Morgunblaðið - 18.01.2010, Side 23
Menning 23FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010
Ýmislegt þarf þó að
útfæra betur í hljóm
sveitarinnar og þetta var allt
saman fremur grautarlegt29
»
RAGNHEIÐUR Gestsdóttir hlaut
Dimmalimm – Íslensku mynd-
skreytiverðlaunin 2009 sem afhent
voru við hátíðlega athöfn í Gerðu-
bergi á laugardaginn. Ragnheiður
fékk verðlaunin fyrir bók sína Ef
væri ég söngvari en hún inniheldur
yfir 120 kvæði fyrir börn sem
Ragnheiður valdi og myndskreytti.
Í dómnefndinni voru Kalman le
Sage de Fontenay, grafískur hönn-
uður, sem er fulltrúi Myndstefs,
Aðalsteinn Ingólfsson, sem fulltrúi
Gerðubergs, og Bryndís Lofts-
dóttir bóksali, fulltrúi Eymunds-
son.
Dómnefnd var sammála um að í
bókinni væru á ferðinni einstaklega
vel unnar myndskreytingar þar
sem nostrað hefði verið við hvert
smáatriði, og að kápumynd og
prentverkið í heild sinni væri höf-
undi, útgáfu og prentsmiðju til
sóma.
Í rökstuðningi dómnefndar sagði
m.a.: „Það var langur vegur frá
hugmynd að bók í þessu tilfelli.
Fyrst dvaldi Ragnheiður lengi yfir
lagavalinu. Þegar það lá fyrir hófst
myndavinnan og ef fólk rýnir í
myndirnar getur það bara ímyndað
sér hvað hún hefur tekið langan
tíma. Öll smáatriði eru klippt út í
ótal gerðir af pappír sem hún safn-
ar út um víðan völl og límir svo
saman með nákvæmni skurðlæknis.
Ragnheiður gerir miklar kröfur
til útlits bóka sinna og fylgir þeim
í gegnum alla vinnslu.“
Ragnheiður fékk verðlaunafé
upp á 450.000 kr.
Þetta var í áttunda sinn sem
verðlaunin eru veitt en áður hafa
eftirfarandi listamenn veitt Dim-
malimm-verðlaununum viðtöku:
Áslaug Jónsdóttir, Halla Sólveig
Þorgeirsdóttir, Brian Pilkington,
Björk Bjarkadóttir, Sigrún Eldjárn
og Kristín Ragna Gunnarsdóttir.
Nú stendur yfir í Gerðubergi
sýningin Þetta vilja börnin sjá!,
þar sem sjá má myndskreytingar
úr barnabókum eftir þá 25 lista-
menn sem kepptu um Íslensku
myndskreytiverðlaunin.
Höfundi
til sóma
Dimmalimm-
verðlaunin afhent
Afhending Ragnheiður tekur við verð-
laununum úr hendi Dimmalimmar.
ANNAÐ kvöld, þriðjudags-
kvöld, heldur gítarleikarinn
Kristinn H. Árnason tónleika í
sal Borgarhólsskóla á Húsavík.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30.
Á fimmtudagskvöldið, 21.
janúar, kemur Kristinn svo
fram á hádegistónleikum á
byggðasafninu Hvoli á Dalvík
þar sem einnig verður boðið
upp á léttar veitingar. Hefjast
þeir tónleikar kl. 12.10. Á hvor-
um tveggja tónleikunum verða m.a. flutt verk eft-
ir Narvaez, Sanz, Bach, Villa-Lobos, de Falla og
Albeniz.
Kristinn gaf út sinn fimmta disk með gítarein-
leik fyrir síðustu jól.
Tónlist
Gítarleikur á
Norðurlandi
Kristinn Árnason
MYNDLISTARTVÍEYKIÐ
Rosen/Wojnar sýnir og segir
frá verkefnum sínum í hádeg-
isfyrirlestri Opna listaháskól-
ans, í myndlistardeild Listahá-
skóla Íslands, Laugarnesvegi
91, í dag kl. 12.30.
