Morgunblaðið - 15.01.2010, Síða 1

Morgunblaðið - 15.01.2010, Síða 1
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2010 íþróttir Körfuboltinn Fjölnismenn gerðu góða ferð til Grindavíkur og fögnuðu tveggja stiga sigri. Njarðvíkingar einir í toppsætinu eftir sigur á Króknum. Enn eitt tapið hjá FSu 3 Íþróttir mbl.is LOGI Geirsson er rétthent skytta í íslenska lands- liðinu í handknattleik sem leikur í úrslitakeppni Evrópumótsins í Austurríki 19.-31. janúar. Logi er 27 ára gamall, fæddur 10. október 1982. Hann lék fyrst með A-landsliði Íslands árið 2004 og hefur frá þeim tíma spilað 82 A-landsleiki og skorað í þeim 286 mörk. Logi lék í fyrsta skipti á EM í Noregi árið 2008 en þá lék hann sex leiki og skoraði í þeim 15 mörk. Hann var í landsliðinu sem fékk silfurverðlaunin á ÓL í Peking 2008. Logi er uppalinn FH-ingur og kom inn í meist- araflokk félagsins tímabilið 2000-01. Hann lék með liðinu í fjögur ár, til vorsins 2004. Þá samdi hann við Lemgo í Þýskalandi og hefur leikið með liðinu allar götur síðan. Fyrir skömmu varð ljóst að þetta yrði hans síð- asta tímabil þar. FYRSTI LEIKUR ÍSLANDS Á EM Í AUSTURRÍKI ER EFTIR 4 DAGA Logi Eldon Geirsson Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is FORRÁÐAMENN þýska fyrstu- deildarliðsins hafa boðið handknatt- leiksmanninum Einari Hólmgeirs- syni nýjan tveggja ára samning. Þetta hefur Morgunblaðið sam- kvæmt traustum heimildum. Núver- andi samningur rennur út í vor. Boðið er auðvitað háð því að Einar nái fullri heilsu en hann hefur ekkert leikið með liðinu á yfirstandandi leiktíð og var talsvert fjarverandi á síðasta keppnistímabili vegna meiðsla. Einar fór fyrir nokkrum dögum aftur til Þýskalands eftir að hafa verið í stuttu fríi hér með eiginkonu og barni. Vonir standa til að hann geti hafið æfingar með Grosswall- stadt í vikunni, eftir margra mánaða endurhæfingu vegna meiðsla í hné. Eftir það sem á undan er gengið á ferli Einars, sem hefur verið þyrn- um stráður undanfarin þrjú ár, er ljóst að stjórnendur Grosswallstadt hafa ekki misst trúna á honum og að fallbyssuskot hans skili mikilvægum mörkum fyrir liðið á næstu árum. Tilboðið hlýtur einnig að hafa já- kvæð áhrif á Einar í andlegri upp- byggingu eftir meiðslin. Einari boðinn nýr samn- ingur hjá Grosswallstadt  Hefur ekkert leikið í vetur Vonandi klár í febrúar Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is „ÞAÐ liggja alltaf mikil heilabrot að baki valinu á liðinu hverju sinni, þannig á það vera,“ sagði Guð- mundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik karla, í gær eftir að hann tilkynnti hvaða 16 leikmönnum hann ætlar að tefla fram á Evrópumeistaramótinu sem hefst með viðureign við Serba í Linz í Austurríki á þriðjudaginn. Mesta athygli vakti að Guðmundur valdi Loga Geirsson og Ólaf Guðmundsson. Logi hefur lengi glímt við meiðsl í öxl og lítið leikið síðustu 10 mán- uði. Ólafur er aðeins 19 ára og hefur enga reynslu af þátttöku á stórmóti með A-landsliðinu. Hann blómstraði hins vegar með U19 ára landsliðinu á HM í fyrra þegar það vann til silfurverðlauna. Guðmundur kaus að skilja Ragnar Óskarsson og Rúnar Kárason eftir heima af þeim 19 manna hópi sem æft hefur saman frá áramótum. Þá heltist Þór- ir Ólafsson úr lestinni vegna meiðsla. Af fjórtán manna hópi silfurliðsins í Peking eru þrettán í EM-hópnum að þessu sinni. Aðeins Sigfús Sigurðsson verður fjarri góðu gamni. „Logi lék mjög vel gegn Portúgal þótt ekki hafi hann skotið mikið á markið. Ég hef trú á að það komi hjá honum. Hann er í fínu formi, er snarpur, átti góðar sendingar á Guðjón Val í leiknum og var fínn í vörninni,“ sagði Guðmundur spurður um valið á Loga en vafi þótti leika á um tíma að hann hlyti náð fyrir augum landsliðsþjálfarans að þessu sinni. EM-hópurinn og ítarlegt viðtal við Guðmund er á blaðsíðu 2. Morgunblaðið/Kristinn Stórskytta Logi Geirsson hafði hægt um sig í langskotunum í vináttuleiknum gegn Portúgal. Guðmundur Guðmundsson hefur trú á skyttunni. Logi slapp með til Linz  Guðmundur kaus að velja Ólaf Guðmundsson en skilja Ragnar eftir  Þrettán af fjórtan úr silfurliðinu fara til Austurríkis  Hefur trú á Loga „ÉG mun horfa á sjónvarpsútsend- ingar frá leikjum liðsins og það verður vonandi skemmtilegt. Ég hlýt að geta van- ist því að horfa á leikina frá þessu sjónarhorni,“ sagði Brynjólfur Jónsson læknir en það þykir fréttaefni að Brynj- ólfur fer ekki með handboltalands- liðinu á Evrópumeistaramótið í Austurríki. Brynjólfur hefur fylgt landsliðinu frá árinu 1990 og á þeim tíma hefur hann farið á fjölmörg stórmót. „Ég er ekki alveg með töluna á hreinu en ég held að með 21 árs landsliðsmótunum séu þetta 16 eða 17 stórmót. Eitt þeirra var hér á Ís- landi árið 1995 en ég var t.d. ekki á EM í Noregi 2008. Á þessum tíma hef ég farið á þrenna Ólympíuleika.“ Það eru ýmsar ástæður fyrir því að Brynjólfur fer ekki með á EM að þessu sinni. „Mér finnst vera kominn tími til að aðrir taki við þessu. Ég hef haft gríðarlega gaman af því að vinna með landsliðinu og þetta er allt sam- an gert í frítíma,“ sagði Brynjólfur en hann er bæklunarskurðlæknir og hefur einfaldlega hliðrað til í vinnu sinni til að komast með á stórmótin. Með ofnæmi fyrir „klístri“? Það er ótrúlegt og jafnvel satt að Brynjólfur þarf að halda sig frá öllu því sem tengist handbolta þar sem grunur leikur á að hann sé með of- næmi fyrir efni eða efnum sem eru í klístrinu eða harpixefnunum. „Það er ekki alveg komið á hreint en það er margt sem bendir til þess. Það á eftir að rannsaka þetta betur og ég mun ekki koma nálægt har- pixefnum eða klístri í nokkra mán- uði til viðbótar á meðan þetta er rannsakað,“ sagði Brynjólfur Jóns- son. Brynjólfur læknir situr eftir heima Brynjólfur Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.