Morgunblaðið - 11.01.2010, Page 5
INGIMUNDUR Ingimundarson er varnarmaður í ís-
lenska landsliðinu í handknattleik sem leikur í úr-
slitakeppni EM í Austurríki 19.-31. janúar.
Ingimundur er 29 ára gamall, fæddur 29. janúar
1980. Hann kom fyrst við sögu með landsliðinu ár-
ið 2003 en hefur aðallega leikið með því frá 2008.
Hann hefur leikið 71 landsleik og skorað 48 mörk.
Þetta verður fyrsta Evrópukeppni Ingimundar sem
var í liðinu sem fékk silfurverðlaunin á ÓL í Peking
2008.
Ingimundur lék með ÍR frá 16 ára aldri, 1996, til
2005. Hann spilaði með Pfadi Winterthur í Sviss tímabilið 2005-06 og
síðan í hálft ár með Ajax í Danmörku. Ingimundur gekk til liðs við Elverum
í Noregi í ársbyrjun 2007 og lék þar í hálft annað ár en hefur verið leik-
maður Minden í Þýskalandi frá sumrinu 2008.
Ingimundur Ingimundarson
FYRSTI LEIKUR ÍSLANDS Á EM Í AUSTURRÍKI ER EFTIR 8 DAGA
Íþróttir 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 2010
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
ÞEIM 5.600 áhorfendum sem fylltu
Donau-íþróttahöllina í Regensburg í
gær varð ekki að ósk sinni, að sjá
þýska handknattleikslandsliðið leggja
það íslenska að velli í síðari vin-
áttulandsleik þjóðanna á jafnmörgum
dögum. Íslenska liðið lét sér ekki
nægja að leggja Þjóðverja á laug-
ardaginn með fjórum mörkum heldur
endurtók leikinn í gær og sigraði aftur
með fjórum mörkum, nú 33:29, eftir að
staðan í leikhléi hafði verið 18:17 fyrir
Ísland.
„Ég er þokkalega sáttur með þetta,
en samt ekkert meira,“ sagði Guð-
mundur Þ. Guðmundsson, landsliðs-
þjálfari Íslands, í samtali við Morg-
unblaðið eftir síðari leikinn í gær.
„Þetta var ekki ósvipaður leikur og sá
fyrri á laugardaginn. Bæði lið keyrðu
eins og þau gátu, hröð miðja og mikill
hraði, sérstaklega í fyrri hálfleiknum.
Við vorum í ákveðnu basli í vörninni
fyrir hlé og fengum á okkur sautján
mörk, sem er auðvitað allt of mikið.
Það lagaðist eftir hlé því þá gerðu þeir
bara tólf mörk hjá okkur, en við fórum
úr flatri vörn í 5+1 og hún var fín eftir
að hún fór í gang eftir tíu mínútur.
Í fyrri leiknum fórum við hræðilega
illa með mörg góð færi sem okkur tókst
að skapa okkur og vorum ákveðnir í að
laga það og tókst það. Við fórum betur
með færin okkar í dag en í gær og við
hefðum aldrei unnið þennan leik í dag
ef við hefðum farið jafn illa með færin
og við gerðum í fyrri leiknum. Við vor-
um miklu agaðri í sókninni í dag og bið-
um lengur eftir góðum færum og þá
gekk okkur líka betur núna þegar við
vorum einum fleiri,“ sagði Guðmundur.
Hann sagðist hafa notað flesta þá
leikmenn sem voru með í för og hann
hefði verið ánægður með margt. „Ætli
við höfum ekki notað tólf leikmenn í
dag og eins í fyrri leiknum, þá kom til
dæmis Sturla sterkur inn og hvíldi
Guðjón Val. Það var mjög gott að sjá
það og eins kom Vignir sterkur inn í
vörnina þegar Ingimundur fékk sína
aðra brottvísun snemma í leiknum.
Við þurfum að ná meiri stöðugleika í
vörnina hjá okkur. Ég var ánægður
með að við nýttum færin betur núna en
í fyrri leiknum, það var miklu betra í
dag. Alexander kom líka talsvert út
fyrir og skoraði fjögur af mörkum sín-
um með skotum fyrir utan. Marka-
skorunin dreifðist vel og það er mjög
jákvætt fyrir okkur,“ sagði Guð-
mundur.
Ljósmynd/Michael Heuberger
Skot Aron Pálmarsson reynir að koma boltanum framhjá Oliver Roggisch í leiknum í gær. Vignir Svavarsson er við öllu búinn á línunni.
Þurfum stöðugri vörn
Leikur landsliðsins agaðri í sókninni Færin nýttust betur en í fyrri leiknum
Donau-höllin í Regensburg, vin-
áttulandsleikur í handknattleik
karla, sunnudaginn 10. janúar 2010.
Gangur leiksins: 2:1, 3:4, 6:4, 7:5,
7:11, 9:13, 12:13, 14:13, 14:16, 17:18,
19:18, 19:20, 21:23, 25:25, 27:29,
28:30, 29:30, 29:33.
Mörk Þýskalands: Kaufmann 7,
Müller 4, Haass 4, Sprenger 3, Jan-
sen 3/1, Weinhold 2, Kraus 2/1,
Schröder 2, Späth 1.