Myndlist Nikolai von Rosen
og Florian Wojnar spannar
mörg svið og jafnvel má segja
að snertiflöturinn sjálfur, eða
bilið á milli heima, sé ákveðinn
hugmyndalegur grunnur fjölbreytilegra verkefna
þeirra. Rosen og Wojnar verða gestir Ný-
listasafnsins á Listahátíð í vor. Þeir búa í Berlín
og reka þar vinnustofu en starfa einnig báðir sem
aðstoðarprófessorar við Tækniháskólann í Zürich.
Myndlist
Rosen/Wojnar með
opinn fyrirlestur
Verk eftir Rosen/
Wojnar.
GÍTARLEIKARINN Andrés
Þór leiðir kvartett sem opnar
jamsession á Bebopkvöldi Be-
bopfélags Reykjavíkur á Kaffi
Kúltúra (beint á móti Þjóðleik-
húsinu) í kvöld, mánudaginn
18. janúar, kl. 21.30.
Kvartettinn skipa ásamt
Andrési: Ari Bragi Kárason á
trompet og flygelhorn, Nicolas
Moreaux á kontrabassa og
Einar Scheving á trommur.
Þeir félagar leika í fyrra setti nokkur vel valin lög
úr ýmsum áttum en í seinna setti verður opin jam-
session þar sem allir sem vettlingi geta valdið eru
hvattir til að spila með. Aðgangseyrir er 1.000 kr.
en frítt er inn fyrir þátttakendur í jamsessioninni.
Tónlist
Andrés Þór og fé-
lagar á Bebopkvöldi
Andrés Þór
Gunnlaugsson
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@mbl.is
HARPA Fönn Sigurjónsdóttir lögfræðingur og
Margrét Áskelsdóttir listfræðingur stofnuðu seint
á síðasta ári Framkvæmdarfélag listamanna,
FRAFL, sem sér um verkefnastjórn og umsjón
myndlistartengdra viðburða. „Þetta er fyrirtæki
sem vinnur með og fyrir íslenska myndlistarmenn
og aðstoðar þá við undirbúning, framkvæmd og
þróun ýmissa verkefna sem tengjast myndlist,“
segja Harpa Fönn og Margrét.
„Þessi þjónusta hefur ekki verið í boði áður fyrir
íslenska myndlistarmenn. Með henni erum við að
skapa ný tækifæri fyrir þá,“ segja þær. „Við ein-
beitum okkur að ungum myndlistarmönnum, það
er að segja þeim listamönnum sem eru ungir innan
listamarkaðar eða eru ekki á samningi hjá galleríi.
Við hjálpum þeim að feta sig á myndlistarmark-
aðnum og finna nýjar leiðir til að koma sér áfram,
kynna verkin sín og selja þau.“ Þær árétta einnig
að mikilvægt sé að listamenn gæti réttar síns og
því bjóði félagið einnig upp á ráðgjöf og lögfræði-
aðstoð.
„Í dag er það þannig að til að koma sér á fram-
færi þurfa myndlistarmenn að halda sýningu á
listasöfnum eða komast á samning hjá galleríum.
Þeim hafa nánast einungis staðið þessar tvær leið-
ir til boða. Það er erfitt fyrir unga myndlistar-
menn sem eru ekki orðnir þekkt nafn að komast
þarna inn þannig að þeir græða á því að koma til
okkar. Ef þeir eru með góða hugmynd í farteskinu
getum við hjálpað þeim að hrinda henni í fram-
kvæmd.“
Í heimsókn hjá saumaklúbbum
Þær segja að frá því félagið var stofnað í nóv-
ember hafi þær sinnt ýmsum ólíkum verkefnum,
til dæmis sett upp sýningar, gefið út listaverka-
kort og gefið út listaverkabókina Beauty Swift
Generation Revolution eftir Snorra Ásmundsson,
en um 10 aðrir listamenn komu að bókinni á einn
eða annan hátt.
