Morgunblaðið - 05.02.2010, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010
2 Bílar
Eftir Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
TOYOTA á Íslandi áætlar að kalla
verði inn um 5.000 bifreiðar á Ís-
landi vegna mögulegs galla í elds-
neytisgjöf. Haft verður samband við
eigendur viðkomandi bíla fljótlega
og þeir beðnir að koma með bílinn
til viðurkennds þjónustuaðila
Toyota sér að kostnaðarlausu.
„Toyota hefur alltaf lagt ofurkapp
á að tryggja öryggi viðskiptavina
sinna. Við munum því gera allt sem
í okkar valdi stendur til að hefja
sem allra fyrst þær fyrirbyggjandi
aðgerðir sem félagar okkar hjá
Toyota í Evrópu hafa boðað,“ segir
Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota
á Íslandi.
„Ég vil ítreka gagnvart við-
skiptavinum okkar að tilvik sem
þessi eru mjög sjaldgæf. Einungis
hefur verið tilkynnt um 26 slík tilvik
í Evrópu og Toyota í Evrópu hefur
ekki fengið neinar fregnir af slysum
tengdum þeim. Ég hvet hinsvegar
eindregið þá sem hafa áhyggjur af
virkni eldsneytisgjafar í bílum sín-
um að hafa samband við næsta
þjónustuaðila Toyota,“ segir Úlfar.
Bifreiðarnar sem innkallaðar eru
á Íslandi og framleiðslutími þeirra
er sem hér segir:
AYGO febrúar 2005 til ágúst
2009, iQ nóvember 2008 til nóv-
ember 2009, Yaris nóvember 2005
til nóvember 2009, Auris október
2006 til 5. janúar 2010, Corolla októ-
ber 2006 til desember 2009, Verso
febrúar 2009 til 5. janúar 2010,
Avensis nóvember 2008 til desem-
ber 2009 og RAV4 nóvember 2005
til nóvember 2009.
Bensíngjöfin getur staðið föst
Toyota hefur innkallað um 8
milljónir bíla um allan heim vegna
hættu á bilun í bensíngjöf. Þar af
verða innkallaðar allt að 1,8 millj-
ónir bifreiða í Evrópu. Vandamálið
hefur hvorki komið upp í öðrum
gerðum Toyota né Lexus bifreiðum.
Bilun getur orðið vegna slits í
eldsneytisgjöfinni.
Við ákveðnar umhverfis- og notk-
unaraðstæður getur þetta slit orðið
til þess að núningur í eldsneyt-
isgjöfinni eykst sem verður síðan til
þess að af og til getur orðið erfiðara
að stíga á bensíngjöfina, hún lyftist
hægar til baka eða í versta falli get-
ur hún orðið föst í inngjöf.
Lausn liggur fyrir hjá Toyota í
Evrópu og er verið að leggja loka-
hönd á undirbúning og skipulag inn-
köllunarinnar. Búið er að kynna
hvernig gert verður við eldsneytis-
gjöfina og verður byrjað að senda
íhluti til viðgerðarinnar til Evrópu í
næstu viku. Í framhaldi af því ber-
ast þeir til Íslands.
Nákvæm tímasetning á því hve-
nær innköllun hefst á Íslandi liggur
ekki fyrir en er í undirbúningi. Eig-
endur viðkomandi bíla fá bréf um að
koma með bílinn til viðgerðar sér að
kostnaðarlausu. „Ef einhverjir hafa
áhyggjur af bílum sínum eða telja
sig hafa orðið vara við eitthvað
óvenjulegt í eldneytisgjöf, hvetjum
við þá eindregið til að hafa samband
við næsta viðurkennda þjónustu-
aðila Toyota,“ segir Páll Þorsteins-
son upplýsingafulltrúi Toyota á Ís-
landi.
Ofangreint vandamál mun ekki
hafa áhrif á núverandi framleiðslu
Toyotabifreiða þar sem nýr bún-
aður er notaður í þá bíla sem nú eru
framleiddir.
PSA innkallar 97.000 bíla
Franski bílaframleiðandinn PSA
hefur einnig ákveðið að innkalla 97
þúsund Peugeot 107 og Citroën C1
bifreiðar sem framleiddar voru í
tékkneskri verksmiðju sem PSA á
með Toyota. Innkallanir síðustu
daga eru ekki bundnar við þessa
framleiðendur því Honda innkallaði
einnig í vikunni 646.000 bíla vegna
galla í gluggarofa í bílstjórahurð-
inni. Um er að ræða Honda Fit og
Honda Jazz bíla, sem smíðaðir voru
2002 og 2008. Þessi tíðindi öll þykja
vera þungt högg fyrir japanskan
bílaiðnað.
