Morgunblaðið - 11.01.2010, Page 3

Morgunblaðið - 11.01.2010, Page 3
Íþróttir 3 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 2010 Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is BÆÐI lið höfðu þegar tryggt sér keppnisrétt í 2. deild að ári með sigr- um í undanúrslitum mótsins á laug- ardaginn. Þar vann íslenska liðið Ný-Sjálendinga nokkuð örugglega, 4:0. Ástralar mörðu hinsvegar sigur á Norður-Kóreu, 6:5, eftir framleng- ingu. Það var því ríkjandi bjartsýni fyrir úrslitaleikinn í gærkvöld. Viðar sagði að byrjunin hjá ís- lenska liðinu gegn Ástralíu hefði verið slæm og liðið ekki náð sér á strik í fyrstu tveimur lotunum. Það hefði hinsvegar stjórnað leiknum í þriðju lotu. Meiðsli og veikindi „Hefðum við spilað okkar venju- lega leik hefðum við átt góða mögu- leika en liðið var aðeins laskað og veikindi höfðu hrjáð það,“ sagði Við- ar. Íslensku leikmönnunum gekk erf- iðlega að koma sér inn í leikinn og virtist í byrjun sem leikmenn væru smeykir við stóra Ástrala. Sókn- arþunginn í fyrstu lotu hjá íslenska liðinu var lítill og Ástralar skoruðu eina mark þriðjungsins. Í annarri lotu héldu Ástralar áfram að sækja öllu meira en íslenska liðið. Þeir bættu við tveimur mörkum með stuttu millibili um miðja lotuna og staðan því orðin erfið hjá íslenska liðinu, 0:3. Í síðustu lotunni náði ís- lenska liðið að snúa leiknum sér í hag og Snorri Sigurbjörnsson skor- aði gott mark eftir stoðsendingu frá Agli Þormóðssyni, 1:3. Matthías sóknarmaður mótsins Matthías Máni var í mótslok í gær valinn besti sóknarmaður mótsins. Gegn Ný-Sjálendingum á laug- ardag gerði Matthías Máni tvö mörk fyrir Ísland og þeir Róbert Pálsson og Jóhann Leifsson eitt mark hvor. Pétur Maack, Andri Mikaelsson, Egill Þormóðsson, Ævar Björnsson og Snorri Sigurbjörnsson áttu sína stoðsendinguna hver. Silfur og sæti í 2. deild  Íshokkístrákarnir unnu Nýja-Sjáland og unnu sig upp úr 3. deild heims- meistaramótsins  Töpuðu 1:3 fyrir Ástralíu í úrslitaleiknum í gærkvöld „Við erum ánægðir með að hafa unn- ið okkur upp um deild en auðvitað er- um við líka svolítið svekktir yfir því að hafa ekki endað mótið á því að vinna gullið,“ sagði Viðar Garð- arsson, fararstjóri U20 ára landsliðs pilta í íshokkí, sem tapaði, 1:3, fyrir Ástralíu í úrslitaleik 3. deildar heims- meistaramótsins í Istanbúl í gær- kvöld. Bestur Matthías Máni Sigurðarson, besti sóknarmaður mótsins. Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is KVENNALIÐ KR í Iceland Ex- press deildinni í körfuknattleik virð- ist engu hafa gleymt í jólafríinu því liðið skaust til Stykkishólms á laug- ardaginn og eftir nokkuð brösugan annan leikhluta hrökk liðið í gang eftir hlé og vann öruggan sigur, 76:47. KR er með örugga forystu í deildinni og fátt virðist geta komið í veg fyrir að liðið haldi því sæti enda hefur það ekki tapað leik í þeim tólf umferðum sem búnar eru. Keflavík vann einnig nokkuð öruggan sigur, 86:64, á grönnum sín- um í Njarðvík og Haukar unnu Val í Vodafonehöllinni 71:51 þannig að lít- il breyting varð á stöðunni nema hvað Grindavík fór í annað sætið með sigrinum í Hveragerði og Haukar eru nú tveimur stigum á undan Njarðvík í fimmta sæti. KR virtist ætla að eiga nokkuð náðugan dag miðað við fyrsta leik- hluta en í þeim næsta náðu heima- menn forystu er þeir breyttu stöð- unni úr 8:15 í 20:17 og voru 22:21 yfir í hálfleik. Eftir það höfðu KR-ingar yfirburði og unnu 76:47. Helga Einarsdóttir átti flottan leik fyrir KR með 13 stig og átta frá- köst og Signý Hermannsdóttir gerði 11 stig og tók 11 fráköst. Jenny Pfeiffer-Finora gerði 15 stig. Hjá Snæfelli var Sherell Hobbs stiga- hæst með 18 stig og Björg Guðrún Einarsdóttir gerði 10 stig. Kristi Smith átti