Morgunblaðið - 10.02.2010, Qupperneq 27
Menning 27FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010
PÁSKAHÁTÍÐIN í Salzborg er með
helstu tónlistarhátíðum álfunnar og
hefur verið allt frá því Herbert von
Karajan hrinti
henni af stað fyrir
rúmum fjórum
áratugum. Dag-
skráin hefur verið
metnaðarfull og
um páskana
stendur þannig
meðal annars til
að flytja loka-
óperu Nifl-
ungahrings Wag-
ners, Götterdämmerung, í
tónlistarstjórn Simon Rattle og
hljómsveitastjórn Stéphane
Braunschweig.
Það varpar þó skugga á hátíðina að
þessu sinni að stjórnendur hennar eru
sakaðir um að hafa farið frjálslega
með fjármuni og jafnvel dregið sér fé.
Höfuðpaurinn í óreiðunni er Michael
Dewitte, framkvæmdastjóri hátíð-
arinnar síðasta áratug, sem settur var
af í desember eftir að málið komst
upp. Tæknilegur stjórnandi hennar,
Klaus Kretschmer, var svo rekinn í
síðasta mánuði fyrir sömu sakir og
reyndi í kjölfarið að svipta sig lífi und-
ir brú í Vínarborg. Talið er að þeir hafi
komið hálfum milljarði króna undan
og leynt á bankareikningum víða.
Að því er fram kemur í þýskum fjöl-
miðlum er líklegt að ekki séu öll kurl
komin til grafar og rannsóknin beinist
nú að fleiri stjórnamönnum hátíð-
arinnar sem sakaðir eru um að hafa
veitt sér ýmsar sporslur og auka-
greiðslur án heimildar, aukinheldur
sem svo virðist sem einn tugmilljóna
styrkur tengist viðleitni rússnesks
gefanda til að öðlast ríkisborgararétt í
Austurríki. Nú er verið að skoða
reikninga Salzborgarhátíðarinnar
sem haldin er á sumrin, en þessar
tvær hátíðir eru tengdar.
Fjármála-
ópera
Ásakanir um fjár-
drátt í Salzborg
Herbert von
Karajan
SÖNGBRÆÐURNIR frá Álfta-
gerði í Skagafirði, þeir Sigfús, Pét-
ur, Gísli og Óskar Péturssynir, eru
væntanlegir suður yfir heiðar til að
halda tvenna tónleika um næstu
helgi. Fyrri tónleikarnir verða í
Borgarneskirkju föstudagskvöldið
12. febrúar kl. 20.30 og þeir seinni í
Fella- og Hólakirkju í Reykjavík
laugardaginn 13. febrúar kl. 16.
Söngstjóri bræðranna og undirleik-
ari er sem fyrr Stefán R. Gíslason.
Gömul og ný lög verða á efnis-
skránni en Álftagerðisbræður eru
líkast til sá söngkvartett sem starfað
hefur einna lengst samfellt hér á
landi, eða í 23 ár. Komu þeir fyrst
saman til að syngja við útför föður
síns, Péturs Sigfússonar, í Víðimýr-
arkirkju í Skagafirði haustið 1987.
Bræðurnir eru í góðu formi en
ómögulegt er að ráða í hvað kvart-
ettinn starfar lengi enn. Elstur
bræðranna, Sigfús, kemst á „lögleg-
an“ aldur í vor, eins og hann orðar
það sjálfur, eða 67 ára. Pétur er
næstelstur, senn 65 ára. bjb@mbl.is
Bræður á
suðurleið
Álftagerðisbræður Síungir og kát-
ir á leið í tónleikaferð suður.
ÞÝSKA bókaforlagið Deutsc-
her Taschenbuch Verlag, dtv,
hyggst gefa þrjár skáldsögur
Hallgríms Helgasonar út í
kilju, en dtv er eitt öflugasta
kiljuforlag í Þýskalandi. Skáld-
sögurnar eru 10 ráð til að
hætta að drepa fólk og byrja að
vaska upp, Rokland og 101
Reykjavík.
Tvær síðarnefndu bækurnar
hafa þegar komið út inn-
bundnar í Þýskalandi á vegum forlagsins Klett-
Cotta og 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja
að vaska upp, sem heitir Zehn Tipps, das Morden
zu beenden und mit dem Abwasch zu beginnen á
þýsku, kom út í vikunni.
Bókmenntir
Hallgrímur í kilju
í Þýskalandi
Kápa þýskrar út-
gáfu á 10 ráð...
