Morgunblaðið - 11.01.2010, Qupperneq 1
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 2010
íþróttir
Körfuboltinn Keflvíkingar knúðu fram sigur á Breiðabliki eftir harða baráttu. Snæfell vann
Hamar í Hveragerði. Páll Axel skoraði 54 stig fyrir Grindavík í stórsigri á Tindastóli 8
Íþróttir
mbl.is
ARNÓR Atlason er rétthent skytta í íslenska lands-
liðinu í handknattleik sem leikur í úrslitakeppni EM
í Austurríki 19.-31. janúar.
Arnór er 25 ára gamall, fæddur 23. júlí 1984.
Hann lék fyrst með A-landsliði Íslands árið 2003 og
hefur frá þeim tíma spilað 87 A-landsleiki og skor-
að í þeim 172 mörk. Arnór lék á EM 2006 í Sviss,
spilaði þá alla sex leikina og skoraði 15 mörk, en
missti af EM í Noregi 2008. Hann var í landsliðinu
sem fékk silfurverðlaunin á ÓL í Peking 2008.
Arnór kom 16 ára gamall inní meistaraflokk KA
árið 2000 og lék með Akureyrarliðinu til 2004. Þá fór hann til Magdeburg í
Þýskalandi og lék þar í tvö ár en hefur frá 2006 verið liðsmaður FCK í Dan-
mörku. Félagið verður sameinað AG í vor og ekki liggur fyrir enn hvort Arn-
ór verður leikmaður nýja liðsins, AG Köbenhavn.
FYRSTI LEIKUR ÍSLANDS Á EM Í AUSTURRÍKI ER EFTIR ÁTTA DAGA
Arnór Atlason
ALLIR leikmenn íslenska karla-
landsliðsins í handknattleik komust
heilir frá landsleikjunum tveimur við
Þjóðverja um helgina.
„Ég er ánægður með að allir virð-
ast hafa komist heilir frá þessum
tveimur leikjum. Snorri Steinn fékk
reyndar nokkurt högg á lærið í fyrri
hálfleiknum í dag, en við vitum ekki
annað en hann sé fínn og tilbúinn í
slaginn áfram,“ sagði Guðmundur Þ.
Guðmundsson, landsliðsþjálfari í
handknattleik, í gær eftir síðari leik-
inn við Þjóðverja.
Guðmundur hélt utan til æfinga-
leikjanna í Þýskalandi með sextán
leikmenn, bætti tveimur leik-
mönnum við hópinn með stuttum
fyrirvara, þeim Ragnari Óskarssyni
og Rúnari Kárasyni. Þeir komu inn í
liðið fyrir þá Loga Geirsson og Þóri
Ólafsson, sem hafa verið meiddir.
Þeir voru skildir eftir heima í hönd-
um sjúkraþjálfara og lækna og allt
kapp lagt á að ná þeim góðum fyrir
Evrópumótið sem hefst í Austurríki
19. janúar.
„Það lítur mjög vel út með Þóri og
mér skilst að hann sé bara svo gott
sem klár í slaginn og svo er ég að
vona að Logi verði tilbúinn í næstu
viku. Þetta á samt eftir að koma end-
anlega í ljós, en við vonum það besta
með þá báða, því þeir eru mikilvægir
í liði okkar,“ sagði Guðmundur eftir
leikinn í gær.
„Það fylgir þessum leikjum alltaf
einhver áhætta þó svo menn reyni að
gera allt til að draga eins mikið úr
henni og hægt er. Ég held þetta sé
ekkert alvarlegt hjá Snorra Steini
og þeir Logi og Þórir eru búnir að
vera hjá sjúkraþjálfara síðustu dag-
ana og mér er sagt að það gangi vel,“
sagði Guðmundur. skuli@mbl.is
Þórir nánast klár á EM
Guðmundur vongóður um að Logi verði líka tilbúinn
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
GUÐMUNDUR Þórður Guðmundsson,
landsliðsþjálfari karla í handknattleik, var að
vonum sáttur við tvo sigra á móti Þjóðverjum
ytra um helgina, 32:28 og 33:29, en var yf-
irvegaður og með báða fæturna á jörðinni
þrátt fyrir góða sigra.
