Morgunblaðið - 18.01.2010, Side 3

Morgunblaðið - 18.01.2010, Side 3
Íþróttir 3 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010 Aron Pálmarsson var ekki í leik- mannahópi Ís- lands í viðureign- inni við Spánverja á laug- ardag á Frakk- landsmótinu í handknattleik. Aron fékk högg á hné á æfingu og áveðið var að gefa honum frí frá leiknum. Hann var á leikskýrslu í gær gegn Frökkum en lék ekkert líkt og Björgvin Páll Gústavsson, markvörður, og Guð- jón Valur Sigurðsson.    Enn ríkir óvissa um þátttökumarkvarðarins sterka, Dejan Peric, með serbneska landsliðinu á EM í Austurríki. Peric hefur átt í meiðslum í baki síðustu tíu daga. Sead Hasanefendic, landsliðsþjálf- ari Serba, sagði um helgina að Peric færi með til Austurríkis. Það yrði síðan að koma í ljós að mánudag hvort hann yrði leikklár gegn Ís- lendingum daginn eftir.    Serbar lögðu Egypta í síðasta æf-ingaleik sínum á laugardags- kvöldið í Belgrad, 25:23, að við- stöddum 1.500 áhorfendum. Serbar fóru síðan yfir til Linz upp úr hádegi í gær. Hasanefendic fór með 18 leik- menn með sér til Linz vegna þeirra óvissu sem ríkir um Peric markvörð. Hann má aðeins tefla 16 leik- mönnum fram í riðlakeppninni.    José Javier Hombrados, mark-vörður Spánverja, átti stórleik þegar Spánn vann Brasilíu, 32:18, í leik um þriðja sætið á Parísarmótinu í handknattleik í Bercy-höllinni í gær. Arpid Sterpik kom ekki við sögu í spænska liðinu í leiknum en hann stóð á milli stanganna nær all- an leikinn við Íslendinga á laug- ardag. Cristian Ugalde var marka- hæstur Spánverja með sex mörk. Viktor Tomáz og Raúl Enterrios komu næstir með fjögur mörk hvor.    Robert Arrhenius var at-kvæðamestur í sænska lands- liðinu með sjö mörk þegar Svíar unnu Norðmenn, 32:28, að við- stöddum 6.500 áhorfendum í Oslo- Spektrum á laugardaginn en þetta var lokaleikur þjóðanna í undirbún- ingi sínum fyrir Evrópumeist- aramótið í handknattleik. Fredrik Larsson og Fredrik Petersen skor- uðu fimm mörk hvor fyrir Svía. Frank Løke var markhæstur Norð- manna með sex mörk og Håvard Tvedten skoraði fimm sinnum. Bjarte Håkon Myrhol og Kristian Kjelling gerðu þrjú mörk hvor. Steinar Ege, markvörður Norð- manna náði sér ekki á strik en hann var veikur alla síðustu viku. Fólk sport@mbl.is Karlalandsliðið í handbolta Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is „FYRIR okkur var leikurinn á laug- ardaginn við Spánverja aðalmálið. Hann tókst að ýmsu leyti vel. Það var síðan löngu ákveðið af minni hálfu að leggja síðari leikinn upp þannig að sem flestir fengju að spreyta sig og það tókst. Við ætlum okkur ekkert að greina þennan leik sérstaklega og fórum sáttir við okkur frá París áleið- is til Austurríkis,“ sagði Guðmundur við Morgunblaðið í gærkvöldi. Frakkar tóku öll völd á leikvell- inum strax í byrjun leiksins í gær, innilega studdir af um 14 þúsund áhorfendum. Þeir skoruðu tvö fyrstu mörkin. Eftir um 10 mínútna leik var staðan 7:2, Frökkum í vil. Íslenska liðinu tókst að minnka muninn í 10:9, 11:10 og 13:12, áður Frakkar gáfu í og komst fjórum mörkum yfir fyrir hálfleik, 17:13. Eftir tíu mínútur í síðari hálfleik var munurinn orðinn átta mörk, 24:16. Þar með voru úrslitin end- anlega ráðin. Hreiðar Guðmundsson stóð allan leikinn í marki Íslands og átti erfitt uppdráttar. Sturla Ásgeirsson spilaði einnig allan leikinn þar sem Guðjóni Val Sigurðssyni var gefið sjaldgæft frí frá leiknum. Hann var þó á vara- mannabekknum. Ásgeir Örn Hall- grímsson lék í 50 mínútur eins og ungstirnið Ólafur Guðmundsson. Ólafur var markhæstur með sex mörk úr 12 skotum en tapaði bolt- anum átta sinnum. Alls tapaði ís- lenska liðið knettinum 19 sinnum í leiknum sem fullmikið, jafnvel þótt um afslappaðan æfingaleik hafi verið að ræða. Arnór Atlason og Snorri Steinn Guðjónsson skiptu leikstjórn- inni á milli sín og Ólafur lék í hálf- tíma. Tíu marka tap í Bercy í lokaleiknum fyrir EM „Við erum alls ekki að stressa okkur á þessum úrslitum. Það var lagt upp með að dreifa álaginu milli leikmanna og vera ekki að keyra á fullri ferð. Þar af leiðandi mátti alveg búast við að svona færi,“ sagði Guðmundur Þórð- ur Guðmundsson landsliðsþjálfari eftir tíu marka tap, 35:25, fyrir Frökk- um í Bercy-höllinni í París í gær í síð- asta æfingaleik íslenska landsliðsins fyrir átökin á Evrópumeistaramótinu í handknattleik. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tilbúnir Alexander Petersson, Aron Pálmarsson, Snorri Steinn Guðjónsson, Róbert Gunnarsson og Guðjón Valur Sigurðsson verða allir í eldlínunni með ís- lenska landsliðinu á EM í Austurríki. Fyrsti leikur Íslands verður annað kvöld við Serba í borginni Linz.  Ólafur G. lék í 50 mínútur Íslenska liðið tapaði boltanum 19 sinnum ÓLAFUR Stefánsson var valinn besti leikmaður Parísarmótsins í hand- knattleik sem stóð yfir í gær og í fyrradag. Fékk hann að launum styttu. Þetta gerðist þótt Ólafur hafi haft hægt um sig í leiknum við Frakka í gær og aðeins leikið í um hálftíma og haft sig lítið í frammi í sóknarleik ís- lenska landsliðsins. Hann skoraði tvö mörk gegn Frökkum í gær. Ólafur var heldur ekkert stórtækur í viðureign Íslands og Spánar á laugardaginn þegar íslenska liðið vann þriggja marka sigur, 30:27. Þá skoraði Ólafur fimm mörk, þar af eitt úr vítakasti. Ólafur hefur nú leikið 288 landsleiki og skorað í þeim 1.366 mörk. Hann er langmarkahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi og er einn þriggja sem gert hafa meira en 1.000 mörk fyrir landsliðið. Hinir eru Guðjón Valur Sigurðsson og Kristján Arason. iben@mbl.is Ólafur valinn best- ur á Parísarmótinu Ólafur Stefánsson ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik hélt frá París í gærkvöldi með flugi til Vínarborgar. Það hélt það með rútu til Linz þar sem það hefur bækistöðvar næstu daga á meðan Evrópukeppnin stendur yfir. Áætlað var að ferðin frá Vínarborg til Linz tæki um tvær stundir og reiknað með að hópurinn kæmi á leiðarenda upp úr klukkan tvö í nótt. Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari sagði í gær að hann hafi fremur viljað taka þennan kost en að dvelja nótt í París og eyða stórum hluta dagsins í dag í ferðalag. „Við komum seint til Linz. Menn sofa út á morgun [mánudag] og síðan verður æfing um miðjan daginn,“ sagði Guðmundur. Í dag þarf Guðmundur að tilkynna til mótsnefndar þá leikmenn sem hann hyggst nota í fyrsta leik EM á morgun við Serba. Hann sagðist í gær ekki hafa gert upp við sig hvort hann tilkynnti alla 16 leikmennina inn eða léti nægja að skrá 15 leikmenn og eiga einn til góða. Aðeins má tefla 14 leikmönnum fram í hverjum leik Landsliðsmenn fá að „sofa út“ í Linz ARON Pálmarsson er miðjumaður í ís- lenska landsliðinu í handknattleik sem leikur í úrslitakeppni Evrópumeist- aramótsins í Austurríki dagana 19.-31. janúar. Aron er 19 ára gamall, fæddur 19. júlí 1990. Hann lék fyrst með A-landsliði Ís- lands á árinu 2008 og hefur nú spilað 11 A-landsleiki og skorað í þeim 27 mörk. Þetta er frumraun Arons á stór- móti með íslenska landsliðinu. Aron er uppalinn FH-ingur og byrjaði að leika með meistaraflokki félagsins 16 ára gamall tímabilið 2006-07. Hann var í stóru hlutverki í liðinu sem vann 1. deildina ári síðar og sló í gegn í úrvals- deildinni 2008-09. Aron samdi við þýsku meistarana Kiel vorið 2009 og er á sínu fyrsta tímabili þar. FYRSTI LEIKUR ÍSLANDS Á EM Í AUSTURRÍKI ER Á MORGUN Aron Pálmarsson Bercy-höllin í París, úrslitaleikur á fjögurra landa móti í handknattleik sunnudaginn 17. janúar 2010. Gangur leiksins: 0:2, 2:7, 5:10, 9:10, 12:13, 13:17, 13:20, 16:24, 20:25, 21:29, 24:35, 25:35. Mörk Íslands: Ólafur Guðmunds- son 6, Alexander Petersson 5, Ró- bert Gunnarsson 4, Snorri Steinn Guðjónsson 4/2, Ólafur Stefánsson 2, Sturla Ásgeirsson 2, Ingimundur Ingimundarson 1, Vignir Svavarsson 1. Björgvin Gústavsson, Logi Geirs- son, Aron Pálmarsson, Ásgeir Örn Hallgrímsson, Arnór Atlason, Guð- jón Valur Sigurðsson og Sverre Jak- obsson tóku einnig þátt í leiknum. Varin skot: Hreiðar Levy Guð- mundsson 9. Utan vallar: 8 mínútur. Mörk Frakklands: Jerome Ferandez 5, Daniel Narcisse 4, Nikola Karab- atic 4, Cedric Sorhaindo 4, Franck Junillon 3, Luc Abalo 3, Michael Guigo 3, Sestien ostertag 3, Guil- laume Joli 2, Guilmaume Gille 2, Gregorie Detrez 1, Didier Dinart 1. Varin skot: Thierrry Omeyer 11/1, Daouda karaboue 4/1. Utan vallar: 2 mínútur. Áhorfendur: Um 14 þúsund. Ísland – Frakkland 25:35

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.