð með léttum og einföldum háttum. Efnið er sem mælt af munni fram, hugs- un skáldsins kemur oft skýrt í ljós og talað er meir til tilfinninganna en áður. Ég veit, að hun á sorgir, en segir aldrei neitt, þó sé hun dauðaþreytt, hendur hennar sótugar og hárið illa greitt. Hun fer að engu óð, er öllum mönnum góð og vinnur verk sín hljóð. Sumir skrifa í öskuna öll sín beztu Ijóð. ( Ljóð frá 20. öld. ) Manninum er eðlilegt að leitast við að gera eitthvað, sem algjörlega er runn- ið frá rótum hans sjálfs og er sem ólík- ast því, sem aðrir hafa gert. Sérhver kynslóð sér galla í fari undangenginna kynslóða, þráir að leita nýrra brauta og haga ferðalagi sínu öðru vísi, gera bet- ur og öðlast meiri hamingju en þær. Þessa nýbreytni reyna flestir að tjá annaðhvort í orði eða framkvæmd, en hjá engum kemur þetta greinilegar fram en hjá skáldum og listamönnum. Við sjáum því sérkenni hverrar kynslóðar í listaverkum, sem hún hefur skapað í orðum, myndum og tónum. Sagt hefur verið: "Tímarnir breyt- ast og mennirnir með". Með jafn mikl- um sanni má segja : "Mennirnir breytast og ljóðin með". Samfara breyttu lífi og breyttum hugsunarhætti fer síbreyti- legt efni skáldskapar, og ekkert er eðli- legra en að formið lagi sig eftir efninu. Breyting á ljóðformi kom ekki fyrst til sögunnar í fyrra eða fyrir 50 árum; hun hefur átt sér stað alla tíð síðan fyrstu ljóðin urðu til. Og "atómskáldin", en með þeim skilst mér, að átt sé við þá nulifandi menn, sem yrkja á einhvern hátt öðru vísi en síðasta kynslóð, eiga sér marga fyrirrennara. í rauninni voru flestir þeirra, sem hæst ber í sögu ljóðlistar, byltingarmenn í Ijóðagerð, og nægir af þeim að nefna Egil Skalla- grímsson og Jónas Hallgrímsson. Skáldskapur þess manns, sem tæki upp á því nu að yrkja með fornu skáldamáli, flóknum kenningum og dýrum bragar- háttum, hefði ekki mikil áhrif. Og hugs- um okkur mann, sem yrkti nær ein- göngu lof um konunga eða aðra valda- menn og þá, sem flesta dræpu í orust- um ! - Af öllum vesælum listamönnum yrði hann hinn vesælasti. Við, sem nú lifum, höfum hlotið mik- inn arf frá fortíðinni í góðum ljóðum, en af þeim er til mesti urmull. Er menn setjast niður til þess að yrkja, er þe:im mikil freisting í að líkja eftir góðu.m ljóðum, sem aðrir hafa ort, því að miklu auðveldara er að feta í spor ann- arra en að ryðja sjálfur nýjar brautir. Hjá mörgum verður til sjúklegur ó tti við, að svo líti út sem þeir séu að'

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.