Morgunblaðið - 10.02.2010, Síða 20
20 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010
✝ Pétur Friðrikssonfæddist á Gamla-
Hrauni á Eyrarbakka
hinn 13. júní 1928.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urlands, Selfossi,
laugardaginn 30. jan-
úar 2010.
Foreldrar Péturs
voru Friðrik Sigurðs-
son, bóndi á Gamla-
Hrauni á Eyrarbakka
og kona hans Sess-
elja Sólveig Ás-
mundsdóttir.
Hálfsystkini hans samfeðra eru:
Ingibjörg Ásta Friðriksdóttir, f.
1910, látin, Sigurður Friðriksson,
f. 1912, látinn, Jóhann Friðriksson,
f. 1913, látinn, Friðrik Friðriksson,
f. 1915, látinn, Davíð Friðriksson,f.
1917, látinn og Guðmundur Ragn-
ar Friðriksson, f. 1918, látinn.
Móðir þeirra var Margrét Jó-
hannsdóttir, f. 1888, d. 1918.
Börn Friðriks og Sesselju, al-
systkini Péturs eru: Margrét Frið-
riksdóttir, f. 1920, Guðmundur
Friðriksson, f. 1922, látinn, Guð-
munda Ragna Friðriksdóttir, f.
1924 og Guðleif Friðriksdóttir, f.
1925.
Pétur giftist Guðlaugu Guðna-
dóttur, f. 1931, hinn 3. október
1954. Foreldrar hennar voru
Guðni Gestsson, bóndi í Þorkels-
gerði í Selvogi, og kona hans,
Jensína Helgadóttir.
Sonur Péturs og Fanneyjar
Jónsdóttur er Magnús Jón, f.10.3.
1950. Kona hans er Sigurósk
Hulda Svanhólm. Börn þeirra eru:
Rúna Björg, f. 26.11. 1969. Maður
hennar er Guttormur Þorfinnsson.
Dóttir hennar og Magnúsar Grét-
22.12. 1987. Kona Friðriks er
Steinunn Gísladóttir, f. 12.6. 1966.
Börn þeirra eru Pétur Hrafn, f.
8.9. 1999. og Áróra, f. 21.4. 2002.
Pétur var yngstur ellefu systk-
ina en eftirlifandi eru þrjár systur.
Hann ólst upp í foreldrahúsum til
16 ára aldurs en þá lést móðir
hans, Sesselja Sólveig Ásmunds-
dóttir. Frá Gamla-Hrauni lá leið
hans á Selfoss ásamt bræðrum sín-
um. Á Selfossi vann hann við ýmis
störf þar til hann fluttist til Þor-
lákshafnar á seinni hluta 5. ára-
tugarins og hóf störf sem vinnu-
maður hjá Skúla Þorleifssyni
bónda. Sjómennskan kallaði fljót-
lega á hinn unga svein enda nánd-
in við sjóinn mikil í gömlu verstöð-
inni. Á sjónum undi hann sér vel
og náði hann sér í þau réttindi
sem nauðsynleg voru til að vera
skipstjóri á íslensku fiskiskipi.
Pétur var metnaðargjarn skip-
stjóri og að sama skapi fengsæll
og vel liðinn af sinni áhöfn. Lengi
vel var hann skipstjóri á hinum
ýmsu bátum í eigu Meitilsins hf. í
Þorlákshöfn uns hann stofnaði
ásamt öðrum sína eigin útgerð
Auðbjörgu hf. árið 1971. 1973
seldi hann sinn hlut útgerðarinnar
og hóf störf sem hafnarvörður í
Þorlákshöfn þar sem hann starfaði
allt þar til hans starfsævi lauk árið
1998.
Í Þorlákshöfn kynntist Pétur
einnig konu sinni, Guðlaugu
Guðnadóttur. Þar ákváðu þau að
hefja búskap og stofna fjölskyldu
og voru því meðal fyrstu frum-
byggja í höfninni. Þar hafa þau
búið síðan. Pétur var mikill fjöl-
skyldumaður og naut þeirra
stunda best er stórfjölskyldan kom
saman á góðri stundu.
