Morgunblaðið - 10.02.2010, Síða 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010
FASTEIGNAGJÖLD sveitarfélaga
breytast mikið á milli ára, að
mestu vegna gagngers endurmats
á fasteignamati en einnig vegna
hækkana á álagsprósentu sveitar-
félaga, segir í frétt frá ASÍ. Mest
hækka fasteignagjöld á Eyr-
arbakka en einnig hækkar mikið á
Selfossi og í Reykjanesbæ. Mesta
lækkun á milli ára er á Völlunum í
Hafnarfirði, í Teigum/Krikum í
Mosfellsbæ, Sjálandi í Garðabæ og
á Sauðárkróki.
Sorphirðugjald hækkar hjá öll-
um sveitarfélögum nema Fljóts-
dalshéraði þar sem þau lækka um
3% og hjá Reykjavík þar sem þau
standa í stað. Mest hækkun sorp-
hirðugjalda er 54% í Árborg, 46%
á Akranesi og á Akureyri um 42%.
Morgunblaðið/RAX
Miklar breytingar
á fasteignagjöldum
FÉLAG kvenna í atvinnurekstri,
Viðskiptaráð Íslands og Samtök at-
vinnulífsins undirrituðu samstarfs-
samning 15. maí sl. með það að
markmiði að hlutfall hvors kyns í
forystusveit íslensks atvinnulífs
verði sem næst 40% í árslok 2013.
Jafnréttisráð skorar á alla sem
undirrituðu samninginn að beita
sér til þess að markmið samnings-
ins náist sem fyrst, enda fer nú sá
tími í hönd þar sem gera má brag-
arbót. Aðalfundir framundan og
því kjörið tækifæri til breytinga.
Jafnt kynjahlutfall í stjórn íslensks
atvinnulífs er mikilvægt skref í átt
til jafnréttis og atvinnulífi landsins
til heilla.
Jafnréttisráð vill
jafnari hlut kvenna
ÞINGFLOKKUR Samfylking-
arinnar leggur af stað í fund-
arferð í vikunni um land allt undir
yfirskriftinni „Samstaða um end-
urreisn“, þar sem landsmönnum
er boðið upp á milliliðalaust sam-
tal um þau stóru og viðamiklu úr-
lausnarefni sem unnið er að.
Í gær voru fundir í á Akranesi,
Húsavík og Keflavík. Í dag, mið-
vikudag, verða fundir á Patreks-
firði, Eskifirði og Neskaupstað og
í Reykjavík. Á morgun, fimmtu-
dag, verður fundað í Vest-
mannaeyjum, Mosfellsbæ, Hvera-
gerði, Reykjanesbæ og
Hvammstanga. Síðasti fundurinn
verður svo í Reykjavík þriðjudag-
inn 16. febrúar nk.
Samfylkingarfundir
ÓHÁÐI söfn-
uðurinn í
Reykjavík er
60 ára um
þessar mund-
ir. Tildrögin
að stofnun
safnaðarins
eru þau að í
kjölfar prests-
kosninga í
Fríkirkjunni
ákváðu stuðningsmenn sr. Emils
Björnssonar sem tapaði kosning-
unni að stofna sinn eigin söfnuð og
kalla Emil þar til þjónustu.
Í tilefni að afmælinu verður há-
tíðarmessa í söfnuðinum nk. sunnu-
dag kl. 14. Pétur Þorsteinsson ann-
ast guðsþjónustuna en Ómar Þ.
Ragnarsson, fréttamaður og fjöl-
fræðingur, verður ræðumaður.
Afmælismessa í
Óháða söfnuðinum
STUTT
RYKBINDING gatna til að koma í
veg fyrir svifryksmengun yfir heilsu-
verndarmörkum heppnaðist mjög vel
um liðna helgi. Bindingin var gerð að-
faranótt föstudags og virðist enn í
gær þriðjudag, gera gagn, sam-
kvæmt upplýsingum frá umhverf-
issviði Reykjavíkur.
Styrkur svifryks (PM10) hefur far-
ið þrisvar sinnum yfir heilsuvernd-
armörk á árinu við gatnamót Grens-
ásvegar og Miklubrautar.
Farstöð til mælinga hefur frá jól-
um verið staðsett á horni Miklubraut-
ar og Stakkahlíðar og hefur styrkur
svifryks frá áramótum farið þar fjór-
um sinnum yfir mörkin. Rykbind-
ingin aðfaranótt föstudags kom í veg
fyrir að farið yrði þar í fimmta sinn
yfir heilsuverndarmörkin. Síðast fór
styrkur svifryks á þessu umferð-
arhorni yfir fimmtudaginn 4. febrúar
og mældist þá 95,6 míkrógrömm á
rúmmetra.
Veðurskilyrði hafa undanfarið ver-
ið kjörin fyrir svifryksmengun, því
götur hafa verið þurrar og vindur og
hiti lítill. Rykið er bundið með salt-
pækli eða magnesíumklóríði.
Viðbragðsteymi Reykjavík-
urborgar fylgist með loftmengun í
borginni, sendir út viðvaranir og
grípur til aðgerða eins og að rykbinda
umferðargötur þegar þörf er á.
Rykbinding kemur í veg fyrir mengun
Morgunblaðið/Júlíus
Ástand Undanfarið hafa veðurskilyrði verið kjörin fyrir svifryksmengun.
Landssamband
íslenskra útvegsmanna
Morgunverðarfundur á Grand Hótel
fimmtudaginn 11. febrúar kl. 8:00-9:30
Úttekt Deloitte sýnir að verði aflaheimildir teknar af sjávarútvegsfyrirtækjunum á 20
árum leiðir það til gjaldþrots þeirra. Boðuð fyrningarleið stjórnvalda elur á óvissu og
ógnar atvinnu og afkomu starfsfólks í sjávarútvegi, svo og þeirra þúsunda annarra sem
byggja afkomu sína á þjónustu við atvinnugreinina.
Dagskrá:
Sjávarútvegsfyrirtækin lifa fyrningarleiðina ekki af
Þorvarður Gunnarsson, endurskoðandi og framkvæmdastjóri Deloitte
Áhrif fyrningarleiðar á sjávarútvegsfyrirtækin
Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK Seafood hf,. Sauðárkróki
Fyrningarleið – Þjóðhagsleg áhrif
Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands
Fundarstjóri er Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Fyrningarleið
í sjávarútvegi?