FYRIRLESTRARÖÐ um
sjálfsmynd Íslendinga á vegum
Rannsóknamiðstöðvar um
ímyndir Íslands og norðursins í
ReykjavíkurAkademíunni, og
Reykjavíkur-Akademíunnar
verður fram haldið næstkom-
andi föstudag en þá ræðir Sig-
urður Jóhannesson hagfræð-
ingur um sjálfsmat Íslendinga
undir yfirskriftinni „Þægileg
blekking og beiskur raunveru-
leiki“. Fyrirlesturinn, sem er í samstarfi við Há-
skólann á Bifröst, verður haldinn í Reykjavík-
urAkademíunni, Hringbraut 121, frá kl. 12 og
sendur út á netinu á vef Háskólans á Bifröst en
þar verður jafnframt hægt að nálgast upptökur.
Þjóðfræði
Blekking og beisk-
ur raunveruleiki
Sigurður
Jóhannesson
BARNA- og fjölskyldu-
tónleikar verða í Langholts-
kirkju næstkomandi sunnu-
dag. Verður flutt tónverkið
Pétur og úlfurinn eftir rúss-
neska tónskáldið Sergei
Prokofieff í orgelbúningi.
Lára Bryndís Eggertsdóttir
leikur verkið á á orgel kirkj-
unnar í tilefni af 10 ára afmæli
orgelsins, en sögumaður verð-
ur leikarinn Örn Árnason.
Auk þeirra koma fram Krúttakórinn undir stjórn
Huldu Daggar Proppé og Þóru Björnsdóttur,
Kórskólinn undir stjórn Þóru Björnsdóttur og
Graduale Futuri undir stjórn Rósu Jóhann-
esdóttur. Miðasala verður við innganginn.
Tónlist
Pétur og úlfurinn
í orgelbúningi
Tónskáldið Sergei
Prokofieff
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
JAZZHÁTÍÐ í Reykjavík á sér
langa og viðburðaríka sögu og fer
enn stækkandi. Síðasta djasshátíð
var ein sú um-
fangsmesta og
best sótta í tutt-
ugu ára sögu há-
tíðarinnar og nú í
febrúar bætist
enn við fjöður í
hennar hatt því
sérstök Vetrar-
jazzhátíð verður
haldin í Reykja-
vík í fyrsta sinn;
hefst næstkomandi fimmtudag og
stendur fram á mánudag.
Pétur Grétarsson er fram-
kvæmdastjóri og listrænn stjórn-
andi Jazzhátíðar í Reykjavík og ber
því hitann og þungann af þeirri hátíð
sem nú fer í hönd. Hann tók við há-
tíðinni fyrir nokkrum árum og segir
að þá þegar hafi menn rætt það að
halda djasshátíð um miðjan vetur,
en fyrir ýmsar sakir, þar á meðal
hagkerfishrun, hafi ekki orðið af því
fyrr en núna.
Alls konar skemmtileg verkefni
„Það kom mjög vel út að færa að-
alhátíðina til þess tíma sem allt er
fullt af fólki og við ætlum að halda
því áfram, en svo langaði okkur að
reyna að halda aðra hátíð utan anna-
tíma, bæði til að bjóða upp á
skemmtun fyrir ferðamenn og fólk
almennt og svo eru líka að detta upp
í hendurnar á okkur alls konar
skemmtileg verkefni allt árið.“
Eins og Pétur rekur söguna stóð
upphaflega til að hafa hátíðina að-
eins tvo daga og tengja hana vetr-
arhátíð, en þegar sú var slegin af
breyttist dagskráin heldur og lengd-
ist, en hún er nú í sambandi við
Safnanótt sem haldin verður næst-
komandi föstudag og þanig verður
sérstök djassdagskrá í Norræna
húsinu á föstudagskvöld tengd
Safnanótt. Eins munu djasssveitir
frá Noregi og Finnlandi leika í Nor-
ræna húsinu en að öðru leyti verður
tónleikahald að mestu leyti í Jazz-
kjallara Múlans á Kaffi Kúltúra, en
einir tónleikar verða í Þjóðmenning-
arhúsinu.
Pétur nefnir einmitt norrænu
sveitirnar þegar ég spyr hann hvað
sé markverðast að sjá og heyra á há-
tíðinni; „þetta eru þær hljómsveitir
sem hafa lotið í gras fyrir íslenskum
hljómsveitum á djasskeppnum úti í
Noregi“, segir hann og hlær við, en
með því vísar hann í það er hljóm-
sveitin Reginfirra varð í fyrsta sæti
á Norðurlandamóti ungra jazzara
og norska sveitin PELbO varð þá í
öðru sæti, en sú finnska, Plop, er
líka í fremstu röð. „Við höfum líka
reynt að leggja aðeins meiri áherslu
á norrænt samstarf, við getum ekki
bara verið þiggjandi í því sambandi,
farið út til að spila og hirða bik-
arana, heldur er Nordjazz mjög
mikilvægur samstarfsvettvangur og
gaman að fá frábærar norrænar
hljómsveitir hingað.“
Alls verða tíu uppákomur á
vetrardjasshátíðinni og flestar á
Kaffi Kúltúra sem Pétur segir að
það sé öðrum þræði til að vekja at-
hygli á því góða djassstarfi sem þar
sé unnið allt árið og færist sífellt í
aukana, enda sé nóg um að vera í ís-
lensku djasslífi og mikil endurnýjun.