„Nei, nei, við erum ekkert komnir fram úr
okkur. Þetta voru bara tveir æfingaleikir en
engir undanúrslitaleikir á EM þannig að við
erum með báða fætur á jörðinni og gerum
okkur alveg fyllilega grein fyrir því að við er-
um ekki búnir að gera neitt nema leika sæmi-
lega í tveimur æfingaleikjum,“ sgaði Guð-
mundur í samtali við Morgunblaðið eftir
síðari sigurinn.
„Auðvitað er ég mjög sáttur við tvo sigra á
móti Þjóðverjum á heimavelli. Það er mjög
sterkt og gott fyrir okkur og gefur liðinu
sjálfstraust. En þessir leikir gáfu okkur fyrst
og fremst upplýsingar um hvað við þurfum
að bæta,“ sagði Guðmundur.
„Við erum okkur mjög meðvitandi um hvað
við þurfum að gera til að bæta leik okkar og
það er heilmargt. Næsta vika verður notuð til
að laga sóknarleikinn, varnarleikinn og líka
hlaupin til baka því við fengum á okkur alltof
mörg mörk vegna þess að við vorum of seinir
aftur til að fara að verjast af alvöru. Það
verða allir að hafa báða fætur á jörðinni og
halda ró sinni þrátt fyrir þessa sigra. Við er-
um það og gerum okkur grein fyrir að þetta
voru bara æfingaleikir. Svona vináttuleiki
þarf að nota til að sjá hvar menn standa.
Menn prófa þá hluti sem þeir eru að hugsa
um að nota og sjá hvernig þeir ganga og síð-
an er að nýta reynsluna úr leikjunum til að
laga það sem þarf að laga. Nú einbeitum við
okkur að því að laga það sem við getum lagað
og næsta vika fer í það og það eru heilmörg
verkefni sem bíða eftir okkur í næstu viku,“
sagði Guðmundur. | 4-5
Þetta voru bara æfingaleikir
Guðmundur Þ. Guðmundsson segir landsliðið með fæturna á jörðinni þrátt fyrir tvo sigra í Þýska-
landi Ekki undanúrslitaleikir á EM Ekki komnir fram úr okkur, vitum betur hvað þarf að bæta
SVO gæti farið
að körfuknatt-
leiksmaðurinn
Damon S. John-
son snúi aftur til
Íslands og leiki
hér körfuknatt-
leik á nýjan leik
og hefur KR þá
fyrst og fremst
verið nefnt til
sögunnar.
Böðvar Guðjónsson, formaður
körfuknattleiksdeildar KR, vildi
hvorki játa því né neita, er Morg-
unblaðið ræddi við hann í gær-
kvöldi, en sagði að þar á bæ væru
menn alltaf að skoða hvort hægt
væri að styrkja liðið. „Það er ekk-
ert fast í hendi í þessu en við misst-
um fjóra sterka leikmenn á einu
bretti og reynum að laga okkur að
aðstæðum hverju sinni,“ sagði
Böðvar.
Damon, sem er með íslenskan
ríkisborgararétt og hefur leikið 5
landsleiki fyrir Ísland, kom hingað
til lands 1996 og hefur leikið fjögur
tímabil með Keflavík og eitt með
Skagamönnum. skuli@mbl.is
Damon á
heimleið?
Damon
Johnson
Morgunblaðið/Kristinn
Einbeittur Magnús K. Magnússon sigraði í meistaraflokki karla á stigamóti Borðtennissambands Íslands, Adidasmótinu, í TBR-húsinu á laugardaginn.
Hann lagði félaga sinn og nafna úr Víkingi, Magnús Finn Magnússon í úrslitaleiknum og slær hér kúluna yfir netið, einbeittur á svip. | 4