Morgunblaðið - 18.01.2010, Qupperneq 12
12 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010
Reuters
Dómar Ali er nú þegar með þrjá
dauðadóma á bakinu.
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
ALI Hassan al-Majid, betur þekktur
sem „Efnavopna-Ali“, var í gær
dæmdur til dauða af íröskum dómstól
fyrir hlut sinn í fjöldamorðinu í Ha-
labja.
Ali, sem er frændi einræðisherrans
heitna, Saddams Hussein, hefur þeg-
ar verið dæmdur þrisvar sinnum til
dauða fyrir þátttöku í hroðaverkum,
sem framin voru í stjórnartíð Sadd-
ams, einkum herferðum stjórnarinn-
ar gegn shia-múslimum og Kúrdum á
níunda og tíunda áratugunum.
Árið 1988 var eiturgas notað í árás
íraska hersins á kúrdíska bæinn Ha-
labja, sem er nærri landamærunum
við Íran. Höfðu kúrdískir skæruliðar
náð bænum á sitt vald undir lok
stríðsins milli Íraks og Írans. Talið er
að að minnsta kosti 5.000 manns hafi
látist samstundis þegar eiturgasinu
var sleppt og að um 7.000 manns til
viðbótar hafi orðið fyrir varanlegum
skaða. Bærinn var síðar jafnaður við
jörðu af hernum.
Í baráttunni við kúrdísku skæru-
liðana undir lok níunda áratugarins
gaf Saddam fyrirmæli um að efna-
vopnum skyldi beitt í árásum á allt að
24 kúrdísk þorp.
Dæmdur til dauða
„Efnavopna-Ali“ fær sinn þriðja dauðadóm fyrir hlut sinn í
herferð írösku stjórnarinnar á hendur Kúrdum í Írak
Í HNOTSKURN
»Þrátt fyrir að hafa þegarfengið tvo dauðadóma
hefur framkvæmd þeirra ver-
ið pólitískt þrætuepli.
»Er það vegna þess að fyrr-verandi varnarmálaráð-
herra Íraks, Hashim al-Taie,
var dæmdur í sama máli.
»Forseti Íraks hefur neitaðað undirrita aftökuskipun
Taies og þar með hefur af-
taka Alis frestast.
»Telja margir Írakar aðTaie hafi einfaldlega ver-
ið neyddur til að taka þátt í
grimmdarverkum Saddams
og því sé dauðadómur órétt-
látur.
Reuters
Óeirðir Fólk flýr undan óeirðalögreglumönnum í miðborg Port-au-Prince, en lögreglu og óeirðaseggjum hefur nokkrum sinnum lostið saman í borginni.
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
OFBELDI og gripdeildir gera
hjálparstarfsmönnum á Haítí
ennþá erfitt fyrir, en lögreglumenn
skutu í gær á hóp óeirðaseggja,
sem rændu matvælum á markaði í
höfuðborginni Port-au-Prince.
Löggæsla í Haítí er enn í mol-
um, en eins og aðrir samfélagslegir
innviðir varð lögreglan þar í landi
fyrir miklu tjóni í jarðskjálftanum
á þriðjudaginn í síðustu viku.
Sameinuðu þjóðirnar eru þess
vegna að aðstoða yfirvöld við að
viðhalda lögum og reglu í landinu.
Framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, Ban Ki-moon, heimsótti
Haítí um helgina og sagði hamfar-
irnar einar þær mestu í áratugi.
Enn reynist erfitt að koma
hjálpargögnum til þeirra sem hjálp
þurfa, jafnvel í höfuðborginni
sjálfri. Gríðarlegt tjón varð á veg-
um, brúm og hafnarmannvirkjum í
skjálftanum, sem gert hefur flutn-
inga erfiðari en ella. Þá óttast
menn að upp komi smitsjúkdómar
vegna þess hve aðgangur að hreinu
vatni er takmarkaður. Fjögur
bandarísk flutningaskip með
vatnshreinsunarbúnað um borð eru
á leið til eyjarinnar, en nokkrir
dagar eru þar til þau ná leiðar-
enda. Flugvélamóðurskipið banda-
ríska Carl Vinson getur hreinsað
um 35.000 lítra af vatni á dag, en
erfiðlega gengur að koma vatninu
til fólksins á Haítí.
