Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.11.1960, Síða 15

Skólablaðið - 01.11.1960, Síða 15
47 - E INS og nemendum er kunnugt, var samþykkt á síöasta skola- fundi í fyrravetur tillaga um, að hafist væri handa á bygg- ingu Menntaskála, oj; skipuð yrði nefnd til þess að undirbua og ann- ast framkvæmdir í því máli. Vegna undarlegra hugmynda og fárán- legra sögusagna nokkurra manna hér í skola, sem hafa það sér að skemmtan að misskilja tilgang skálans, þykir okk- ur tilhlýða að nemendur fái skýrslu um, hvað gert hefur verið í sumar. Strax er nefndin varð til, hofst hún handa við útvegun á teikningu á skálan- um. Jafnframt því var ákveðinn staður fyrir hann, sem er vestan til í Hellis- heiði í svokölluðum Hveradölum, sem er mjög heppileg staðsetning fyrir skála sem þennan. Þangað er oftast fært árið um kring, auk þess sem ekki er langt að fara frá Reykjavík. í byrjun sumars var svo byrjað að grafa fyrir skálanum. í upphafi var ákveðið að ýta skyldi fengin til þess að ryðja grunninn, en þegar til kom gerði hún það mikið rask á jarðveginum í nánd, að horfið var frá því ráði. Að sjálfsögðu hlauzt nokkur töf af því, vegna þess að við hraun er að fást, þegar grafið er þarna. T'eikningar þær, sem unnið var eft- ir í sumar, voru fengnar hjá Húsameist- ara ríkisins. Þær teikningar voru af útlitfi — og flatarmynd skálans, en hinar nákvæmu vinnuteikningar voru látnar bíða., vegna þess að ekki var þörf fyrir þær strax. Um miðjan ágúst, þegar grunnurinn var svo að segja tilbúinn, var ^rennslast fyrir um það, hvaða srriilði við fengjum til þess að hafa yfir- umsjón með því‘ að reisa grind skálans. Við þessa samningsumleitan voru notað- ar útlits- og flatarteikningar þær, er til voru.. Þær ályktanir, sem smiðirnir gerðu, voru þær, að það tæki tvo smiði ekki minna en hálfan mánuð að reisa grind- ina með hjálp þeirra nemenda, er kæmu um helgar og á kvöldin. Síðan skildu nemendur sjálfir klæða skálann með lítil- legri aðstoð smiðanna. Kaup fyrir smiðina var áætlað af þeim sjálfum 10- 20 þúsund kr. Alla burðarviði og inni- klæðningu þyrfti að kaupa, en timbur var þá nýhækkað um ekki minna en ca. 3°%. Allt þetta var þó kleift, ef nýju vandamáli hefði ekki skotið upp. Af skilningsleysi og næstum andstöðu við málefnið, dregur Inspector Scholae, Þorsteinn Gylfason, til baka þá peninga, sem okkur samkvæmt samþykkt skóla- fundar var heimilt að nota. Forsendur þær, sem hann byggir stöðvun sína á, eru þær helztar : a) Sumri sé að Ijúka, og skálinn stutt á veg kominn. b) Vinnuteikningar ekki gerðar. c) Nákvæm fjárhagsáætlun ekki til. d) ónóg þátttaka þeirra, sem skrifuðu sig á listann. e) Persónuleg rök hans sjálfs, en hann sej;ir, að ekki sé tímabært að verja storfé í fyrirtæki sem þetta. Fyrst og fremst er það skoðun okk- ar og þeirra, sem fróðir eru í skólalög- um Menntaskólans, að inspector scholae hafi ekki yald til þess að stöðva fram- kvæmdir, sem samþykktar hafa verið á Skólafundi, þó að hann kunni sjálfur að vera persónulega á móti framkvæmdum. a) Það var hér að framan skírt frá því, hvað olli seinkun þeirri, sem orsakaði síðan það, að ágizkuð áætlun nefndarinnar, um smíðatíma skálans, brást, þ. e.a.s. ýta var ekki notuð við uppgröft á grunninum. Frh. á bls. 62.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.