FRAFL hefur þó aðallega sinnt því sem kalla
má persónulega kynningu myndlistar. „Fyrir ára-
mót fórum við í heimahús með myndlistarmönn-
unum þar sem þeir kynntu sig og verk sín fyrir
saumaklúbbum. Þetta vakti mikla lukku hjá
saumaklúbbskonunum sem hittu þarna unga
myndlistarmenn og fengu hlutdeild í reynslu
þeirra og hugmyndunum á bak við verkin. Við
kynningarnar myndast persónuleg tengsl á milli
þess sem skapar og þess sem nýtur, ef svo má að
orði komast. Kynningarnar urðu mjög vinsælar
og því ákváðum við á nýju ári að þróa þær í stærra
form, þótt við munum að sjálfsögðu einnig halda
þeim áfram í heimahúsum. Við stefnum á sam-
starf með aðilum innan ferðamálageirans nú strax
eftir áramót og verður mjög spennandi að sjá
hvernig kynningarnar leggjast í útlendingana. Við
getum þó ekki gefið upp nafn samstarfsaðila að
svo stöddu.“
Opnar fyrir öllum hugmyndum
Harpa Fönn og Margrét segjast hafa ýmis
áform varðandi samstarf við önnur listform, eins
og tónlist og leiklist, en sú hugmyndavinna sé í
þróun. „Við erum opnar fyrir öllum hugmyndum
að verkefnum og samstarfi og hvetjum myndlist-
armenn, jafnt sem aðra listamenn, til að hafa sam-
band við okkur, ef þeir telja að við getum sam-
einað krafta okkar,“ segja þær.
Tækifæri fyrir myndlistarmenn
Harpa Fönn Sigurjónsdóttir og Margrét Áskelsdóttir hafa stofnað
Framkvæmdarfélag listamanna Unnið með og fyrir unga myndlistarmenn
Morgunblaðið/Golli
FRAFL Harpa Sigurjónsdóttir og Margrét Áskelsdóttir „Við stefnum á samstarf með aðilum innan ferðamálageirans.“
Nýlega barst mér í hendur geisla-
diskur með Kristni Árnasyni
gítarleikara. Diskurinn er gefinn
út af 12 tónum. Á framhliðinni er
mynd af Kristni þar sem hann
hallar sér upp að gítarnum,
dreyminn á svip. Það gefur til
kynna að tónlistin á diskinum sé
róleg, draumkennd, jafnvel slök-
unar- eða leiðslutónlist. Það er
ekki alveg svo.
Eins og gjarnan er þegar ís-
lenskur gítarleikari kemur fram á
geisladiski er efnisskráin spænsk,
enda er gítarinn þjóðarhljóðfæri
Spánar. Oft vantar snerpu í túlk-
unina hjá íslenskum gítarleik-
urum. Spænsk tónlist er blóðheit
og full af andstæðum, en margir
íslenskir gítarleikarar virðast vera
miklir rólyndisnáungar. Það vant-
ar stundum kraftinn og fjörið til
að tónlistin sé áhugaverð og
skemmtileg.
En kannski er ástæðan ekki
skapferlið. Kannski er leiktæknin,
fingrafimin ekki alltaf nægileg. Ef
menn spila hratt og líflegt verk en
ráða ekki fyllilega við það verður
túlkunin varfærnisleg, dauf og
óspennandi.
Þetta á ekki við um Kristin
Árnason. Á geisladiskinum er ein-
mitt spænsk tónlist, og Kristinn er
svo flinkur að hann hefur ekkert
fyrir hröðum nótnahlaupum. Þau
hljóma áreynslulaus, alveg eins og
þau eiga að vera. Túlkunin er lit-
rík og lifandi, flæðið í músíkinni
óheft og stemningin ómenguð. Út-
koman er frábær skemmtun, mað-
ur nýtur þess að hafa geisladisk-
inn á fóninum.
Klaufalegt er þó að nöfnin á lög-
unum skuli ekki sjálfkrafa birtast
þegar diskinum er hlaðið inn í
tölvu. Maður þarf að vélrita nöfnin
sjálfur. Fyrir þá sem eiga iPod og
hlusta á tónlist á ferð og flugi er
þetta bagalegt. Þegar haft er í
huga hversu vandaður diskurinn
er koma þessir annmarkar á óvart.
Fyrir utan þetta er diskurinn
sennilega sá besti sem Kristinn
hefur sent frá sér.
Geisladiskur
Kristinn Árnason gítarleikari – Giuli-
ani Sor Aguado Carcassi bbbbm
Tónlist eftir Sor, Aguado, Giuliani og
Carcassi.
JÓNAS
SEN
TÓNLIST
Blóðheitur og klár