Morgunblaðið - 10.02.2010, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 0. F E B R Ú A R 2 0 1 0
STOFNAÐ 1913
33. tölublað
98. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«DAGLEGTLÍF
STUNDA ÍSKLIFUR
VÍÐA UM LANDIÐ
«MENNINGFÓLK
Sveitin FM Belfast
fer í Evróputúr
6
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
STÓR hluti af afborgunum lána, sem
Landsbankinn veitti fyrirtækjum og
einstaklingum í Bretlandi, hefur far-
ið inn á vaxtalausan innlánsreikning
í Englandsbanka. Samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins er
heildarupphæð þessara afborgana
nærri 200 milljarðar króna frá því að
eignir bankans í Bretlandi voru
frystar haustið 2008.
Frystingunni var reyndar aflétt í
júní sl. en innistæðunum hefur ekki
verið hægt að ráðstafa, samkvæmt
tilskipun frá breska fjármálaeftir-
litinu, þar sem ekki má flytja fé í eigu
þrotabúa úr landi. Samkvæmt upp-
lýsingum blaðsins úr fjármálaráðu-
neytinu hefur það komið til tals í við-
ræðum Íslendinga við Breta að færa
afborganirnar inn á aðra banka-
reikninga sem bæru einhverja inn-
lánsvexti. Niðurstaða hefur ekki
fengist í því. Ekki fengust upplýs-
ingar um það hjá skilanefnd Lands-
bankans í gær hve stór hluti afborg-
ana hefur farið inn á reikning
Englandsbanka og í hvaða bönkum
afgangurinn liggur. Munu einhverjir
vextir hafa verið á þeim innistæðum,
en til samanburðar má nefna að Ís-
landi bjóðast 5,5% vextir á lánum
Breta og Hollendinga vegna Icesave.
Skilanefndin gerði á sínum tíma
samkomulag við Englandsbanka um
að vernda lánasöfn og eignir Lands-
bankans í Bretlandi, þar sem mikill
þrýstingur var á að selja eignir
bankans strax eftir hrunið.
Þegar skýringa var leitað á því hjá
skilanefndinni af hverju afborgan-
irnar væru vaxtalausar fengust þau
svör að Englandsbanki hefði ekki
boðið upp á neina vexti. Var öðrum
bönkum en Englandsbanka á þeim
tíma ekki treyst til að taka við af-
borgunum á lánum Landsbankans,
segir talsmaður nefndarinnar.
Afborganir í Bretlandi enn
á vaxtalausum reikningi
» Afborganir vaxtalausar hjá Englandsbanka
» Rætt við Breta um að flytja féð annað
» Afborganir í heild nærri 200 milljarðar
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
ÞUNG undiralda var á fjölmennum
borgarafundi í Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja um málefni Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja (HSS) í gær. Í
lok fundarins tók heilbrigðisráð-
herra við mótmælum 9.897 íbúa við
frekari niðurskurði á HSS.
Til fundarins boðuðu grasrótar-
samtök og er tilefnið óánægja með
fyrirhugaðan niðurskurð á þjónustu
HSS og uppsagnir starfsfólks. Að
loknum framsöguræðum svaraði
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðis-
ráðherra fyrirspurnum. Stóð hún í
pontu í einn og hálfan tíma og fékk
fjölda fyrirspurna og ábendinga.
Svolítið var um frammíköll og einu
sinni púað þegar fundarmönnum
líkaði ekki svar ráðherrans.
Meðal annars var slök þjónusta
heilsugæslunnar gagnrýnd. Undir
lok fundarins sagði kona frá því að
hún hefði nýlega pantað tíma fyrir
son sinn en ekki fengið tíma hjá
heilsugæslulækni fyrr en í byrjun
mars. Álfheiður telur að leggja eigi
meiri áherslu á heilsugæsluþjón-
ustuna hjá HSS en sjúkrahúsið.
„Fólk er eðlilega mjög óttasleg-
ið,“ segir Skúli S. Ólafsson, sóknar-
prestur í Keflavíkurkirkju, sem var
á fundinum og lýsir erfiðum að-
stæðum á svæðinu, miklu atvinnu-
leysi og skorti á tækifærum.
Þarf að endurræsa | 8
Nærri 10 þúsund íbúar
mótmæla niðurskurði
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Fjölmenni Um 370 íbúar voru á borgarafundi um málefni HSS í gær. Konráð Lúðvíksson yfirlæknir útskýrði stöðu mála fyrir ráðherranum.
Þung undiralda á fjölmennum borgarafundi um málefni HSS
SIGMUNDUR
Davíð Gunn-
laugsson, for-
maður Fram-
sóknarflokks,
segir að þjóð-
aratkvæða-
greiðsla um Ice-
save eigi að
fara fram, jafn-
vel þótt hag-
stæðari samn-
ingur náist við
Breta og Hollendinga. Þá yrði
kosið á milli laganna sem forset-
inn synjaði staðfestingar og laga
sem byggjast á hinum nýja samn-
ingi.
Bæði Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokks, og Guð-
bjartur Hannesson, þingmaður
Samfylkingar, telja hins vegar að
ekki þurfi að halda þjóð-
aratkvæðagreiðslu ef nýir samn-
ingar takast. Lagaprófessor segir
ekkert athugavert við að stjórn-
völd felli lög, sem forsetinn hefur
synjað staðfestingar, úr gildi án
þess að þjóðaratkvæðagreiðsla
fari fram. »6
Vill kjósa um Icesave þótt
nýr samningur verði gerður
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
ÁHYGGJUR
hollenska seðla-
bankastjórans
haustið 2008
lutu að stöðu ís-
lensks efna-
hagslífs og
stærð fjármála-
kerfisins í heild
en ekki að
Lands-
bankanum sér-
staklega. Kem-
ur það fram í yfirlýsingu Halldórs
J. Kristjánssonar, fyrrverandi
bankastjóra, í blaðinu í dag.
Halldór segir í yfirlýsingunni
nauðsynlegt að leiðrétta rang-
færslur í opinberri umræðu um Ice-
save, þar á meðal nýlegar yfirlýs-
ingar fulltrúa Seðlabanka
Hollands.
„Hann [hollenski seðlabanka-
stjórinn] tók að eigin frumkvæði
fram að ef kerfislægir erfiðleikar
kæmu upp væri staða trygginga-
sjóða innlána ekki til umræðu, því
þeim væri ekki ætlað hlutverk við
þær aðstæður,“ segir Halldór J.
Kristjánsson. »18
Tók fram að tryggingasjóð-
ur tæki ekki til kerfishruns
Halldór J.
Kristjánsson