Útför Péturs fer fram frá Þor-
lákskirkju í dag, miðvikudaginn
10. febrúar 2010, og hefst athöfnin
kl. 14.
ars Gíslasonar er
Sigurósk Sunna, f.
12.6. 1988, dóttir
hennar og Jónasar
Jónassonar er Hulda
Dröfn, f. 15.12. 1993.
Fanney Jóna, f. 23.4.
1972. Maður hennar
er Allan Örn Hoc-
kett. Sonur þeirra er
Kjalar Bogi Hockett,
f. 20.3. 2006. Sig-
mundur Heiðar, f.
11.4. 1981, og Sigmar
Svanhólm, f. 11.4.
1983. Börn Péturs og
Guðlaugar eru: Jensína Ingveldur,
f. 23.1. 1954. Maður hennar er
Andrés Kristjánsson, f. 16.9. 1954.
Börn hennar og Andrésar eru:
Pétur, f. 14.8. 1973, fyrrverandi
kona hans er Svava Einarsdóttir,
börn þeirra eru Edda Björk, f.
26.12. 1998, Inga Júlía, f. 29.4.
2000 og Íris Dögg, f. 23.9. 2002.
Kristján, f. 18.7. 1977. Kona hans
er Kristín Ragnheiður Sig-
urgísladóttir, f. 19.9. 1977. Synir
þeirra eru Sigurgísli Fannar, f.
10.12. 2002, og Karl Andrés, f.
13.4. 2007. Finnur Andrésson, f.
27.4. 1984. Sesselja Sólveig, f. 6.2.
1957. Fyrrverandi maður hennar
er Einar Gíslason, f. 18.12. 1955.
Dóttir þeirra er Guðlaug, f. 6.2.
1977, maður hennar er Róbert
Dan Bergmundsson. Börn þeirra
eru Sesselía Dan, f. 7.9. 1998,
Berglind Dan, f. 10.11. 2000 og
Einar Dan, f. 26.5. 2005. Guðni, f.
18.04. 1960. Kona hans er Hrönn
Sverrisdóttir, f. 17.1. 1962. Börn
þeirra eru Hlynur, f. 2.10. 1991,
og Arna, f. 13.1. 1995. Friðrik, f.
13.4. 1966. Sonur hans og Guð-
rúnar Barðadóttur er Anton,
Þá ert þú farinn í síðasta ferða-
lagið, elsku tengdapabbi.
Brottförina bar brátt að og við
vorum ekki alveg tilbúin. En þetta
var nú þinn stíll. Þú varst aldrei
neitt að tvínóna við hlutina ef eitt-
hvað stóð til og alltaf ferðbúinn
langt á undan öðrum.
Það hefur oft verið hlegið að því í
fjölskyldunni hvað þér lá á ef verið
var að fara eitthvað og alltaf varst
þú mættur löngu fyrir áætlaðan
brottfarartíma eða sestur út í bíl og
beiðst eftir að hinir yrðu ferðbúnir.
Og þá þurfti nú stundum aðeins að
reka á eftir liðinu með því að ýta á
bílflautuna.
Í dag er gott að eiga allar minn-
ingarnar um góðar samverustundir.
Margar tengjast þær Haukaberg-
inu. Ég sé þig fyrir mér með hrífu í
hönd að róta í beðunum eða með
pensilinn að bletta húsið. Þú þurftir
alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni og
það var alltaf snyrtilegt og fínt í
kringum ykkur ömmu. Ég held að
þér hafi liðið best þegar þú hafðir
allt liðið í kringum þig og nóg var
um að vera. Þú varst fyrstur að
mæta þegar eitthvað stóð til og allt-
af til í að gera þér dagamun.
Afabörnin voru alltaf velkomin og
alltaf var eitthvað gott að finna í ís-
skápnum eða kjallaranum. Það var
einn af þessum föstu punktunum í
tilverunni að sjá þig á rúntinum.
