Skólablaðið - 01.11.1960, Síða 27
- 59 -
er landslagið sérkennilega fallegt.
Eftir 8 daga dvöl við Balaton í goðu yfir-
læti yfirgáfum við þennan stórfenglega
stað og tókum okkur á hendur fjögurra
tíma ferð í lest til Budapest.
Fyrsta daginn í höfuðborginni var helli-
rigning.og fórum við því í bíó og gerð-
um sitthvað fleira innandyra.
Yið skoðuðum Safn fagurra lista, en
það er stórt og veglegt.og hefur verið
eytt miklum fjármunum í uppbyggingu
þess eftir stríðið. Einnig skoðuðum við
þjóðminjasafn og þjóðlegt listasafn, en
Ungverjar hafa átt marga stórfenglega
listamenn, t. d. á sviði málaralistar.
Eitt sinn fórum við í ferðalag norð-
ur að landamærum Tekkóslóvakíu, þar
sem Doná ákvarðar landamærin. Á bakka
árinnar stendur borgin Estergom, en hún
var eitt sinn höfuðborg Ungverjalands.
Við eyddum hluta úr degi í að skoða
borgina, en hún er allmerkileg. Þar er
listasafn, ævaforn kastali og mjög stór
kirkja í rómönskum stíl. Að lokum stig-
um við um borð í fljótaskipið Petöfi
( Petöfi var skáld á nítjándu öld ), og
hófum ógleymanlega siglinjju niður ána til
Búdapest. Á einum stað a leið þessari
rennur Dóná í nokkurs konar gljúfri, og
hefur komið til tals að reisa þar orku-
ver, en vafasamt er að úr þeim fram-
kvæmdum verði vegna flóðahættu, sem af
því mundi stafa.
Við Balatonvatnið höfðum við dvalið
með nemendum og kennurum frá mennta-
skóla einum í Búdapest, er nefnist
Eötvös Gimnazium og væri ekki úr vegi
að lýsa honum svolítið. Skólahúsið er
gamalt og virðulegt, og stendur í mið-
hluta borgarinnar. Þó virtust mér
kennslutæki og húsgögn á alveg jafn
hörmulegu stigi og í M. R. í skólanum
eru um 1000 nemendur, og er honum
skipt niður í stærðfræði- og máladeild á
mjög líkan hátt og hér. Álíka margir
nemendur eru í hvorri deild og hefur
það ekki breytzt á undanförnum árum.
Skólinn er 4 vetur, og sumarleyfi er
aðeins í júlí og ágúst. Nemendur koma
í skólann 15 ára, og taka stúdentspróf
18 ára. Námsgreinar skólans eru :
Ungversk malfræði og saga, mannkyns-
saga, rússneska, stærðfræði, eðlisfræði,
stjörnufræði, efnafræði, landafræði, líf-
fræði, sálfræði, rökfræði, listasaga,
latína ( þýzka, enska eða franska ), söng-
ur og leikfimi. í efnafræði er námsefnið
talsvert meira en hér, listasaga er að-
eins í máladeild. í máladeild verða nem-
endur að taka latínu, en mega velja eitt
af hinum þremur málunum ( þýzku, ensku
og frönsku ). í stærðfræðideild mega
nemendur velja einhver tvö af þessum
fjórum málum. Einkunnagjafir eru frá
núll og upp í fimm, en aðeins eru notað-
ar heilu tölurnar.
Daglegt líf nemenda virðist vera með
nokkuð svipuðu sniði og hér, t. d. hafa
þeir sinn "Skalla", sem er kaffihús og
ber nafn, er nálgast mjög að vera
"Rassi". Þeir fara í kvikmyndahús og
á dansleiki. Eitt er þó talsvert frábrugð-
ið, því sem við eigum að venjast, en
það er hversu mjög íþróttir eru í háveg-
um hafðar. Semdæmi má nefna, að litið >
er á þá, sem valdir eru til Olympíuleik-
anna, sem nokkurs konar þjóðhetjur.
Nú fór að líða að því, að við hugs-
uðum til heimferðar, og komumst við þá
í kynni við þá hvumleiðu stofnun, er
'nefnist útlendingaeftirlit. Starfsmenn
stofnunar þessarar virtust hafa mikla
ánægju af sjálfsævisögum, og urðum við
nokkrum sinnum að skrifa hana í stórum
dráttum.
Við kvöddum nú vini og kunningja í
Búdapest og framundan var langt ferða-
lag í lest. Ferðin gekk næstum því sam-
kvæmt áætlun, og um kvöldið komum við
til Prag. Þar urðum við alveg óvænt
að skipta um vagn, og lentum nú í klefa
með þremur dularfullum náungum, sem
við giskuðum á að væru frá Búlgaríu.
Náungar þessir voru í svo góðu skapi,
að við gátum ekkert sofið um nóttina, og
loks í Dresden fóru þeir úr, en þá var
kominn morgunn. Til Berlínar komum
við um klukkan hálf átta og fór þá lest
þessi ekki lengra. Við fórum nú að at-
huga með áframhald ferðarinnar, og
komumst þá að þeirri leiðinlegu niður-
stöðu, að lestin legði ekki af stað fyrr
en klukkan ellefu um kvöldið. Þetta kom
sér mjög illa, því að við áttum í sam-
einingu aðeins fáein mörk, og var ekki
árennilegt að eyða deginum þarna.
Járnbrautarstöð þessi er í úthverfi borg-
arinnar og þorðum við aldrei að fara
lengra en svo, að við sæjum til stöðvar-
innar. Nú var samþykkt, að eyða skyldi
aleigunni í bjór, en lengst af sátum við
dottandi einhvers staðar á bekk.