Ísfirðingur - 09.05.1962, Page 2
2
ÍSFIRÐINGUR
/ '
jlMfrrítiiglfir
^MVTKAMSOKNAPHANHA / t/CinjABCAUÖM*m
Ctgefandi:
Samband Framsóknarfélaganna
í Vestfjarðakjördœmi
Ritstjórar:
Halldór Kristjánsson og
Jón Á. Jóhannsson, áb.
Afgreiðslumaliur:
Guðmundur Sveinsson
Engjaveg 24 - Sími 332
Grundvallar-
atriði
FLESTIR GERA sér grein fyrir
því, að festa og öryggi í allri fjár-
málastjórn bæjarfélaganna sé
grundvallaratriði, sem enginn bæj-
arstjórnarmeirihluti megi frá
hvika, ef vel á til að takast. Á
traustri fjármálastjórn, og sívak-
andi aðgæziu um meðferð fjár-
muna, byggjiast og framkvæmdir
allar á vegum bæjarfélaganna, og
framlög þeirra til hinna ýmsu
stofnana sem bæjarfélögin ýmist
reka sjálf, eða iþá styrkja með
fjárframlögum. Traust fjármála-
stjórn leiðir svo aftur af sér aukna
tiltrú hjá lánastofnunum, en á vel-
vilja þeirra og fyrirgreiðslu þurfa
bæjarfélögin jafnan að halda, að
meira og minma leyti.
Það mun allra sanngjarnra
manna mál, að núverandi bæjar-
stjórnarmeirihluta hafi vel tekizt
um stjórn fjármála kaupstaðiarins.
Bæjarsjóður hefur af eigin fé get-
að innt af hendi stærri greiðslur
til verklegra framkvæmda á liðnu
kjörtímabili en nokkru sinni fyrr.
Vanskil á kaupgreiðslum til fastra
starfsmanna bæjiarins, og þess
verkafólks sem hjá honum hefur
unnið, hefur verið óþekkt fyrirbæri
á líðandi kjörtímabili. Bæjarsjóður
hefur yfirleitt getað staðið við
skuldbindingar siínar og nauðsyn-
legar greiðslur. Auðvitað hefur
bæjarsjóður ísafjarðarkiaupstaðar
oft og tíðum þurft á lánsfé að
halda, sem og önnur bæjarfélög.
En hann nýtur trausts lánastofn-
ana, og hefur því ekki undan því
að kvarta að eðlileg fyrirgreiðslia
sé ekki látin í té.
Til traustrar og hyggilegrar
fjármálastjórnar verður og að telja
það, að starfsemi Byggingarlána-
sjóðs ísafjarðiarkaupstaðar hefur
stórlega verið efld á liðnu kjör-
tímabili fyrir atbeina núverandi
bæjarstjórnarmeirihluta. Hafa hin
hagstæðu lán úr sjóðnum verið
hækkuð úr 15 í 25 þúsund krónur.
Hafa margir bæjarbúar, sem að
undanföhnu hafa staðið í íbúða-
byggingum, þegar notið þessarar
hækkunar. Núverandi samstarfs-
flokkar hafa fullan hug á þvií að
Framhald af 1. síðu.
Aflafengur
• • •
Ríhisstjórnarverfllað
107,3 lestir. — Hugrún fékk 108,3
lestir í 18 sjóferðum, Heiðrún 84
lestir í 16 sjóferðum. Báðir með
línu. — Smærri þilfarsbátar öfluðu
sem hér segir: Geirúlfur 27 lestir
í 9 sjóferðum, Sigurfari 24,6 lestir
í 8 sjóferðum, Hrímnir 11 lestir í
5 sjóferðum, Húni 10,1 lest í 5 sjó-
ferðum, Sædiís 9,1 lest í 5 sjóferð-
um. — Fjórir smávélbátar voru og
nokkuð stopult á veiðum og fékk
hinn hæsti þeirra, trb. Tími, 9 lest-
ir í 7 sjóferðum.
Togarinn Guðmundur Péturs fór
á netjaveiðar og lagði upp þarna
23,7 lestir úr einni veiðiferð, en
mun hafa landað syðra síðar í
mánuðinum.
Hnífsdalur. Vb. Mímir fékk 29,6
lestir á línu, en tók upp netjaveið-
ar um 13. apríl og aflaði í þau 74,9
lestir. Samtals 104,5 lestir. Páll
Pálsson fékk 98,1 lest í 7 upp-
lögnum, Rán 96,5 lestir í 8 löndun-
um. Báðir með net. Vinur var á
línuveiðum og fékk alls 99,5 lestir,
þar af lagt upp á Isaifirði 7600 kg.
— Einar, 18 lesta, aflaði 54,3 lestir
ií 8 sjóferðum. Hann er langafla-
hæstur af smærri þilfarsbátum
hér.
