Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.11.1960, Side 20

Skólablaðið - 01.11.1960, Side 20
52 - beztu og þjoðlegustu skáldum, sem aldrei hefur verið bendlað við "skrípis- lega Ijóðagerð heimskra geðveikissjúkl- inga". Á sumrum hefur þú stundað bú- skap, sjósókn og hvalskurð. ÞÚ hefur innbyrt rímur, ferskeytlur og aðra menn- ingarframleiðslu dreifbýlisins í svo stór- um skömmtum, að út úr flóir. Þín hug- sjón er að yrkja eins og Eysteinn og verða úti að lokum, en það er þjóðleg- asti dauðdagi, sem um getur. Þú hefur ort afmæliskvæði um Frelsarann, sem var bannað í Skóla- blaðinu af óþjóðlegum mönnum og mælt með því a malfundum, að menn gengju á fjórum fótum og kornabörnum sé gefið brennivin a pelann. Slíkur maður ert þú, Böðvar Guð- mundsson, og svo leyfir þú þér að láta út úr þér aðra eins hluti og að þú sért meðalmenni og plebbi og hvaðeina. Hvílík ósvífni. Hvílíkt lítillæti. Hvílíkur munur að vera fæddur og uppalinn sjéní og mikilmenni, skilgetinn sonur íslenzkr- ar bændamenningar, einhverrar elztu og virðulegustu menningar, sem til er í heiminum. II. Ég, þú og menningin Um mig gegnir hins vegar allt öðru máli. Ég er fæddur og að nokkru leyti uppalinn á Sauðárkróki, litlu og skítugu plassi, þar sem öll bændamenning er löngu fyrir bí, og var því lítið um, að ég fengi bændamenningarinnspýtingar í bernsku. Löngu áður en ég innbyrti sög- una um litlu gulu hænuna hafðir þú með- tekið af vörum föður þíns margar af skærustu perlum íslenzkrar ljóðagerðar. Það er hins vegar tiltölulega stutt síðan ég fékk nokkra nasasjón af tilveru ís- lenzkrar. Ijóðagerðar. Brátt komumst við báðir til nokkurs þroska og fórum að öðlast ofurlítinn skilning á þessum stora heimi okkar. Og eins og við mátti búast voru við- brögð okkar harla ólík, þar sem þú varst þegar uppfullur af menningu; kjarnmikílli, safaríkri og mergjaðri is- lenzkri sveitamenningu, en ég að mestu laus við allt, sem hægt er að kalla kúltúr. Þegar svo hinn mikli heimur í öllum sínum margbreytileik blasti við okkur báðum, skildust leiðir okkar al- gerlega. Þú þekktir menninguna, jafnvel þó ekki væri um nema takmarkaða menn- ingu að ræða; ég var henni ókunnur. ÞÚ lifðir þess vegna áfram sæll í þinni trú og varst að mestu ósnortinn af hinni nýju veröld, en ég hins vegar þóttist hafa himin höndum tekið, og sökkti mér ákaf- ur og af viljafestu niður í þau undirdjúp menningarinnar, sem skyndilega opnuð- ust mér. Ég hafði ekkert til að byggja á, enga arfleifð frá forfeðrum mínum. Ég gekk því til móts við menninguna einn og óstuddur, opinn fyrir hverju sem var. Tvær ástæður eru fyrir því, að eg tók ástfóstri við enskar bókmenntir. í fyrsta lagi var ég um þetta leyti orð- inn fær um að stauta mig fram úr bók- um á þessari tungu, og annað var það, að ég átti afar auðvelt með að komast yfir enskar bækur. Ég vona, Böðvar minn, að þessi fá- tæklegu orð mín hafi veitt þér nokkra skýringu á því, hverjar orsakir eru fyr- ir ástandi mínu. III. HVAÐ ER MEÐALMENNSKA Eins og ég vona að þér sé þegar orðið Ijóst af spjalli mínu um þig, hefur þú misskilið ákaflega hrapallega, hvað ég á við með meðalmennsku. Þú virð- ist semsé halda, að ég álíti alla, sem ekki hafa lesið sömu bækur og ég eða þekkja ekki þessi stóru nöfn, sem eg ku slá um mig með, algjöra plebeja og meðalmenni. Þetta er ekki mín skoðun, síður en svo. Skilgreining mín á meðalmenni er ákaflega einföld og kemst fyrir í einni setningu : Meðalmenni er maður, sem þjáist af svo mikilli andlegri fátækt, að hann gerir sér ekki grein fyrir því, að hann er andlega fátækur. Punktum og basta. Ég ætla nú að slá botninn í þetta bréfkorn mitt, í þeirri einlægu von, að það megi skýra nokkuð fyrir þér mín sjónarmið og mínar skoðanir, og ef til vill losa þig við meðalmennsku-komplex- inn. Megi guðirnir varðveita þig og styrkja um aldur og ævi. Reykjavík, 7. nóv. 1960. Sverrir Hólmarsson.

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.