Morgunblaðið - 10.02.2010, Síða 13
Fréttir 13VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010
Stuttar fréttir ...
● ÚTFLUTNINGUR Alcoa Fjarðaáls á
síðasta ári nam tæplega 600 milljónum
Bandaríkjadala, sem jafngildir um 74
milljörðum íslenskra króna, miðað við
núverandi gengi. Flutt voru út rúmlega
349 þúsund tonn af hreinu áli, álblönd-
um og álvírum. Verðmæti útflutnings
Alcoa Fjarðaáls í fyrra nam því rúmlega
1,4 milljörðum króna á viku, eða rúm-
lega 200 milljónum króna á dag, að því
er fram kemur í tilkynningu frá fyr-
irtækinu.
Útflutningur 74 ma. kr.
● HECTOR Sants,
forstjóri fjármála-
eftirlitsins í Bret-
landi (FSA), hefur
sagt starfi sínu
lausu.
Í yfirlýsingu
sagði Sants að
hann hygðist yf-
irgefa fjármálaeft-
irlitið í sumar, eins
og hann hafði alltaf ætlað sér. Hann
hefur sinnt starfi forstjóra í þrjú ár, en
hann var áður hjá fjárfestingabank-
anum Credit Suisse. Það var í for-
stjóratíð Sants sem íslensku bankarnir
féllu og FSA átti í samningaviðræðum
við Landsbanka og Kaupþing um ráð-
stafanir vegna Icesave- og Edge-
innistæðureikninga þeirra í Bretlandi.
Hector Sants
Sants hættir hjá breska
fjármálaeftirlitinu
SKORTSTAÐA spákaupmanna og
vogunarsjóða gegn evrunni hefur
aldrei verið hærri en um þessar
mundir. Þetta kemur í ljós þegar
rýnt er í tölur kauphallarinnar í Chi-
cago yfir framvirka samninga í evr-
um. Samkvæmt breska blaðinu Fin-
ancial Times fjölgaði framvirkum
samningum sem fela í sér skortstöðu
gagnvart evru í kauphöllinni í Chi-
cago um ríflega 4 þúsund í síðustu
viku. Samtals eru nú tæplega 44 þús-
und slíkir samningar skráðir og
nemur andvirði þeirra um þessar
mundir um átta milljörðum Banda-
ríkjadala.
Þessi þróun endurspeglar meðal
annars vaxandi trú fjárfesta á því að
fjárhagsvandræði grískra stjórn-
valda muni hafa djúpstæð áhrif ann-
ars staðar á evrusvæðinu og vantrú á
að spænsk og portúgölsk stjórnvöld
geti komið böndum á hallarekstur
hins opinbera. Eins og fram kemur í
umfjöllun The Daily Telegraph í gær
minnir aukningin á skortstöðu gegn
evrunni um margt á þegar hinn
þekkti fjárfestir George Soros lagð-
ist til atlögu gegn aðild breska
pundsins að gjaldeyrissamstarfi
Evrópuríkja árið 1992. Vogunar-
sjóðsstjórar eru að feta í sömu fót-
spor um þessar mundir og vonast til
þess að hagnast á því að ríki á borð
við Grikkland þurfi að hrökklast úr
evrusvæðinu eða þá að önnur ríki
þurfi að veita efnahagsaðstoð af
slíkri stærðargráðu að það muni
grafa undan gengi evrunnar gagn-
vart helstu gjaldmiðlum. Gengi evr-
unnar gagnvart dalnum hefur veikst
að undanförnu og hefur það ekki ver-
ið lægra í um átta mánuði.
ornarnar@mbl.is
Reuters
Skortstaða Kambódískur spákaup-
maður handleikur evrur.
Skortstöður í
evru aldrei fleiri
Veðjað á lækkun vegna Grikklands
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
ÍSLANDSPÓSTUR misnotaði
sennilega markaðsráðandi stöðu
sína í samskiptum við Póstmarkað-
inn ehf. þegar síðarnefnda fyrirtæk-
ið leitaði samninga við Íslandspóst.
Kemur þetta fram í bráðabirgða-
ákvörðun Samkeppniseftirlitsins,
sem birt var í gær.
Póstmarkaðurinn er fyrirtæki
sem vill hasla sér völl m.a. sem póst-
miðlari, þ.e. safna saman pósti frá
svokölluðum stórnotendum og koma
honum síðan til Íslandspósts til
dreifingar. Íslandspóstur hefur
einkaleyfi á dreifingu á pósti undir
50 grömmum og óskaði Póstmark-
aðurinn eftir því að fá að gera samn-
ing um magnafslátt, eins og Íslands-
póstur hefur gert við aðra stórnot-
endur.
Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins
segir að í samningaviðræðum milli
fyrirtækjanna hafi Íslandspóstur
sett skilyrði, sem ekki séu sambæri-
leg við þau sem aðrir stórnotendur
þurfi að uppfylla.
Til dæmis taldi eftirlitið sennilegt
að Íslandspóstur hefði krafist þess
að fá að vita hverjir viðskiptavinir
Póstmarkaðarins væru. Þar sem Ís-
landspóstur og Póstmarkaðurinn
væru keppinautar um viðskipti við
stórnotendur telur eftirlitið að slík
upplýsingagjöf gæti falið í sér veru-
lega röskun á samkeppni. Síðar í
samningaviðræðunum vildi Íslands-
póstur annaðhvort fá viðeigandi
tryggingu fyrir greiðslu frá Póst-
markaðnum eða að settur yrði
ákveðinn reynslutími.
Eftirlitið taldi þessa skilmála ekki
í samræmi við gjaldskrá Íslands-
pósts eða þá samninga, sem gerðir
hafi verið við aðra stórnotendur. Þar
með mætti Íslandspóstur, í ljósi
markaðsráðandi stöðu fyrirtækisins,
ekki mismuna viðskiptavinum með
þeim hætti.
Bráðabirgðaákvörðun er tekin,
þegar talið er þurfa að bregðast
skjótt við meintum brotum. Við slík-
ar aðstæður er nægilegt að brot sé
„sennilegt“.
Samkeppniseftirlitið beinir í
ákvörðun sinni þeim fyrirmælum til
Íslandspósts að fyrirtækið semji við
Póstmarkaðinn í samræmi við gjald-
skrá fyrir stórnotendur. Þá skuli
skilmálar vera almennir, þannig að
fyrirtæki sem eigi í samskonar við-
skiptum njóti sömu kjara.
Misnotaði „sennilega“
markaðsráðandi stöðu sína
Samkeppniseftirlit skipar Íslandspósti að semja við Póstmarkaðinn um dreifingu
Póstur Vegna þess að Íslandspóstur hefur einkaleyfi á dreifingu pósts und-
ir 50 grömmum er fyrirtækið talið njóta markaðsráðandi stöðu.
Morgunblaðið/Ómar
HELSTU hrá-
vöruverðs-
vísitölur hafa
lækkað á árinu,
samhliða áhættu-
fælni á eigna-
mörkuðum.
Greining IFS
segir að fram-
virkt verð á
helstu hrávörum bendi til lítillar
breytingar á verði olíu, áls og gulls
á árinu 2010. „Framvirkt verð á
landbúnaðarvörum líkt og korni og
sojabaunum gerir einnig ráð fyrir
litlum breytingum á árinu 2010,“
segir IFS. Meðalspár greinenda
gera hins vegar ráð fyrir hóflegri
hækkun á helstu hrávörum.
Olíuverð hefur lækkað um 11% á
árinu og er nú um 70 dollarar á
tunnu. „Nokkur óvissa er enn um
hversu hraður efnahagsbatinn í
helstu hagkerfum verður. Fram-
leiðsluvísitölur líkt og ISM og PMI
benda til bata á næstunni. Aukin
iðnaðarframleiðsla í heiminum mun
styðja við hráolíuverð,“ segir IFS.
Hófleg hækkun hrávara
Hjörtur Jónasson,
Námufélagi
í háskóla
La
us
n:
N
em
an
d
i
Styrkir fyrir
námsmenn
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
0
9
19
N
B
I
h
f.
(L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t.
4
7
10
0
8
-0
2
8
0
.
Námufélögum standa til boða veglegir námsstyrkir
á framhalds- og háskólastigi árið 2010.
Veittir verða styrkir í fjórum flokkum:
3 styrkir til framhaldsskóla- og iðnnáms, 150.000 kr.
3 styrkir til háskólanáms (BA/BS/BEd), 300.000 kr.
4 styrkir til framhaldsnáms á háskólastigi, 350.000 kr.
4 styrkir til listnáms, 350.000 kr.
Sæktu um námsstyrk Námunnar á
landsbankinn.is.
Umsóknarfrestur er til 8. mars.
NÁMAN | landsbankinn.is | 410 4000