Ísfirðingur - 09.05.1962, Blaðsíða 4
iJblltéfín
SiAÐ TRAMSOKNAKMANNA / l/ESTFJAKÐAKJOKDÆM/
Frá knattspyrnuráði
Andlát
Júlíus (íeirmundsson, Brunngötu
12 ísafirði, andaðist í Fjórðungs-
sjúkra-húsinu hér í bænum 6. þ.m.
Hann var fæddur að Stakkadal
í Sléttuhreppi 26. maí 1884, en
þar bjuggu þá foreldrar hans,
hjónin Sigurlína Friðfinnsdóttir
og Geirmundur Guðmundsson.
Júlíus kvæntist 21 árs gamall
Guðrúnu Jónsdóttur, frá Höfn í
sama hreppi. Þá keyptu þau hjón-
in hálfa Atlastaði lí Fljótavík og
bjuggu þar síðan þar til árið 1946
að þau fluttu hingað til bæjarins.
Guðrún andaðist á árinu 1951.
Þau hjónin eignuðust 12 böm og
eru 10 þeirra á lífi. Tveir synir
þeirra, þeir Jóhann og Þórður, eru
búsettir hér í bænum. Geirmundur
er búsettur í Hnífsdal, Guðmunda
í Keflavík og Sigurlína á Selfossi.
Anna, Ingibjörg, Júthit, Guðmund-
ur Snorri og Guðmundur Þórarinn
eru búsett lí Reykjavík. Ólafur
sonur þeirra drukknaði 1941 og
Júlíana dóttir þeirra, sem var gift
í Hnífsdal, andaðist 1960.
Júlíus Geirmundsson var harð-
duglegur og ósérhlífinn. Hann
stundaði sjómennsku á róðrarbát-
um jafnframt búskapnum á Atla-
stöðum. Má nærri geta að Júlíus
hafi þurft að vinna „hörðum hönd-
um“ með með jafn stórt heimili
og hann hafði fyrir að sjá. En þau
hjónin voru samhent og samtaka
um að bjarga sér og sínum, og því
komust þau jafnan vel af. Eftir að
Júliíus flutti hingað til bæjarins
vann hann oftast nær fullian vinnu-
dag þar til hann veiktist viku áður
en hann dó.
Júlíus var maður skemmtilegur
í viðmóti, dagfarsprúður og á all-
an hátt hinn mætasti maður.
Jarðarför hans fer fram næst-
komandi laugardag kl. 2.
J.Á.J.
Húseign mín
Hraunprýði er til sölu strax.
GISLI GUÐBRANDSSON
Sími 218.
Kosning ntan
kjorstaða
Utankjörstaðakosning
vegna bæjar- og sveitar-
stjórnakosninga hófst 29,
f.m.
Stuðningsfólk H-listans í
ísafjarðarkaupstað sem
ekki verður í bænum á kjör-
dag er hvatt til þess að kjósa
hjá bæjarfógetanum áður
en það fer úr bænum.
X H
KNATTSPYRNURÁÐI hefur tek-
izt að fá hingað þjálfara um 5—6
vikna skeið. Er það hinn kunni
skákmaður, og gamli landsliðs-
maður í knattspymu, Gunnar
Gunnarsson, úr Val, og huga
knattspymumenn vel til komu
hans. Vill stjórn K.R.Í. þakka
Bjarna Guðbjömssyni, fyrir þá að-
stoð, sem hann hefur veitt, til að
úr þessu gæti orðið, með því að
láta Gunnar hafa vinnu í bankan-
um á daginn, og þar með létt stór-
lega undir með K.R.I., en Gunnar
er starfsmaður í Útvegsbankan-
um í Reykjavík.
Búið er að raða I. deildar leikj-
unum ií íslandsmótunum niður í
sumar, og fer fyrsti leikurinn fram
hér heima laugardaginn 26. þ.m.
og leiða þá saman hesta sína l.B.í.
og Islandsmeistararnir K.R. Enn-
fremur er ákveðið að K.R. leiki
aukaleik við I.B.l. sunnudaginn 27.
