Morgunblaðið - 18.01.2010, Síða 4

Morgunblaðið - 18.01.2010, Síða 4
4 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010 GRAND Prix-mótaröðin í borðtennis fór fram um helgina í KR-húsinu. Magnús K. Magnússon úr Víkingi sigraði í opnum flokki karla eftir 4:1- sigur á Ingólfi S. Ingólfssyni úr KR í úrslita- leiknum. Magnús náði þrívegis að vinna lotu þar sem Ingólfur var yfir, 10:8. Loturnar fóru 7:11, 12:10, 12:10, 14:12 og 11:9. Daði Freyr Guð- mundsson og Magnús Finnur Magnússon, báðir úr Víkingi, deildu þriðja sætinu en keppnisfyr- irkomulagið er einföld úrslitakeppni og skiptir því hver einasti leikur miklu máli. Í opnum flokki kvenna sigraði Magnea Ólafs en hún hafði betur gegn Eyrúnu Elíasdóttur úr Víkingi, 4:0. Loturnar fóru, 11:7, 11:2, 11:5 og 11:9. Hrefna Namfa Finnsdóttir úr HK varð þriðja. Magnús og Magnea sigruðu Sigurvegari Magnús Finnur. JÓN Arnór Stefánsson skoraði 16 stig fyrir Granada í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta en það dugði ekki til þar sem liðið tapaði gegn Bilbao á heimavelli, 78:66. Jón Arnór var stigahæstur í liði Granada en hann lék í 32 mínútur af alls 40. Hann hitti vel úr þriggja stiga skotunum þar sem fjögur af alls sjö fóru rétta leið. Rúmlega 7.000 áhorfendur voru á leiknum en Granada er 14. sæti með sjö sigra og 11 tapleiki. Það er stutt í næstu lið þar fyrir ofan en Bilbao er í næstneðsta sæti með fimm sigra og 13 tapleiki.  Helgi Már Magnússon og félagar hans í Solna töpuðu óvænt gegn Södertälje í sænsku úrvalsdeild- inni í körfubolta, 101:72. Íslenski landsliðsmaðurinn skoraði fimm stig og lék í 21 mínútu af alls 40. Solna er með 36 stig í fjórða sæti en Södertälje er í sjötta sæti með 20 stig. Jón Arnór stigahæstur Jón Arnór Stefánsson HELENA Sverr 80:63-sigri TCU boltanum á lauga Helena var sti hitti úr 6 af 13 tv alls 4 þriggja stig leið. Íslenska lan vítaskotum sínum sendingar. Helen meðaltali í 17 leik 7 fráköst að með 44% af tveggja s þriggja stiga skotum sínum og 74% rétta leið. Næsti leikur TCU í Moun ardaginn þar sem liðið leikur gegn L seth@mbl.is Helena skor Helena Sverrisdóttir Morgunblaðið/Árni S ALÞJÓÐLEGA íþróttamótinu Reykjavík International Games lauk í gær en þar kepptu um 2.000 íþróttamenn og -konur í 10 íþróttagreinum. Þetta er í þriðja sinn sem leikarnir eru haldnir með þessu fyrirkomulagi og voru erlendu gestirnir ánægðir með mótið. Íslensku keppendurnir náðu margir hverjir góðum árangri. Má þar nefna að Helga Margrét Þorsteinsdóttir bætti eigin árangur í kúluvarpi og sigurkast hennar var 14,87 m. Hún bætti þar með Íslandsmetin í 19-20 og 20-21 árs flokki kvenna. Snorri Sigurðsson úr ÍR sigraði í 800 metra hlaupi og bætti Íslandsmetið í 19-20 ára flokki á tímanum 1.53,85 mín. Sundmaðurinn Jakob Jóhann Sveinsson úr Ægi sigraði í 200 m bringusundi, en þar átti hann í höggi við Norðmanninn Alexander Dale Oen sem vann til silf- urverðlauna í 100 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í Peking í Kína árið 2008. Árni Sæberg. ljósmyndari Morgunblaðsins, var á ferðinni í Laugardalnum um helgina og hér má sjá brot af þeim myndum sem hann tók. Nánari upplýsingar um úrslit og fréttir af einstökum greinum má nálgast á www.rig.is. Góð skemmtun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.