Morgunblaðið - 11.01.2010, Qupperneq 8
8 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 2010
Eftir Guðmund Karl
sport@mbl.is
„VIÐ vorum gjörsamlega með þetta
í höndunum en gáfum þeim svo tæki-
færi til að gera þetta að einhverjum
leik. Ég er ánægður með að við klár-
uðum þetta, sum lið hefðu brotnað
við minna. Tuttugu stig eru enginn
munur í körfubolta, sérstaklega þeg-
ar þú ert að spila við stemmningslið
eins og Hamar. Ég er samt ánægður
með sigurinn. Við ætlum okkur að
vera með í baráttunni þannig að
þessi stig skipta okkur gríðarlega
miklu máli,“ sagði Ingi Þór Stein-
þórsson, þjálfari Snæfells, eftir leik.
Snæfell hafði örugg tök á leiknum
í fyrri hálfleik leitt áfram af Jóni
Ólafi Jónssyni og Sean Burton.
Svæðisvörn Hamars bauð upp á opin
skot fyrir utan og það nýttu Hólm-
arar sér vel með tólf þriggja stiga
körfum fyrir leikhlé. Á meðan hittu
Hamarsmenn illa og Andre Dabney
var sá eini sem eitthvað kvað að.
Þegar komið var fram yfir miðjan
3. leikhluta hafði Snæfell 23 stiga
forskot og ekkert í spilunum sem
benti til annars en öruggs sigurs
þeirra. Það sættu heimamenn sig
ekki við og á örfáum mínútum í lok
þriðja og upphafi fjórða leikhluta
náðu þeir 28:7 leikkafla. Steinrunnir
Snæfellingar voru nokkra stund að
ná áttum en þeir bættu sig á loka-
kaflanum og unnu að lokum tólf
stiga sigur.
Jón Ólafur var maður leiksins hjá
Snæfellingum og sterkur undir báð-
um körfunum. Hlynur Bæringsson
frákastaði vel og Burton ógnaði stöð-
ugt fyrir utan. Hjá Hamri var Andre
Dabney bestur og Svavar Páll Páls-
son lék af krafti í síðari hálfleik. Þá
er vert að minnast á framlag hins 17
ára gamla Odds Ólafssonar sem
sýndi frábæra takta á köflum.
„Það er erfitt að útskýra af hverju
við mættum svona daufir til leiks.
Við erum búnir að taka vel á því á
æfingum undanfarið og menn hafa
verið að taka vel á því en við vorum
ansi lengi í gang í kvöld,“ sagði
Ágúst Björgvinsson, þjálfari Ham-
ars, í leikslok. „Við spiluðum fanta-
vel fyrstu mínúturnar í fjórða leik-
hluta þegar leikurinn var nánast
búinn og við höfðum engu að tapa.
Það gengur bara ekki að spila vel í
tíu mínútur gegn sterku liði eins og
Snæfelli,“ sagði Ágúst.
Snæfell krækti í stig
Var með undirtökin lengst af en Hamarsmenn gerðu harða hríð í lokin
Þjálfari Hvergerðinga segir ekki nóg að spila vel í nokkrar mínútur
Eftir bragðdaufan fyrri hálfleik þar
sem Snæfell hafði örugg tök á leikn-
um voru Hamarsmenn nærri því að
gera stórleik úr viðureign liðanna í
gærkvöldi. Gestirnir höfðu 23 stiga
forskot í 3. leikhluta, Hamar minnk-
aði muninn niður í tvö stig á nokkrum
mínútum en komst ekki lengra. Loka-
tölur 86:98.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
PÁLL Axel Vilbergsson, landsliðsmaður úr
Grindavík, var gjörsamlega óstöðvandi þegar
Grindvíkingar tóku á móti Tindastóli í Iceland Ex-
press deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi.
Heimamenn unnu nokkuð auðveldlega 124:85 og
gerði Páll Axel hvorki fleiri né færri en 54 stig, 27
stig í hvorum hálfleik.
Páll Axel hitti úr 8 af 11 tveggja stiga skotum
sínum, sem er 73% nýting, hann setti niður 10 af
18 þriggja stiga skotum sínum, sem gerir 56%
nýtingu og á vítalínuna fór hann 12 sinnum og
hitti úr átta skotum eða úr 67%. Hann átti auk
þess fjórar stoðsendingar og náði boltanum sex
sinnum af mótherjum sínum. Sannarlega glæsi-
legur leikur hjá honum.
„Við hittum mjög vel og náðum snemma góðri
forystu sem þeir náðu aldrei að brúa. Þetta var
eiginlega búið í hálfleik,“ sagði Friðrik Rún-
arsson, þjálfari Grindavíkur, í samtali við Morg-
unblaðið eftir leik. Staðan í leikhléi var 68:43.
„Páll Axel var heldur betur í gírnum í kvöld.