Þeir voru ófáir rúntarnir sem þú
fórst hér um göturnar og næsta ná-
grenni. Þú þurftir að fylgjast með
hvað var að gerast, aðeins að kíkja á
karlana á bryggjunni og frétta af
aflabrögðum. Þá nutum við oft góðs
af þegar þú komst með nýja ýsu í
soðið. Það verður tómlegra að eiga
ekki lengur von á að þið amma kíkið
inn í kaffisopa. En þú máttir nú yf-
irleitt ekkert vera að því að stoppa
lengi. Það er komið að kveðjustund.
Þú varst ekkert að tjá tilfinningar
þínar með orðum en hlýtt og þétt
handtak og strokur yfir handarbak-
ið sögðu meira en mörg orð. Þær
þótti mér vænt um. Hafðu þökk fyr-
ir allt og allt.
Hrönn.
Elsku hjartans afi minn.
Ég sakna þín. Þið amma hafið
alltaf verið stór hluti af minni til-
veru og mér þykir óendanlega vænt
um ykkur. Ég veit líka að ég hef
verið lánsöm að fá að njóta samvista
við ykkur svona lengi og fyrir það er
ég þakklát. Ég veit líka að núna hef-
ur þú áhyggjur af ömmu en við
munum svo sannarlega hugsa vel
um hana og passa hana fyrir þig
þangað til þú kallar hana til þín.
Þú varst lífsglaður, góðhjartaður,
gjafmildur, tilfinningaríkur og um-
hyggjusamur en jafnframt hispurs-
laus, hreinn og beinn. Komst þér
beint að efninu, umyrðalaust. Þoldir
illa bið eða hirðuleysi og vildir láta
hlutina ganga hratt fyrir sig. Til
þess notaðir þú bílflautuna óspart
og við erum örugglega eina fjöl-
skyldan í heiminum sem hefur húm-
or fyrir æðibunugangi á háu stigi.
Þú varst nefnilega alltaf að flýta
þér. Vildir vera á þeytingi og alltaf
mættur klukkutíma fyrr en talað
var um. Undir niðri kraumaði kát-
ínan og við skemmtum okkur
ósjaldan saman við eldhúsborðið
þegar amma misskildi okkur eitt-
hvað. Við höfðum líka gaman af að
grínast með ólíka siði og venjur
minnar kynslóðar og svo aftur þinn-
ar en aldrei dæmdir þú eða hneyksl-
aðist á nútímaósiðum okkar unga
fólksins þó að oft hafi nú verið
ástæða til.
Það eru svo ótalmargar stundir
sem koma upp í hugann þegar ég
hugsa til baka og þær eiga það allar
sameiginlegt að vera góðar. Heima
hjá þér og ömmu ríkti notalegur og
góður andi. Allt á sínum stað. Ör-
yggi og rólegheit og þið áttuð enda-
lausan kærleik okkur til handa. Það
leið varla sá dagur að við Kristján
frændi kíktum ekki inn hjá ykkur,
gæddum okkur á seríosi eða kókó-
puffsi sem var geymt í leyniskápn-
um og stukkum svo aftur út að
leika. Við fengum líka oft að gista.
Þá keypti afi appelsín í gleri, gerði
gat á tappann með skrúfjárni og við
fengum súkkulaði með. Við fórum
líka ófáar bunurnar í Selvoginn, í
heyskap eða réttir nú eða bara í
sunnudagsbíltúr með eitthvert góð-
gæti í boxi. Á leiðinni var maulaður
perubrjóstsykur. Ég kom svo og
gisti hjá ykkur öðru hvoru alveg
þangað til ég eignaðist manninn
minn. Nú síðast hjá ömmu í nýlið-
inni viku, í herberginu þínu, sem
angar af góðu lyktinni þinni. Ljúf-
sárt.
Eftir að við eignuðumst börnin
okkar hafið þið amma líka tekið
virkan þátt í þeirra lífi. Passað þau
öll þrjú þegar á hefur þurft að
halda, gaukað að þeim góðgæti og
amma óspör á góð ráð varðandi
uppeldið sem auðvitað voru vel þeg-
in.