Martröðin heldur áfram
Og eins og framangreindur vandi
Toyota sé ekki nóg þá kom nýr
vandi upp í gær. Kom þá í ljós, að
tugir kvartana hafa borist vegna
vandræða í hemlabúnaði Prius bif-
reiða í Norður-Ameríku og Japan.
Óljóst er hvaða áhrif það á eftir að
hafa á markaðssetningu á tvinn-
bílnum Prius í þeim heimshluta.
Að sögn talsmanns Toyota, Mieko
Iwasaki, er verið að fara yfir kvart-
anir sem borist hafa frá umboðs-
mönnum Toyota í Norður-Ameríku
og Japan. Hún segir að meðal
þeirra bifreiða sem nú sé kvartað
yfir sé nýja gerðin af Prius sem
kynnt var til sögunnar í fyrra.
Um 5.000 Toyota-bifreiðar
innkallaðar á Íslandi
Reuters
Gölluð Toyota hefur innkallað um 8 milljónir bíla um allan heim vegna
hættu á bilun í bensíngjöf en við ákveðnar umhverfis- og notkunar-
aðstæður getur þetta slit orðið til þess að núningur í eldsneytisgjöfinni
eykst sem verður síðan til þess að af og til getur orðið erfiðara að stíga á
bensíngjöfina og í versta falli getur hún orðið föst í inngjöf.
Spurningar og svör
Eftir Leó M. Jónsson
leoemm@simnet.is
Ný 6 sílindra Cummins
Spurt: Ég er með nýlegan Dodge
Ram með nýju 6,7 lítra Cummins-
dísilvélinni sem mér finnst ekki
byrja nógu vel miðað við eldri 5,9
lítra dísilvélina sem ég hef góða
reynslu af. Í upplýsingum sem fylgja
bílnum er tekið fram að eldsneytið
skuli vera „ULSCF Diesel Fuel“.
Hvað þýðir þessi skammstöfun og
get ég treyst því að eldsneytið sem
hér er selt henti þessari vél?
Svar: Að minnsta kosti 2 mismun-
andi gerðir dísilolíu eru á banda-
ríska markaðnum. ULSCF er
skammstöfun fyrir „Ultra Low Sulp-
hur Content Fuel“. Sú dísilolía inni-
heldur minna en 15 ppm (millj-
ónustu hluta) af brennisteini. Hin
tegundin er LSCF sem er skamm-
stöfun fyrir „Low Sulphur Content
Fuel“ en hún inniheldur meiri
brennistein, innan við 50 ppm, en
brennisteinn virkar sem smurefni í
eldri gerðum dísilkerfa með mek-
anískum olíuverkum og spíssum.
ULSCF-eldsneytið er meðal annars
ætlað dísilvélum sem búnar eru
forðagrein (common rail) í stað olíu-
verks, þriggja efna hvarfakúti og
sérstakri sótagnasíu (DPF). Brenni-
steinssnauð dísilolía á að vera fáan-
leg á ES-svæðinu síðan í ársbyrjun
2007. Engar upplýsingar fást um
gæðastaðla eða efnainnihald elds-
neytis hjá olíufélögum hérlendis og
ekkert eftirlit er með gæðum þess af
hálfu hins opinbera. Nýja Cummins
6,7 virðist ekki vera án „barna-
sjúkdóma.“
Festist í bremsum
Spurt: Bíllinn minn er nýlegur Benz-
fólksbíll. Að undanförnu hef ég lent í
því nokkrum sinnum að bremsurnar
að framan hita þar til þær verða
rauðglóandi og festast. Búið er að
skipta um klossa, diska og stimpla í
dælum (1 í hvorri), loftakerfið marg-
oft en allt kemur fyrir ekki. Stund-
um festist annað framhjólið fyrst en
síðan bæði og einnig hafa bremsurn-
ar orðið óvirkar. Nú síðast var sett
ný höfuðdæla en það breytti engu.
Hvað getur valdið þessu?