Þetta var einn af þeim dögum sem allt fór niður
hjá honum. Hann kom virkilega sterkur til leiks
og axlaði meiri ábyrgð en venjulega enda vantaði
bæði Brenton Birmingham og Arnar Frey Jóns-
son, en þeir eru meiddir,“ sagði Friðrik ánægður
með Pál Axel.
Hann hefur þó áhyggjur af meiðslum leik-
manna sinna því í leiknum í gær meiddist Þorleif-
ur Ólafsson. „Það kom eitthvað fyrir hásinina hjá
honum, en við vitum ekki meira um meiðsli hans
fyrr en á morgun,“ sagði Friðrik og sagði að ef
hann yrði eitthvað frá keppni þá væri ekki ólíklegt
að leita þyrfti að liðsstyrk. „Ef hann er meiddur
þá eru þrír ansi sterkir bakverðir frá og þá verð-
um við líklega að fara að huga að því að fá liðs-
styrk,“ sagði Friðrik sem var sérlega ánægður
með Darrell Flake, sem hann segir kominn í fína
æfingu.
Páll Axel var alveg óstöðvandi
Eftir Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
BLIKAR fóru heldur illa að ráði sínu í gærkvöldi
þegar þeir fengu Keflvíkinga í heimsókn í úrvals-
deildinni í körfuknattleik. Með góðri baráttu náðu
þeir sjö stiga forystu í byrjun fjórða leikhluta.
Þeir glutruðu því síðan úr höndum sér um leið og
Keflvíkingar hristu af sér slenið, virtust ekki vita
hvernig þeir ættu að haga sér þegar ágætur
möguleiki var á að sigra stórveldið úr Keflavík og
töpuðu, 75:83.
„Við vorum hræddir um að tapa leiknum þegar
við komumst yfir en mér finnst að við hefðum átt
að taka hann,“ sagði Blikinn Daníel Guðmundsson
eftir leikinn. „Við byrjuðum hrikalega en náðum
svo að rétta úr kútnum og komast yfir í þriðja
leikhluta með hörkuleik en svo vantaði allan kjark
í okkur í fjórða leikhluta. Við verðum að læra að
gera út um svona leiki ef við ætlum að halda okkur
í deildinni og fara í úrslitakeppnina.“
Jeremy Caldwell tók 10 fráköst og hitti úr sjö af
12 skotum inni í teig en Ágúst Angantýsson tók
níu fráköst. Þorsteinn Gunnlaugsson hitti vel eins
og Rúnar Pálmarsson. Hins vegar er áhyggjuefni
að Blikar töpuðu boltanum 27 sinnum.
Slöppuðum af
Hjá Keflavík var Sigurður Þorsteinsson í góð-
um gír og hitti úr átta af 12 skotum inni í teig en
bara einu af þremur vítum og tók fjögur fráköst.
Hann var ekkert of ánægður með sig og sína
menn. „Við höfum spilað betur og þetta var ekki
nógu gott en sigur er sigur. Ætli við höfum ekki
bara farið að slappa af komnir með örugga forystu
og misstum hana niður en við erum Keflvíkingar
og verðum hundfúlir ef við erum að tapa í ein-
hverju liði, sama hvað það er, og við urðum alveg
brjálaðir, hrukkum í gang og það var nóg,“ sagði
Sigurður eftir leikinn. Draelou Burns fór á kost-
um í fyrsta og fjórða leikhluta en gerði alls 27 stig
og tók sjö fráköst. Í raun léku Keflvíkingar bara
tvo leikhluta af viti og var líka refsað fyrir það en
sýndu hvað í þeim býr þegar á reyndi.
Blikarnir
brugðust
er á reyndi
Morgunblaðið/Kristinn
Aðþrengdur Guðmundur Auðunn Gunnarsson, leikmaður Keflavíkur, með tvo Blika í bakinu.
Hamar – Snæfell 86:98
Hveragerði, úrvalsdeild karla, Iceland Ex-
press-deildin, sunnudaginn 10. janúar 2010.
Gangur leiksins: 5:0, 9:11, 17:16, 20:26,
24:36, 32:41, 37:55, 41:61, 47:68, 50:73,
59:75, 65:78, 78:80, 81:88, 86:98.
Stig Hamars: Andre Dabney 38, Marvin
Valdimarsson 15, Svavar Páll Pálsson 15,
Oddur Ólafsson 12, Viðar Örn Hafsteinsson
6.
Fráköst: 22 í vörn – 10 í sókn.
Stig Snæfells: Sean Burton 28, Jón Ólafur
Jónsson 23, Sigurður Á. Þorvaldsson 18,
Hlynur Bæringsson 13, Emil Þór Jóhanns-
son 7, Sveinn Arnar Davíðsson 6, Ðáll
Fannar Helgason 3.
Fráköst: 31 í vörn – 11 í sókn.
Villur: Hamar 20 – Snæfell 20.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson og
Eggert Þór Aðalsteinsson.
Áhorfendur: 266.
Breiðablik – Keflavík 75:83
Smárinn, úrvalsdeild karla, Iceland Ex-
press-deildin, sunnudaginn 10. janúar 2010.