En þó að við söknum þín mikið
núna vitum við að þetta var þér fyr-
ir bestu úr því sem komið var. Eftir
standa margar og góðar minningar
sem munu bæði ylja okkur og
skemmta vegna þess að þú varst
skemmtilegur og virðingarverður
maður sem kenndi okkur margt um
lífið og tilveruna án þess að hafa um
það mörg orð.
Elsku besti afi okkar. Við þökk-
um fyrir allar yndislegu samveru-
stundirnar sem þú gafst okkur og
megir þú hvíla í friði.
Guðlaug, Róbert og börnin.
Afi reyndist mér vel alla tíð og ég
var alltaf mikið heima hjá ömmu og
afa sem strákur. Þær voru ófáar
ferðirnar sem ég fór með afa á
bryggjuna þar sem við fylgdumst
með öllu sem var að gerast á höfn-
inni, keyrðum oft upp sjógarðinn
sem var vestan við bryggjurnar,
alltaf að tékka á bátunum sem voru
að koma.
Þær eru minnisstæðar allar
stundirnar á bryggjunni og í hinu
og þessu stússi með afa. Afi var
annálaður garðyrkjumaður og
ósjaldan var maður á Haukaberginu
að færa til plöntur með honum þar
sem hann var alltaf að bæta og
breyta enda var mikill sómi að hús-
inu og garðinum hjá afa og ömmu,
Pétur Friðriksson
HINSTA KVEÐJA
Elsku afi.
Takk fyrir allar góðu sam-
verustundirnar og allar góðu
minningarnar sem við eigum
um þig.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn.)
Hlynur og Arna.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐJÓN STEINAR BJARNASON
rafvirki,
áður til heimilis
Dverghömrum 11,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli föstudaginn
29. janúar.
Útförin fór fram föstudaginn 4. febrúar í kyrrþey
að ósk hins látna.
Við þökkum sérstaklega starfsfólki á Skjóli, 4. hæð, fyrir sérlega hlýju
og góða umönnun.
Ragnhildur Guðjónsdóttir, Jón Þór Hjaltason,
Katrín Guðjónsdóttir,
Sverrir Guðjónsson, Auður Auðunsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SESSELJA ÁSMUNDSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Eir,
áður Melabraut 65,
Seltjarnarnesi,
lést laugardaginn 30. janúar.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð,
vináttu og hlýhug.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Eir.
Sólrún Valsdóttir, Eggert Ólafsson,
Helga Valsdóttir, Þórir Jensen,
Sigurður Valsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
MAGNEA ÞÓRA GUÐJÓNSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn
8. febrúar.
Jarðarförin verður tilkynnt síðar.
Birna Óskarsdóttir, Ingvar Elísson,
Ingvar Óskarsson, Birna Ósk Björnsdóttir,
Eyrún Óskarsdóttir, Guðmundur Haraldsson,
Már Óskar Óskarsson, Ingunn Ragnarsdóttir,
Sigurður Óskarsson, Guðrún Leifsdóttir,
Birgir Óskarsson, Guðrún Þ. Kristjánsdóttir,
Kornína Óskarsdóttir, Hlöðver Pétur Hlöðversson,
Erla Óskarsdóttir, Karl J. Valdimarsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
EINAR INGI SIGURÐSSON
fyrrv. heilbrigðisfulltrúi,
Sóleyjarima 15,
Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut
sunnudaginn 7. febrúar.
Katrín Sigurjónsdóttir,
Sigurjón Einarsson,
Kristín Einarsdóttir, Örn Erlingsson,
Aron Arnarson,
Karen Arnardóttir.
✝
Elskulegur faðir okkar, sonur og bróðir,
ÓLI JÓHANN PÁLMASON,
lést á Rihov sjúkrahúsinu í Jönköping, Svíþjóð þriðjudaginn 2. febrúar.
Sigríður Anna Óladóttir,
Jóhanna Björg Óladóttir,
Óli Jóhann Ólason,
Sigríður Anna Jóhannsdóttir, Pálmi Rögnvaldsson,
Hrönn Pálmadóttir,
Rögnvaldur Pálmason,
Örn Pálmason.