„Það er mikið af ungum jazzleik-
urum en svo hafa línur á milli tónlist-
arstefna dofnað og jafnvel horfið
sem betur fer.“
Nóg um að vera í íslensku jazzlífi og mikil endurnýjun
Vetrarjazz í Reykjavík
Finnsk Upprunaleg Plop, en bassaleikarinn í Íslandsförinni er danskur.
Norsk PELbO; sérstök hljóðfæraskipan: túba, slagverk, rödd og rafeindir.
SVONEFND Græn tónleikaröð Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands er sérstaklega ætluð fyrir þekkta
og vinsæla klassík og á tónleikum í Háskólabíói
annað kvöld verða þannig leikin meðal annars
verkin Carmina Burana eftir Carl Orff og Bolero
eftir Ravel, en bæði verkin hafa notið geysivin-
sælda.
Kórverkið Carmina Burana, sem Carl Orff
samdi upp úr handriti með trúar-, ástar- og
drykkjusöngvum frá 12. og 13. öld, var frumflutt
1936 og það hefur verið gríðarlega vinsælt að segja
frá frumflutningnum. Carmina Burana, sem heyrð-
ist fyrst á Íslandi vorið 1960, hefur margoft heyrst
hér, en Sinfóníuhljómsveitin hefur fjórum sinnum
áður staðið fyrir flutningi þess.
Bolero eftir Ravel, sem tónskáldið samdi að
beiðni ballettdansmeyjar og hefur nafn sitt frá
spænskum dansi, þótti mjög óvenjulegt á sínum
tíma og hefur ekki verið síður vinsælt frá því það
var frumflutt 1928. Til viðbótar við þessi verk verða
fluttir Dansar frá Polovetsíu eftir Alexander Bo-
rodin, sem einnig hafa notið hylli og skemmst að
minnast þess að tónlistin hefur verið notuð í Broad-
way-söngleiki, í Simpsons-þáttum og tölvuleikjum.
Stjórnandi á tónleikunum verður Rumon
Gamba, aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórn-
andi Sinfóníuhljómsveitar Íslands síðastliðin átta
ár. Einsöngvarar eru Hallveig Rúnarsdóttir, enski
söngvarinn Mark Tucker, sem söng áður með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands vorið 2008 í Missa solemnis
eftir Beethoven, og Jón Svavar Jósefsson. Einnig
syngja Óperukórinn undir stjórn Garðars Cortes
og Gradualekór Langholtskirkju undir stjórn Jóns
Stefánssonar.
Carmina Burana og Bolero
Grænt Rumon Gamba, aðalhljómsveitarstjóri og
listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Þekkt og vinsæl klassík á
tónleikum Sinfóníunnar
Ritstjórn tímaritsins
gerði sér ekki grein
fyrir því að greinin var
þvættingur 30
»
Eins og fram kemur hér til hlið-
ar hefst Vetrarjazzhátíðin næst-
komandi fimmtudag og stendur
fram á mánudag; fyrstu tónleik-
arnir verða með Tríói Reynis
Sigurðssonar í Kaffi Kúltúra kl.
21:00 á fimmtudagskvöld og
þeir síðustu á sama stað, einnig
kl. 21:00, en þá leiðir Bebop-
félagið jamsession.
Tónleika verða að mestu
haldnir á Kaffi Kúltúra, jafnt
uppi sem í jazzkjallaranum Múl-
anum. Tvennir tónleikar verða
þó í Norræna húsinu, annars
vegar í tengslum við Safnanótt
þar sem boðið verður upp á sýn-
ishorn af því sem verður í boði á
Vetrarjazzhátíð og hinsvegar
troða þar upp djasssveitir frá
Noregi og Finnlandi. Einir tón-
leikar verða í Þjóðmenning-
arhúsinu, en þar kynnir Sig-
urður Flosason nýlegan
geisladisk sinn.
Dagskrá hátíðarinnar er hægt
að skoða á vefsetrinu
www.reykjavikjazz.is, en einnig
er hægt að fá dagskrána senda í
farsíma með því að fara á get-
.mobileguide.is.
Vetrarjazz
Pétur
Grétarsson