Morgunblaðið - 18.01.2010, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 18.01.2010, Qupperneq 5
Íþróttir 5 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010 Spænski öku-þórinn Car- los Sainz vann Dakar-rallið í Argentínu en keppni lauk á laugardag. Frakkinn Cyril Despres fór með sigur af hólmi í mótorhjólaflokki í þriðja skipti á ferlinum. Giniels DeVilliers frá Suður- Afríku í eyðimörkinni. Þetta er fyrsti sigur Sainz í Dakar-rallinu en hann hefur tvívegis orðið heimsmeistari í rallakstri, árin 1990 og 1992. Hann náði forust- unni eftir fimmtu dagleið og hélt henni til loka en hann ók á Volkswagen.    CharlSchwartzel, kylfingur frá Suður-Afríku, sigraði á Joburg- meistaramótinu sem fram fór í heimalandi hans. Mótið er hluti af Evrópumótaröð- inni og er þettta annað mótið í röð sem hinn 25 ára gamli Schwartzel vinnur á Evrópumótaröðinni. Hann sigraði einnig á Opna suður- afríska meistaramótinu. Darren Clarke frá Norður-Írlandi varð annar ásamt Keith Horne sem er frá Suður-Afríku. Fólk folk@mbl.is SKAUTAFÉLAG Akureyrar vann á laugardag öruggan sigur á Skautafélagi Reykjavíkur í leik sem fram fór á Akureyri. Loka- staðan var 6:0 SA í vil. SA-menn voru sókndjarfari allan leikinn en SR-ingar sköpuðu sér þó einnig nokkuð af hættulegum færum. Hvorugt liðið náð þó að skora í fyrstu lotu. Í annarri lotu gerðu norðanmenn hinsvegar út um leikinn með fjórum mörkum en það var þjálfari þeirra Josh Gribben sem kom þeim á bragðið. Í þriðju lotunni bættu SA-menn við tveimur mörkum og unnu góðan sig- ur. SA-menn eru nú einu stigi á undan SR-ingum og eiga leik til góða en 12. umferð lýkur á þriðjudag með leik Bjarnarins og SA í Egilshöll. Leiknar eru 16 umferðir í deildinni áður en leikið er til úrslita. Mörk/stoðsendingar SA: Jóhann Leifsson 2/0, Josh Grib- ben 1/2, Jón B. Gíslason 1/1, Orri Blöndal 1/0, Helgi Gunn- laugsson 1/0, Stefán Hrafnsson 0/3, Ingólfur Elíasson 0/2 Refsimínútur SA: 18 mín., SR: 12 mín. Öruggur sigur Akureyringa á heimavelli gegn SR Öflugir Skautafélag Akureyrar hafði mikla yfirburði á heimavelli gegn Skautafélagi Reykjavíkur. risdóttir skoraði 22 stig í í bandaríska háskólakörfu- ardag gegn San Diego State. igahæst í TCU liðinu en hún veggja stiga skotum sínum, 2 af ga skotum hennar fóru rétta ndsliðskonan hitti úr 8 af alls 9 m, tók 7 fráköst og gaf 4 stoð- na hefur skorað 13,6 stig að kjum í vetur, og tekið rúmlega ðaltali í leik. Hún hefur hitt úr tiga skotum sínum, 36% af af vítaskotum Helenu rata ntain West-deildinni er á laug- Las Vegas á útivelli. raði 22 Sæberg Á LOKAHÓFI Reykjavík Int- ernational í gær voru veitt verðlaun fyrir besta árangur í einstökum greinum. Badminton Kári Gunnarsson, TBR. Rakel Jóhannesdóttir, TBR. Keila Robert Anderson, Svíþjóð. Dans Sigurður Þór Sigurðsson og Hanna Rún Óladóttir, Dansfélagi Hafnarfjarðar. Skylmingar Haraldur Þórir Hugósson, SR. Þorbjörg Ágústsdóttir, SR. Listdans Reetta Romppanen, Finnlandi. Fimleikar Jacob Melin, Gerplu. Liðakeppni: Selfoss Júdó Bjarni Skúlason, Ármanni. Helga Hansdóttir, KA. Sund Alexander Dale Oen, Noregi. Hrafnhildur Lúthersdóttir, SH. Sund fatlaðra Jón Margeir Sverrisson, Ösp/Fjölni. Kolbrún Stefánsdóttir, Firði. Frjálsíþróttir Martin Krabbe, Danmörku. Stefanía Valdimarsdóttir, Breiðabliki. Besti árangur á RIG

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.