Morgunblaðið - 18.01.2010, Qupperneq 5
Fréttir 5INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010
Viltu kynnast
frambjóðendum
betur?
Prófkjör í Reykjavík 23. janúar 2010
Kaffihúsafundur með frambjóðendum í Valhöll
Þriðjudagur 19. janúar kl. 16 - 19
Opinn framboðsfundur í Golfskálanum í Grafarholti
Miðvikudagur 20. janúar kl. 20 - 22
Prófkjör
Laugardagur 23. janúar, kjörstaðir eru opnir kl. 10 - 18
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er alla virka daga kl. 9 - 17
www.profkjor.is
Upplýsingar um frambjóðendur eru á profkjor.is
Kjartan Magnússon
Áslaug M. Friðriksdóttir
Gísli Marteinn Baldursson
Kristján Guðmundsson
Benedikt Ingi Tómasson
Hanna Birna Kristjánsdóttir
Marta Guðjónsdóttir
Björn Gíslason
Hildur Sverrisdóttir
Ragnar Sær Ragnarsson
Elínbjörg Magnúsdóttir
Jóhann Páll Símonarson
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Emil Örn Kristjánsson
Jórunn Frímannsdóttir
Þorkell Ragnarsson
Geir Sveinsson
Júlíus Vífill Ingvarsson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eftir Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Veggjald í Hvalfjarðargöngunum
hækkar um tæplega 13% að jafnaði
1. febrúar 2010. Þannig hækkar
gjald fyrir staka ferð í 1. gjald-
flokki úr 800 í 900 krónur. Hver
ferð áskrifanda að 100 ferðum í 1.
flokki hækkar úr 230 í 259 krónur.
Inneign áskrifenda minnkar
sjálfkrafa við gjaldskrárbreyt-
inguna. Þetta þýðir að ónotuðum
ferðum áskrifenda fækkar sem
svarar til hækkunar veggjaldsins.
Ákvæði í áskriftarsamningum
Að sögn Gylfa Þórðarsonar,
framkvæmdastjóra Spalar, er ekk-
ert óeðlilegt við að áskrifendur fái
færri ferðir eftir gjaldskrárhækk-
un. Í áskriftarsamningnum sé
ákvæði sem segir að félagið heimili
afnot af göngunum á því gjaldi sem
sé í gildi. „Hver ferð er gjaldfærð
samkvæmt gjaldskrá hverju sinni.
Hver viðskiptavinur á raunveru-
lega viðskiptareikning. Þegar verð
lækkaði sem mest árið 2005 fengu
þeir sem voru nýbúnir að borga 100
ferðir um 150-160 ferðir út á það.“
Uppfylla lánasamninga
Í tilkynningu Spalar kemur fram
að það sé verðlagsþróun og afkoma
fyrirtækisins undanfarin tvö ár sem
kalli á gjaldskrárhækkunina.
Tekjur af veggjaldi hafi rýrnað
verulega undanfarin misseri en
verðbætur á lán félagsins og flestir
rekstrarliðir hafi hækkað á sama
tíma. Hækkunin nú sé því til þess að
gera félaginu fært að standa við
samninga við lánveitendur þess
efnis að áhvílandi lán Spalar greið-
ist upp árið 2018.
Upphaflega átti gjald að fylgja
verðlagi en sú hafi ekki orðið raun-
in vegna aukinna tekna af mikilli
umferð. Ef gjald hefði fylgt
vísitöluþróun kostaði stök ferð í 1.
flokki 1.950 krónur í stað 900 nú.
Dýrara í Hvalfjarðargöngin
Verðlagsþróun og afkoma kalla á
hækkun Inneign minnkar sjálfkrafa
HAFÍS hefur
verið að færast
nær landi yfir
helgina. Ískönn-
unarflug þyrlu
Landhelgisgæsl-
unnar á laug-
ardag leiddi í ljós
hafís við Horn-
bjarg sem nánast
hafði náð landi
við Hornbjargs-
vita. Í gær bárust Landhelgisgæsl-
unni þær upplýsingar frá skipi á
svæðinu að ísröndin lægi nú u.þ.b.
tvær sjómílur norður af Óðinsboða
að stað um 3,5 sjómílur austsuð-
austur frá Horni. Stakir jakar voru
á reki vestan við ísröndina og tvær
spangir náðu til lands, önnur út af
Smiðjuvík. Landhelgisgæslan varar
sjófarendur við aðstæðum og mælt
er gegn ferðum um svæðið nema í
björtu. una@mbl.is
Varasamur haf-
ís frá Óðins-
boða að Horni
Hafís hefur færst
enn nær landi
FANGA-
GEYMSLUR
fylltust í fyrri-
nótt en frá því
um miðnætti til
klukkan sjö í
gærmorgun
komu 102 mál
inn á borð lög-
reglu á höf-
uðborgarsvæð-
inu. Tveir voru
teknir á vettvangi við innbrot og
voru færðir í fangageymslur. Þá
var tilkynnt um eina líkamsárás í
heimahúsi sem reyndist þó minni-
háttar.
Þá urðu fimm umferðaróhöpp, en
í aðeins einu þeirra urðu meiðsl á
fólki. Í þremur af þessum fimm um-
ferðaróhöppum leikur grunur á því
að ekið hafi verið undir áhrifum
áfengis. Þess utan voru tíu teknir
fyrir akstur undir áhrifum áfengis
og þrír stöðvaðir fyrir akstur undir
áhrifum fíkniefna. sbs@mbl.is
102 mál hjá lögreglu
á einni nóttu
Mikið var að gera
hjá lögreglu.
SKIPUM á ís-
lenskri aðal-
skipaskrá hefur
fækkað um 31
frá árinu 2008. Á
árinu 2009 voru
frumskráð og
endurskráð skip
38 en afskráð
skip voru 69. Af
afskráðum skipum var 31 skip selt
til útlanda.
Hinn 1. janúar í ár voru samtals
1.056 þilfarsskip á skrá og brúttó-
tonnatala þeirra var 209.085. Opnir
bátar voru samtals 1.181 og brúttó-
tonnatala þeirra var 7.115. Heildar-
brúttótonnatala skipastólsins hefur
aukist um 7.436 tonn.
Á þurrleiguskrá er eitt skip,
Kristina EA-410, 7.682 brúttótonn,
sem er flaggað út til Belize, að því
er fram kemur á sigling.is
Fækkaði um 31 skip
á skipaskrá í fyrra