Morgunblaðið - 05.02.2010, Qupperneq 1
FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010
bílar
Gallaðir Toyota á Íslandi áætlar að kalla inn 5.000
bifreiðar hérlendis vegna galla í eldsneytisgjöf 2
Eftir Finn Orra Thorlacius
finnur@reykjavikbags.is
ÞRÁTT fyrir að svo til allir bílaframleiðendur
heims taki nú þátt í þróun á bílum sem knúnir
eru með öðrum orkugjöfum en bensíni og dísel-
olíu vegur um þessar mundir langmest tilkoma
betri og sparneytnari bensín- og dísilvéla. Til-
hneiging framleiðenda á undanförnum misserum
er að nýta betur tækni sem þekkt er, svo sem
beina innspýtingu, notkun á túrbínum, notkun
léttari efna í vélar og aðra hluta bílanna og fleiri
þátta. Nú er svo komið að tiltölulega stórir bílar
eru gjarnan knúnir af vélum með tveggja lítra
sprengirými eða minna, án þess að hestaflafjöld-
inn hafi minnkað verulega. Gott dæmi um þetta
er Volvo sem nýlega kynnti nýja gerð 1,6 l dís-
elvélar sem hægt verður að fá í stórum bílum,
Volvo V70 og S80. Þessi vél eyðir innan við 4 lítr-
um á hundraðið, mengar einungis 119 g CO2/km,
er 109 hestöfl og togar 240 Nm. Einnig verður í
boði 2,0 l bensínvél með túrbínu og beinni inn-
spýtingu sem skilar 203 hestöflum og eyðir 8,3 l í
stórum sjálfskiptum Volvo S80 bíl.
Rafbílamarkaðurinn í þróun
Bílablaðið tók hús á Agli Jóhannssyni forstjóra
Brimborgar í viðleitni sinni til að kíkja aðeins inn
í framtíðina hvað varðar eyðslugranna bíla,
tvinnbíla og rafbíla, en allir eiga þeir að bjarga
heiminum frá mengun og koma í veg fyrir að við
sóum öllu jarðefnaeldsneyti jarðar á örskömmum
tíma. Egill sagði margt á döfinni varðandi tvinn-
og rafbíla sem valda mun straumhvörfum á
næstu áratugum, en þróun þeirra væri komin svo
stutt að segja mætti að enginn rafbíll væri
fjöldaframleiddur í dag og því enginn innflutn-
ingur til Íslands á þeim. Hann yrði afar tak-
markaður á næstu árum því framleiðslan væri
bara í burðarliðnum og framleiðandi eins og
REVA hefði einungis selt 3.000 bíla frá upphafi.
Þeir hæfu þó líklega framleiðslu í nýrri verk-
smiðju í október á þessu ári, verksmiðju sem á
að afkasta 30.000 bílum á ári eftir þrjú ár. Tesla
mun ekki fjöldaframleiða nýjan Model S bíl sinn
fyrr en í fyrsta lagi árið 2012, ef allar áætlanir
ganga eftir.
Bílar með brunahreyfla
Egill skiptir bílaframleiðslu næstu ára í
þrennt. Bíla með brunahreyfla, bensín og dísel,
sem og etanol-, metangas- og lífdíselvélar. Í öðru
lagi tvinnbíla eins og Toyota Prius, Ford Fusion,
Ford Escape og Honda Insight. Allt bílar með
brunahreyfli og rafmótora til aðstoðar. Í þriðja
lagi rafbíla, en þeim skiptir hann í þrennt; hreina
rafbíla, vetnisrafbíla og rafbíla með aðstoð-
armótora líkt og ljósavél sem breytir jarð-
efnaeldsneyti í rafmagn svipað og hinn umtalaði
Chevrolet Volt mun gera. Vetnisrafbílar hafa
meiri drægni en hreinir rafbílar þar sem mikil
orka, umbreytanleg í rafmagn, felst í vetn-
iskútum sem í þeim eru. Þó mikið sé að gerast í
þróun á rafbílum og tvinnbílum eru spár bíla-
framleiðendanna um samsetningu bílaflota
heimsins eftir 10 og 20 ár frekar hófstilltar. Niss-
an, sem gengur einna lengst í spám sínum um
magn rafbíla og tvinnbíla, áætlar að árið 2020
verði rafbílar 10% af bílaflotanum, 30% tvinn-
bílar og 60% bílar með hefðbundnum bruna-
hreyflum. Spá þeirra fyrir árið 2030 er 30%/60%/
10% í sömu röð. Aðrir bílaframleiðendur spá því
að þessi umskipti muni ganga mun hægar fyrir
sig. Akkillesarhællinn sé sá að nýja tæknin sé
dýr, þróunartími langur og dýr og kaupendur
séu ekki tilbúnir að kosta hann á stuttum tíma.