þ.m. Næsti leikur verður hér heima
laugardaginn 2. júní og mætir þá
í.B.l. Fram, og 11. júní (annar í
hvítasunnu), líka hér heima, l.B.I
og Akranes. Síðan fara ísfirðing-
arnir suður og leika við K.R. á
Laugardalsvellinum föstudaginn
22. jún'í, og uppi á Akranesi við
Í.A. sunnudaginn 24. júrií. Síðan
leikur I.B.Í. hér heima við Val
sunnudaginn 15. júlí og við Akur-
eyringa sunnudaginn 22. júlí. Leik-
ur I.B.I. og I.B.A. á Akureyri er
óákveðinn. Leikur I.B.I. og Fram
fer fram á Laugardalsvellinum
sunnudaginn 19. ágúst. Ennfremur
er ákveðið að hluti íslandsmótsins
í III. flokki fari fram hér heima.
Hefur Knattspyrnuráð Reykjavík-
ur orðið við óskum K.R.Í. í því
efni eins og öðru.
Skilningur forustumanna knatt-
spyrnunnar í Reykjavík og sam-
starf við Isfirðinga er með ein-
dæmum gott.
Þau hörmulegu tíðindi, fyrir
knattspyrnumenn og handknatt-
leiksstúlkur, hafa gerzt, að raf-
veitustjóri hefur neyðst til að loka
fyrir rafmagnið í búningsklefun-
um, vegna þess að l.B.Í hefur ekki
séð sér fært að greiða rafmagn í
eitt eða tvö ár, og hefur ekki gert
neitt í að reyna að semja um
greiðslur, og skuldin orðin mjög
há. Nú standa knattspymumenn
ráðþrota. íslandsmótið í I. deild
fyrir stafni, fyrir utan öll önnur
mót. — I búningsklefunum fara í
bað og hafa fataskipti á annað
hundrað íþróttamenn í viku hverri
yfir sumarið. Nú sjá knattspymu-
menn sér ekki aðra-leið út úr þess-
um ógöngum, en treysta á velvild
rafveitustjóra, að hann láti opna
fyrir rafmagnið, með því að knatt-
spyrnumenn gangi sjálfir í ábyrgð
fyrir greiðslu rafmagns í sumar.
Annars gengur það furðu næst,
iað Isfirðingar, sem eiga um 60 ára
sögu í knattspyrnu, og eitt af sex
sterkustu liðum landsins í dag,
skuli búa við lélegustu vallarskil-
yrði landsins. Og að íþróttafólk
skuli ávallt þurfa að fara í eigin
vasa, til að greiða fyrir aðgang að
íþróttamannvirkjum til æfinga,
fyrir utan það, sem þetta fólk legg-
ur á sig við æfingar. -— Og hefur
orðið til iþess að okkar litli bær,
er viðurkenndur um land lallt, fyr-
ir hve góðu íþróttafólki hann hefur
ávallt átt á að skipa. — Á sama
tíma sem íþróttabandalag Kefla-
víkur fær kr. 50.000,00 í styrk frá
bænum á ári, kr. 35.000,00 í pen-
ingum, og fríjan aðgang að öllum
íþróttamannvirkjum, og auk þess
greidda eina ferð í viku til Reykja-
víkur ,til keppni. — Hiafnarfjörður
og Akranes svipað, fyrir utan það
að Akranesbær lagði fram á einu
ári kr. 900.000,00 til að klára gras-
völlinn. Þótt ekki sé talað um Ak-
ureyri, sem á eitt fullkomnasta
vallarstæði landsins.
Á ssma tíma getur ísfirzkt í-
þróttafólk ekki fengið bað.
F.Bj.