Heilsufarsvandamál
Tugir þúsunda eru taldir hafa
látist í jarðskjálftanum og standa
Haítíbúar frammi fyrir þeirri
spurningu hvað gera eigi við lík
hinna látnu. Enn liggja þau eins og
hráviði um stræti Port-au-Prince
og auka enn á hættuna á því að
upp blossi smitsjúkdómar.
Samkvæmt frétt breska blaðsins
Guardian er Rauði krossinn uppi-
skroppa með líkpoka og eru líkin
því mörg aðeins hulin með plasti
eða pappakössum.
Stjórnvöld hafa unnið að því að
grafa fjöldagrafir, en íbúar eru í
auknum mæli farnir að grípa til
eigin ráða og hafa jarðneskar leifar
þúsunda fórnarlamba verið
brenndar á stórum bálköstum.
Vandinn er ekki eingöngu
heilsufarslegur heldur hefur
ástandið óneitanlega mikil andleg
áhrif á þá sem eftir lifa. Í nátt-
úruhamförum sem þessum er
venjulega mikil áhersla lögð á að
bera kennsl á hina látnu meðal
annars svo fólk geti vitað með
vissu um afdrif ástvina sinna og
syrgt þá. Ástandið á Haítí gæti
gert slíka vinnu erfiða ef ekki
ómögulega. Hafa hjálparstarfs-
menn áhyggjur af því að afleið-
ingar fyrir eftirlifendur geti því
orðið langvarandi og alvarlegar.
Geta flutt til Senegal
Forseti Senegals, Abdoulaye
Wade, hefur boðið íbúum Haítís að
flytjast búferlum til Senegal. Segir
hann að Haítíbúar séu synir og
dætur Afríku, þar sem forfeður
þeirra hafi verið fluttir þangað
nauðugir sem þrælar. Segir hann
ríkisstjórn Senegals tilbúna að
gefa þeim land, jafnvel heilt land-
svæði fyrir Haítíbúa, allt eftir því
hve margir vilji flytja.
Hætta á faraldri á Haítí
Enn gengur erfiðlega að koma hjálpargögnum til þeirra sem þurfa þau á Haítí
Hætta á faraldri smitsjúkdóma eykst meðal annars vegna skorts á hreinu vatni
Reuters
Vatnsburður Konur bera heim vatn í höfuðborg Haítí, Port-au-Prince, en
hreint vatn er mjög af skornum skammti í borginni.
Í HNOTSKURN
»Jarðskjálftinn reið yfirklukkan 16:53 að stað-
artíma þann 12. janúar síðast-
liðinn og mældist 7,0 stig á
Richter-kvarðanum.
»Innanríkisráðuneytið áHaítí telur að allt að
200.000 manns hafi látist í
skjálftanum.
»Erfitt hefur reynst aðkoma hjálpargögnum til
fólks, m.a. vegna tjóns á veg-
um og hafnarmannvirkjum.
»Þá hefur ofbeldi og grip-deildir gert hjálparstarf
erfiðara.
Ástandið á Haítí virðist lítið hafa
batnað þótt eitthvað af hjálp-
argögnum sé farið að berast til
íbúa landsins.
Varnarmálaráðherra Ísraels, Ehud
Barak, er staddur í Tyrklandi til að
reyna að brúa það bil sem komið er í
samskiptum
ríkjanna.
Undanfarin
misseri hefur
hvert atvikið rek-
ið annað þar sem
slest hefur upp á
vinskap þjóðanna
frá því að Tyrk-
land mótmælti
harðlega hern-
aðaraðgerðum
Ísraela á Gaza
veturinn 2007-2008.
