Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.11.1960, Page 22

Skólablaðið - 01.11.1960, Page 22
54 - pokann; hann var búinn að ákveða sig, ja, vissulega, - eða var það annars ekki ? Var hann nú kannski að gera eitthvert bannsett glappaskotið ; var ver- ið að hafa hann að ginningarfífli ? Hann hætti sem snöggvast að láta peningana í pokann, leit á svartklædda manninn, draugalega, sem stóð andspáen- is honum. Var þetta einhver galgopi ? Var þetta í raun og veru rán ? Var maðurinn, sem stóð við dyrnar, í raun og veru með D. D. T. sprengju ? Hann leit til dyranna enn einu sinni; þarna stóð sá svartklæddi og hélt á poka í annarri hendinni. Aðalbjörn Aðalsteinsson fann augna- ráð hans hvíla á sér, stingandi, drepandi. Jú, þetta var í raun og veru rán, tví- mælalaust rán. Svartklæddi maðurinn, draugalegi, andspænis honum hamraði fingrunum óþolinmóðlega í borðröndina. Aðalbirni Aðalsteinssyni rann kalt vatn á milli skinns og hörunds ; hvílíkir glæpamenn, stórglæpamenn, já og snill- ingar, hvílíkir snillingar, hugmyndaauðg- in, skipulagningin. Hann brosti út í ann- að munnvikið og hélt áfram að selflytja peningana úr skúffunni í pokann. Bankaránslýsingarnar í sorpritunum komust ekki í hálfkvist við það, sem var að gerast á þessari stundu. Og hann, hann var aðalpersónan, allt snerist um hann, hann Aðalbjörn Aðalsteinsson. Peningaskúffa Aðal'bankans var senn tóm, pokinn fylltist með hraða í öðru veldi, tútnaði út, peningar, allt snerist um peninga ; svona var lífið: eittæðis- gengið kapphlaup um peninga, peningar voru lífið. Skúffan var orðin tóm. Aðalbjörn Aðalsteinsson ýtti pokan- um frá sér. Sá svartklæddi hallaði sér yfir glerið og hvíslaði hásri, drafandi röddu : "Mundu það, lagsi, að ef þú heldur þér ekki á mottunni, þá ertu dauðans matur. Skilurðu það ? " Aðalbjörn Aðalsteinsson skildi það, auðvitað skildi hann það, hann kinkaði kolli, brosti innan í sér. Leiðin til framans lá framundan ; á morgun myndi hvert einasta mannsbarn á Sauðárkróki kannast við nafn Aðalbjarnar Aðalsteins- sonar, aðalgjaldkera Aðalbankans, sem með frábæru snarræði og fífldjarf^i hetjulund kom í veg fyrir það á 11. stundu, að Aðalbankinn hlyti sömu örlög d r a u m u r i n n S bak við rykfallinn leyndardóm \ \ f ortxðarinnar l \ liggur dálítill draumur t C hann kemur i hug mér / ( og vekur mér angurværrar bliðu ) / ég man ekki lengur hvernig hann var ) / eða hverjar voru rætur hans S / en hann var þarna einhvern tíma \ ) - sterkur, ákafur, heitur - ( ) og fyllti gráan tómleika tímabilsins ( ) sætri angan / / nú eru raddir hans löngu hljóðnaðar / / spor hans orpin sandi hversdagsleikans( / sem smátt og smátt huldi fegurð hans ( \ nær mér skynja ég vonbrigði, sorgir, ( ) tár i ( en einnig það er horfið ) / inn í fjölda hvítra, auðra daga \ / og skiptir ekki máli lengur. ( \ ih* f og sjóskvísan sáluga í Tjörninni. Svartklæddi maðurinn hrifsaði til sín pokann, hendurnar óstyrkar, látæði fumkennt. Svo sprangaði hann til dyr- anna öldungis eins og heiðarlegur við- skiptavinur í svörtum frakka og með lútandi hattbarð. Hann leit ekki við, gekk ákveðnum skrefum til dyranna, staldraði andartak við hjá kollega sínum. Svo gengu þeir út, tveir menn í svörtum frökkum og með lútandi hatt- börð, stigu upp í ^ljáfægða fólksbifreið og voru a brottu aður en fiskur hafði dregið andann. Aðalbjörn Aðalsteinsson starðifjar- rænum augum á pappírspokann í and- dyrinu; "andskotans refurinn", tuldraði hann, "ekki gat hann nú einu sinni stað- ið við orð sín," - og á þessu sama and- artaki hjúpaðist dýrðarmynd væntanlegr- ar frægðar þoku napurs raunveruleikans. Klukkan á veggnum andspænis sló fjögur ^þung högg. Þá var sem fjörutíu og sjö volta spennu væri hleypt í gegnum mænuna a Aðalbirni Aðalsteins syni ; andlit hans tók á sig mynd hinnar fullkomnu skelf- ingar. Hann hrópaði eins hátt og radd- böndin leyfðu: "Varið ykkur, - helvít- is þrjótarnir hafa stolið úr ban'kanum Frh. á bls. 62.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.