Á meðan beðið er eftir þróun rafbíla, sem enn
eru ansi dýrir og vart komnir í fjöldaframleiðslu,
verður engu að síður margt gott í boði. Allir
framleiðendur hafa náð miklum árangri í að ná
niður eyðslu sinna bíla og flestir þeirra bjóða nú
bíla sem eyða ekki meira en 4 lítrum á hund-
raðið, aðallega smábílar. Dæmi um slíka eru
þriggja sílindra bílarnir Citroen C1 sem eyðir 4,4
l, Toyota iQ með 4,3 l, Seat Ibiza með 3,7 l, og
Smart Fortwo með 3,4 l. Margir þeirra bjóða
einnig stærri gerðir bíla, oftast knúna dís-
elvélum, sem eyða 4-6 lítrum líkt og Volvo V70
og S80, sem aðeins eyðir 4 lítrum á hundraðið.
Við getum því áfram tekið þátt í að minnka
mengun af völdum bíla og stuðlað að minni elds-
neytisnotkun, á meðan við bíðum eftir að geta
keypt rafbíla á skikkanlegu verði sem menga
ekki neitt. Til að stuðla að hraðari þróun í þá átt-
ina geta stjórnvöld sniðið vörugjöld og skatta af
innflutningi af bílum eftir því hve lítið þeir
menga og jafnvel líka hve litlu þeir eyða, ekki
bara eftir sprengirými þeirra.
Bið eftir rafbílum Öll þróun bílaframleiðenda er í áttina að minni eyðslu og mengun og hámarks-
árangur næst með tilkomu rafbíla, en bið er eftir þeim.
Straumhvörf í bílafram-
leiðslu á næstu áratugum
FRANSKA bílasmiðjan Citroën
væntir mikils af smábílnum DS sem
brátt mun streyma af færibönd-
unum. Að auki mun Citroën kynna
DS3 útgáfu hans með mjög öflugri
vél, 154 hestafla, sem skilar smá-
bílnum í hundraðið á 7,3 sekúndum.
En líklega mun bíllinn þó fá enn öfl-
ugri vél undir húddið. Líklega á
bilinu 170 og 200 hestöfl og mun
hann þá skjóta öflugum smábílum
eins og Alfa MiTo, Clio Renault
sport og SEAT Ibiza Cupra ref fyr-
ir rass. Bíllinn verður þó líklega
ekki kynntur til sögunnar fyrr en á
næsta ári.
Sprækur Citroën DS3 verður einn sá
alsprækasti af smábílum enda með
hátt í 200 hestöfl undir húddinu.
Citroën ofursmábíll
á markað árið 2011
ÖNNUR kynslóð Cayenne jeppans
frá Porsche verður líklega kynnt á
bílasýningunni í Genf í mars ásamt
nýrri kynslóð af VW Touareg. Báð-
ir bílarnir verða kynntir með Hy-
brid tækni sem hönnuð var með þá
báða í huga, en Porsche er sem
kunnugt er í eigu Volkswagen.
Framleiðsla bílanna mun svo hefj-
ast í vor. Sama vélin verður í þeim
báðum, 3 lítra TFSI V6 sem nú er í
Audi S4 bílnum. Hún skilar 325
hestöflum og 324 NM togi. Sagt er
að með Hybrid útfærslu sé Ca-
yenne bíllinn enginn eftirbátur V8
bróður síns og muni veita Merce-
des Benz ML450 og Lexus RX450
verðuga keppni í hópi Hybrid
jeppa.
Nýr Önnur kynslóð Porsche Ca-
yenne verður kynntur á bílasýning-
unni í Genf - nú með Hybrid tækni.
Porsche Cayenne
Hybrid á leiðinni