—□ —
Sýslufundur Noröur-ísa-
fjaröarsýslu
Sýslufundur Norður-Isafjarðar-
sýslu var haldinn á Ísafirði dagana
25.—29. f.m. Þar voru að venju
rædd og afgreidd hin ýmsu málefni
er snerta héraðið.
Á fundinum var samþykkt að
kaupa ný hlutabréf í Djúpbátnum
h.f. fyrir kr. tvö hundruð þúsund,
til kaupa á nýju skipi. þá var og
samþykkt að afhenda riíkissjóði
Reykjanesskólann til eignar og
umráða, — sbr. nýlega sett lög
varðandi héraðsskólana. Samþykkt
var að skora á vegamálastjóra að
láta nú þegar ryðja snjó af fjall-
vegum á Vestfjörðum. Skorað var
á vega- og vitamálastjóra að láta
stækka bryggjurnar í Ögri og á
Melgraseyri.
Heildartekjur á fjárhagsáætlun
sýslusjóðs eru kr. 178.000,00 og
Fokifl í flest skjót
TRÚLEGT ER, að margir sjálf-
stæðismenn hafi ekki einasta bros-
að, heldur beinlínis skellt upp úr,
þegar þeir lásu það í Vesturlandi
nýlega, að allt sem gert hefði verið
á síðasta kjörtímabili, t.d. mal-
bikun gatna, nýja vatnsveitan o.fl.
hefði ekki verið gert ef sjálfstæð-
ismenn hefðu ekki „knúið“ þetta
fram. Og það er ósköp eðlilegt þó
ýmsir sjálfstæðismenn hefðu hleg-
ið að Vesturlandi. Sennilegt er að
þeim hafi dottið í hug hið algjöra
áhuga- og rænuleysi fyrir fram-
fara- og umbótamálum bæjarfé-
lagsins þau ár sem Sjálfstæðis-
flokkurinn fór með stjórn bæjar-
málanna, — og svo hafa þeir bara
hlegið að því hvað Sjálfstæðis-
flokkurinn væri máttugur og á-
hugasamur þegar hann væri í
minnihlutaaðstöðu, en úrræðalaus
og ónýtur þegar hann hefði valda-
aðstöðu.
Segja má, að nú sé fokið í flest
skjól, hjá Sjálfstæðisflokknum,
þegar Vesturlandið er farið að
hæða flokkinn sinn svona duglega.
Það er vissulega ekki ein báran
stök í sambandi við það basl og
hrellingar sem hrjáð hefur Vestur-
land að undanförnu.
— □—
Afrekasagan
HVAR ER íþróttavöllurinn sem
Sjálfstæðisflokkurinn byggði þeg-
ar hann fór með stjórn bæjarmála
hér í bænum? Og hvar eru öll
önnur íþróttamannvirki sem Sjálf-
stæðisflokkurinn kom á fót á þeim
árum? Þannig spyrja bæjarbúar
nú, þegar þeir lesa í Vesturlandi
um þann brennandi áhuga fyrir í-
þróttum sem allt í einu hefur gosið
upp meðal ráðamanna Sjálfstæðis-
flokksins á ísafirði. En það er
eins og þar stendur: „Kirkja fyrir-
finnst engin“. Það fyrirfinnast
engin íþróttamannvirki frá tíð í-
haldsins hér í bænum. Og það er
heldur ekki von, því Sjálfstæðis-
flokkurinn hafði engan áhuga fyrir
íþiióttamálum, og gerði bókstaf-
lega ekki nokkurn skapaðan hlut
í þeim efnum.
Hér með er afrekasaga þeirra
fyrir íþróttamálin á ísafirði full-
sögð.
heildartekjur á fjárhagsáætlun
sýsluvegasjóðs kr. 140.000,00,
Heildarkostnaður við útrýmingu
refa í héraðinu á árinu 1961 var
kr. 137.900,00.
—□—
Logasíur leiftra á ný
ljósi um ský og gjögur.
Eldi vígir árdagsský
eygló hlý og fögur.
S. Fr.
J