Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.11.1960, Side 28

Skólablaðið - 01.11.1960, Side 28
- 60 - Þegar dagur þessi var loks á enda og brottfarartími lestarinnar nálgaðist, komu ný vandamál til sögunnar. Það fór að safnast ískyggilega margt íólk á braut- arpall A. Nu leizt okkur ekki á blikuna, ef við kæmamst ekki í þessa lest og yrðum að biða heilan sólarhring að auki, vissum við hreint ek'ki hvað til bragðs skyldi taka. Lestin kom ekki fyrr en þrem mínutum fyrir brottfarart'íma, og varð því æðisgengínn troðningur. Við brutumst um í þvögunni og stóðum mun ver að vígi en keppinautar ok'kar, því að fæstir þeirra höfðu nokkurn farangur. Nu flautaði lestin og við voram enn á brautarpallinums, en með sameiginlegu átaki og íerðatöskurnar að vopni, tókst okkur að troðast inn í yíirfullan vagn. Eitthvað á þriðja klukkutíma þurftum við að standa þarna í troðningrmm, en úr því för íólkinu að fæ'kka og nokkru síðar fengum við sæti. Er til Warnemunde kom ok lestin um borð í ferju, er flutti hana. beinustu leið til Danmerkur, og um hádegi vorum við komnir til Kaupmanna- haf nar. Við þekktum ekki enn samgöngukerfi borgarinnar og gengum því um hana þvera og endilanga í leit að náttstað. Um kvöldið komum við á "Nelluna", en þar var mjög margt rslendírxga, því að um þessar mundir var Gullíoss staddur í borginni. Við áttum nu í miklu stríði með að venja okkur af því Ijóta orð- bragði, er við höfðum tamið okkur, en það hafðist þó að lokum. Við dvöldum þrjá sólarhringa í Kaup- mannahöfn og kynntum o'kkur þessa merku borg af aieflí, en þó fór svo, að um hádegi sunnudaginn 7. ágúst lagðiís- lenzk flugvél af stað frá Kastrupflugvelli, og hafði hún okkur innanborðs. Flugvél þessi hafði viðkomu 'í Oslo á ferð sinni til Rey'kjavíkur. GUÐMUNDUR I. KR......... frh. af bls. 57. Þessi orð Guðmundar Inga koma ekki á óvart vegna þess, að "hvaða mál, sem manninn reynir metur eðli hans og greinir, vitum vér, að hjartahreini^' hljóta að vera settir efst. " Reykjavík, í október!960. Guðjón Albertsson. B LEKSLETTUR, frh. af bls, 42. sannindi eru mörgum torskilin. Sérhver maður, sem vill öðlast þekkingu í ein- hverri grein, verður fyrst að þreifa fyrir sér, fálma í myrkrinu, áður en hann eyg- ir ljósið. Hver og einn verður að strita í sveita síns andlitis fyrir þroska sínum og þekkingu. Sé reynt með kjafti og klóm að kæfa viðleitni æskunnar til s jálf smenntunar, eru reistar hindranir á þróunarbraut mann- kynsins. Óbrotgjarnasti minnisvarði horfinna kynslóða er list þeirra. Yfirburðir manns - ins yfir öðrum dýrum eru fólgnir í list- sköpun hans. Andi listarinnar dvelur í brjósti sérhvers manns, en það eru því miður ekki allir, sem gera sér grein fyrir því. Við skulum hugleiða, að gleggsta táknið um hrörnun þjóðar er hnignun listar- innar og ásælni þegnanna í glauminn og glysið. Þegar dvergarnir varpa löngum skuggum er sólsetur í nánd. Að nefna viðleitni til listkynningar og sjálfsþroska "snobb" er líkt og ausa vatni á þroska- kyndil mannsandans. Listafélagið rann í haust af stokkun- um með bókmenntakynningu x íþöku. Það var ánægjulegt kvöld og menntaskólanemum Frh. á bls. 62. SKÓLABLAÐIÐ Geiið út í Menntaskólanum í Reykjavík Ritstjóri : Einar Már Jonsson 5. -B Ritstjórn : Guðjón Albertsson 6. -B Garðar Gíslason 5. -B Baldur Símonarson 5. -X Gunnar Sigurðsson 5. -X Ólafur Gíslason 4. -X Björn Bjarnason 3. -E Auglýsingastjóri : Erna Ragnarsdóttir 5. -A Ábyrgðarmaður : Guðni Guðmunds son.kennari Forsíðumynd dró Ólafur Gíslason og á hún að tákna listkynningu. Aðrar myndir dró Ingimundur Sveinsson, en ritnefnd annaðist skreytingar.

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.