Gangur leiksins: 0:4, 2:10, 4:17, 6:21, 8:24,
15:24, 19:28, 23:30, 26:36, 21:36, 31.39,
36:41, 36:44, 40:44, 44:44, 46:52, 56:52,
59:54, 62:58, 65:58, 65:68, 69:71, 74:76,
74:81, 75:83.
Stig Breiðabliks: Jonathan Schmidt 17, Je-
remy Caldwell 16, Daníel Guðmundsson 10,
Ágúst Angantýsson 8, Þorsteinn Gunn-
laugsson 8, Rúnar Pálmarsson 7, Gylfi
Geirsson 5, Aðalsteinn Pálsson 4.
Fráköst: 28 í vörn – 9 í sókn.
Stig Keflavíkur: Draelou Burns 27, Sigurð-
ur Þorsteinsson 17, Hörður Axel Vilhjálms-
son 12, Elentínus Margeirsson 8, Þröstur
Lé Jóhannsson 7, Sverrir Sverrisson 5, Jón
Nordal Hafsteinsson 4, Almar Guðbrands-
son 3.
Fráköst: 24 í vörn – 20 í sókn.
Villur: Breiðablik 21 – Keflavík 22.
Dómarar: Erlingur Snær Erlingsson og
Halldór Geir Jensson.
Áhorfendur: Um 135.
Grindavík – Tindastóll 124:85
Röstin, úrvalsdeild karla, Iceland Express-
deildin, sunnudaginn 10. janúar 2010.
Gangur leiksins: 0:2, 5:6, 21:8, 29:14, 37:19,
41:26, 62:37, 68:43, 85:53, 99:64, 116:79,
124:85.
Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson
54, Darrell Flake 24, Ólafur Ólafsson 14,
Ómar Örn Sævarsson 11, Björn Steinn
Brynjólfsson 6, Guðlaugur Eyjólfsson 5,
Þorleifur Ólafsson 5, Ármann Vilbergsson
3, Nökkvi Már Jónsson 2.
Fráköst: 26 í vörn – 5 í sókn.
Stig Tindastóls: Svavar Atli Birgisson 20,
Kenneth Boyd 15, Michael Giovacchini 12,
Sveinbjörn Skúlason 9, Helgi Freyr Mar-
geirsson 8, Hreinn Gunnar Birgisson 7,
Helgi Rafn Viggósson 7, Axel Kárason 4,
Friðrik Hreinsson 2, Sigmar Logi Björns-
son 1.
Fráköst: 31 í vörn – 9 í sókn.
Villur: Grindavík 16 – Tindastóll 19.
Dómarar: Jón Guðmundsson og Georg
Andersen.
Áhorfendur: 283.
Stjarnan 11 9 2 951:860 18
Njarðvík 11 9 2 942:793 18
KR 11 9 2 1020:900 18
Keflavík 12 9 3 1056:911 18
Grindavík 12 8 4 1120:950 16
Snæfell 12 8 4 1108:969 16
ÍR 11 5 6 908:945 10
Hamar 12 4 8 988:1046 8
Tindastóll 12 4 8 1000:1068 8
Breiðablik 12 2 10 904:1057 4
Fjölnir 11 2 9 837:976 4
FSu 11 0 11 706:1065 0
Stigahæstu leikmenn, meðaltal:
Justin Shouse, Stjörnunni ....................27,36
Andre Dabney, Hamri ..........................25,42
Marvin Valdimarsson, Hamri ..............23,83
Christopher Smith, Fjölni ....................22,90
Jovan Zdravevski, Stjörnunni..............21,91
Sean Burton, Snæfelli ...........................21,29
Páll Axel Vilbergsson, Grindavík.........21,25
Hlynur Bæringsson, Snæfelli ..............20,50
Svavar Atli Birgisson, Tindastóli.........20,42
Nemanija Sovic, ÍR ...............................20,18
Darrell flake, Grindavík........................19,71
Semaj Inge, KR.....................................19,45
Flest tekin fráköst, meðaltal:
Hlynur Bæringsson, Snæfelli ..............15,08
Christopher Smith, Fjölni ....................11,90
Fannar Freyr Helgason, Stjörnunni...11,11
Friðrik Stefánsson, Njarðvík.................9,73
Sigurður Þorsteinsson, Snæfelli ............9,50
Amani Daanish, Grindavík .....................9,18
Stoðsendingar, meðaltal:
Sean Burton, Snæfelli .............................7,43
Ægir Þór Steinarsson, Fjölni.................6,60
Arnar Freyr Jónsson, Grindavík ...........6,09
Semaj Inge, KR.......................................6,00
Justin Shouse, Stjörnunni ......................5,64
Andre Dabney, Hamri ............................4,92
Michael Giovacchini, Tindastóli .............4,83
Magnús Þór Gunnarsson, Njarðvík.......4,45
Svavar Pálsson, Hamri ...........................4,33
Staðan