ísafjarðarbær. Vb. Guðbjörg var
á netjaveiðum, oftast suður á
Breiðafirði og fékk oft uppgripa-
afla, mánaðarafli bátsins varð 240
lestir og er hann nú metbátur í
fjórðungnum. — Gylfi var áður
með net, en var ekki að veiðum
hér í mánuðinum. — Aðrir Isa-
f jiarðarbátar voru á línuveiðum og
öfluðu sem hér segir: Guðbjartur
Kristján 128 lesir í 18 sjóferðum,
Hrönn 94,7 lestir í 19 sjóferðum,
Gunnvör 91,3 lestir í 17 sjóferðum,
Víkingur 91 lest í 18 sjóferðum,
Straumnes 77,8 lestir í 18 sjóferð-
um,Guðný 77 lestir í 18 sjóferðum,
Gunnhildur 71,4 lestir í 18 sjó-
ferðum, Ásúlfur 71 lest í 16 sjó-
ferðum. — Smærri þilfarsbátarnir
öfluðu þetta: Ásdís 36 lestir í 8
sjóferðum, Pólstjarnan 33 lestir,
Mummi með aðeins tveimur mönn-
um á sjó, 17,5 lestir, Örninn 18
lestir. — Rækjuveiðar stunduðu 7
bátar, stopult, og við rýran afla,
oftast. -—
Súðavík. Vb. Svanur fékk 78,3
lestir í 15 sjóferðum, Sæfari 50,7
lestir , 17 sjóferðum, Trausti 44,3
lestir á 15 sjóferðum. — Aðeins
einn bátur var nokkurnveginn að
staðaldri á rækjuveiðum, við rýr-
an afla.
Steingrímsfjörður. Fimm bátar
frá Hólmavík, með 5 og 7 manna
áhöfn voru á veiðum og allir með
þorskanet. Lögðu þeir oft net sín
í Steingrímsfjörðinn og þá ör-
skammt frá landi. Aflinn var
sæmilegur með köflum, frá 1500
til 2000 kg. á smærri báta og allt
að 5000 kg. í sjóferð.
BLÖÐ ríkisstjómarflokkanna em
sífellt að stagast á blessun „við-
reisnarinnar“. Þessi ríkisstjórnar-
blessun er m.a. á þann veg, að
nú fær verkamaður jafnmikið fyrir
17 klukkustimda vinnu og hann
fékk fyrir 10 klukkustunda vinnu
árið 1958. Til dæmis hefur hafra-
mjöl hækkað um 100%, hveiti um
97,4%, rúgmjöl um 81% og rís-
grjón, sagógrjón og kartöflumjöl
heíur hækkað um 60—80%.
Verkamenn og aðrir geta svo
borið saman hvort vinnulaunin
hafi á sama tíma hækkað tilsvar-
andi við þessar nauðsynjavörar.
En þessar hækkanir nauðsynj-
anna heita víst á máli ríkisstjórn-
arinnar að bæta lífskjörin.
LAUS STAÐA.
Stöðvarstjórastaðan við Vöru-
bílastöðina, Isafirði, er laus til
umsóknar. Umsóknum skal skil-
að fyrir 20. maí til Jens Stein-
dórssonar, bifreiðastjóra, sem
gefur allar upplýsingar.
STJÓRNIN.
Til sölu
er FIAT 1100 árg 1954. Bíllinn
er í fyrsta flokks standi.
Upplýsingar gefur
MARGEER GUÐMUNDSSON,
Grandargötu 6, ísafirði.
efla ennþá starfsemi byggingar-
lánasjósins.
Til heilbrigðrar og hyggilegrar
fjármálastjórnar hlýtur það og að
teljast, að útsvör í ísafjarðarkaup-
stað hiafa ekki hækkað nærri eins
mikið hlutfallslega á liðnu kjör-
tímabili og í mörgum öðrum bæj-
um.
í upphafi þessa máls var á það
bent, að festa og öryggi í fjármál-
um væri grundvallaratriði um
stjórn bæjarmála. Á kjördegi er
eðlilegt að bæjarbúar hugleiði ekki
hvað sízt þessa hlið málanna, —
því það er að sjálfsögðu mikið
hagsmunamál hvers einstaks bæj-
arbúa að hyggilega sé að fjármál-
unum unnið. Bæjarbúar munu þá
meta og velja á milli fjármála-
stjórnar núverandi samstiarfs-
flokka og fjármálastjórnar Sjálf-
stæðisflokksins þegar hann fór
með völdin hér í bænum; en í leið-
ara síðasta blaðs var nokkuð sagt
frá ástandinu þá.
Með þann samianburð í huga ótt-
ast núverandi samstarfsflokkar
ekki úrskurð ísfirzkra kjósenda
við kjörborðin 27. þ.m.
X H
Hárgreiðslustofan
Túngötu 21:
Permanent, skol, litanir, lagn-
ingar, klippingar, hárþvottur
o.fl. — Pantið tíma í síma
4 1 6
Grenjavinnsla
Bjarni Kr. Pétursson Grænagarði ísafirði hefur verið ráðinn til
þess að annast grenjavinnslu í Sléttuhreppi 1962.
Er öllum öðrum bannað að stunda grenjavinnslu í hreppnum.
Sýslumaðurinn í Isafjarðarsýslu 8. maí 1962.
Reiðhjólaverkstæðið Isafirði.
Geri við og lakka reiðhjól.
Teina allar stærðir af gjörðum.
Varahlutir ávallt fyrirliggjandi.
Fljót og góð afgreiðsla.
JÓHANNES BJÖRNSSON
Sími 429
Miðvikudag og fimmtudag
kl. 9
KYNLÍFSLÆKNIRINN
Þýzk kvikmynd um sjúkt og
heilbrigt kynlíf, og um króka-
vegi kynlífsins og hættur.
Aðalhlutverk:
ALBRECT SCHÖNGALS
EDIT PRAGER
Bönnuð börnum