Varin skot: Lichtlein 7, Heinevetter
7/1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Íslands: Ólafur Stefánsson 9,
Guðjón Valur Sigurðsson 6, Alex-
ander Petersson 5, Snorri Steinn
Guðjónsson 4/1, Vignir Svavarsson
2, Aron Pálmarsson 2, Ingimundur
Ingimundarson 2, Arnór Atlason 2,
Róbert Gunnarsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gúst-
avsson 6, Hreiðar Levy Guðmunds-
son 6.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Lazaar og Reveret frá
Frakklandi.
Áhorfendur: 5.600
Þýskaland – Ísland 29:33
FORRÁÐAMENN NBA-liðsins Washington Wizards
lögðu allt kapp á að hlutir sem tengdust „byssubrand-
inum“Gilbert Arenas, leikmanni liðsins, væru hvergi sjá-
anlegir þegar liðið mætti New Orleans Hornets í Verizon
Center í gær þar sem Hornets vann sigur, 115:110. Það
gekk hins vegar ekki eftir því liðsfélagi Arenas, DeShawn
Stevenson sýndi félaga sínum stuðning með því að hafa
gælunafn hans, „Agent Zero“, límt á fætur sér í upphitun.
Arenas sætir eins og áður hefur komið fram rannsókn
fyrir að hafa mætt með óhlaðnar byssur í búningsklefa
Wizards-liðsins til að geyma í skápnum sínum síðastliðinn
miðvikudag.
Enn hefur ekki verið ákveðið hver refsing leikstjórn-
andans verður en David Stern, framkvæmdastjóri NBA,
er ekki ánægður með hve kappinn virðist taka málinu létt.
Hann segir Arenas ekki enn í standi til að mæta fyrir
dómstóla.
Liðsfélagar Arenas hafa líkt og leikmaðurinn sjálfur
viljað gera sem minnst úr málinu og fjórir leikmenn hafa
reyndar þegar verið sektaðir fyrir að
gera of lítið úr því.
Eytt af myndbandi
Allur söluvarningur tengdur Arenas
hefur verið tekinn úr umferð og þá hef-
ur myndbandi sem sýnt er fyrir leiki
liðsins verið breytt svo að hann sjáist
ekki á því. Stór auglýsingaborði í Veri-
zon Center með mynd af Arenas var
einnig fjarlægður.
Fyrrnefndur Stevenson taldi réttast
að taka upp hanskann fyrir félaga sinn og tjáði fjölmiðlum
það eftir leikinn:
„Hann er enn leikmaður liðsins, ekki satt? Það er hann
svo sannarlega. Hann er mér sem bróðir og ég ætla að
standa með honum í gegnum þessa erfiðu tíma sem hann
nú gengur í gegnum. Það er mitt smávægilega framlag,“
sagði Stevenson. sindris@mbl.is
Arenas nýtur stuðnings liðsfélaga
Gilbert
Arenas
Zoran DaníelLjubicic
tryggði Keflavík í
gær Íslands-
meistaratitil
karla í innanhúss-
knattspyrnu,
Futsal. Zoran,
sem varð 43 ára á
föstudag, skoraði
sigurmarkið í úrslitaleiknum gegn
Víði úr Garði, 6:5, á síðustu mínútu
leiksins en leikið var í Laugardals-
höllinni. Zoran, sem lagði skóna á
hilluna fyrir fjórum árum og þjálfar
yngri flokka í Keflavík, lék með syni
sínum, hinum 17 ára gamla Bojan
Stefáni Ljubicic, unglingalandsliðs-
manni Íslands, í liði Keflvíkinga á
mótinu.
Keflavík vann sér þar með þátt-tökurétt í Evrópukeppni
meistaraliða í Futsal síðar á þessu
ári. Íslensk lið hafa tekið þátt í þeirri
keppni tvö undanfarin ár. Hvöt frá
Blönduósi tók þátt í keppninni í
fyrra og Víðir úr Garði fyrir tveimur
árum.
ÍBV varð Futsalmeistari í meist-araflokki kvenna. Eyjakonur
lögðu Þrótt úr Reykjavík að velli,
5:1, í úrslitaleiknum í Laugardals-
höll í gær. Þær fara þó ekki í Evr-
ópukeppni, sem er ekki til staðar
ennþá í kvennaflokki.
Gilles MbangOndo,
knattspyrnumað-
ur frá Gabon og
liðsmaður
Grindavíkur, fær
ekki samning við
þýska 2. deild-
arliðið Hansa Ro-
stock. Hann lauk
reynsludvöl þar um helgina með því
að skora mark í innanfélagsleik.
Andreas Zachhuber, þjálfari Hansa,
sagði á vef félagsins að Ondo hefði
staðið sig vel en ákveðið hefði verið
að semja ekki við nýja leikmenn
nema ljóst væri að þeir yrðu lyk-
ilmenn í liðinu.
Guðni Valentínusson, fyrrumleikmaður Fjölnis, varð í gær
danskur bikarmeistari í körfuknatt-
leik með Bakken Bears. Lið hans
vann Svendborg Rabbits í úrslita-
leik, 84:81, að viðstöddum 1.300
áhorfendum í Herlev. Guðni náði
ekki að skora í leiknum.
Stoke City hefur bæst í hóp nokk-urra enskra úrvalsdeildarfélaga
sem hyggjast freista þess að næla í
hollenska sóknarmanninn Ruud Van
Nistelrooy nú þegar félaga-
skiptaglugginn er opinn í janúar.
Nistelrooy er á mála hjá Real Ma-
drid en ku vilja komast að hjá liði
þar sem hann fær að spila meira fyr-
ir úrslitakeppni HM í sumar.
Fólk sport@mbl.is