fínan leik fyrir Keflavík en hún skoraði 37 stig og Bryndís Guðmundsdóttir var með 11 auk þess sem hún tók 10 fráköst. Hjá Njarðvík var Shantrell Moss stigahæst með 30 stig og Helga Jón- asdóttir tók 13 fráköst. Heather Ezell var allt í öllu hjá Haukum er liðið lagði Val 71:51. Hún gerði 25 stig, stal boltanum 10 sinn- um, átti 11 stoðsendingar og tók 15 fráköst. Flott ferna hjá henni í sann- kölluðum stórleik. Hjá Val átti Hrund Jóhannsdóttir ágætan leik með 8 stig og 14 fráköst en stigahæst var Berglind Karen Ingvarsdóttir með 20 stig. Sigurganga KR-inga heldur áfram Eftir Guðmund Karl sport@mbl.is „VIÐ höfum brotnað við lítið sem ekkert mótlæti og lögðum upp með að halda út og spila körfubolta í 40 mínútur. Við áttum alltaf von á því að fá eitthvað í bakið en við stóðum öll áhlaup Hamars af okkur,“ sagði Jó- hann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur eftir 87:76 sig- ur á Hamri í úrvalsdeild kvenna í Hveragerði á laug- ardag. Liðin höfðu sætaskipti í deildinni og er Grindavík nú í 2. sæti. „Liðið skaut vel og hafði sjálfstraust. Vörnin var fín og þær duglegar að hjálpa hver annarri. Við höfum kannski ekki mikla ógn inni í teig en fengum opin skot fyrir utan og nýttum þau mjög vel,“ sagði Jóhann. Jafnt var á mörgum tölum fram í 2. leikhluta þegar Grindavík náði mest tíu stiga forskoti, 48:38. Grindavík hóf þriðja leikhluta á fimm þriggja stiga körfum í röð þar sem Michele DeVault var sjóðheit fyrir utan teig. Þrátt fyrir að fá á sig sjö þrista í 3. leikhluta hélt Hamar sínu striki og munurinn hélst í tæpum tíu stigum. Í upphafi fjórða leikhluta leit út fyrir að leikurinn myndi snúast við. Grindvíkingar gerðu mistök sem skrifa má á taugaspennu og Hamar minnkaði muninn í fimm stig. En Hamarsliðið ætlaði sér um of og gerði mörg mistök á lokakaflanum. Þegar rúmar tvær mín- útur voru eftir setti Íris Sverrisdóttir niður mikilvægan þrist og jók muninn aftur í tíu stig. Eftir það var ekki spurning hvorum megin sigurinn myndi lenda. Michele DeVault átti fínan leik hjá Grindavík og var stigahæst á vellinum. Helga Hallgrímsdóttir sýndi einnig sínar bestu hliðar og Petrúnella Skúladóttir var sterk í fyrri hálfleik. Hjá Hamri var Koren Schram allt í öllu en liðssystur hennar virkuðu þreyttar. Sigrún Ámundadóttir kom þó sterk af bekknum í fyrri hálfleik þó að hún hafi oft verið sterkari í fráköstum en Ham- arsliðið hafði sig lítið í frammi undir körfu Grindavíkur þegar leið á. „Liðið sem var betur undirbúið vann leik- inn. Við áttum bullandi séns í fjórða leikhluta en höfðum ekki orku. Við komum ekki undan jólafríinu eins og ég vildi. Baráttan var fín en liðið virkaði þreytt. Okkur gekk erfiðlega að stöðva þær í vörninni þó að við höfum prófað bæði svæðisvörn og maður á mann. Þær fengu opin skot innan og utan teigs og þökkuðu pent fyrir það,“ sagði Ágúst Björgvinsson, þjálfari Hamars. Ljósmynd/Guðmundur Karl Slagur Koren Schram freistar þess að skora fyrir Hamar en Helga Hallgrímsdóttir úr Grindavík reynir að stöðva hana. Helga og félagar höfðu betur og standa vel að vígi í öðru sætinu. „Stóðum öll áhlaup Ham- ars af okkur“ Hamar – Grindavík 76:87 Hveragerði, úrvalsdeild kvenna, Iceland Express-deildin, laugardaginn 9. janúar 2010. Gangur leiksins: 2:0, 4:7, 11:11, 18:14, 25:25, 31:27, 35:40, 40:48, 45:48, 51:60, 57:65, 66:73, 74:79, 76:87. Stig Hamars: Koren Schram 28. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 13, Kristrún Sigur- jónsdóttir 12, Fanney Lind Guðmundsdótt- ir 8, Íris Ásgeirsdóttir 8, Guðbjörg Sverr- isdóttir 4, Sóley Guðgeirsdóttir 3. Fráköst: 20 í vörn – 10 í sókn. Stig Grindavíkur: Michele DeVault 29, Íris Sverrisdóttir 13, Petrúnella Skúladóttir 12, Helga Hallgrímsdóttir 10, Jovana Lilja Stefánsdóttir 9, Berglind Anna Magnús- dóttir 6, Mary Jean Lerry Sicat 6, Sandra Ýr Grétarsdóttir 2. Fráköst: 35 í vörn – 11 í sókn. Villur: Hamar 19 – Grindavík 17. Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson og Rögnvaldur Hreiðarsson.. Áhorfendur: 91. Snæfell – KR 47:76 Íþróttahúsið Stykkishólmi, úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik, Iceland Express deildin, laugardaginn 9. janúar 2010. Gangur leiksins: 8:15, 20:17, 22:21, 23:46, 47:76. Stig Snæfells: Sherell Hobbs 18, Björg Guðrún Einarsdóttir 10, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 5, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 4, Hildur Björg Kjartansdóttir 2, Sara Sæ- dal Andrésdóttir 2, Helga Hjördís Björg- vinsdóttir 2, Gunnhildur Gunnarsdóttir 2, Sara Mjöll Magnúsdóttir 2. Fráköst: 28 í vörn – 10 í sókn. Stig KR: Jenny Pfeiffer-Finora 15, Mar- grét Kara Sturludóttir 14, Helga Einars- dóttir 13, Signý Hermannsdóttir 11, Guð- rún Gróa Þorsteinsdóttir 9, Hildur Sigurðardóttir 7, Heiðrún Kristmundsdótt- ir 4, Brynhildur Jónsdóttir 3. Fráköst: 26 í vörn – 24 í sókn. Villur: Snæfell 25 – KR 14. Dómarar: Halldór Geir Jensson og Erling- ur Snær Erlingsson. Keflavík – Njarðvík 86:64 Toyota-höllin í Keflavík, úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik, Iceland Express deildin, laugardaginn 9. janúar 2010. Gangur leiksins: 24:18, 48:32, 65:48, 86:64. Stig Keflavíkur: Kristi Smith 37, Bryndís Guðmundsdóttir 11, Marín Rós Karlsdóttir 8, Pálína Gunnlaugsdóttir 8, Birna Ingi- björg Valgarðsdóttir 7, Hrönn Þorgríms- dóttir 7, Rannveig Randversdóttir 4, Svava Ósk Stefánsdóttir 2, Halldóra Andrésdóttir 2. Fráköst: 32 í vörn – 14 í sókn. Stig Njarðvíkur: Shantrell Moss 30, Ólöf Helga Pálsdóttir 16, Sigurlaug Guðmunds- dóttir 4, Harpa Hallgrímsdóttir 4, Helga Jónasdóttir 4, Anna María Ævarsdóttir 3, Auður Jónsdóttir 3. Fráköst: 21 í vörn – 17 í sókn. Villur: Keflavík 18 – Njarðvík 20. Valur – Haukar 51:71 Vodafonehöllin, úrvalsdeild kvenna í körfu- knattleik, Iceland Express-deildin, laugar- daginn 9. janúar 2010. Gangur leiksins: 12:13, 23:37, 35:45, 51:71. Stig Vals: Berglind Karen Ingvarsdóttir 20, Hrund Jóhannsdóttir 8, Þórunn Bjarna- dóttir 8, Birna Eiríksdóttir 7, Hanna S. Hálfdanardóttir 3, Ösp Jóhannsdóttir 3, Sigríður Viggósdóttir 2. Fráköst: 28 í vörn – 13 í sókn. Stig Hauka: Heather Ezell 25, Kiki Jean Lund 15, Guðrún Ósk Ámundadóttir 11, Telma B. Fjalarsdóttir 10, Heiðrún Ösp Hauksdóttir 6, Margrét Rósa Hálfdánar- dóttir 2, Helena Brynja Hólm 2. Fráköst: 26 í vörn – 19 í sókn. Villur: Valur 11 – Haukar 11. Dómarar: Davíð Hreiðarsson og Jón Þór Eyþórsson. Úrvalsdeild kvenna, Iceland-Express: KR 12 12 0 899:619 24 Grindavík 12 8 4 840:793 16 Hamar 12 8 4 862:833 16 Keflavík 12 6 6 827:770 12 Haukar 12 5 7 856:833 10 Njarðvík 12 4 8 806:872 8 Snæfell 12 3 9 690:864 6 Valur 12 2 10 648:844 4 Næstu leikir á miðvikudag: KR – Hamar Grindavík – Valur Haukar – Njarðvík Snæfell – Keflavík Stigahæstar í deildinni, meðaltal: Heather Ezell, Haukum ........................ 30.9 Shantrell Moss, Njarðvík ...................... 28,4 Kristen Green, Snæfelli ......................... 22,4 Koren Schram, Hamri ........................... 20,8 Kristi Smith, Keflavík............................ 20,4 Michele DeVault, Grindavík.................. 20,1 Margrét Kara Sturludóttir, KR............ 16,7 Sigrún S. Ámundadóttir, Hamri ........... 15,2 Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík ...... 13,6 Birna I. Valgarðsdóttir, Keflavík.......... 13,4 Kristrún Sigurjónsdóttir, Hamri.......... 13,3 Staðan

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.