Svar: Þú nefnir að vísu ekki dæl-
urnar sjálfar en miðað við lýsing-
arnar hljóta þéttingar í þeim að vera
orðnar ónýtar auk þess sem vökvinn
hefur soðið og þarf því að endurnýj-
ast. Mig grunar að upphafleg orsök
hafi ekkert með bremsukerfið að
gera heldur hafi vegna mistaka verið
settur rúðu- eða kælivökvi í forðabúr
höfuðdælunnar. Vatns- eða raka-
mengaður bremsuvökvi getur valdið
svona viðbrögðum nái hann að hitna
í hjóldælum (bremsuvökva á að
endurnýja með 2-3 ára millibili).
Viðbót: Í framhaldi af þessu er
ástæða til að hvetja til sérstakrar
varkárni varðandi áfyllingu hinna
ýmsu vökva sem fylgir þjónustu við
bíla. Hluti jeppa er til dæmis búinn
vökvafjöðrun (til dæmis nýrri Land-
Cruiser). Sé fyrir misgáning settur
rúðuvökvi á fjöðrunarkerfið eyði-
leggst það á skömmum tíma og við-
gerð getur orðið verk upp á 400-500
þúsund krónur.
Biluð hraðastilling
á miðstöð
Spurt: Ég er í vandræðum með mið-
stöðina í bílnum mínum. Blásturinn
virkar ekki á 1, 2 eða 3. Einungis
hæsta stillingin virkar (4). Getur þú
sagt mér hver hugsanleg orsök
kunni að vera. Þetta er Mitsubishi
Carisma ’99.
Svar: Þessi bilun er sígild, lýsir sér
eins og er af sama toga í nánast öll-
um miðstöðvarkerfum bíla: Hraða-
stýringin fyrir blásaramótorinn –
viðnámið – er ónýtt. Þetta er sér-
stakt stykki sem er í stokknum næst
blásaranum (leiðslur). Þú færð það
hugsanlega hjá Stillingu eða N1 eða
á partasölu (sama viðnámið er í flest-
um Mitsubishi-bílum og þetta við-
nám passar einnig úr Volvo S40).
Athugið að bréf geta verið stytt. Eldri
spurningar og ítarlegri svör eru birt á
www.leoemm.com
Rétt eldsneyti og bilaðar bremsur
Morgunblaðið/Jim Smart
Biluð miðstöð Það er sígilt að miðstöðvar bili í fólksbílum og oft er vand-
inn sá að hraðastýringin fyrir blásaramótorinn er jafnan ónýt.
Höfundur er vélatæknifræðingur
MEST seldi bíllinn í Evrópu á liðnu
ári var Volkswagen Golf. Þar með
hefur VW Golf fimm sinnum orðið
söluhæsti bíll álfunnar frá alda-
mótaárinu 2000. Einungis Opel
Astra og Peugeot 206/207 hafa
megnað að veita Golf einhverja sam-
keppni undanfarinn áratug. Á ný-
liðnu ári var það hin nýja Ford
Fiesta sem veitti Golf hvað harðasta
samkeppni.
Það er markaðsfyrirtækið Jato
Consult sem tekur árlega saman
sölutölur á Evrópska efnahagssvæð-
inu. Í nýbirtri skýrslu Jato fyrir árið
2009 segir að það hafi einkum verið
smábílar og minni meðalbílar sem
seldust á síðasta ári í álfunni og þar
hafi sérstaka skilagjaldið á eldri
eyðslufreka bíla sem mörg Evrópu-
ríki komu á, ráðið mestu um. Skila-
gjaldið var víðast hvar mjög rausn-
arlegt og fékkst greitt út sem
afsláttur af verði nýrra sparneyt-
inna bíla gegn því að gamla bílnum
yrði eytt.
En í ár er ekkert slíkt skilagjald í
augsýn neins staðar í álfunni þannig
að bakslag í bílasölunni er vel hugs-
anlegt. Slíkt bakslag gæti þannig
komið illa við þá bílaframleiðendur
sem mesta áherslu leggja á að fram-
leiða smábíla. Jato telur á hinn bóg-
inn að meiri stöðugleiki verði í
framleiðslunni á meðalstórum og
stórum bílum og að framleiðsla á
gæðabílum gæti jafnvel aukist nokk-
uð frá því sem hún var á síðasta ári.
Vinsæll VW Golf er hvorki sjaldgæf sjón hér á landi né heldur í Evrópu.
VW Golf vinsælastur
í Evrópu á árinu 2009