Var Barak vel tekið við komuna til
Tyrklands, meðal annars af sendi-
herra Tyrklands til Ísraels.
Sendiherrann var þátttakandi í
síðasta óheppilega atvikinu í sam-
skiptum þjóðanna tveggja. Það kom
til vegna tyrkneskrar sjónvarps-
þáttaseríu, þar sem ísraelskir leyni-
þjónustumenn voru sýndir ræna
tyrkneskum börnum. Utanrík-
isráðherra Ísraels lét óánægju sína í
ljós við sendiherra Tyrklands, en
Tyrkir voru hins vegar afar ósáttir
við þær myndir sem komu frá fund-
inum. Sat sendiherrann á lægri stól
en ráðherrann og tyrkneska fánann
vantaði. bjarni@mbl.is
Barak
heimsækir
Tyrkland
Ráðherrann og
sendiherrann.
Úkraínubúar
börðust í gegnum
snjó og mikinn
kulda til að greiða
atkvæði í fyrstu
umferð forseta-
kosninga þar í
landi í gær.
Kannanir benda
til þess að leiðtogi
stjórnarandstöð-
unnar, Viktor Ja-
núkóvitsj, og forsætisráðherrann
Júlía Tímósjenkó fái flest atkvæði í
kosningunum. Sitjandi forseti, Vikt-
or Jústsjenkó, mælist undir fimm
prósentum og er því útlit fyrir að
forsetatíð hans sé senn á enda.
Þrátt fyrir mikinn uppgang í
Úkraínu frá því að Jústsjenkó tók
við völdum kenna margir Úkra-
ínumenn honum um hvernig komið
er fyrir efnahag landsins nú, en gert
er ráð fyrir því að hagkerfið skreppi
saman um ein fimmtán prósent í ár.
bjarni@mbl.is
Jústsjenkó
á leiðinni út
Kuldi Starfsmaður
kjörstjórnar.
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
REFSIMÁL hefur verið höfðað á
hendur sex meintum innbrotsþjófum
í Los Angeles í Bandaríkjunum, sem
er gefið að sök að hafa brotist inn á
heimili fjölda kvikmyndastjarna og
annarra frægra einstaklinga og látið
greipar sópa. Meðal fórnarlambanna
eru Orlando Bloom, Megan Fox, Par-
is Hilton og Lindsay Lohan.
Málið er sérstakt fyrir aðrar sakir
en þá eina að fórnarlömbin eru reglu-
lega umfjöllunarefni slúðurblaða. Í
fyrsta lagi eru sakborningarnir afar
ungir. Fjórir þeirra eru aðeins tán-
ingar og tveir eru á þrítugsaldri.
Komu að ólæstum húsum
Öll eru ungmennin tiltölulega vel
stæð fjárhagslega og eru þau hluti af
Hollywood-samfélaginu. Hin átján
ára Alexis Neiers var handtekin þar
sem hún var við upptökur á sjón-
varpsþætti og hinn nítján ára Nick
Prugo lék í kvikmyndinni Little Lost
Souls árið 2003. Hinir meintu inn-
brotsþjófar munu hafa notfært sér
netið við iðju sína. Fyrst fylgdust þau
með slúðursíðum til að sjá hvort eitt-
hvert væntanlegra fórnarlamba
skartaði nýjum skartgripum. Svo
vöktuðu þau samskiptasíður eins og
Facebook og Twitter til að komast að
því hvenær fórnarlambið væri að
heiman.
Talið er að hópurinn hafi rænt
sumar stjörnurnar, t.d. Paris Hilton
og leikkonuna Rachel Bilson, oftar en
einu sinni. Í flestum tilvikum komu
þjófarnir að ólæstum heimilum, sem
gerði verkin óneitanlega auðveldari.
Unglingar sem rændu þá
ríku og frægu í Hollywood
Bloom Hjartaknúsarinn Orlando
Bloom var meðal fórnarlambanna.