Ísfirðingur - 09.05.1962, Síða 3
ISFIRÐINGUR
3
Aðalskoðun
BIFREIÐA á ísafirði árið 1962 fer fram dagana 7. maí til 21.
mai n.k., kl. 9—12 og kl. 13—18 og ber bifreiðaeigendum að
koma með bifreiðar sínar til eftirlitsins að Aðalstræti 15 svo
sem hér segir:
Mánudaginn, 7. maí í- 1— 50
Þriðjudaginn, 8. — í- 51—100
Miðvikudaginn, 9. — 1-101—150
Fimmtudaginn, 10. — 1-151—200
Föstudaginn, 11. — 1-201—250
Laugardaginn, 12. — 1-251—300
Mánudaginn, 14. — 1-301—350
Þriðjudaginn, 15. — 1-351—400
Miðvikudaginn, 16. — 1-401-450
Fimmtudaginn, 17. — 1-451—500
Föstudaginn, 18. — 1-501—550
Laugardaginn, 19. — 1-551—600
Mánudaginn, 21. — 1-601— og þar yfir
Reiðhjól með hjálparvél verða skoðuð mánudaginn 21. maá.
Við skoðun skulu menn leggja fram fullgild skírteini. Sýna
ber og skilríki fyrir því að bifreiðaskattur og vátryggingarið-
gjöld ökumanna fyrir árið 1961 séu greidd og lögboðin vátrygg-
ing fyrir hverja bifreið sé í gildi. Ennfremur ber að sýna kvittun
fyrir iþví að afnotagjald af útvarpi sé greitt.
Hafi gjöld þessi ekki verið greidd verður skoðun ekki fram-
kvæmd og bifreiðin tekin úr umferð þar til gjöldin eru greidd.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á réttum
degi án þess að hafa áður tilkynnt skoðunarmönnum lögmæt
forföll með hæfilegum fyrirvara verður hann látinn sæta sektum
samkvæmt umferðalögum og lögum um bifreiðaskatt og bifreið
hans tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst.
Þetta er hér með tilkynnt öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Bæjarfógetinn á Isafirði, S. mal 1962.
★
SUMARÁÆTLUN
FLUGFÉLAGSINS
VIÐ ÍSAFJÖRÐ:
KOMUTIMI
ALLA VIBKA DAGA
KL. 10:30.
Frá og með 1. júní verður einnig flogið á sunnudögum,
komutími kl. 15:30.
Tilkynning
Nr. 3/1962.
Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á brauð-
um í smásölu með söluskatti:
Franskbrauð, 500 gr............. Kr. 5,40
Heilhveitibrauð, 500 gr........... — 5,40
Vínarbrauð, pr. stk............... — 1,45
Kringlur, pr. kg.................. — 16,00
Tvíbökur, pr. kg.................. — 24,00
Rúgbrauð, óseydd, 1500 gr...... — 8,30
Normalbrauð, 1250 gr.............. — 8,30
Séu nefnd brauð sundurskorin eða bökuð með annari þyngd en
að ofan greinir, skulu þau verðlögð í hlutfalll við ofangreint verð.
Heimilt er þó að selja sérbökuð 250 gr. franskbrauð á kr. 2,75,
ef 500 gr. brauð eru einnig á boðstólum.
Á þeim stöðum sem brauðgerðir eru ekki starfandi má bæta
sannanlegum flutningskostnaði við hámarksverðið.
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má verð á rúgbnauðum og
normalbrauðum vera kr. 0,20 hærra en að framan greinir.
Reykjavík, 2. maí 1962.
VERÐLAGSSTJÓRINN.
HÚS til sölu
Húseignin Tangagata 26 með eignarlóð er til sölu. Tilboð ósk-
ast í eignina fyrir 31. þ.m. Áskilinn er réttur til að taka hvaða
tilboði sem ejr eða hafna öllum.
Til mála gæti komið skipti á lítilli íbúð.
ísafirði, 5. maí 1962.
ÓLAFUR ÁSGEIRSSON.
Laus staða
Vélstjórastaða hjá Rafveitu Isafjarðar er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. júní.
Umsóknarfrestur er til 25. maí.
Umsókn sendist Rafveitu Ísafjarðar. Henni fylgi upplýsingar
um menntun, fyrri störf og meðmæli ef til eru.
Upplýsingar um launakjör fást hjá naíveitustjóra.
Hús til sðln
Tilboða er óskað fyrir 31. þ.m. í húsið Engjavegur 28 Isafirði
ásamt bílskúr. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem
er eða hafna öllum. Skipti á húsi eða rúmgóðri íbúð niðri í bæ
koma til greina.
Isafirði, 8. maí 1962
SIGURLEIFUR JÓHANNSSON.
Prentstofan Isrún h.f.